Morgunblaðið - 15.04.1977, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.04.1977, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRlL 1977 21 Benedikt Gröndal Síðasta Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins fyrir páska var helgað Alþýðuflokknum og af- stöðu hans til varnarmála. Höfðu skrif ungra jafnaðar- manna á SUJ-siðu Alþýðublaðs- ins komið bréfritara i uppnám, svo að hann krafðist skýringa frá forystu flokksins og bauð fram rúm á siðum Morgun- blaðsins í þeim tilgangi. Þetta boð tel ég sjálfsagt að þiggja. í Reykjavíkurbréfinu var býsnazt yfir stefnu og orð- bragði hinna ungu jafnaðar- manna i varnarmálum og talið, að kommúnistar séu að koma sér upp deild i Alþýðuflokkn- um. Þá var á það bent, að Al- þýðuflokkurinn hefði alla tíð fylgt ábyrgri stefnu í varnar- málum og haft þar forystuhlut- verki að gegna><(og spurt, hvort nokkur breyting sé að verða i þeim efnum. Spurningunni er fljótsvarað: 1) Engin breyting hefur orðið á stefnu Alþýðuflokksins í varnarmálum. Sllk breyt- ing verður ekki nema með ákvörðun flokksins, og er engin hætta á að það færi leynt, þvl þingin eru haldin fyrir opnum tjöldum. Er óþarfi að eyða sfðum Morgunbiaðsins í vanga- veltur um þetta atriði. 2) Aliar götur sfðan Atlants- hafsbandalagið var stofnað 1949 hefur verið minnihluti í Alþýðuflokknum, sem er andvfgur þessari stefnu. Eins og sæmir f lýðræðis- flokki hefur minnihlutinn f þessu máli sem öðrum fullt frelsi til að halda fram skoðunum sfnum innan Al- þýðuflokksins sem utan, og hann fær rúm til að koma þeim á framfæri f blöðum flokksins, þar á meðal Al- þýðublaðinu. Þann rétt þeirra mun ég verja, þótt ég sé þeim ekki sammála. Lýð- ræðið er styrkur Alþýðu- flokksins en ekki veikleiki. Síðasta flokksþing sam- þykkti nýja stefnuskrá fyrir Al- þýðuflokkinn, en venja er að endurskoða stefnuskrár á 15—20 ára fresti. Við athugun þótti ekki rétt að binda aðild að Atlantshafsbandalaginu i stefnuskrá til svo langs tíma, enda var aðildin ekki nefnd i gildandi stefnuskrá frá 1963. Um þetta var algert samkomu- lag og felst ekki i þessu stefnu- breyting. Þingið staðfesti hins vegar núverandi stefnu flokks- ins óbreytta með ályktun, sem gildir a.m.k. til næsta flokks- þings, en svo hefur verið gert undanfarna áratugi. II Jafnaðarmenn hafa alla tíð átt mikinn þátt í styrk Atlants- hafsbandalagsins, og nægir að nefna frá fyrstu og erfiðustu árum þess menn eins og Ernest Bevin i Bretlandi, Paul Henri Spaak í Belgíu og Halvard Lange í Noregi. Jafnaðarstefnan fjallar um leiðir til að gera mannlegt þjóð- félag sem frjálsast og bezt, tryggja jafnrétti og velferð allra. Það er meginatriði stefn- unnar að berjast gegn einræði og ófrelsi, hvaðan sem þær hættur ber að. Höfuðandstæður jafnaðarstefnunnar eru þvi kommúnismi og kapitalismi, vald f jármagnsins yfir fólkinu. Af þessu leiðir, að það er fyr- ir mörgum jafnaðarmönnum al- varlegt stefnumál, hvort styðja skuli aðild að ýmsum alþjóðleg- um samtökum, þar sem and- stæð þjóðfélagsöfl mega sin mikils, og á þetta til dæmis við um Atlantshafsbandalagið og Efnahagsbandalag Evrópu. um, hvort hann mundi styðja inngöngu Noregs f NATO í dag, hefur hann svarað með þvi að spyrja, hvernig heimsmálum væri komið nú, ef Atlantshafs- bandalagið hefði ekki komið til. Það hefur verið friður i Evrópu og engin þjóð hefur misst frelsi sitt, segir hann. Hann bætir þvi við, að hann hafi oft rætt þessi mál við hinn sænska starfsbróð- ur sinn, Tage Erlander, og þeir hafi verið sammála um, að bezt hafi verið, að svona fór. „Eins og norrænu löndin eru staðsett á kortinu er ekki svo fráleitt, að Danmörk, ísland og Noregur séu tengd vestrænum varnar- samtökum, Finnland hafi sam- komulag við Sovétrikin og Sví- þjóð sé hlutlaus.