Morgunblaðið - 15.04.1977, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.04.1977, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTÚDAGUR 15. APRlL 1077 Mjög góð aðsókn að Kjamorku og kvenhylli J6n Sij'urhjörnsson hóndinn, og Gfsli llalldórsson þinKmaóurinn í hlulvcrkum sfnum. KJARNORKA og kvenhylli, eftir Agnar Þórðarson sem Leikfélag Reykjavíkur hefur sýnt á laugar- dagskvöldum í vetur í Austur- bæjarhfói f Reykjavfk, hefur nú verið sýnd alls 23 sinnum. Uppselt hefur verið á flestar sýningar og var áformað að Ijúka sýningum fyrir páska, en nú hefur því verið breytt og verða sýningar á laugardagskvöldum út aprílmánuð. Nokkrar breytingar hafa orðið á hlutverka.skipan vegna veikinda og þannig hefur Sigríður Hagalín tekið við einu af aðalhlutverkun- um af Margréti Ólafsdóttur, og Soffía Jakobsdóttir leikur nú bankastjórafrúna. Með önnur helstu hlutverk í leiknum fara Kjartan Ragnarsson, Ragnheiður Steinþórsdóttir, Áróra Halldórs- dóttir, Jón Sigurbjörnsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir og Gisli Halldórsson. Ný bók í>orsteins Stefánsson ar gefin út á dönsku og ensku Oxford Univorsity Press hefur ákveðið að gefa út skáldsoguna „Trúlofunar- hringinn" eftir Þorstein Stefánsson, en bókin kem- ur út á dönsku hjá Birgitte Hövrings Biblioteksforlag með haustinu. Sögusvið bókarinnar eru Kaup- mannahiifn, Málmey og Stokk- hólmur en rætur sinar rekur sag- an til íslands, segir i fréttatil- kynningu frá danska útgefandan- um. Þá segir og, að i umsögn hrezka útgáfufyrirtækisins segi, að sagan sé áhrifamikil með vel útfærðum persónum og atburða- rás. | s MiAWtU FLÓKAGÖTU 1 SÍMI24647 Einbýlishós — Eigna- skipti Hef í einkasölu einbýlishús á Flötunum í Garðabæ 140 fm, 6 herb. og bílskúr. Skipti á 4ra — 5 herb. íbúð í Reykjavik æskileg. Við Flókagötu 3ja herb. vönduð kjallaraíbúð. Ræktuð lóð. Við miðbæinn 3ja herb. rúmgóð íbúð á 2. hæð í steinhúsi. Tvöfalt verksmiðju- gler í gluggum. Sér hiti Ný eldhúsinnrétting. Við Kleppsveg 4ra herb. rúmgóð og vönduð íbúð á 1. hæð í nýlegu húsi. Tvennar svalir. Sér hiti Sér þvottahús á hæðinni. Lóð frá- gengm Laus strax. Helgi Ólafsson löggiltur fasteignasali kvöldsími 211 55. 33510 — 85650 — 85740 Seljendur fasteigna athugið: Erum að undirbúa útkomu á nýrri söluskrá Hringið í okkur strax í dag og við verðmetum íbúðina ef þér óskið þess Til sölu Einbýlishúsalóð í Mosfellssveit. 5 herb íbúð í Breiðholti 2 t.b. undir tréverk og málningu. Fast verð. Til afhendingar í ágúst. Eignaval Suðurlandsbraut 10, Grétar Haraldsson hrl., Sigurjón Ari Sigurjónsson, heimasími 81561 Bjarni Jónsson, heima heimasími 13542. Litið iiui ílðn- skólann á ísafirði Valdimar Jónsson, skólastjóri Frá vélasalnum. Iðnskólinn á nú þrjár dfsilvélar og hér eru nemendur að setja eina þeirra saman. Iðnskólinn ísafirði er til húsa L leiguhúsnæði sem hann fluttist í fyrir nokkrum árum við höfnina 1 Neðstakaupslað á tsafirði og var byggt sem fiskvinnsluhús. Skól- inn hefur til afnota um 600 fer- metra húsnæði og nú stendur yfir hugmyndasamkeppni innan skól- ans um að nýta hluta þess á ein- hvern hátt i þágu skólans, hluta, sem hann hefur ekki haft til af- nota áður. Valdimar Jónsson er skólastjóri Iðnskólans og ræddi hlaðamaður Mbl. við hann um starfsemina. — Heildarfjöldi nemenda yfir veturinn er 105 alls og í haust innrituðust 70 nýir nemendur, sagði Valdimar. Skólinn fluttist í þetta húsnæði hér við Suðurgötu, sem er í eigu „Vestra h.f.