Morgunblaðið - 14.05.1977, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 14.05.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1977 23 Guðlaug I. Guðjónsdótt- ir Framnesi—Mrming færði þeim. Sveitin og raunar landið allt nýtur hinna styrku og hugdjörfu handa sem unnu landi og þjóð ómetanlegt starf. Kornræktin var Klemenz ætíð sérstakt áhugamál og í sjö af hverjum tíu árum mun hún hafa skilað hagnaði og stundum veru- legum. En hann hafnaði ekki grasræktartilraununum, sem hann af víðfeðmi hugar sins sá og vissi að alltaf yrði uppistaðan i fóðuröflun íslenzku búfé. Hann varð fyrstur manna til að breyta svörtum sandi í iðjagræn tún. Sem betur fer hafa margir fetað i fótspor hans nú og unnið að slíkri ræktun á grundvelli rannsókna hans og reynslu. Klemenz var fyrstur manna til að finna afbrigðið af kartöflunni (gullauga" og forrækta hana til útsæðis og engum þarf að segja hverslags matar við þar neytum. Einnig ræktaði hann rauðar ísl. kartöflur, sem aldrei bregðast hvernig sem árar. Þótt ekkert hefði annað tilkomið væri hann fullsæmdur þeim heiðri, sem hon- um hefur verið sýndur. En með skilningi Klemenzar var honum fullljóst, að landbúnað á íslandi væri illt að reka nema með sem mestri innlendri fóður- öflun. Þess vegna hóf hann snemma tilraunir með fram- leiðslu grasmjöls, að vísu með all frumstæðum tækjum, en það sannaðist fljótt, að þessi verk- unaraðferð var bæði hentug og gildisrík. Eftir áratuga þrotlaust starf tókst honum að sýna fram á árangur þessarar fóðurvinnslu grass. Nú er þessi aðferð notuð i nokkuð breyttum mæli, með nýrri tækni, svo að til stóriðju má telja. Sannarlega naut hann liðs sér- stakra dugnaðarmanna og ber þá hæst nafn Jóhanns Frankssonar, forstjóra graskögglaverksmiðj- unnar á Stórólfsvöllum. Þar sem áður voru óræktar móar eru nú grasgefnar túnasléttur. Ef verð- lag kjarnfóðurs væri rétt þyrfti engu að kviða framtíð innlendrar fóðuröflunar. Klemenz Kr. Kristjánsson var vinfastur maður og traustur. Á hann hlóðust trúnaðarstörf fyrir sveit og sýslu og varð hann þó oft að sýna festu til að ekki kæmi niður á hans aðalstarfi er leitað var til hans um kosningu til enn frekari afskipta af opinberum málum. Hagur ræktunar stóð hon- um hjarta næst og á þeim vet- vangi var hann óbifanlegur. Hann var mikilvirkur skóg- ræktarmaður og sýndi og sannaði með skjólbeltarækt hversu landið væri arðgæfara þar sem þeirra nyti við. Hann sýndi hug sinn í verki er hann gaf skógræktinni á Tumastöðum i Fljótshlíð allt girð- ingarefni. 1 einkamálum var Klemenz var- færinn, sem annars staðar. Hann kvæntist hinn 3. október 1929 Ragnheiði f. 9. ágúst 1903, Nikulásdóttur bónda og kennara að Kirkjulæk i Fljótshlíð, Þórðar- sonar. Þeim varð ekki barna auð- ið en ólu upp kjörbarn Eddu Klemenzdóttur, húsmóður í Reykjavík og Þóri Guðmundsson, hagfræðing hér i borg. Siðar eftir lát konu sinnar kvæntist hann sambýliskonu sinni Þóreyju Stefánsdóttur, ættaðri úr Reyk- hólasveit og Breiðafjarðareyjum, og eignuðust þau einn son, Trausta rafvirkjanema, sem enn er í heimahúsum. Eftir Klemenz liggur allmikið í rituðu máli bæði í blöðum og landbúnaðarritum og hann mun að mestu hafa verið búinn að ganga frá ævisögu sinni er fráfall hans bar að. Nú er slitinn þráður og við njótum ekki lengur fróð- leiks hans