Morgunblaðið - 23.04.1977, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23 APRlL 1977
Lýst eftir
sjómanni
RANNSÓKNARLÖGREGLAN f
Keflavík hefur lýsl eftir Pétri
Söebeck Benediktssvni, Hrafna-
gilsstræti 10, Akureyri, en hans
hefur verið saknað um eins mán-
aðar skeið eða frá því að hann
hvarf frá báti sínum, Blika ÞH 10,
þar sem hann var háseti, aðfarar-
nótt laugardagsmorguns 19. marz
en báturinn er gerður út frá
Sandgerði.
Vitað er að Pétur hvarf frá
borði um fjögur-leytið um nóttina
og var þá nokkuð við skál. Hins
vegar var þá ekki strax tekið að
óttast um hann, því að Pétur hafði
áður horfið fyrirvaralaust og ekki
látið frá sér heyra um skeið. Síð-
an hefur hins vegar verið hafin
skipulögð leit að honum, frosk-
menn hafa kafað í höfnina og
björgunarsveitarmenn á Suður-
nesjum hafa gengið fjörur en án
árangurs.
Pétur er 23ja ára að aldri,
meðalmaður á hæð, svarthærður
og frekar grannvaxinn.
98 sækja um
humarleyfi
Humarveiðar hefjast að þessu
sinni þann 20. maí n.k. og eins og
kunnugt er hefur verið heimilað
að veiða 2800 lestir af humri í
sumar. Mikill áhugi er hjá út-
gerðarmönnum á veiðum þessum
eins og svo oft áður, óg í gær
höfðu sjávarútvegsráðuneytinu
borizt 98 umsóknir, en til þess að
geta stundað þessar veiðar verða
skipin að uppfylla viss skilyrði.
í fyrrasumar stunduðu um 100
skip humarveiðarnar.
Fjöldi fólks, og þá ekki sízt börn og unglingar, tóku þátt í skemmtunum á
sumardaginn fyrsta. Þessi mynd sýnir börn og fullorðna í sumarfagnaði við
Austurbæjarskólann í Reykjavík.
Veiðisvæði lokað á Skagagrunni;
Lítið að fá annað en
þorskinn frá
Sex sækja um
stöðu skóg-
ræktarstjóra
UMSÖKNARFRESTUR um
starf skógræktarstjóra ríkisins
rann út í vikunni. Samkvæmt
upplýsingum, sem blaðið fékk
í landbúnaðarráðuneytinu,
bárust sex umsóknir um starf-
ið og eru umsækjendur þessir:
Baldur Þorsteinsson, fulltrúi
skógræktarstjóra, Guðmundur
Örn Árnason, skógfræðingur,
Haukur Ragnarsson tilrauna-
stjóri, Sigurður Blöndal,
skógarvörður, Snorri Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri, og
Þórarinn E. Benediktz, skóg-
fræðingur.
Radarhlíf
á Gullfaxa
skemmdist
í árekstri
—VIÐ fengum bara lánaða
aðra radarhlíf og flugvélin fór
út á tíma í morgun, sagði
Sveinn Sæmundsson, blaða-
fulltrúi Flugleiða, í samtali við
Mbl. í gær, en í fyrradag rakst
bíll á nef Gullfaxa á Kefla-
víkurflugvelli og skemmdi
radarhlífina.
Bíllinn er notaður til að
flytja matföng í flugvélarnar.
Radarhlífin, sem er úr plasti,
er fremst á nefi vélarinnar og
kom sprunga í hlífina. Viðgerð
fór fram í fyrrinótt.
Handtökumálið
til saksóknara
— ÞESSAR Upplýsingar
reyndust ekki gefa tilefni til
að taka upp dómsrannsókn
málsins aó nýju svo ég mun nú
senda það til saksóknara, sagði
Steingrimur Gautur
Kristjánsson, umboðsdómari i
handtökumálinu svonefnda og
ávísanamálinu.
Sagði Steingrímur, að hann
hefði hinkrað með að senda
handtökumálið vegna „umtals
um stúlkur", en það hefði', þeg-
ar til kom, ekki verið neitt til
að byggja á.
Um ávísanamálið sagði
Steingrímur Gautur, að rann-
sókn þess væri í eðlilegum
gangi. Hann vildi ekkert segja
til um, hvað langt væri í land
þar.
Hádegisverðar-
fundur hjá Hvöt
Á hádegisverðarfundi hjá
Hvöt, félagi Sjálfstæðis-
kvenna, á Hótel Loftleiðum kl.
12.30 í dag, mun Matthias
Bjarnason ráðherra ræða um
stöðuna i þjóðmálum.