“ Svo fór um alla Vestur- Evrópu, að yfirgnæfandi meiri- hluti jafnaðarmanna taldi stofnun og styrk Atlantshafs- bandalagsins vera einu leiðina til að tryggja frið í álfunni og varðveita frelsi þeirra þjóða þar, sem ekki höfðu glatað því fyrir 1949. Árin síðan hefur rikt mikil velmegun í hinum Benedikt Gröndal AIþýóufk)kkurinn og varnarmálin Þegar flokkar jafnaðarmanna hafa gert slík rnál upp við sig og markað sér stefnu, hafa þeir undantekningalaust verið traustir i stuðningi sinum. Sem dæmi má nefna, að jafnaðar- menn í Vestur-Þýzkalandi voru i fyrstu andvígir aðild að NATO, en breyttu formlega þeirri stefnu. Æskulýðssamtök þeirra halda þó enn uppi and- stöðu í þessu sem ýmsu öðru, og er viðsýni og umburðarlyndi Willy Brandt fyrir að þakka, að þau hafa ekki klofið flokkinn. Ágreiningur um aðild íslands að NATO var mestur í Alþýðu- flokknum þegar við stofnun bandalagsins. Sams konar ágreiningur var þá einnig í norska Verkamannaflokknum og risti dýpra en flestir gera sér grein fyrir. Sagnfræðingur hef- ur orðað það svo, að leið Noregs inn í NATO hafi verið „barátta um sál Einars Gerhardsens," þáverandi forsætisráðherra. Sjálfur játar Einar í endur- minningum sinum, að nokkuð hafi verið til i þessu. Svo óttað- ist hann klofning af gamalli reynslu, að hann steig með itrustu gætni hvert skref. Þegar Gerhardsen hefur ver- ið um það spurður á seinni ár- frjálsu löndum álfunnar og þau hafa öll kosið að koma upp vel- ferðarríkjum, sem er mikill sig- ur fyrir jafnaðarstefnuna. Á móti kemur samdráttur fjár- magns og áhrifa í hinum risa- vöxnu fjölþjóða auðhringum, en það styrkir stöðu auðmagns- ins. Atlantshafsbandalagið hefði aldrei orðið til eða dafnað án sterkrar þátttöku evrópskra jafnaðarmanna, og leiðtogar þeirra hafa gegnt mikilvægu forystuhlutverki innan þess. Hér á landi hafa þeir einnig átt veigamikinn þátt í mörkun stefnunnar i varnarmálum, og nægir að nefna i þvi sambandi menn eins og Stefán Jóhann Stefánsson, Guðmund í. Guð- mundsson og Emil Jónsson. III Hér á landi skiptast þeir, sem eru mótfallnir aðild að Atlants- hafsbandalaginu, i tvo hópa. í öðrum eru þeir, sem fyrst og fremst vilja draga ísland út úr samtökum vestrænna lýð- ræðisríkja til að tengja það smám saman kommúnista- ríkjunum. í hinum hópnum, vafalaust mun fjölmennari, er fólk, sem af einlægri þjóðerniskennd tel- ur aðild að NATO — og alveg sérstaklega dvöl varnarliðs í landinu — ekki samrýmast hugsjónum sinum um sjálf- stæði þjóðarinnar. Morgunblaðið gerir ekki mun á þessum hópum, heldur er fljótt að setja kommúnista- stimpil á hvern þann, sem ekki fylgir blaðinu gegnum þykkt og þunnt í utanríkis- og varnar- málum. Ritari Reykjavikur- bréfsins lætur ekki sitt eftir liggja. Hann segir, að „komm- únistar séu að koma upp sér- stakri deild innan Alþýðu- flokksins,“ af þvi að á síðu Sam- bands ungra jafnaðarmanna í Alþýðublaðinu var með nokkr- um þunga boðuð stefna, sem SUJ hefur haft í 28 ár! Hafa ritstjórar Morgunblaðs- ins aldrei íhugað, hversu mikla hjálp þeir hafa veitt kommún- istum og Alþýðubandalaginu með óvarlegri notkun kommún- istastimpilsins? Brezka vikurit- ið Economist sagði fyrir skömmu um Franco, nýlátinn einræðisherra Spánar, að hann hafi hjálpað kommúnistum stórkostlega með því að telja þá höfuðandstæðinga sína í ára- tugi og kalla alla mótstöðu- 'menn kommúnista, jafnvel þótt þeir væru römmustu andstæð- ingar kommúnismans. Morgun- blaðið hefur dyggilega fylgt þessari óheillastefnu Francos — og er ekki leiðum að líkjast. Það eru sem betur fer margir reiðir ungir menn i Alþýðu- flokknum, og þeir starfa innan ramma lýðræðislegrar skipunar flokksins. Óþarfi er að vera uppnæmur fyrir þvi, þótt þeir séu stundum fullyrðingasamir og stórorðir, það kemur fyrir á beztu bæjum í pólitikinni. Holl- ara er að minnast hins forn- kveðna, að oft verður góður hestur úr göldum fola. IV Ég er jafn sannfærður um