í sögu og jarðrækt, frásagnargleði og einstaks minn- is. Sagan var honum kær og hann kunni til fullnustu skil á mönnum og málefnum til hinztu stundar. Kvaddur er vinur. Nóg er að starfa guðs um geim. Far þú í friði. Ég færi aðstandendum hans djúpar samúðarkveðjur. Halldór Stefánsson. Nýlega er látin Guðlaug 1. Guðjónsdóttir, Framnesi í Kefla- vík. Þegar ég var 10 ára strákur í Leirunni fór ég í fyrsta sinn í barnaskóla. Ég var búinn að hlakka þessi ósköp til að fá að ganga í skóla. Ég vissi að nýr kennari átti að taka við kennslu- störfum þá um haustið. Ég beið því í ofvæni, hvernig þessi kenn- ari væri, hvernig mér geðjaðist að honum, hvort hann yrði góður við okkur krakkana og hvernig hann kenndi okkur. Þegar til kom reyndist þetta ung og falleg stúlka með þýðan, en festulegan svip. Ég varð strax mjög hrifinn af henni og hef verið það æ síðan. Skólahúsið var anddyri og ein stofa. Þar voru krakkarnir allir í senn frá 10 ára aldri til ferm- ingar. Þó við værum fá þurfti kennarinn að halda reglu og hafa aga. Þetta var svo sjálfsagt og að því er virtist fyrirhafnarlaust. Við krakkarnir vorum of bundin við það, sem Guðlaug kenndi okkur, að nokkurt tóm væri til óláta í bekknum. Annars fannst mér kennsla Guðlaugar svo lif- andi og athyglisverð að ég marg óskaði þessa þrjá vetur, sem hún kenndi mér að ég yrði eins lærður og hún þegar ég væri orðinn stór. Ég býst við að þessi ósk hafi ræst að sumu leyti, en að öðru ekki. Ég á langt í land til að öðlast þann sívakandi áhuga fyrir öðrum, ósérhlífni og örlæti öðrum til hjálpar, menntunar og þroska, sem Guðlaugu var svo eiginlegt og sjálfsagt i öllu hennar lifi. Það var lítið um peninga á minu heimili. Það litla, sem til féll var fyrst og fremst notað til að greiða útsvar, hundaskatt og skuldir. Annað kom á eftir. Þetta var ég vaninn á að skilja. Ég átti því ekki svo litið erfitt með að fara til Guðlaugar og biðja hana að kenna mér ensku. Ég stundi því upp að ég ætti enga peninga, en að ég skyldi borga henni siðar fyrir kennsluna, Hún sagði að þetta væri alveg ajálfsagt, hún hefði bara gaman af þessu og ég mætti ekki minnast á borgun. Þetta kom sér vel, því aldrei hef ég greitt þessa dýru skuld. Þessi ósér- plægni Guðlaugar varð til þess að ég fór að færa mig upp á skaftið. Einhvern tímann trúði ég henni fyrir því að ég hefði frétt að hún Jóna systir hennar teiknaði svo vel og væri svo góður teiknikenn- ari. Guðlaug var ekki lengi að átta sig á hvað á spitunni hékk, sagði að þetta væri alveg rétt og að hún væri viss um að Jónu myndi þykja gaman að kenna mér teikningu á kvöldin ef ég nennti að ganga alla leið inn á Framnes, en það var rúmlega klukkutima gangur, hraður. si^yi^jj ta]a um þetta við Jónu. Ekki .stóð á því, þvi stuttu síðar fór ég i fyrsta teikni- tímann. Þetta var um kvöld i myrkri og aurbleytu, sem náði upp fyrir skóvörp. Ég var ákaf- lega myrkfælinn, fannst draug- arnir á Hólmsbergi og forynjurn- ar úr þjóðsögunum sækja að mér með hverri vindhviðu. Ég beit á jaxlinn og hélt áfram. Þegar komið var inn í Keflavík hvarf myrkfælnin, en þá fór ég að hugsa um hvernig þetta ókunna fólk á Framnesi, myndi taka við mér blautum og forugum. Ég barði þvi að dyrum með hálfum huga. Dyrnar opnuðust næstum strax og í þeim stóð brosandi, ung stúlka, ljós yfirlitum