Morgunblaðið - 14.05.1977, Page 31

Morgunblaðið - 14.05.1977, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1977 31 Þrírsterkirfrá vegna meiðsla EFTIR að hafa æft þrotlaust undanfarna mánuði og undirbúið sig af kostgæfni fyrir íslandsmótið I knattspyrnu, urðu þrír leikmenn félaganna f 1. deild fyrir þvf áfalli að meiðast illa f fyrstu leikjunum. 0 Sigurlás Þorleifsson fór mjög illa úr axlarliði f leik ÍBV og Fram fyrir viku. Hefur Sigurlás verið til meðferðar hjá læknum f Reykjavfk f vikunni og að sögn mun hann verða frá í 5—6 vikur. % Róbert Agnarsson nefbrotnaði illa f fyrsta leik Vfkinga, sem var gegn FH. Gat Róbert ekki leikið með Vfkingi gegn Þór af þessum sökum og mun verða frá um nokkurn tfma. 0 Örn Óskarsson (Myndin) er þriðji maðurinn f þessum hópi. Hann fékk slæmt spark í leik KR og ÍA f fyrstu umferð mótsins, en hélt ekki að um alvarleg meiðsli væri að ræða. t leik KR og ÍBK f vikunni ágerðust meðslin og við athugun eftir leikinn kom f Ijós að Örn var rifbrotinn. Mun það taka hann nokkurn tlma að fá sig góðan af þeim meiðslum og verður hann að fara sér hægt á meðan. Dauf byrjun í2. deild FYRSTI leikurinn í 2. deild tslandsmótsins f knattspyrnu fór fram á Melavellinum á fimmtudagskvöld. Áttust þar við einu Reykja- vfkurfélögin f deildinni, Þróttur og Ármann. Þessi lið verða að teljast f hópi hinna sterkustu f deildinni. Þótt ekki hafi það verið séð af leik þeirra, sem var mjög slakur og lítt spennandi á að horfa. Þróttur náði undirtökunum í byrjun leiks og skapaði þeir sér nokkur sæmileg marktækifæri sem ekki nýttust. Eina mark leiksins skoruðu Þróttarar á 23. min. leiksins og var þar að verki Páll Ólafsson sem sendi boltann i netið af stuttu færi eftir að Sverrir Brynjólfsson hafði átt skot í stöng. Eftir þetta mark Þróttar jafnaðist leikurinn nokkuð, en fram að þessu höfðu Ármenningar varla komist fram fyrir miðju en fátt skeði markvert. í síðari hálfleik náðu Ár- menningar undirtökum á miðjunni en framlina þeirra var ákaflega slök og skapaðist því lítil hætta við Þróttarmark- ið. Þá sjaldan það skeði greip góður markvörður Þróttar, Rúnar Sverrisson, örugglega inn í. Leikurinn var eins og fyrr segir ákaflega slakur og var það fátt sem gladdi augu þeirra sárafáu áhorfenda sem lögðu leið sina á völlinn þetta kvöld. Ágætur dómari leiksins var Guðmundur Haraldsson. HV. Vorsýning hjá fimleikafólki LOKAPUNKTURINN í vetrar- starfsemi fimleikafólks verður i íþróttahúsi Kennaraháskól- ans á morgun. Verður þar hald- in fyrsta vorsýning FSÍ og hefst klukkan 15. Er fimleikadeild- um með þessari sýningu gefinn kostur á að koma fram með sýningarhópa sina og sýna ann- að en keppnisæfingar. Munu þarna verða beztu fimleikahóp- ar félaganna. Á meðfylgjandi mynd er það Karólina Valtýsdóttir úr Björk i Hafnarfirði, sem gerir gólfæf- ingar. Fyrir þessar æfingar fékk Karólína einkunnina 9,4 i firmakeppninni á dögunum. Er það næst bezta einkunnin, sem gefin hefur verið fyrir fim- leikaæfingar í fimleikastigan- um hér á landi. Á Karólina einnig hæstu einkunnina, 9,5 fyrir stökk á hesti. Karólína Valtýsdóttir I gólfæfingum Stuðningsmenn Vals Hópferð verður á leik Vals við ÍBK frá Hlíðarenda í dag kl. 1 2:30. Klæðist réttum litum. Stuðmenn Vals. Iþróttafólk áfaraldsfæti LÍKUR eru á að frjálsfþróttamótin hérlendis verði með daufara móti f júnf og júlí. þv'f augljóst