Morgunblaðið - 07.06.1977, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JUNÍ 1977
___I>órir Haukur Einarsson, Drangsnesi:
Flotkrónur
og f jadrafok
Inngangur
..Ég tel fyllilega tímabært og æski-
legt. að um þessi mál sé fjallað í
opmberum umræðum, þar sem tæki-
færi gefst til að kanna, hvaða viðhorf
menn hafa til hugsanlegrar gjaldmiðils-
breytingar "
Þetta eru ummæli Dr Jóhannesar
Nordal seðlabankastjóra í viðtali við
Morgunblaðið hinn 4 mars sl í tilefni
af þingsályktunartillögu Lárusar Jóns-
sonar alþingismanns um að tvö núll
verði skorin aftan a íslensku krónunni.
Af viðtalinu í heild virðist mega ráða
að seðlabankastjórinn telji það koma
fyllilega til greina. að gerð verði áður
nefnd breyting á gjaldmiðlinum, þótt
hann á hinn bóginn geri ekki mikið úr
raunverulegri hagkvæmni þess Þá
virðist og mega ráða það af viðtalinu,
að afstaða almennings í málinu komi
hugsanlega til með að hafa veruleg
áhnf á það, hvort af breytingu verður
eða ekki
Með því að mér þykir málið harla
merkilegt á allan hátt. get ég ekki látið
hjá liða að leggja orð i belg. eftir þá
óbeinu hvatningu, er fram kemur í
framan greindn tilvitnun Skoðana-
skipti leikra jafnt sem lærðra á sem
víðustum vettvangi hljóta að þjóna
best hinni almennu umræðu um þetta
merka tímamótamál
Læt ég svo lokið þessum inngangs-
orðum og sný mér rakleitt að efninu
Lærdómurinn
og leikmennskan
í viðtalinu við Mbl kveðst seðla-
bankastjóri vilja leiðrétta þann mis-
skilnmg. er mjög komi fram í um-
ræðum um þetta mál og lýsi sér i þeirri
skoðun. að sú breyting að taka upp
nýja mynteiningu hundrað sinnum
stærn en núgildandi islenska krónu.
jafngildi því að taka tvö núll aftan af
öllum tölum Sannleikurinn sé sá, að í
tveimur áföngum á undanförnum árum
hafi einmitt tvö núll verið tekin aftan af
íslenska gjaldmiðlinum með þvi að
fella aurana algerlega niður Banka-
stjónnn segir ennfremur efnislega að
jafnvel þótt umrædd breyting væri
gerð. yrðu allar tölur með jafnmörgum
tölustöfum og áður.
Þessi ummæli seðlabankastjórans
eru að mínum dómi ágætt dæmi um
það. hversu góður ásetningur kemur
oft og tíðum illa til skila, þegar sér-
fræðingarnir taka til að tjá hugmyndir
sínar við almenning. Þetta stafar
áreiðanlega sjaldnast af því. að
viðkomandi sérfræðingar séu ekki
góðir. ágætir eða frábærir, hver í sinni
grein. heldur líklega af hinu. að þeir
tala tíðum á vissan hátt eilitið annað
tungumál en allur fjöldinn
Tilgangur seðlabankastjórans er
vafalaust að gera einfalda hluti ennþá
Ijósari í málinu. en mér finnst á hinn
bóginn að orð hans vefji málið nokkru
mistri og séu jafnvel til þess fallin að
rugla fólk í rfminu Það. sem seðla-
bankastjórinn er að segja, hlýtur að
vera þetta Kr 100 fyrir hugsanlega
breytmgu myndu samsvara kr. 1,00
eftir breytingu. Vissulega eru jafn
margir tölustafir í báðum tilvikum
Líklega er það ekki sérlega
nákvæmt. hvað þá vísindalegt orðalag,
að tjá umrædda breytingu með
orðunum að ..skera tvö núll aftan af
krónunni " Ég hygg, að þetta hafi eigi
að siður þann augljósa kost. að svo til
hvert einasta mannsbarn í landinu
skilji að fullu, hvað við er átt. ef svona
er tekið til orða Þegar talað er um að
skera tvö núll aftan af krónunni, er
auðvuað átt við að nema tvö núll aftan
af heilli tölu upphæðar. þar sem heila
talan táknar fjölda aðaleininganna, þ e
krónunnar. en aukastafirnir
hundruðustu hluta einingarinnar. þ e
auranna. ef þeir væru enn við lýði
Væri islenska myntkerfið ólemstrað i
dag, myndi þetta samsvara færslu
kommunnar um tvö stæri til vinstri, og
þannig losa okkur við tvo öftustu
upphaflega tölustafi Eins og mynt-
kerfið er i dag, myndu tveir tölustafir
hins vegar fara i það að skila aftur
aurunum inn í íslenska myntkerfið
Orðalagið „tvö núll" hefur auðvitað
þann augljósa annmarka að bókstaf-
lega og strangt til tekið heimfærist það
einungis upp á heilar tölur, sem inni-
fela a m k tvö núll
Niðurstaða min af þessum hug-
leiðingum er sú, að þrátt fyrir skil-
greiningargalla orðalagsins „tvö núll".