og út úr henni skein góðmennskan eins og Guðlaugu systur hennar. Þetta var teiknikennarinn. Vertu vel- kominn og gerðu svo vel að ganga i bæinn, sagði hún. Ég reyndi að þurka af löppunum og inn fór ég. Þar sátu foreldrar þeirra systra á rúminu sínu, þau Guðrún Torfa- dóttir og Guðjón Jónsson, skipa- smiður og þar var hann Maggi fóstursonur þeirra og frændi. Maggi var bara strákur eins og ég svo ég veitti honum ekki mikla athygli svona fyrst í stað, en þau hjónin leist mér strax á svo vel, að ekki var á betra kosið. Þarna var bjart af oliulampanum og hlýtt af kolaofninum. í þetta hús hef ég komið marg oft síðan kvöldið góða. Þar hefur mér alltaf fundist hlýtt og bjart, jafnvel þó ég hafi orðið að sjá á bak öllum þessum vinum mínum nema Jónu, sem nú er ein eftir í gamla húsinu, Framnesi. Þær systur Guðlaug og Jóna voru svo samrýmdar að varla er hægt að tala um aðra án þess að minnst sé á hina. Þær voru báðar afbragðs kennarar, báðar óvenju- legir mannvinir, sem bókstaflega fórnuðu sér fyrir aðra. Þær unnu að ýmsum mannúðar- og menn- ingarmálum svo sem bindindis- málum og slysavörnum af svo miklum dugnaði og seiglu að undrun sætti. Aftur á móti kunnu þær ekki ,,að alheimta daglaun að kvöldum". Þær gerðu áreiðanlega aldrei kröfu fyrir sjálfar sig, fóru aldrei í kröfugöngur, hrópuðu aldrei á torgum, en afrakstur æfi- starfs þeirra er áreiðanlega drýgri til farsældar íslensku þjóð- lífi en hinna. Svo sjálfselskur er ég að ég þakka forsjóninni fyrir að ég skuli hafa átt þess kost að kynnast þeim Framnessystrum, foreldrum þeirra og fóstbröður, að hafa notið kennslu þeirra og vináttu. Þegar Jóna er ein eftir sendi ég henni ástarkveðju. Ófeigur J. Ófeigsson. Hdga Kristmunds- dóttir—Minning Fædd 19. desember 1897 Dáin .‘Lmaí 1977 Kveðja Þegar við nú I hinsta sinn kveðjum Helgu, koma fram i huga okkar ótal minningar frá liðnum árum. Við sem áttum þvi láni að fagna að kynnast henni og starfa með henni um áraráðir, minn- umst nú þeirra mörgu ánægju- stunda sem við áttum saman í bakariinu á Nönnugötunni. Alltaf var Helga boðin og búin að rétta fram hjálparhönd, við hvaða verkefni sem til féll, því dugnaður, kraftur, ósérhlífni og vinnugleði einkenndu störf henn- ar. Þegar hún hætti störfum hér siðastliðið haust, áttum við erfitt með að sætta okkur við að hafa Helgu ekki lengur við hlið okkar. Fannst okkur eíns og myndast hefði stórt skarð sem erfitt var að fylla. Þegar við svo fréttum að hún hefði verið lögð inn á sjúkrahús, óraði okkur ekki fyrir því, að hún ætti ekki þaðan afturkvæmt. Þvi kom frét.tin um andlát Helgu Kristmundsdóttur okkur mjög á óvart. En þetta er það sem allir verða að sætta sig við, fyrr eða siðar. En það er sárt að þurfa að horfa á bak góðs vinar eða ætt- ingja. Þessi fáu orð eru okkar hinsta kveðja til hennar en minningin um Helgu mun lifa í hjörtum okk- ar um ókominn tima. Við vottum ættingjum hennar okkar dýpstu samúð. Vinnufélagar. Hinn 3. þ.m. lézt á Borgar- spitalanum í Reykjavík Helga Kristmundsdöttir, á 80. aldursári. Ekki verður sagt, að mikill héraðsbrestur verði, þegar gömul og lúin kona leggst til hinztu hvíldar eftir langan og farsælan starfsdag, enda er þetta lögmál, sem allir lúta fyrr eða siðar. En engu að siður kveður hér kona, sem vert er að minnast og þá ekki sizt