Morgunblaðið - 14.05.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAl 1977
r
Málefnaleg
grein
Erling Garðar Jónasson,
rafveitustjóri, skrifar
málefnalega grein I dag-
blaðið Tfmann í gær, þar
sem hann fjallar um
byggðastefnu annars
vegar og staðbundin
vandamál Reykjavlkur
hins vegar. Þó að
Morgunblaðið greini á við
greinarhöfund f veiga-
miklum atriðum, þykir því
rétt að sjónarmið hans
fari um farveg Morgun-
blaðsinstil landsmanna,
þar sem þau eru málefna-
leg, og sem slfk íhugunar-
verð.
Staðbundin
vandamál
Reykjavíkur
Erling Garðar segir:
„ Höfuðatriðin sem
koma fram i skrifum
blaðsins (Morgunblaðsins)
til þessa eru:
1. Að atvinnutœkifær-
um I framleiðslu-greinum
færi fækkandi f Reykja-
vik.
2. Að meðaltekjur væru
lægri F ReykjavFk en
annarsstaðar á landinu
(tekjuaukning milli ára
lægri).
3. Að fjárhagsleg fyrir-
greiðsla til fyrirtækja i
Rvk væri minni en til
landsbyggðarfy rirtækja.
4. Að vægi kosninga-
réttarins væri óréttlátt.
5. Að Reykvikingar hafi
með skattgreiðslum sin-
um staðið undir uppbygg-
ingu á landsbyggðinni
undanfarin ár.
Ef þetta væru allt stað-
reyndir mundi ég taka
þátt i áhyggjum Morgun-
blaðsins og borgar-
stjórans í Reykjavik . . .
en svo er ekki f reynd og
viðsfjarri að svo sé."
Mótrök Erlings
Garðars
Sfðan segir greinar-
höfundur orðrétt:
„Staðreyndin bak við
staðhæfingu 1. er sú —
einfaldlega — að með til-
komu skuttogaranna á
næstum hvern fisk-
vinnslustað hringinn f
kringum landið, hefði
hundraðshluti lands-
byggðaraflans af heildar-
aflanum aukizt.
Þá er tilkoma þessara
öflugu atvinnufyrirtækja f
reynd svar við stað-
hæfingu 2. Tæknileg
staða fiskvinnslunnar
með tilliti til margföldun-
ar hráefnis er mjög bág-
borin, þar af leiðir að
vinnubyrði fólksins hefur
einfaldlega aukizt sam-
hliða því er tekju-
aukningin, að sjálfsögðu.
Þá skulu menn líka hafa f
huga að afla nótaskip-
anna t.d. bræðsluaflanum
(loðna) er fyrst og fremst
landað annars staðar en í
Reykjavfk.
Fyrirgreiðsla til
uppbyggingar skipa-
flotans hefur í reynd ekki
verið lakari f Reykjavík,
en annars staðar.
Hvað snertir fjárhags-
lega fyrirgreiðslu, hefur
hún verið alltof Iftil.
Endurbygging hraðfrysti-
húsanna er f reynd ekki
hafin enn.
í Reykjavfk og næsta
nágrenni er obbinn af
fslenzkum iðnaði, og sú
stóriðja, sem til er f
landinu.
Staðhæfing 3. er þvf
mjög léttvæg og f reynd
ekki svaraverð.
Vægi kosningaréttarins
er mjög mismunandi f
landinu. Það er staðreynd
en hvort hér er á ferð það
óréttlæti, sem Morgun-
blaðið kveður á um, er
hins vegar ekki augljóst.
Það sem er meginatriði
í þessu máli, er að
kosningafyrirkomulag
hérlendis, er gengið sér til
húðar og þarfnast gagn-
gerðrar endurskoðunar.
Staðhæfing 5 er og
hefur aldrei verið svara-
verð, því grunnhyggnin að
baki hennar er með
endemum.
Þó svo væri, að skatt-
greiðslur Reykvfkinga
rynnu f framkvæmdir út
um land, þá er með þeim
framkvæmdum, sem
hingað til hafa verið
megin verkefni, aðeins
verið að auka framleiðni
þeirrar grundvallarfram-
leiðslu, sem öll verzlun og
opinber stjómsýsla sem
staðsett er í Reykjavfk, lif-
ir af."