sé það nú þegar öllum almenningi
Ijóst, hvað því er ætlað að merkja. þ e
að auka verðgildi islensku krónunnar
hundraðfalt með því að deila gildandi
heilli tölu hennar með hundrað Hitt
hlýtur þá um leið að teljast nánast
aukaatriði. þótt tölustöfum sem slikum
myndi ekki af áðurnefndum ástæðum
fækka frá því, sem nú er, ekki einu
smni í heilum krónum, þar eð brota-
talan .00 væri yfirleitt slegin og skrif-
uð Ennfremur er ég þeirrar skoðunar
að komman eða punturinn, sem raunar
kæmi þarna aftur i spilið. þótt seðla-
bankastjórinn hirði ekki um að tíunda
það, væri margfaldlega þess virði að
slá eða skrifa. miðað við þann ávinning
að endurreisa íslenska myntkerfið í
sinni réttu mynd
Ég held ennfremur að seðlabanka-
stjórinn ofmeti og einblíni um of á þá
breytingarástæðu í huga fólks, að tölu-
stöfum myndi fækka. sem ekki væri
raunhæf ástæða, eins og rakið hefur
verið Ég held að fólk vilji fyrst og
fremst endurreisa gamla góða kerfið
með því að fá þyngri aðaleiningu og
aurana inn aftur Þótt myntkerfið okkar
sé ekki ýkja gamalt. er það eigi að
síður orðið okkur samgróið Viðrétting
þess myndi hafa a góð áhrif á
verðmætaskynjun almennings og jafn-
vel glæða trú fólks á það, að með lagni
mætti kannski bjarga fleiri verðmætum
úr verðbólgubálinu ep íslenska mynt-
kerfinu einu saman.
En lítum nú aftur á þetta með tölu-
stafafjöldann. „Sannleikurinn er sá. að
í tveimur áföngum á undanförnum
árum hafa tvö núll verið tekin aftan af
íslenska gjaldmiðlinum með þvf að
fella aurana algerlega niður, þannig
að krónan er nú minnsta mynt-
einingin." (Leturbreyting mín — ÞHE)
Framangreind verklýsing felur í sér
fordæmingu sjálfrar sín og upphefur
sig sem nýtileg rök í þessari umræðu.
Það er einmitt þetta. sem ég á við.
þegar ég tala um að rugla í ríminu.
Þetta, sem seðlabankastjórinn er að
segja má kannski til sanns vegar færa á
sinn hátt, en þó nánast því aðeins. að
við játum okkur reiðubúin til að hlaupa
frá umræðu alvarlegra staðreynda yfir í
gamansaman orðaleik
Sé það meining seðlabankastjórans,
að sá verknaður að nema tvö núll aftan
af íslenska gjaldmiðlinum með því að
fórna aurunum, sé lækning sambæri-
leg við þá, er umrædd myntbreyting
myndi leiða af sér, þá kemst ég ekki
hjá því að klóra mér svolítið bak við
eyrað Sannleikurinn er nefnilega sá,
að verðskuldi nokkur aðgerð í veröld-
inni fyrr og síðar nafngiftina hrossa
lækning, þá er það þessi klúra aflimun
íslenska gjaldmiðilsins, sem seðla-
bankastjóri er nánast að státa af. Þessi
lækning er eitthvað í ætt við að taka
tvö hundruð kílóa ístrubelg, höggva af
honum útlimi um axlir og nára og
segja síðan sigri hrósandi: Gerið svo
vel, hundrað kílóum léttari Næsti.
Sú staðreynd, að áðurnefnd aðgerð
á gjaldmiðlinum er ekki af hinu góða
og á ekkert skilt við umrædda mynt-
breytingu, sést kannski best með því
að setja upp litið og einfalt dæmi.