fyrir það, að hún hefur alið þjóð sinni tólf mannvænleg börn og það á þeim tímum, þegar hvorki voru styrkir né fjölskyldu- bætur til að létta undir, svo sem nú þykir sjálfsagt. Þá voru afkom- endur hennar alls orðnir 96 við fráfall hennar. Helga var fædd i Vestmanna- eyjum 19. desember 1897. Voru foreldrar hennar Þóra Einars- dóttir og Kristmundur Arnason. Þóra lézt, er Helga var þriggja vikna, og lét þá einnig eftir sig aðra dóttur, Jóhönnu Björns- dóttur, er var hálfsystir Helgu. Lifir hún enn í hárri elli á Horna- firði. Föðurbróðir Helgu, Ingvar Árnason í Hólshúsi, og kona hans, Gróa Þórðardóttir, tóku hina ungu stúlku í fóstur, og þar ólst hún upp sem i foreldrahúsum væri og átti við gott atlæti að búa. Kristmundur, faðir hennar, hélt til Ameriku, er hún var barn að aldri, og lézt þar. Hinn 1. júni 1918 gekk Helga að eiga ungan skaftfellskan mann, Orm Ormsson, er var Meðal- lendingur að uppruna. Hafði hann dvalizt í Eyjunum um hríð og m.a. verið á mótornámskeiði. Gerðist hann svo vélstjóri á vél- skipinu Skaftfellingi, sem Skaft- fellingar höfðu keypt til vöru- flutninga að sinni hafnlausu strönd að sumarlagi. Var Ormur siðan vélstjóri á skipinu til ársins 1929, en vann við raflagnir hjá bræðrum sinum í Reykjavík að vetri til. Þau Helga og Ormur settust að í Reykjavik haustið 1918 og áttu lengst heima á Baldursgötu 31. Dóttur eignuðust þau þegar á næsta ári, 1919, og brátt fjölgaði börnunum. Gefur auga leið, að starf húsfreyjunnar hefur fljótt orðið mikið og ekki sizt fyrir það, að bóndi hennar var lengstum fjarverandi að sumarlagi. Reyndi þá á dugnað og ráðdeild hús- freyjunnar ekki siður en bónd- ans. Við, sem nú lifum i islenzku velferðarríki, getum enga grein gert okkur fyrir þeim erfiðleik- um, sem fólk átti við að etja eftir fyrra strið og svo á kreppu- árunum um og eftir 1930. Vitan- lega fóru þau Helga og Ormur ekki varhluta af þessum erfiðleik- um og þá ekki sizt, þegar barna- hópurinn stækkaði með hverju ári. Lífsbaráttan var hörð og ekki alltaf mikið til að seðja tápmikil börn. Þannig fór líka, að þau sáu sér ekki fært að framfleyta sér og átta börnum sínum hér í Reykja- vík, og leituðu þvi eftir jarðnæði. Árið 1931 fluttust þau vestur að Hofgörðum í Staðarsveit, og man ég vel, þegar þau lögðu af stað með fallega hópinn sinn á Suður- landinu gamla. Ekki efa ég, að þetta var mikil breyting i lifi þessarar fjölskyldu og gerð af brýnni nauðsyn. í Staðarsveit dvöldust þau til 1936, en það ár festi Ormur kaup á jörðinni Laxárbakka i Miklaholtshreppi. Var það og meira að skapi þessara dugmiklu hjóna að búa á eignar- jörð, þótt keypt væri í mikilli skuld, en búa sem leiguliðar. Þessi sunnlenzka fjölskylda mun örugglega hafa komið sér vel í hinu nýja umhverfi, og þar eignuðust þau marga ágæta vini. En barnahópurinn stækkaði, svo að árið 1940 áttu þau tólf börn. Þegar börnin uxu úr grasi, tóku þau mjög að létta undir með for- eldrum sinum. Varð það til þess, að heimilisfaðirinn fór að fara tima og tíma suður til Reykja- víkur að vetrarlagi til að vinna að rafvirkjastörfum, enda þurfti heimilið mjög við þeirra fjár- muna, er hann aflaði með vinnu sinni. En fara má nærri um það, að störf Helgu jukust verulega við þetta, og ekki minnkuðu þau við það, að Ormur gerðist rafveitu- stjóri í