Ein þjóð í
einu landi
í lok greinar sinnar
segir Erling:
„Staða landsbyggðar-
innar bæði f félagslegu og
hagrænu tilliti er áratug á
eftir höfuðborgarsvæðinu
— það er staðreynd, sem
blasir við þeim sem nennir
að hugsa þessi mál.
En gleymum þvl aldrei f
þessari umræðu, að á
íslandi býr ein þjóð f einu
landi, og við íbúar lands-
byggðarinnar erum stoltir
af okkar höfuðborg. Hana
eiga allir landsmenn, og
að sjálfsögðu viljum við
stuðla að hag íbúa
hennar.
En ef menn gera sér
grein fyrir sögulegum
staðreyndum og hafa í sér
einhverja framsýni
komast þeir fyrr eða sfðar
að þeirri niðurstöðu að
meginverkefni íslendinga
næstu áratugi er að skapa
byggðajafnvægi í land-
inu."
Bænadagur
DÓMKIRKJAN. Messa kl. 11
árd. Séra Þórir Stephensen.
Messa kl. 2 síðd. Séra Hjalti
Guðmundsson.
NESKIRKJA. Guðsþjónusta kl.
2 siðd. Séra Frank M. Halldórs-
son. Kaffisala kvenfélagsins að
aflokinni messu.
HALLGRlMSKIRKJA. Messa
kl. 11 árd. Séra Karl Sigur-
björnsson. Messan klukkan tvö
fellur niður.
HÁTEIGSKIRKJA. Messa kl.
11 árd. Séra Arngrimur Jóns-
son.
FELLA- OG HÖLASÓKN.
Guðsþjónusta í Fellaskóla kl. 2
síód. Séra Hreinn Hjartarson.
DÓMKIRKJA KRISTS
Konungs Landakoti. Lágmessa
kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30
árd. Lágmessa kl. 2 síðd. pg alla
virka daga er lágmessa kl. 6
siðd., nema á laugardögum, þá
kl. 2 siðdegis.
ELLI- OG Hjúkrunarheimilið
Grund. Messa kl. 2 siðd. Geir
Waage guðfræðinemi prédikar.
Fél. fyrrv. sóknarpresta.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL.
Messa kl. 11 árd. í Breiðholts-
skóla. Séra Lárus Halldórsson.
GRENSÁSKIRKJA. Messa kl.
11 árd. Organisti Jón G.
Þórarinsson. Séra Halldór S.
Gröndal.
FÍLADELFÍUKIRKJAN.
Safnaðarguðþjónusta kl 2 siðd.
Almenn guðþjónusta kl. 8
siðdegis. Einar J. Gíslason.
LAUGARNESKIRKJA. Messa
kl. 11 árd. — Altarisganga.
Sóknarprestur.
FRlKIRKJAN. Reykjavík.
Messa kl. 2 siðd. Organisti Sig-
urður Isólfsson. Séra Þorsteinn
Björnsson.
LANGHOLTSPRESTAKALL.
Barnaguðþjónusta kl. 10.30 árd.
Guðþjónusta kl. 2 siðd. Séra
Árelíus Níelsson. — Meðlimir
Bræðrafélagsins og önnur
félagssamtök innan safnaðarins
eru hvött til þátttöku í starfi
við kirkjubygginguna laugar-
daginn 14. mai kl. 9.30 árd.
Sóknarnefndin.
ARBÆJARPRESTAKALL.
Guðþjónusta í Árbæjarkirkju
kl. 11 árd. (Ath. breyttan
messustað og tima). Séra
Guðmundur Þorsteinsson.
SELTJARNARNESSÓKN.
Guðþjónusta kl. 11 árd. í félags-
heimilinu. Séra Frank M.
Halldórsson.
BUSTAÐAKIRKJA. Guð-
þjónusta kl. 11 árd. — Athugið
breyttan messutima. Birgir Ás
Guðmundsson organisti. Séra
Olafur Skúlason dómprófastur.
FÆREVSKA Sjómannaheim-
ilið. Samkoma verður kl. 5 síðd.
