Morgunblaðið - 14.05.1977, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.05.1977, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1977 13 aði og arðgjöf einstakra vöruteg- unda eða rekstrarþátta auk þess sem stefnt er að því að auðvelda honum markvissa stjórnun með einföldun áætlunargerðar um helztu þætti rekstrarins. Þeir Hagvangsmenn sögðust hafa orðið varir við að mikil þörf væri á námskeiði sem þessu, þvi það væri mjög algengt í íslenzk- um fyrirtækjum að menn gerðu sér takmarkaða grein fyrir þvi á hverju fyrirtækið hagnaðist og af hverju það tapaði, enda væru dæmi þess, að fyrirtæki gæfi með einstaka vörum. Takmarkaður fjöldi þátttakenda er á nám- skeiðinu, sem ekki er byggt upp á fyrirlestrum heldur er lögð áherzla á hópvinnu og byggt á dæmum úr íslenzku atvinnulífi. ..Hagnaður fjármagn og arð- semi“, er eins dags námskeið, ætl- að hópi stjórnenda frá einu og sama fyrirtækinu. Ráðgjafi undir- býr námskeiðið með heimsókn í fyrirtækið þar sem hann gerir skyndikönnun til að finna hvar vandamál þess liggja. Útkoman er svo höfð til grundvallar nám- skeiðinu. Reynt er að átta sig á þvi hvert markmiðið sé með tekstri fyrirtækisins. Síðan er lögð áherzla á að sýna fram á að hagnaður hljóti að vera leiðin til að ná markmiðinu. Reynt er að kanna hverjar séu orsakir taps eða hagnaðar og hvaða leiðir séu mögulegar til aukins hagnaðar og bættrar nýtingar fjármagns og arðsemi þess. í því sambandi er farið mjög vandlega i að kanna veltuhraða en Hagvangsmenn benda á að menn átti sig oft ekki á mikilvægi hans. Menn einblíni á álagningarprósentu en átta sig ekki á því, að veltuhraðinn getur haft sömu áhrif. Þetta námskeið hefur verið haldið fyrir fyrirtæki i R,eykjavík, og á Akureyri og segja ráðgjafar Hagvangs, að fyrir slik námskeið sé rík þör£ og að þau hafi haft mjög örvandi áhrif á stjórnendur. Það sé algengt vandamál að stjórnendur eiga erfitt með að vaxa með fyrirtækinu og beina athyglinni að nýjum vandamál- um. Þeir missi þannig yfirsýn yfir allan reksturinn og „haldi sig niðri á verksmiðjugólfinu þegar þeir eiga að vera uppi að horfa yfir markaðinn“. Því er reynt að innræta þeim markaðsvitund og sýna þeim fram á að þeir séu ekki eitt af tannhjólunum í rekstr- inum heldur það samræmingar- afl, sem velgengni fyrirtækisins veltur á. Vandaðar handbækur fylgja báðum námskeiðunum. DC-10 sölumenn hjá Flug- leiðum • AÐ undanförnu hafa fulltrúar McDonnell Douclas flugvélaverk- smiðjanna i Bandaríkjunum átt viðræður við stjórnendur Flug- leiða um hugsanlega sölu á DC-10 farþegaþotum. Flugleiðir hafa ekkert ákveðið ennþá með hvaða flugvélum DC-8 þoturnar verða leystar af hólmi, en samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur fengið, beinast athuganir nú aðallega að DC-JO og Boeing 747. McDonnell Douglas vinnur nú að gerð rekstraráætlunar fyrir Flugleiðir og er gert ráð fyrir þremur DC-10 þotum í henni. Tvær þeirra yrðu eingöngu í flugi fyrir Loftleiðir, en ein aðeins yfir mesta annatímann, en að öðru leyti yrði hún í vöruflutningum fyrir Cargolux. DC-10 sem er af svokallaðri breiðþotugerð er þriggja hreyfla og getur flutt allt að 345 farþega. 747 er stærri og getur flutt allt að 500 farþega. Stjórn F’lugleiða áætlar að taka breiðþotur í notkun vorið 1979. Handelsbanken kaupir í N ordic Handelsbanken 1 Kaupmannahöfn hefur eignazt 25% hlutagjár í Nor- ræna bankanum !• London. Nordic Bank. Hefur Handeslbanken lagt fram 6,5 milljónir punda I hlutafé en hlutafé Nordic Bank hefur verið auk- ið úr £18,5 milljónum ( £25 milljón- ir. Aðrir stærstu hluthafa i bankan- um eru Den norske Kreditbank. Ósló. Kansallis Osaki pankki, Hels- ingfors, og Svenska handelsbanken, Stokkhólmi. Handelsbanken var áð- ur hluthafi I dótturfyrirtækjum Nord ic i Zúrich og Paris. Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS: Kaupgengi pr. kr. 100,- 1966 2. flokkur 1668.42 1967 1. flokkur 1568.49 1967 2. flokkur 1558.35 1968 1. flokkur 1362.28 1968 2. flokkur 1281.46 1969 1. flokkur 957.45 1970 1. flokkur 881.08 1970 2. flokkur 648.18 1971 1. flokkur 613.30 1972 1. flokkur 534.57 1972 2. flokkur 461.36 1973 1. flokkur A 358.52 1973 2. flokkur 331.40 1974 1. flokkur 230.1 7 1975 1. flokkur 188.1 7 1975 2. flokkur 143.60 1976 1. flokkur 136.67 1976 2. flokkur 1 10.99 HLUTABREF: Flugleiðir HF Sölutilboð óskast Hvalur HF Sölutilboð óskast Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum: VEÐSKULDABRÉF: 2ja ára fasteignatryggð veðskuldabréf með hæstu vöxtum (30% afföll) 3ja ára fasteignatryggð veðskuldabréf með hæstu vöxtum (36% afföll) 5 ára fasteignatryggð veðskuldabréf með hæstu vöxtum (45% afföll) HLUTABREF: Árvakur HF Kauptilboð óskast (slenskur Markaður hf. Kauptilboð óskast PfáRPEfTHKiARFáAC ÍÍtAADf HR VERÐBRÉFAMARKAÐUR Lækjargötu 12 R (Iðnaðarban kahúsiriu) Sími20580 Opiðfrá kl. 13.00 til 16.00 alla virka daga. FRÁ LEIBBEININGASTÖfl HÚSMÆflRA --------.-------------- -- _______:_L Fyrir nokkru hefur undirrit- uð heitið við konu sem hringdi í Leiðbeiningastöðina að birta hér nokkrar leiðbeiningar varð- andi þvott. Þótt flest heimili hafi sjálf- virkar þvottavélar til umráða nú orðið, verða menn að fara eftir vissum reglum til þess að þvottaárangurinn verði sem bestur og til þess að koma í veg fyrir skemmdir á þvottinum og þvottavélinni. Hér verður sagt frá nokkrum atriðum. Óhreinan þvott skal aldrei geyma of lengi, þeim mun erfið- ara er að ná öllum óhreinindum úr honum. Geymið hann ætið á loftgóðum og þurrum stað, svo að hann mygli ekki. Áður en þvotturinn er þveg- inn er nauðsynlegt að flokka hann því að ekki hæfir öllum vefjarefnum sama þvottaað- ferð. Sum efni þola grómþvott þ.e. að vera þvæld lengi i þvottavél eða skrúbbuð á bretti eins og gert var áður en þvötta- vélar komu til sögunnar. Önnur efni þurfa vægþvott og má að- eins þvo þau á vægþvottakerf- um i þvottavél eða i höndum. Ennfremur þarf að flokka þvottinn fyrir suðuþvott, heit- þvott eða ylþvott eftir því hve heitt þvottavatnið má vera. En þar sem nú eru framleidd svo mörg mismunandi efni eru framleiðendur yfirleitt farnir að láta leiðbeiningar fylgja framleiðslunni. Að sjálfsögðu þarf að kynna sér þær leiðbein- ingar um leið og fatnaður er keyptur, þvi það er þægilegast að fjölskyldan eigi ekki allt of margar gerðir af fatnaði sem þvo þarf á mismunandi hátt, að öðrum kosti verða þvottastörfin timafrek. Þvott sem lætur lit, verður að þvo sér, og mislitan þvott, sem þveginn er I fyrsta skipti, verð- ur einnig að þvo sér, þar sem oft er laus litur i honum. Ullar- fatnað skal þvo i höndum nema hann hafi fengið sérstaka með- ferð við framleiðslu svo að hann þoli að vera þvældur i þvottavél án þess að þófna. Brjóstahaldara með teinum skal einnig þvo I höndum þar sem hætt er við að teinarnir stingist út gegnum götin í þvottatunnunni og leggist á botn þvottakarsins og ryðgi þar. Bletti skal yfirleitt hreinsa burt áður en þvotturinn er þveginn. Ryðbletti skal fjar- lægja með ryðeyði, fatnað með blóðblettum skal leggja í kalt vatn um stund og kaffi- te- og ávaxtabletti skal nudda með glyserini og láta það liggja á blettunum um stund, áður en fatnaðurinn er þveginn. Fiestar sjálfvirkar þvottavél- ar eru tunnuvélar þar sem tunnan eða tromln snýst til skiptis í báðar áttir á meðan vélin þvær. Hreyfing tunnunn- ar hefur svipið áhrif á þvottinn og þvottabretti. Það er þvi mikilvægt að hlaða ekki svo miklum þvotti i vélina að þvott- urinn hreyfist ekki, þegar tunn- an snýst. Hinsvegar nýtist þvottavélin illa, sé látið of litið i hana og þar að auki er hætt við auknu sliti á þvottinum. Flestar vélar geta þvegið 3—4 kg af þvotti i einu, eða 1 kg fyrir hverja 13 1 tunnurúmmáls. En sé um fatnað að ræða sem ekki á að slétta að loknum þvotti má ekki fylla tunnuna nema að hálfu leyti, svo að ekki myndist krumpur og fellingar í þvott- inn. Til þess að koma í veg fyrir að slitrendur myndist meðfram saumum T.d á gallabuxum er gott að láta rönguna snúa út í þvottavélinni. Það sama gildir t.d. um acrylpeysur sem siður hnökkra séu þær þvegnar á röngunni. Látið ekki mislitan þvott sam- an við hvítan þvott í vélina, hviti þvotturinn verður þá sið- ur vel hvítur að loknum þvotti. 