Morgunblaðið - 14.05.1977, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.05.1977, Blaðsíða 32
 AKÍLVSINÍ.ASIMINN KK: 22480 JMtrgimMttbft (iLYSINíiASÍMINN ER: 22480 Plorflwblntiili LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1977 Á HÖFRUNGS III., aflahæsta bátsins á netavertíðinni, en Höfrungur er gerður út frá Þorlákshöfn. Frá vinstri: Ómar Gunnarsson, Þorvaldur Eiríksson, 2. stýrim., Hörður Magnússon, Ólafur H. Ólafsson, Sigvaldi Karlsson, Gunnlaugur Vern- harðsson, Niels Kristjánsson, Sigurður Ólafsson, 2. vélstj., Guðmundur Jónasson, 1. vélstj., Ragnar N. Björnsson, matsveinn, og fremst er Þorleifur Þorleifsson skipstjóri og hjá honum börn hans, Sólveig, Sigurður og Ólafur. Sjá nánar á bls. 2. Ljósm. Mbl. RAX. Kjaradómur synj- aði kröfum BHM BHMtelur dóminn ólögmœtan DÓMUR var kveðinn upp í gær i Kjaradómi í máli Bandalags háskólamanna gegn fjármálaráð- herra um endurskoðun á aðal- kjarasamningi þessara aðila. Kröfum BHM var hafnað af meirihluta dómsins, en sér- atkvæði skilaði forseti dómsins, Guðmundur Skaftason, sem skip- aður er af Hæstarétti og dómandi sá er skipaður er af BHM. Banda- lagið telur dóminn ólögmætan og mun leita til bæjarþings Reykja- víkur um ógildingu hans, að þvf er segir f fréttatilkynningu frá BHM. Launakrafa BHM hljóðaði upp á um 30% hækkun launa og sú krafa m.a. rökstudd með því að verulega hefði dregið sundur í launum með háskólamönnum og Framhald á bls. 18 Lekinn íFlugleiðavélinni: Mistök hjá send- anda og hleðslu- mönnum á flugvelli — segir lof tf erdaef tirlitid hér „RANNSÓKN okkar hefur leitt ótvfrætt f ljós, að þýzka fyrirtæk- ið, sem sendi vöruna frá sér, hef- ur ekki farið eftir reglum um umbúnað og frágang vörunnar og að hleðslumenn á Kaupmanna- Matthías Bjarnason sjávarútvegsráðherra: „Áform um að skyldalönd- un á öllum veiddum afla” Unnið er að breytingu reglugerðar um lágmarksstœrðir legfilegs afla „ÞAÐ ERU uppi áform um að breyta reglugerð um lágmarks- stærðir leyfilegs afla og í því sam- bandi er það sjónarmið mjög of- arlega að skylda' menn til þess að koma með allan veiddan afla f land“, sagði Matthías Bjarnason Bankarn- ir fóru yf- ir strikið „ÉG HELD ég verði að segja út- komuna eftir atvikum sæmilega," sagði Jóhannes Nordal seðla- bankastjóri, er Mbl. innti hann í gær eftir útkomunni á samantekt um útlán bankanna fyrstu fjóra mánuði ársins. „Útlánin urðu að vísu meiri en útlánsmarkið var fyrir þetta tíma- bil,“ sagði Jóhannes. En hann kvaðst telja, að það mætti rétta hlutina af með auknu aðhaldi það sem eftir væri ársins. Útlánamarkið, sem bankarnir höfðu Sett sér fyrstu fjóra mánuð- ina, var 6—7% útlánaaukning. sjávarútvegsráðherra í samtali við Morgunblaðið f gær þegar hann var inntur eftir þvf hvort vænta mætti nýrra reglna í þess- um efnum. „bað verður tekin ákvörðun fljótlega í þessum efnum“, sagði ráðherra. Á sínum tíma voru sett- ar reglur til bráðabirgða um það að allt að 10% afla mætti vera undirmálsfiskur, en miðað var við að þær reglur giltu þangað til reglur um 155 mm möskvastærð gengju í gildi. Undirmálsveiðin i heild er minni nú en til skamms tíma og hefur minnkað mikið þeg- ar Bretar hættu veiðum við land- ið. Síðan hafa varðskipin einnig getað sinnt eftirliti mun meira og það hefur verið stór féngur að fá þessa eftirlitsmenn á togarana. Það er reynt að láta þetta þróast í rétta átt og eitt er sem sagt hug- myndin um að láta landa öllum veiddum afla, en ólöglegur afh yrði þá að sjálfsögðu gerður upp- tækur“. hafnarflugvelli hafa ekki skýrt flugstjóra Flugleiðavélarinnar frá þessum varningi, eins og þeim bar skylda til,“ sagði Skúli Jón Sigurðsson, deildarstjóri