Er þetta jafnframt síðasta sam-
koman i heimilinu á þessu vori.
Jóhann Olsen.
HJÁLPRÆÐISHERINN.
Helgunarsamkoma kl. 11 árd.
Útisamkoma á Lækjartorgi kl. 4
síðd. Hjálpræðissamkoma kl.
8.30 síðd. Kafteinn Daniel
Óskarsson.
DIGRANESPRESTAKALL.
Guðþjónusta i Kópavogskirkju
kl. 11 árd. Séra Þorbergur
Kristjánsson.
KÁRSNESPRESTAKALL.
Guðþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 2 síðd. Séra Árni Pálsson.
GUÐSPJALL DAGSINS:
Jóh. 16,23—30.:
Biðjið í Jesú nafni.
LITUR DAGSINS:
Hvítt. Litur gleðinnar.
KAPELLA St. Jósepssystra í
Garðabæ. Hámessa kl. 2 síðd.
HAFNARFJARÐARKIRKJA.
Messa kl. 2 síðd. Guðmundur
Einarsson framkvæmdastjóri
Hjálparstofnunar kirkjunnar
prédikar. Séra Bragi Bene-
diktsson þjónar fyrir altari.
Séra Gunnþór Ingason.
FRlKIRKJAN Hafnarfirði.
Guðþjónusta kl. 2 siðd. Séra
Magnús Guðjónsson
KÁLFATJARNARKIRKJA.
Guðþjónusta kl. 2 siðd.
Ferming. Séra Bragi Friðriks-
son.
NJARÐVÍKURPRESTAKALL.
Guðþjónusta i Innri-
Njarðvíkurkirkju kl. 11 árd. og
í Stapa kl. 2 siðd. Séra Páll
Þórðarson.
KEFLAVlKURKIRKJA.
Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Guð-
þjónusta kl. 2 síðd. Sóknar-
prestur.
GRINDAVÍKURKIRKJA.
Messa kl. 2 siðd. Sóknarprestur.
KIRKJUVOGSKIRKJA. Messa
kl. 5 síðd. Sóknarprestur.
HVALSNESKIRKJA. Messa kl.
2 siðd. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA.
Barnaguóþjónusta kl. 10.30 árd.
Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA. Messa kl.
2 siód. Séra Björn Jónsson.
SIGLUFJARÐARKIRKJA
Hátíðarguðþjónusta kl. 2 síðd.
Fimm fyrrum prestar staðar-
ins: Séra Óskar J. Þorláksson,
séra Ragnar Fjalar Lárusson,
séra Kristján Róbertsson, séra
Rögnvaldur Finnbogason og
séra Birgir Ásgeirsson taka
þátt i guðsþjónustunni. Séra
Óskar prédikar. Organisti Páll
Helgason. Kirkjukvöld klukkan
9 siðd. með vandaðri dagskrá.
Séra Vigfús Þór Árnason.
Við útvegum allar tegundir
þorskaneta fyrir næstu
vertíð. Lágt verð.
Vorum að taka
upp barna- og
unglingaskó frá
„Arauto" Portúgal
Teg. 1
St. 28—41
Litur gulur
Verð frá: 3.736. —
Teg. 3
St. 23—38
Teg. 2
St. 23—38
Litur gulbrúnn
Verð frá: 3.586 -
Póstsendum
Litur gulur
og blár
Verð frá:
3.586. —
Skóglugginn
Hverfisgötu 82 Sími 11788
Feröaskrifstofunnar Sunnu
1977
Vegna fjölda áskoranna verða litkvikmyndir frá
hluta leiðar Sunnu, m.a. frá Klettafjöllum og
Vancouver B.C. endursýndar
n.k. sunnudagskvöld 15. maí í
Veitingahúsinu
Glæsibæ,
ásamt ferðakynningu Kanadaferðar.
Húsið opnað kiukkan 7.
Hátíðarkvöldverður fyrir aðeins 1 850.00
Hefst klukkan 7.30.
Skemmtiatriöi m.a.
Randver
Stormar leika fyrir dansi bæði gömlu og nýju
dansana til klukkan 1. e. m.