“ árið 1970 og má segja að hann sé all vel búinn tækjum og hefur skól- inn nú yfir að ráða þrem diselvél- um. — Þegar ég kom hér að skólan- um, haustið 1975, var hér fyrir skóli þar sem kenndar voru fimm mismunandi námsbrautir við ótrúlega bág skilyrði. Hefur innra skipulag skólans haldist í aðal- atriðum en ytri skilyrði hafa batn- að til muna einkum hvað varðar húsnæðisaðstöðuna. Þó hún sé ekkert sérstök er hún mun betri en hún var i fyrra og eru kennslu- stofurnar nú 8 með vélasölum. Valdimar, sem útskrifaðist sem byggingatæknifræðingur árið 1971, starfaði áður við verkfræði- skrifstofu í Reykjavík og var hann spurður að því hvernig hon- um hefði fallið að skipta um starf: — Ég veit nú eiginlega ekki hvað ég á að segja um það, ég kann vel við starfið og ég kann vel við að búa svona úti á landi, en það hef ég ekki gert áður. Það gerðist sem sé það tvennt í einu að ég flutti út á land og skipti um starf og ég kann vel við hvort- tveggja. Það eru margir kostir við að búa úti á landi. — Skólastarfið er jöfnum höndum kennsla og stjórnunar- starf, kennslan þó ef til vill held- ur meiri en hitt, og má ef til vill segja aö það geti komið niður á stjórnunarstarfinu. En þetta er lærdómsríkt starf og, ég kynnist mörgum og nýjum hlutum. — Ég hafði að visu ekki starfs- reynslu áóur sem kennari, þar sem ég hafði áður unnið á verk- fræðiskrifstofu. Mín reynsla af skóla var því ekki meiri en allir aðrir hafa sem gengið hafa eitt- hvað að ráði í skóla. En það segir kannski nokkuð um erfiðleikana á því að fá fólk til starfa úti á landi. Eru nemendur óánægðir með aðstöðuna hér? — Þeir láta það ekki svo mikið í ljós, þeir vita vel við hvaða erfið- leika skólinn á að etja, þeir hafa veður af öllum skipulagsmálum og stjórnunarmálum, slíkt er óhjákvæmilegt í svo litlum skóla, þar sem nemendur eru fáir og tengsl við kennara þvi mjög náin. Okkur, sem sjáum um málefni skólans, er ekki stillt upp við vegg og geröar á okkur kröfur, við rennum meira og minna saman við hópinn má segja. Við lítum líka á nemendur sem fullorðið fólk, enda eru þeir oftast á aldrin- um 17 — 18 — 19 ára eða enn eldri og viö reynum aö gera nemendur ábyrga fyrir skóla- starfinu eins og efni standa til. Við erum t.d. núna með hug- myndasamkeppni um hvernig á að nýta gang hér frammi, sem við fengum nýlega leyfi hjá húseig- PHtarnir voru farnir að þvo sér, þvf kaffitfminn var framundan. Þessi mynd er úr einni kennslustofunni, en skólastjórinn sagði að skðlinn væri nokkuð vel búinn tækjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.