Á fundinum fer fram kosn-
ing fulltrúa á landsfund.
Fundarstjóri er Margrét
Einarsdóttir.
VEIÐISVÆÐIÐ norður af Kögri,
sem lokað var fyrir veiðum togara
um helgina vegna mikillar smá-
fiskagengdar á þær slóðir, hefur
nú verið opnað aftur, þar sem
allur fiskur er horfinn af þessum
miðum í bili. Þá var litlu svæði
úti af Djúpál lokað í sólarhring í
vikunni af sömu ástæðum en hef-
ur nú verið opnað aftur. Hins
vegar lokaði Hafrannsóknastofn-
unin svæði á Skagagrunni I gær,
þar sem mikill smáfiskur var þar
í afla togaranna.
Sigfús Schopka, fiskifræðingur
og leiðangursstjóri á rannsókna-
skipinu Bjarna Sæmundssyni,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að eftirlitsmaður um borð í
togara hefði tilkynnt um smáfisk-
inn á Skagagrunni. Hefði því
svæðinu verið lokað í sólarhring
til að byrja með og það auglýst. Ef
smáfiskur yrði þarna áfram þyrfti
að hafa svæðið lokað lengur.
NEÐRI deild Alþingis afgreiddi í
gær til efri deildar stjórnarfrum-
varp um veiðar í fiskveiðiland-
helgi tslands, með nokkrum
breytingum frá sjávarútvegs-
nefnd deildarinnar. Tillaga um
nokkra rýmkun veiðiheimilda
með botnvörpu og flotvörpu skipa
39 m að lengd eða minni úti af
Suðausturlandi (1. maf til 1. marz
) var samþykkt með 17 atkvæðum
gegn 8. Gegn tillögunni greiddu
atkvæði allir þingmenn Austfirð-
inga f deildinni þar á meðal
menntamálaráðherra.
Tillaga Garðars Sigurðssonar
um bann við þorskveiðum með
flotvörpu í fiskveiðilandhelgi frá
1. júní 1977 til 1. júní 1978 var
felld með 19 atkvæðum gegn 8.
Frumvarpið í heild, sem er stað-
festing á bráðabirgðalögum um
sama efni frá 16. júni 1976 og
fjallar um nýtingu fiskveiðiland-
Sigfús sagði, að afli togara á
þessum slóðum virtist nú lítill,
enda virtist eini fiskurinn, sem
væri þarna í umtalsverðu magni
vera af stofninum frá 1973, sem
enn væri mjög smár.
ÞEGAR síðast fréttist af Lagar-
fossi f höfninni í Port Harcourt í
Nígeríu átti enn eftir að skipa 157
lestum af skreið á land úr skip-
inu, en alls var skipið með tæpar
2000 lestir. Þessar fréttir bárust
til landsins á miðvikudag, en síð-
helginnar, fer nú til þinglegrar
meðferðar í efri deild Alþingis.
1973
Þá sagði Sigfús að svæðið sem
nú væri búið að loka á Skaga-
grunni væri mælt frá eftirtöldum
lorantölum: Að vestan 47215, að
austan 47300, að norðan 62870 og
að sunnan væri miðað við 12
mílna fiskveiðilögsögumörkin.
an hefur ekkert frétzt. Sagði
Sigurlaugur Þorkelsson blaða-
fulltrúi Eimskips f samtali við
Morgunblaðið í gær að menn von-
uðust nú til að skipið væri farið
frá Nígerfu, en fréttir væru
venjulega tvo daga að berast það-
an.
Álafoss, skip Eimskipa-
félagsins, fór áleiðis til Lagos i
Nigeríu með um 1100 balla af
skreið eða 700 — 800 tonn á mið-
vikudag en þá fór skipið frá Eski-
firði. Skipið á að losa í höfuðborg-
inni Lagos, en á leiðinni til
Nigeríu hefur skipið viðkomu i
Las Palmas á Kanarfeyjum, þar
sem það tekur olíu. Álafoss er
væntanlegur til Nígeríu eftir um
það bil 10 daga.
Hátíðar-
sýning á
Straumrofi
LEIKFÉLAG Reykjavíkur
hefur hátfðarsýningu á
Straumrofi f kvöld vegna 75
ára afmælis höfundarins,
Ilalldórs Laxness. Þetta er
11. sýningin á leiknum.
Myndin er af Ragnheiði
Steindórsdóttur í hlutverki
sínu f Straumrofi.
Alþingi í gær:
Ágreiningur um rýmk
un veiðiheimilda
— Bann við flotvörpu fellt
Álafoss farinn
til Nígeríu
en Lagarfoss enn í Port Harcourt