Morgunblaðið - 14.05.1977, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1977
3
Y f irlitssýning á verk-
um Jóhanns Briem
1 dag mun menntamálaráð-
herra, Vilhjálmur Hjálmars-
son, opna yfirlitssýningu á
verkum Jóhanns Briem, list-
málara, i Listasafni tslands.
Verður sýningin opnuð kl.
14:00 og verður sfðan opin dag-
lega frá kl. 13:30 til 22:00
næstu þrjár vikurnar. Á sýn-
ingunni eru alis 125 verk, allt
olfumálverk, hið elzta málað
1932 f Þýzkalandi og hið yngsta
málað á þessu ári.
í sýningarskrá segir Selma
Jónsdóttir, forstöðukona Lista-
safns íslands. að Jóhann Briem
sé einn úr hópi þeirra lista-
manna, sem hafi komið heim
frá myndlistarnámi erlendis á
fjórða áratugnum og flutt með
sér nýjungar, sem almenningur
hafi átt erfitt með að sætta sig
við. „En þessir ágætu lista-
menn létu kuldalegar viðtökur
ekkert á sig fá og héldu ótrauð-
ir áfram á sinni braut. Þeir
trúðu á það sem þeir voru að
gera og þroskuðu list sína þrátt
fyrir erfiðar aðstæður, fátækt
og skilningsleysi. Nú eru verk
þessara manna orðin einhver
mestu menningarverðmæti ís-
lenzku þjóðarinnar frá 20. öld.
Þrátt fyrir ný og ólík sjónarmið
báru þessir myndlistarmenn
djúpstæða virðingu fyrir fyrir-
rennurum sínum og urðu vinir
þeirra og félagar.“
Selma Jónsdóttir sagði að það
hefði verið mikið verk að ná i
allar þessar myndir, en þær eru
bæði i einkaeigu og eigu Lista-
safnsins og sagði hún að fólk
hafði alltaf verið mjög fúst til
að lána myndir sinar. Þetta er
stærsta sýning, sem verið hefur
á verkum Jóhanns, árið 1968
stóðu nemendur Menntaskól-
ans í Reykjavík fyrir yfirlits-
sýningu og voru á henni 42
verk.
Jóhann Briem er fæddur árið
1907 á Stóra-Núpi í Árnessýslu
og verður því sjötugur í ár.
Hann stundaði myndlistarnám
á árinu 1922 hjá Jóni Jónssyni
og hjá Ríkarði Jónssyni og Ey-
jólfi Eyfells 1927—1929. Hann
lauk stúdentsprófi árið 1927 frá
M.R. og árin 1929—1934 stund-
aði hann myndlistarnám í
Þýzkalandi. Jóhann hélt árið
1934 sína fyrstu einkasýningu í
Reykjavík og hafa þær síðan
orðið fjölmargar og hann hefur
tekið þátt í fjölmörgum sam-
sýningum hérlendis og erlend-
is. Árin 1936 til 1971 var
Jóhann teiknikennari við Gagn-
fræðaskóla Vesturbæjar og
sagði Jóhann að hann hefði
kennt eitthvað við flesta skóla í
Reykjavik, m.a. Kennaraskól-
ann. — Yfirleitt hef ég unnið
að verkum minum í fristund-
um, þar sem ég hef alltaf kennt,
og hef ég málað nokkuð jafnt
alla mánuði ársins, nema einn
mánuð í svartasta skammdeg-
inu, sagði Jóhann. — Maður
verður að taka sér jólafri eins
og annað fólk. Ég hef alltaf
málað inni, aldrei farið út og
málað uti í náttúrunni, en reynt
að vinna við dagsbirtu. En nú
eru komnar svo góðar dags-
ljósaperur að hægt er að mála
inni við þó að dimmt sé.
Jóhann hefur myndskreytt
nokkrar bækur og samið 3
myndskreyttar ferðabækur. —
Ég er nú alveg hættur að mynd-
skreyta bækur núna, það er
Ljósm. RAX.
Hér er Jóhann ásamt Jóhannesi Jóhannessyni, sem sá um að setja
sýninguna upp.
Jóhann Briem, listmálari og Selma Jónsdóttir, forstöðukona Listasafns tslands.
ómögulegt að vera í bókaskreyt-
ingum þegar maður er orðinn
svona skjálfhentur, en það hef-
ur heldur aldrei verið mér svo
mjög hugleikið að myndskreyta
bækur.