Borgarnesi 1940. Sýndi Helga þá sem jafnan áður, hvílik tápkona hún var. Árið 1946 fluttist fjölskyldan svo frá Laxárbakka og settist að í Borgarnesi, þar sem hún bjó fljót- lega um sig í rúmgóðu húsi, er Ormur reisti. Vann Ormur siðan þar i bæ að rafvirkjastörfum, meðan heilsan leyfði, en hann lézt 26. des. 1965, 74 ára gamall. Þá voru börnin flest löngu farin að heiman og búin að stofna eigin heimili. Brá Helga þvi á það ráð að selja hús sitt og flytjast aftur til Reykjavíkur, enda voru mörg börn hennar þar búsett, þótt nokkur væru einnig í Borgarnesi. Keypti hún þá i ársbyrjun 1967 ibúð i húsi að Bragagötu 21 og var því aftur komin í næsta nágrenni við þann stað, þar sem hún hafði átt heima á árunum milli 1920—30. Hygg ég, að hún hafi kunnað því vel að vera aftur kom- in á fornar slóðir. Helga var alla tíð fáskiptin kona, enda óáleitin um annarra hag. Hafði hún og ærið að starfa, meðan dagur entist, og við það kunni hún líka bezt. Ég haföi þekkt hana alla mína ævi og fylgzt með ferli hennar og Orms allt frá þvi þau bjuggu á Baldurs- götunni og æ síðan. Engu að siður get ég ekki sagt með sanni, að ég hafi kynnzt henni að nokkru marki sjálfur. Hins vegar þekkti móðir mín hana vel, enda báðar svo til jafnöldrur og þar að auki svilkonur. Þó að ekki væri nema vegna vinfengis þeirra, er mér skylt að minnast þessarar látnu samferðarkonu og þakka henni alla tryggð við móður mína. Þegar ég man fyrst eftir, bjúggu þær og fjölskyldur þeirra við sömu götu, og nú hin síðustu ár, er báðar voru orðnar ekkjur, næstum á sömu slóðum og þær hófu búskap á fyrir nær 60 árum. Styttu þær sér þá oft kvöldin saman og ylj- uðu sér við minningar liðinna ára. Veit ég, að báðar höfðu ánægju af, enda vill oft fara svo, að við, sem erum á miðjum aldri og vel það og i önnum flesta daga, gefum okkur tæpast tima til að stanza lengi hjá gamla fólkinu — þvi miður. Er þá ánægjulegt, að það geti haft ofan af fyrir sér sjálft sem lengst fram á ævikvöld. Og það hafði Helga vissulega, þvi að segja má, að henni hafi aldrei fallið verk úr hendi. Eftir að Helga fluttist aftur til Reykjavíkur og hafði setzt að í ibúð sinni við Bragagötu, vann hún ýmis störf í Njarðarbakaríi á Nönnugötu 16. Vann hún þar, þar til bakariið fluttist úr hverfinu á siðasta hausti. Eftir það hafði hún hægt um sig, enda tók hún að kenna lasleika stuttu síðar. Fram að þeim tima hafði hún verið heilsuhraust og haldið sér svo vel, að engum gat dottið í hug, að aldurinn væri orðinn næstum 80 ár. 1 febrúar síðastliðnum lagðist hún í sjúkrahús og átti þaðan ekki afturkvæmt, þvi að hún andaðist að afliðnu hádegi hinn 3. þ.m. eftir allstrangt helstríð. Nú er þvi lokið, og mun hún hafa sofnað sinn síðasta blund sátt við allt og alla. í dag verður hún lögð til hinztu hvíldar við hlið eigin- manns síns í kirkjugarðinum í Borgarnesi. Börnin hennar tólf og tengdabörn, barnabörn og jafnvel barnabarnabörn fylgja henni sið- asta spölinn ásamt fjölmörgum öðrum vinum og vandamönnum. Er þá langri vegferð lokið. Mæli ég örugglega fyrir munn allra þeirra, sem þekktu Helgu Krist- mundsdóttur, þegar henni er þökkuð samfylgdin. Urn leið sendi ég börnum h’ennar og öðrum ást- vinum samúðarkveðjur minar og fjölskyldu minnar. Jón Aðalsteinn Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.