Morgunblaðið - 23.04.1977, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23 APRIL 1977
3
Styrkjum
Menningar-
s jóðs úthlutað
MENNTAMÁLARÁÐ íslands
hefur úthlutað styrkjum fyrir
árið 1977, en ráðið er stjórn
Menningarsjóðs og var stofnað
1928. Hlutverk Menningarsjóðs
er einkum bókaútgáfa og veit-
ing styrkja til stuðnings lista-
mönnum og menningarstarf-
semi. Á þessu ári námu styrk-
veitingar alls rúmum 5.2
milljónum króna og gerði
Kristján Benediktsson, borgar-
fulltrúi, sem er formaður
Menntamálaráðs, grein fyrir
styrkveitingunni í gær.
Kristján Benediktsson sagði,
að styrkveitingum væri háttað
svipað og undanfarin ár, og að
það væri ávallt svo að þessar
styrkveitingar færu eftir fjár-
hag ráðsins hverju sinni.
Tónlistarstyrk hlaut Rut Ing-
ólfsdóttir, fiðluleikari, til þess
að vinna að útgáfu hljómplötu
með verkum Sveinbjörns
Sveinbjörnssonar. Styrkurinn
er 600.000 kr. og ásamt Rut
munu vinna að þessu verkefni
Gísli Magnússon, píanóleikari,
og Gunnar Kvaran, sellóleikari.
Umsækjendur um styrkinn
voru 4.
Um kvikmyndastyrk sóttu 10
umsækjendur, en hann nemur
1.5 m. kr. á þessu ári. Hann er
einkum ætlaður til stuðnings
við íslenzka kvikmyndagerð.
Jón Hermannsson og Þrándur
Thoroddsen, kvikmyndagerðar-
menn, hlutu þennan styrk til
þess að vinna að kvikmynd um
ferð Daniels Bruun um hálendi
íslands.
Dvalarstyrkir listamanna eru
ætlaðir til að styrkja menn til
kynnisdvalar erlendis og eru
þeir 8 að þessu sinni, kr. 200
þúsund hver. Umsækjendur
voru alls 32 og styrkina hlutu:
Bragi Ásgeirsson, listmálari,
Herbert H. Ágústsson, hljóm-
listarmaður, Indriði G. Þor-
steinsson, rithöfundur, Jón Sig-
urbjörnsson, leikari, Lára
Rafnsdóttir, píanóleikari,
Matthea Jónsdóttir, listmálari,
Rúrik Haraldsson leikari, og
Þorgeir Þorgeirsson, rithöfund-
ur. Fræðimannastyrkir, sam-
kvæmt sérstakri fjárveitingu,
Frá vinstri: Jón Hermannsson, kvikmyndagerðarmaður, Indriði G. Þorsteinsson, rithöfundur, Rúrik
Haraldsson, leikari, Bragi Asgeirsson, listmálari, Gfsli Magnússon, píanóleikari, Rut Ingólfsdóttir,
fiðluleikari, Jón Sigurbjörnsson, leikari, Lára Rafnsdóttir pfanóleikari, Herbert H. Agústsson,
hljómlistarmaður, og Þorgeir Þorgeirsson, rithöfundur. Ljósm. RAX.
sem Menntamálaráð ráðstafar,
eru alls 16, en á þessu ári er kr.
800 þúsund veitt. Umsækjend-
ur um fræðimannastyrki þessa
voru alls 25 og hlutu eins og
fyrr segir 16 styrk, 50 þúsund
kr. hver. Þeir eru:
Árni Einarsson, Reykjavík, Ás-
geir Ásgeirsson, Reykjavík,
Benjamin Kristjánsson,
Reykjavik, Einar H. Einarsson,
Skammadalshóli, Einar Sigur-
finnsson, Hveragerði, Flosi
Björnsson, Kvískerjum, Guð-
brandur Magnússon, Siglufirði,
Indriði Indriðason, Reykjavik,
Jón Gísiason, Reykjavík, Jón
Guðmundsson, Fjalli, Jón J.
Skagan, Reykjavík, Magnús
Sveinsson, Reykjavík, Sigurður
Ólason, Reykjavík, Skúli Helga-
son, Reykjavík, Stefán Jónsson,
Höskuldsstöðum, Þórður Tóm-
asson, Skógum.
Karl Sæmundsson við verk sfn. LJósm RAX.