Segjum að kr 100,00 árið 1947 séu
kr 10 000 i dag Gefum okkur síðan
nokkra þrjátíu ára áfanga inn i
framtíðina, stöðugt með
hundraðkallinn frá 1 94 7 í hendinni og
sjáum hvaða myndir hann tekur á sig í
gegnum árin: 1947 = 100,00 —
1977 = 10 000 — 2007 =
1 000 000 — 2037
100 000 000 — 2067
10 000 000 000 — 2097
1 000 000 000 000
Hundraðkallinn minn er orðinn að
billjónkalli eða þúsund milljörðum eftir
rúm hundrað ár hér frá, en á þeirri tölu
springur nýja rafreiknivélin mín, sem
aftur þýðir það, að ég gæti ekki einu
sinni notað hana til að leggja saman
vikulega matarúttekt mína í
kaupfélaginu. Þetta þykir mér nú ekki
alveg nógu gott, og lái mér hver sem
vill
Sé tekið mið af verðbólgugrósku
síðari ára. væri engin goðgá að láta sér
detta í hug, að ekki þyrfti einu sinni
heila öld til að afskræma íslenska
gjaldmiðilinn eins og sýnt er hér að
framan.
Af þessu má öllum vera Ijóst, að þó
við aflimum íslenska gjaldmiðilinn og
köstum aurunum í gráðugan kjaft verð-
bólguskrímslisins, þá er það skamm-
góður vermir, ef við horfum nefinu
lengra. og næsta undarlegt að nokkr-
um manni skuli detta í hug að benda á
slíkt sem einhvers konar hliðstæðu
umræddrar myntbreytingar Lag-
færingu af því tagi sem í þingsályktun-
inni greinir, mætti endurtaka eftir þörf-
um í rás tímans og myntkerfið myndi
stöðugt varðveitast og endurnýjast í
sinni réttu. upprunalegu mynd Lag-
færingar þeirrar tegundar, er seðla
bankastjórinn vitnar til, myndu hins
vegar að vfsu ekki leiða til endur-
tekinna aflimana, þar eð ekkert er eftir
nema búkurinn, heldur útheimta
síendurteknar blóðfórnir gjaldmiðils-
einingarinnar. þar sem sífellt yrði að
vera á höttunum eftir nýju og nýju
nafni
Nöfn mynteininga
Seðlabankastjóri bendir á þann
möguleika að taka upp nýtt nafn á
mynteiningu. t d nafnið mörk Þetta
tel ég fráleitt. Nöfn myntkerfisins eru
svo samgróin vitund þjóðarinnar, að
slík tillaga væri vlsust til að fæla fólk
endanlega frá sérhverri breytingu
tengdri slíkum annmarka að
nauðsynjalausu.
Nauðsynlegt er að gera sér Ijóst. að
ekkert kallar á nafnbreytmgu af neinu
tagi, þótt vægisbreyting sé gerð á
mynteiningunni. í mesta lagi mætti
hugsa sér, að fyrsta árið eftir breyt-
inguna væri að einhverju leyti talað um
nýkrónur, á meðan verið væri að losa
hugann úr viðjum hins gamla
verðgildis. Þetta nafn, nýkróna, ætti
hins vegar að sjálfsögðu hvergi að
skrást og hverfa sem fyrst úr talmáli
aftur, ef það væri þá yfirleitt nokkru
sinni til þess gripið.
Ef við lítum svolftið betur á málið,
sjáum við óðara. að myntbreyting sú
sem hér um ræðir, væri ekki annað en
það, að verið væri að lagfæra í einni
lotu það, sem farið hefur aflaga s.l.
þrjátíu ár. íslensk króna héldi áfram að
vera íslensk króna eftir breytingu sem
áður, á sama hátt og íslensk króna
1 94 7 er íslensk króna enn í dag. í stað
þess að nokkrum hafi komið til hugar
að gefa krónunni sérstakt nafn hvert ár
fyrir sig. enda þótt vægi hennar hafi
sífellt verið að breytast frá einu ári til
annars.
Framkvæmdin
Þeir sem haldnir eru efasemdum I
sambandi við myntbreytinguna. munu
að likindum velta þvi nokkuð fyrir sér,
hvort kostnaður og framkvæmda-
örðugleikar kunni ekki að valda því að
tvimælis orki um réttmæti hennar.
