Morgunblaðið - 14.05.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1977
Atli Eövaldsson Val og Þór Hreiðarsson Breiðablik,
berjast um knöttinn.
íþróttaþátturinn:
Knattspyrna og
frjálsíþróttir
ÍÞRÓTTAÞÁTTUR í um-
sjón Bjarna Felixsonar er
að vanda á dagskrá sjón-
varps í dag. Hefst fyrri
hlutinn kl. 17 og verður þá
sýnt frá einum 1. deildar
leiknum í yfirstandandi
íslandsmóti í knattspyrnu,
og í hálfleik verður skotið
inn knattspyrnufréttum.
Síðari hlutinn, sem hefst
kl. 19.00 verður helgaður
unglingum. Sýnd verður
um 30 mínútna mynd sem
gerð hefur verið af frjáls-
iþróttamóti skólabarna
sem háð var í Laugardals-
höll. Mótið var styrkt af
Áfengisvarnarráði og eru
einkennisorð þess „Bind-
indi er bezt“. Sýndir verða
kaflar frá langstökki,
hástökki og 50 m sprett-
hlaupi, en myndin var gerð
í samráði við Frjálsíþrótta-
samband íslands. Að þess-
ari frjálsíþróttamynd lok-
inni verður spjallað við
fyrirliða íslenzka unglinga-
landsliðsins í knattspyrnu,
Guðmund Kjartansson, og
þjálfara þess, Lárus Lofts-
son, en liðið vann sér sem
kunnugt er rétt til þátt-
töku í úrslitum Evrópu-
keppni unglingalandsliða
sem fram fer í Belgíu í
næstu viku.
í íþróttaþættinum sem
verður á mánudag verður
lokið við að sýna frá para-
keppni í heimsmeistara-
mótinu í listhlaupum á
skautum i Tókýo. Verða
sýnd þau þrjú pör sem eru
eftir, þ.e. verðlaunapörin.
Verður þetta meginefni
þáttarins, en auk þess
verða sýndar stuttar svip-
myndir af íþróttaviðburð-
um, erlendum og innlend-
um.
14. og síðasti
Klukkan 21.20 í kvöld
verður í sjónvarpinu
sýndur síðasti þátturinn
undir heitinu Úr einu í
annað, en umsjónarmenn
eru þau Berglind Ásgeirs-
dóttir og Björn Vignir
Sigurpálsson. Er þessi síð-
asti þáttur sá fjórtándi í
röðinni, og sá tíundi sem
þau Björn Vignir og Berg-
lind sjá um. í þættinum
verður blandaó efni, sam-
kvæmt venju, en þar má
m.a. nefna viðtöl við fólk
sem haft hefur umsjón
með þáttum í útvarpi og
sjónvarpi hér áður fyrr. Að
öðru leyti verður efnið i
anda annarra þátta.
Magnús Ingimarsson mun
annast tönlistina, og með
honum koma fram atvinnu-
menn og leikmenn, sem
einleikarar og söngvarar.
Loks verður leynigestur,
en að þessu sinni verður
það söngvari.
listasp
rang
Ejttr
Arna Johnsen
Vorhátíð Þjóðdansafélagsins:
Kríkaþeysingur
úr þjóðsporum
Austur-Evrópskir dansar skara oft hressilega i kolunum.
Hönd í hönd með knallandi trukki.
Vorsýning Þjóödansafélags
Reykjavíkur verður 1 Laugar-
dalshöllinni n.k. sunnudag kl.
15, en alls taka um 160 dansar-
ar þátt í sýningunni. Dansaðir
verða þjóðdansar frá 20 þjóð-
löndum og má þar m.a. nefna
dansa frá italfu, Rússlandi,
Perú, Þýzkalandi og islandi.
Svavar Guðmundsson stjórn-
ar sýningunni sem tekur um
tvær klukkustundir, en Svavar
er einnig aðalkennari. Kennari
barna er Kolfinna Sigurvins-
dóttir en einnig hafa Helga
Þórarinsdóttir, Jette Jakobs-
dóttir, Hrafnhildur Georgsdótt-
ir, Hrund Hjaltadóttir og Stein-
unn Ingimundardóttir, séð um
kennslu á islenzku dönsunum
og kennslu dansa sem ungling-
ar dansa.
Starf Þjóðdansafélagsins
byggist á áhugafólki og
styrktarfélögum, en feikn
mikið starf liggur ávallt að baki
öllum sýningum félagsins.
Allir búningar sem eru not-
aðir hverju sinni eru meira og
„Og sfðpilsin sviptust og ...
minna gerðir af félögunum
sjálfum og í þeim efnum eru
ófá handverkin. Eftir sýningar
á erlendum þjóðdönsum undan-
farin ár á félagið orðið gott safn
af búningum frá ýmsum lönd-
um og þegar nýjir dansar frá
nýjum löndum eru teknir til
æfinga þá er tekið jafnharðan
til við saumaskapinn og fóta-
menntina, þvi illmögulegt er að
dansa þjóðdansa af fullri
alvöru án tilheyrandi búninga.
í Laugardalshöllinni um
helgina er gestum boðið að
ferðast með félögum Þjóð-
dansafélagsins frá landi til
lands í sporum dansins.
5
ALLT MEÐ
EIMSKIP
Á NÆSTUNNI
FERMA SKIP V0R
TIL ÍSLANDS
SEM HÉR SEGIR:
Úðafoss 23. mai
Skeiðsfoss 30. maí
ROTTERDAM:
Reykjafoss 1 8. maí TO
Úðafoss 24. maí fjfjn
Skeiðsfoss 31. mai SJ
FELIXSTOWE: fell
Mánafoss 1 7. mai
Dettifoss 24 mai j[j| 31. mai irpj
Mánafoss
Dettifoss 7. júni Sl]
Mánafoss 1 4. júni TOÍ
HAMBORG: 1
Hofsjökull 17 mai \m
Mánafoss 1 9. mai yj
Dettifoss 26. mai M
Mánafoss 2 júní |[^n
Dettifoss 9. júni rý=LI
Mánafoss 1 6. júni LJJ
PORTSMOUTH :
Bakkafoss 1 8. mai [Ifjn
Selfoss 26. maí
Brúarfoss 2. júní y
Bakkafoss 6. júní IJjr
Goðafoss 1 6. júní [rp
KAUPMANNAHÖFN: S.
Múlafoss 1 7. mai lil
írafoss 24. mai [p’
Múlafoss 31. mai Ijp,
írafoss 7. júní a
Múlafoss 14. júni mr
GAUTABORG: K
MúlafoSs 18. mai &
írafoss 25. mai
Múlafoss 1. júni jlj
írafoss 8. júní [J7
Múlafoss 4 r • • • lJ 1 o. jum npl
| 'i| nLLomuDunu:
Tungufoss 23. mai
g KRiSTIANSAND:
Jjs Tungufoss 24. mai
Mí STAVANGER:
pli Tungufoss 25 mai
fe] GDYNIA / GDANSK:
Grundarfoss 1 7. maí
ROSTOCK:
Fjallfoss 3. júní
VALKOM:
pjj Fjallfoss 31.maí
E VENTSPILS:
Fjallfoss 1. júní
WESTON POINT:
Kljáfoss 23. mai
i^ij Kljáfoss 7. júni
IW,
Reglubundnar ferðir
hálfsmánaðarlega
| frá STAVANGER,
KRiSTIANSAND
0G HELSINGB0RG
ALLT MEÐ
QQ2323HII
■.TinL-iienasnaienaffii
1
I
i
I
I
I
I
I
i