Hann var að því spurður
hvort hann fylgdist með ungum
myndlistarmönnum nú á síðari
árum:
— Nei, ég hef lítið gert. af
því, það eru orðnir svo margir
myndlistarmenn að það er ekki
nokkur leið að fylgjast með
þeim öllum, og ég er löngu
hættur að komast yfir það.
Jóhann Briem hefur tekið
virkan þátt í félagsmálum
myndlistarmanna, var formað-
ur Bandalags ísl. listamanna
1941— 1943 og einn af stofn-
endum Nýja myndlistarfélags-
ins. Þá má nefna að árin 1934—
1940 rak hann myndlistarsköla
i Reykjavik ásamt Finni Jóns-
syni.
„Dægur og jafndægur
—tíminn og nútíminn”
f dag klukkan 15 opnar Bragi
Ásgeirsson, listmálari, sýningu
á verkum sinum f kjallara Nor-
ræna hússins. Þar sýnir Bragi
alls 60 myndverk, sem flest eru
unnin á þessu ári, en nokkur
eldri verk eru einnig með, sum,
seni hafa ekki verið á sýning-
um áður. Sýningin verður opin
daglega klukkan 14—22 og lýk-
ur henni 24. maf. „Dægur og
jafndægur — tíminn og nútfm-
inn“, hefur listamaðurinn valið
sem yfirskrift yfir sýninguna
og vill hann með þvf minna á
tengsl nútfðar og fortfðar og
segir, að hann samræmi f
myndum sfnum hið gamla þvf
nýja. „Ég er á þennan hátt að
lýsa hughrifum mínum," segir
Bragi, „og nota ég til þess allt,
sem ég get haft milli handanna,
hluti, sem ég hef fengið úr ýms-
um áttum, úr f jörunni m.a.“
Bragi Ásgeirsson hefur kennt
við Myndlista- og handíðaskól-
ann allt frá árinu 1956 að
undanteknum tveimur árum er
hann dvaldist i þýzkalandi.
Hann var fyrsti kennarinn, sem
kenndi grafík við skólann, en
áður höfðu aðeins verið nám-
skeið öðru hvoru, þar sem er-
lendir listamenn voru fengnir
til að kenna. Bragi hefur stund-
að myndlistarnám víða, m.a. í 3
ár í Kaupmannahöfn, 2 ár í
MUnchen, eitt f Ósló og eitt á
ítalíu. Einnig hefur hann ferð-
azt viða og skoðað söfn, en hann
segir það vera sitt líf og yndi að
skoða myndlistarsöfn, „aðrir
fara á tónleika," segir Bragi,
„en ég fer á söfnin.“
Bragi Ásgeirsson er hér við eitt af nýjustu verkum sfnum.
Ljósm. Ól.K.M.
Bragi Ásgeirsson, listmálari. Með honum er sonur hans, Fjölnir.
Bragi sagðist hafa notið
aðstoðar fjölmargra við að
koma upp þessari sýningu,
Gunnars Bjarnasonar, Torfa
Jónssonar og Gunnars Arnar og
sagði hann einnig, að það væri
mjög gott að sýna í kjallara
Norræna hússins, þar væri lýs-
ing skemmtileg, hún gæti verið
„mjög lifandi, en það er ekki
hægt i neinum öðrum sýningar-
sal“.
í lok mánaðarins fer Bragi til
Austur-Þýzkalands til að setja
upp sýningu í Rostock, þar sem
islenzkir listamenn munu eiga
verk ásamt listamönnum frá
hinum Norðurlöndunum og
Þjóðverjum og sagði Bragi að
hér væri um mjög merkilegt
samstarf að ræða. Sýning þessi
verður opnuð 6. júni og eftir
það fer Bragi til Noregs þar
sem hann mun vinna að bók um
Edvard Munk.
„Ef ég væri ungur i dag,“
sagði Bragi Ásgeirsson, „hæfi
ég námsferil minn á annan
hátt, erlendis eru alls kyns
hliðargreinar við myndlistina,
hálfgerð stúdíó með alls konar
tækjum og nútímatækni er
beitt. En þó að tæknin sé mikil-
væg má ekki gleyma handverk-
inu, þessu gamla, það þýðir
ekki að hlaupa beint i tæknina,
grundvöllinn, að teikna og
mála, verða menn að hafa
traustan. En hins vegar er eng-
in normalkúrfa i listinni," sagði
Bragi Ásgeirsson að lokum.