hjá loft- ferðaeftirlitinu, er Mbl. spurði hann f gær um rannsóknina á orsökum þess, að eldfimt leysi- efni lak út f Flugleiðavél á leið frá Kaupmannahöfn til Kefla- vfkur og skapaði hættuástand f flugvélinni. Þarna var um að ræða efnið Etyl acetat, sem er eldfimt leysi- efni og hefur uppgufun frá því áhrif á miðtaugakerfið. í flugvél- inni urðu menn varir við leka úr einum brúsa, en þeir voru alls átta talsins, en starfsmenn vöru- geymslu Flugleiða bera, að þegar brúsarnir hafi komið þangað, hafi þeir orðið varir við meiri leka og Framhald á bls. 18 Markverður árangur í líf- eyris- og dagvistunarmálum ARANGUR varð í tveimur atriðum kjarasamninganna, sem verið er að gera, á Loftleiða- hótelinu f gær. Samkomulag hef- ur orðið um yfirlýsingu Alþýðu- sambandsins og vinnuveitenda um lffeyrismál, sem einn samningarnefndarmanna úr hópi vinnuveitenda taldi mjög merkan og mikilvægan áfanga, þar sem þar væru bætt kjör þeirra, sem byggju við þau kröppust — gamla fólksins. Fyrir liggja og drög að yfirlýsingu frá rfkisstjórninni um þetta mál. Þá má segja að samkomulag hafi og tekizt f dagvistunarmálum og hefur starfshópur sá, sem að þeim hef- ur unnið, átt fund með mennta- málaráðherra, þau hafa verið lögð fyrir rfkisstjórnina og fengið já- kvæðar undirtektir. Lífeyrismálin hafa snúizt um að framlengja það bráðabirgðasam- komulag, sem gert var í fyrra um aðgerðir til þess að verðtryggja Framhald á bls. 18 Mál læknis til rannsóknar SAKADÓMI Reykjavíkur barst nýverið kæra á hendur lækni í borginni fyrir að hafa tekið greiðslu frá almannatryggingum fyrir iæknisaðgerðir, sem aldrei voru framkvæmdar. Kærandinn var Tryggingastofnun rikisins. Þar sem yfirheyra þurfti marga aðila í umdæmi sýslumannsins í Hafnarfirði, var málið sent þang- að til rannsóknar. Hundruðum tonna af smáfiski hent í sióinn — segja þrír sjómenn —- Utgerðaraðilar mótmœla harðlega MORGUNBLAÐIÐ hefur rætt við þrjá sjómenn um ákveðnar veiðiferðir sem þeir fóru með þremur togurum um sfðustu áramót þegar aflahrotan mikla var á Vestfjarðamiðum og nær allur fslenzki togaraflotinn stundaði veiðar þar. í viðtölum kemur fram að hundruðum tonna af smáfiski hefur verið hent f sjóinn á þessu tfmabili og einnig kemur fram að brögð eru að þvf að ekki sé farið að lögum varðandi gerð poka f veiðarfærum togaranna. Þegar eftirlitsmenn fóru á miðin f lok aflahrotunnar f janúar kom f Ijós að allt að 70% aflans var smáfiskur og var miðunum þá lokað strax. Sjómennirnir þrfr sem Morgunblaðið ræddi við stunda allir nám f Stýrimannaskólanum f Vestmannaeyjum, en þeir eru Ingþór Indriðason frá Seyðisfirði, sem fjallar um veiðiferð með Ingólfi Arnarsyni, Óiafur Ólafsson frá Akureyri, sem fjallar um veiðiferð með Harðbak og Guðmann Magnússon frá Þórshöfn sem segir frá veiðiferðum með Snorra Sturlusyni og Vigra. Morgunblaðið hafði tal af smáfiskahlutfall og veiðarfæra- Gísla Jóni Hermannssyni, for- búnað skipa þeirra. Kvaðst stjóra Ögurvíkur fi.f, sem gerir hann ekki vita annað en að út Vigra og spurði hann um þeirra skip hefðu ávallt verið með lögleg veiðarfæri, enda hefðu mælingamenn í eftirliti aldrei fundið að veiðarfærum skipsins. Kvaðst hann telja það algjöran róg að Vigri hefði ver- ið með ólögleg veiðarfæri, eins og sagt er i viðtalinu hér á eftir. Um smáfiskinn á Vestfjarða- miðum sagði hann að þarna væri enn sams konar smáfiskur og var þar 1951 þegar hann hefði byrjað veiðar þar. Vilhelm Þorsteinsson hjá Út- gerðarfélagi Akureyrar sagði i samtali við Morgunblaðið i gær- kvöldi að í umræddum túr með Harðbak hefði skipið landað 324 tonnum eftir 10 daga túr og Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.