Karl Sæmundsson
sýnir í Bogasalnum
KARL Sæmundsson hefur opnað
sýningu í Bogasal Þjóðminja-
safnsins. Sýnir Karl 36 myndir, 26
olíumálverk og 10 olíupastel og
eru það einkum landslagsmyndir.
Þessar myndir eru málaðar síð-
asta hálfa þriðja árið, sagði Karl,
en hann hefur málað síðustu 8 til
9 árin. Karl Sæmundsosn hefur
einu sinni áður haft sýningu á
verkum sínum, en það var í Boga-
salnum í nóvember árið 1974.
Sýningin er opin daglega klukkan
14—22 og lýkur henni hinn 1.
maí.
20 atkvæði gegn 11:
J árnblendifrumvarpið
samþykkt í neðri deild
NEÐRI deild Alþingis afgreiddi
fjögur stjórnarfrumvörp til efri
deildar í gær: um siglingalög um
tilkynningarskyldu islenzkra
Fundur hjá
Myntsafn-
arafélagi
íslands
Fundur hjá Myntsafnarafélagi
íslands.
Það er uppboðs- og skíptafund-
ur hjá Myntsafnarafélaginu í dag
í Templarahöllinni. Fundurinn
hefst klukkan hálf þrjú. Á upp-
boðinu eru, að venju, margir eigu-
legir gripir, bæði mynt, seðlar og
medalíur.
fiskiskipa, um veiðar I fiskveiði-
landhelgi islands (með nokkrum
breytingum) og loks um járn-
blendiverksmiðju í Hvalfirði.
Frumvarpið um járnblendi-
verksmiðju á Grundartanga f
Ilvalfirði var endanlega sam-
þykkt f deildinni að viðhöfðu
nafnakalli, með 20 atkvæðum
gegn 11, sex sátu hjá en þrír vóru
fjarverandi. Þeir, sem fjarver-
andi vóru, höfðu áður greitt at-
kvæði með frumvarpinu, þ.e. að
visa þvf til 3. umræðu í deildinni.
Gegn grumvarpinu greiddu at-
kvæði tveir þingmenn Framsókn-
arflokksins, Ingvar Gíslason og
Páll Pétursson, og allir þingmenn
Alþýðubandalags og Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna.
Hjá sátu: Ragnhildur Helga-
dóttir (S), Gunnlaugur Finnsson
(S), Jóhann Hafstein (S), Sigur-
laug Bjarnadóttir (S), Stefán Val-
Framhald á bls. 31
Italskt/franskt
0
Utsýnarkvöld
Hótel Sögu sunnudagskvöld 24. apríl
Kl. 19.00: Húsiðopnað. Svaladrykkir og lystaukar.
^ Kl. 19.30: Stundvíslega.
Franskur veizlumatur Gigot D'Agneau a’La Bretonne
— Franski matreiðslumeistarinn Francois Fons
* Kl. 20.30: Glæsilegt al-
þjóðlegt skemmtiatriði:
Heathermae og
Warwick Reading
skemmta ásamt hljómsveit.
Danssýning frá Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar.
Ferðabingó: Vinningar 3 glæsilegar Útsýnarferðir til
ítalíu og Spánar.
★ Fegurðarsamkeppni
undanúrslit í keppninni um titilmn
Ungfrú Útsýn 1 977.
Allir þátttakendur, sem valdir hafa ver-
ið á Útsýnarkvöldum i vetur verða
kynntir og 10 stúlkur, sem allar fá
ferðaverðlaun valdartil úrslita
Ath.
Áríðandi er, að allir þátttakendur í
fegurðasamkeppninni ungfrú Út-
sýn 1977 komi til viðtals í skrif-
stofu Útsýnar Austurstræti 17,
laugardaginn 23. apríl kl. 5—6
síðdegis.
Ath.
Gestir, sem koma
fyrir kl. 20.00 fá
ókeypis happ-
drættismiða og er
vinningurinn Út-
sýnarferð til Spánar
eða Ítalíu.
Hljómsveit Ragnars Bjarna-
sonar leikur fyrir dansi til kl. 1.
Missið ekki af þessum glæstlega fagnaði og pantið borð
hjá yfirþjóni í sima 20221 strax i dag Munið fullt hús,
fjör og fjöldi vinnmga á Útsýnarkvöldum