er að nokkrir af fremstu frjálsfþróttamönnum og konum veróe arlendis þessa tvo mánuði við æfingar og keppni. Svipað ástand hefur raunar varað sfðustu árin, en frjálsfþróttafólk hefur sótt töluvert til útlanda þar sem aðstaða til æfinga og keppni hérlendis er f mörgum tilvikum óviðunandi. Bæði eru frjálsfþróttavellir hérlendis marg- falt verri en alls staðar erlendis þar sem gerviefnabrautir eru á hverju strái, og svo er harðari keppni þar að mæta. Fyrir nokkru héldu hlaupararnir Ágúst hyggjast vera út júlí. Jón Diðriksson og Agúst Þorsteins- son úr UMSB til Norköping I Svíþjóð til æfinga og keppni Eru þeir þar hjá Í.K Tyvar sem Lilja Guðmundsdóttir keppir með. Fyrstu fregnir af þeim félögum eru þær að æfingar ganga vel, en þeir fengu einnig strax atvinnu í þvottahúsi hjá sænska hernum í Norrköping, og vinna þar hálfan daginn, sem nægir þeim fyrir „nauðsynjum". í sinni fyrstu keppni, vfðavangshlaupi, sigraði Jón í karlaflokki og Ágúst hlaut þriðja sæti f unglingaflokki. Lilja Guðmundsdóttir sigraði í kvennaflokki hlaupsins. í Norköping dvelur einnig um þessar mundir hástökkvarinn Guðmundur R Guðmundsson úr FH en hann mun dvelja þar í þrjár vikur, en Jón og vera ÍR—ingurinn Gunnar Páll Jóakims- son mun halda til Norrköping á morgun og dvelja þar út júlí, en koma síðan heim með þeim Jóni og Ágústi. Guðna Halldórssyni kastara úr KR hefur verið boðið til keppni í Englandi síðari hluta júlí—mánaðar í spjalli við Mbl. sagðist Guðni aðeins fara utan ef hann teldi sig vera búinn að ná sér nægilega af meiðslum, en hann fót- brotnaði sem kunnugt er á sl hausti Sagðist Guðni mundu dvelja í Englandi í a m k 10 daga ef hann færi, en hann mun dvelja hjá vini sínum Georg Capes, sem eins og kunnugt er, er einn allra fremsti kúluvarpari heimsins í dag. Framhald á bls. 18 w,; ... V.. ... nuimuvji ci , ci ciiiii aina ngino Guðmundsson úr FH en hann mun kúluvarpari heimsins i dag I VSIII M dvelja þar i þrjár vikur. en Jón og Framhald á bis. 1 Blikarnir stigi á Skaganum hvað gerir Valur gegn ÍBK? HEIL umferð verður I 1. deildinni ( knattspyrnu um helgina og 4 leikir verða ( 2. deildinni. Helzti leikur 1. deildar um helgina er viðureign IA og UBK á Akranesi f dag klukkan 15, en Skagamenn eru efstir r 1. deild ásamt IBK, en Blikarnir hafa hins vegar aðeins tapað einu stigi eins og IBV. Leikir helgarinnar verða sem hér segir: 1. DEILD Laugard, kl. 14 Melavöllur : FRAM—ÞÖR Laugard, kl. 14 Keflavik: IBK—Valur Laugard, kl. 15 Akranes: IA—UBK Sunnud kl. 14, Kaplakriki: FH—IBV Mánud kl. 20, Melavöllur: Vfkingur—KR 2. DEILD Laugard. kl. 15, Húsavík: Völsungur—Þróttur N Laugard. kl. 16 Kaplakriki: Haukar—Reynir Á Mánud. kl. 20, Keflavík: Reynir—Selfoss Að loknum þessum leikjum verður nokkurt hlé á deilda- keppninni, en á þriðjudaginn verður pressuleikur I knattspyrnu — að öllum líkindum á malarvellinum i Kaplakrika. Átti að vera lands- liðið í dag og munu blaðamenn velja sitt lið yfir helgina. Er þetta fyrsti leikur landsliðsins á árinu og verður fróðlegt að sjá hvernig landsliðið fellur saman eftir að leikmenn liðsins hafa ekki komið saman siðan i fyrrahaust. Verður siðan lands- leikur gegn Færeyingum um aðra helgi og fer sá leikur fram i Kópavogi. Er það í fyrsta skipti, sem landsleikur i knattspyrnu fer fram utan Reykjavíkur. Fréttamenn skoruðu i vikunni á stjórn KSl og nefndir til