1 heimilisþvottavél sem tekur 3—4 kg eru notuð um 'A dl af lágfreyðandi þvottaefni í for- þvottinn og um l'A dl af lág- freyðandi þvottaefni í suðu- þvottinn en magnið fer eftir þvi hve þvotturinn er óhreinn. Það þarf að fylgjast með því að hæfilega mikil froða myndist. Ef froðan verður of mikil svíf- ur þvotturinn i vélinni og óhreinindin nuddast þvi ekki af honum. Ef of lítið er notað af þvottaefni verður þvotturinn heldur ekki hreinn og setjast þá gráir kekkir af óhreinindum í hann. Þvottaefni eru samsett af mörgum mismunandi efnum en magnið af hinum ýmsu efnum getur verið með mismunandi móti í hinum ýmsum tegundum af þvottaefnum en yfirleitt eru um sömu efni að ræða. Oft er unnt að ná betri árangri með þvi að skipta um þvottaefni af og til. Því hærra hitastig sem verð- ur á vatninu, þeim mun betri verður þvottaárangurinn, en 30% af raforku má spara ef þvegið er við 60° í staðinn fyrir 95° og 15% ef forþvottinum er sleppt. Það þarf ekki ætíð að sjóða þvott sem er lítið óhreinn, en þvottavélin eyðir um 1 KWH fyrir hvert kg af suðuþvotti. S.II. Erindi og tónleikar Tónlist, töfrar og tilfinning ÞEGAR fjallað er um tónlist og ætlunin að skilgreina hana, er auðvelt að fjalla um tæknilega þætti hennar en áhrif á tilfinningar mannsins er erfitt að skilgreina og eins og Vagn Holmboe endaði er- indi sitt þá ..skýrir aðeins tón- listin sjálf allt varðandi tón- list. í erindi sínu fjallar Vagn Holmboe um tónlist almennt, áhrif hennar á mannmn og eiginlegt innihald hennar þ.e. galdurinn, sem ekki verði skilgreindur til hlýtar með athugunum á formi tón- verks eða eðlisþáttum hljóðs- ins. Tónlist sé margslungið fyrirbæri er tengist athöfnum manna á ýmsa vegu. Upplifun hennar geti bæði verið meðvituð og ómeðvituð og mjög djúp án þess að fyrir liggi skilgreining á bygg- ingarfræðilegum þáttum Fyrirlesturinn er vel þess virði að hann sé í heild þýdd- ur og birtur íslenzkum les- endum til fróðleiks. Ekki er hann sérlegt innlegg fyrir þá sem hafa að verulegu leiti fengist við tónlist. í því sam- bandi mætti nefna rannsókn- ir sem um árabil hafa verið gerðar vestan hafs af mönn- um ems og t.d. Carl E. Seashore, en hann hefur i bók sinni Psychology of Music gert grein fyrir þessum rannsóknum og þeim niður- stöðum eraf þeim má draga. Áhrif tónlistar á menn og dýr er ekki sú dulargáta, sem áður var, þó hins vegar sé ekki hægt nú frekar en áður, að skilgreina eða flokka list. Tónllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON Að loknum fyrirlestrinum lék Halldór Haraldsson píanóleikari sinfóníska svitu fyrir píanó, sem tónskáldið nefnir Suono da Bardo. Verk- ið er í þáttum, en þeir nefn- ast Tokkata. Interludio, Fantásia, Metamorfosi, Finale og Postludio. Halldór gerði verkinu góð skil en gaman væri að heyra hann leika verkið utan bókar Það er ekki á hvers manns færi að leikar slíkt verk sem þetta eftir pöntun, því til að móta svona stór verk og hafa á valdi sínu tónmál þess, þarf langan tíma. Vagn Holmboe er eitt af stærri tónskáldum Dana. Hér á landi hafa tón- verk hans verið litið flutt nema þá helst nokkur kórlög og það sem hefur verið flutt í útvarpinu, að þvi er undirrit- aðan minnir, þá helst kammertónverk Vonandi verður þar á breyting og i framtiðinni gefist islendmg- um kostur á að heyra meira af tónlist hans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.