það i dag og ég var fyrir 28 árum, að sú stefna íslenzka lýð- veldisins í öryggismálum, sem þá var mörkuð, var rétt. Sam- kvæmt öllum lögmálum utan- rikismála, valdatogi og valda- jafnvægi risaveldanna, land- fræðilegri stöðu og þróun vopnabúnaðar, kom ekki annað til mála en taka þátt í varnar- samtökum grannríkja okkar við Norður Atlantshaf. Þótt margt hafi breytzt til hins betra og líkur á styrjöld milli stórvelda minnkað, eru þessi grundvall- aratriði enn óbreytt. Valdatafl- ið heldur áfram og vigbúnaðar- kapphlaup er í algleymingi. Varnarlaust ísland mundi eins og nú horfir gerbreyta jafn- vægi á nyrzta hluta Atlants- hafs, staða Noregs mundi stór- versna og þrýstingur á íslend- inga magnast. Við þurfum sannarlega að hugsa meira og raunhæfar um þessi mál en við höfum gert og gera okkur grein fyrir framþróun þeirra án allra hleypidóma. íslenzka þjóðin hefur verið þverklofin i utanríkis- og ör- yggismálum allt frá lokum heimsstyrjaldarinnar. Þessi klofningur er til lengdar hættu- legur, af því að einmitt þessi mál eru beint framhald sjálf- stæðisbaráttunnar. Það er skylda ábyrgra maima að reyna að draga úr ágreiningi og ein- angra þá fámennu hópa, sem vísvitandi stefna i ógæfuátt. í varnarmálum hefur komm- únistum, sem stjórna Alþýðu- bandalaginu og Þjóðviljanum, oft tekizt að stela ættjarðarást- inni frá okkur hinum og beita henni fyrir pólitiskan vagn sinn. Er ekki kominn tími til að refsa þeim fyrir þvilikan þjófn- að? Það verður þó ekki gert með tilefnislausum skrifum eins og Reykjavikurbréfinu um Alþýðuflokkinn og varnarmál- in. Snjallir og vitrir ritstjórar stærsta dagblaðs þjóðarinnar mega ekki skemmta skrattan- um með slíku frumhlaupi. Smyslovhjónin. innur nnar — Ég hefi átt þess kost að kynnast fólki úr ýmsum at- vinnugreinum; læknum, lög- fræðingum, verkamönnum, fiskimönnum, skrifstofufólki, bankamönnum og einnig fjöl- mörgum unglingum, en allt sameinast þetta fólk i dálæti sinu á skáklistinni. — Kona mín og ég minnumst með mikilli ánægju heimsóknar til Bessastaða þar sem við hitt- um forseta islands, dr. Kristján Eldjárn, kunnan visindamann, og einnig heimsóknar til borgarstjórans í Reykjavík, Birgis isleifs Gunnarssonar. Báðir þessir virðulegu forystu- menn sýndu mikinn áhuga á skáklistinni. — Við hjónin eruum þeim innilega þakklát fyrir gestrisni og hlýjar móttökur. — Þá vil ég vikja að móts- haldinu. Skákmót og skákiðkun almennt krefst mikillar skipu- lagsvinnu. Mig langar til að ljúka miklu lofsorði á forseta og varaforseta Skáksambands- ins, þá Einar S. Einarsson ög Högna Torfason, fyrir störf þeirra. Þeir hafa sýnt einstakan dugnað til framdráttar skáklif- inu í landinu. Hið sama gildir um aðra stjórnarmenn og einn- ig þann fjölda starfsmanna, sem leggar nótt við dag í þágu skákarinnar. — Ég vil einnig nota þetta tækifæri til að þakka gömul og ný kynni við Guðmund G. Þórarinsson, fyrrv. forseta Sí, og Jóhann Þóri Jónsson, rit- stjóra „Skákar." — Hin eftirminnilegu skák- mót, sem haldin hafa verið á íslandi á undanförnum árum, hinn mikli áhugi fjölmiðlanna á skák, hefur að mínum dómi skapað grunninn fyrir þeim vonum margra, að frábær skák- mannsefni komi fram hér á ís- landi. í fjölteflum minum hefi ég kynnzt nokkrum mjög efni- legum unglingum. Meðal hinna hæfileikamiklu ungu skák- manna, sem hafa aðstoðað mig við skýringar í Aukaútgáfu „Skákar“, tel ég Jón L. Árna- son, aðeins 16 ára, efni í mikinn skákoeistara. — Ég vildi mega ljúka þess- um orðum með því að flytja öllu starfsfólki Hótel Loftleiða einlægar þakkir okkar hjóna. Það hefur ekki einungis lagt til frábæran keppnisstað, heldur einnig sýnt okkur einstaka gestrisni og veitt afburða góða þjónustu til þess að gera dvöl okkar nú i nærfellt tvo mánuði tíma þæginda og ánægju. — h.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.