knattspyrnuleiks á undan pressuleik. Tóku KSl—menn þess áskorun, fréttamönnum á óvart, og verða þvi tveir stór- leikir i knattspyrnunni á þriðjudaginn. Svo aftur sé vikið að leikjum helgarinnar, þá verður fróðlegt að sjá hvað Blikarnir gera á Akranesi. Vissulega eru Skaga- menn sigurstranglegri, þó ekki væri vegna annars en þess, að þeir leika á heimavelli sinum. En Blikarnir sýndu það í Eyj- um á miðvikudaginn að gegn þeim getur ekkert lið bókað sér sigur og það yrði þægilegt vegarnesti fyrir Blikana að ná til sín öðru stiginu i Eyjum og á Akranesi. Það er athyglisvert þegar staðan í 1. deildinni er skoðuð að loknum tveimur umferðum að stórlið Reykjavíkur, Valur og KR, sitja á botninum. Bæði eru þau án stiga og KR-ingum hefur enn ekki tekizt að skora mark. Bæði þessi lið ætla sér örugglega að breyta út frá tap- leikjunum um helgina. Vals- menn gegn IBK i Keflavik i dag, KR-ingar gegn Vikingum á mánudaginn. Síðastnefnda liðið hefur ekki riðið feitum hesti frá tveimur fyrstu leikjunum i mótinu og eru þeir mjög gramir dómurum leikjanna fyrir lin- kind. FH-ingar fá Eyjamenn í heimsókn á morgun og verða að ná betri árangri en gegn Fram á miðvikudaginn. Þá töpuðu þeir 0:3 í „jöfnum leik“. Það verður þó eflaust erfitt fyrir þá að hala inn stig gegn IBV, sem vann Fram 2:0 í fyrstu umferð- inni. íslendingur- // inn sterki // ÍSLENDINGURINN sterki er fyrir sögn á grein um Hrein Halldórs son sem nýlega birtist 1 hinu virta austur-þýzka frjálsfþróttariti Der Leichtathlet og Morgunblaðinu hefur borizt. Með greininni birtist tveggja dálka mynd af Hreini í keppni, en Ijósmyndarinn er ein- mitt Ijósmyndari Mbl., Friðþjófur. í greininni er fjallað nokkuð um framfarir Hreins á síðustu árum og einnig sagt frá þvl, að hann hafi skelft frjálsfþróttaheiminn og kúluvarpara með sigri sínum á Evrópumeistaramótinu innanhúss I ár. Loks fylgir greininni listi yfir árangur Hreins í kúluvarpi ár frá ári. En það er vel skrifað um Hrein Halldórsson í . og því óhætt að segja að hann beri viða hróður is- lenzkra íþrótta, sér i lagi frjáls- iþrótta Þannig var í brezku stórblöð- unum Guardian og Daily Telegraph fjallað um Hrein sem eitt aðaltromp- ið á mjög stóru frjálsiþróttamóti sem fram fer í London nk miðvikudag Der starke Mann aus Island Skrifað var um hann sem „hinn frábæra. íslenzka frjálsiþróttamann" Undirritaður rakst einnig nýlega á hagstæð skrif um Hrein og islenzkar frjálsíþróttir i mjög útbreiddu vestur- þýzku frjálsiþróttariti sem heitir Leichtatletik. Loks má svo geta þess að f útbreiddu brezku vikuriti um frjálsíþróttir, Athletics Weekly, var mikið skrifað um kúluvarpið á Evrópumeistaramótinu innanhúss, og fékk Hreinn mjög lofsverða dóma þar —ágás. Þjálfaranámskeið í skíðagöngu — B stig Námskeiðið verður haldið á Siglufirði dagana 28.5 til 1.6 (um hvítasunnu). Kennari verður Emil Björnsson, iþróttakennaia Þátttaka tilkynnist skrifstofu ÍS( I sima 83377. Kennslugögn verða afhent i upphafi námskeiðs. Skiðasamband Islands. Breiðhottshlaup IR ÍR-INGAR gangast fyrir Breið holtshlaupi á morgun, sunnudag, og hefst hlaupið á sama stað og sama tima og áður, þ e fyrir fram an Breiðholtskjör kl. 14. Eru væntanlegir þátttakendur beðnir um að mæta til skráningar um kl. 13.30. Sfðasta Breiðholtshlaup ÍR fer fram sunnudaginn 27. mai nk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.