Hvað kostnaðinn áhrærir, má benda
á að við hreyfum varla svo litla fingur,
að það kosti ekki eitthvað. Ef og þegar
að þvi kemur, að breyting verði
ákveðin. munu væntanlega hinir
færustu menn setjast niður og gera
áætlun um kostnað. Ég fyrir mitt leyti
hef ekki áhyggjur af þessu og er reiðu-
búinn til að standa undir minum hluta i
gegnum kerfið
Um framkvæmdma vil ég hins vegar
fara fáeinum orðum. Kýs ég þá að
ræða hana í tvennu lagi. Annars vegar
umskráningu reikninga og skjala, hins
vegar peningaskiptin.
1. Umskráning. Þar eð bókhald og
peningar tengjast yfirleitt órofa
böndum i sérhverju skipulögðu sam-
félagi. kemur það af sjálfu sér að
hagnýta bókhaldstæknina til að
tryggja, að breytingin skili sér hnit-
miðað og öruggt í gegnum sérhvert
bókhald. þannig að enginn geti orðið
fyrir skakkaföllum eða skaða. Verður
ekki annað séð en að þetta ætti að vera
næsta einfalt og fyrirhafnarlítið í fram-
kvæmd. miðað við arðsemi
Ef við göngum út frá því, að mynt-
breyting yrði látin koma til fram-
kvæmdar í byrjun nýs árs, sem virðist
raunar sjálfsagður hlutur, mætti hugsa
sér eftirfarandi vinnubrögð í bókhaldi:
Fyrsta færsla hvers einasta efnahags-
bundins reiknings að lokinni opnun í
byrjun breytingarársins myndi verða:
viðkomandi reikningur deb/kred X,
X = mismunur viðkomandi
reiknings X 99/100
Svona lítið og einfalt væri það Ein
einasta aukafærsla á hverjum reikningi
sem verið væri að opna hvort sem
væri. Mótreikningurinn, (myntbreyt-
ingarreikningur?) myndi auðvitað jafn-
ast út af sjálfum sér og verða óvirkur í
bókhaldinu við næstu áramót, eftir að
hafa gegnt hlutverki sínu, vonandi um
langt árabil.
Við skatta- og gjaldaútreikning á
fyrst ári eftir breytingu vegna síðasta
gjaldárs fyrir breytingu yrði álagningar-
aðili að sjálfsögðu að margfalda með
stuðlinum 1 / 100 á einhverju þrepi.
Margvísleg fjármálaskjöl svo sem
verðbréf o.fl. þyrftu að líkindum að
ganga í gegnum einhvers konar aðgerð
og skrifast niður um 99%. Ef til vill
yrði það með þeim hætti, að þau væru
stimpluð eða árituð með nýjum tölum
á skrifstofum lögsagnarumdæma.
Launaskrár. verðskrár og
verðmerkingar yrðu vitanlega að
endurnýjast við áramót og yrði allt að
vera til reiðu í þeim efnum Án þess að
vilja gera lítið úr þeirri fyrirhöfn. kemst
ég ekki hjá að álykta, að viðkomandi
aðilar þjóðfélagsins séu í gegnum árin
orðnir svo þjálfaðir í þeim efnum, að
þeir fyrir sitt leyti teldu þetta ekki
frágangssök, miðað við þann tilgang,
er það þjónaði
2. Peningaskiptin. Fyrsta af-
greiðsludag bankanna á nýja árinu
myndu peningaskiptin hefjast.
Farsælast og öruggast væri að
líkindum, að fólk skipti peningum
sínum sem allra mest í bönkum, áður
en farið væri með þá út i viðskiptallfið.
án þess þó það væri nokkur skylda
Ætti þetta ekki að vera nein frágangs-
sök fremur en það, að við skjótumst af
og til í banka til að selja ávisun Þessi
háttur myndi flýta peningaskiptunum
og tryggja fólk gegn hugsanlegum
skakkaföllum i viðskiptum af völdum
breytingarinnar. Þeir, sem ekki hefðu
þennan hátt á, y^ðu að sjálfsögðu að
gæta þess, að sérhver greiðsla til eða
frá með gömlum peningum væri
hundrað sinnum minna virði en nafn-
verð segði til um
Áreiðanlega væri öruggast. áhyggju-
minnst og þægilegast fyrir alla aðila,
að fólk væri sem allra minnst að velkja
gömlum peningum sin i milli eftir
breytingu. heldur skipti þeim sem fyrst
i næsta banka.
Innleysingartimi gömlu myntarinnar
ætti að vera svo rúmur að enginn þyrfti
að hafa áhyggjur í þvi sambandi
Avinningurinn
Nú vil ég snúa mér að þvi að benda
á. hvað ég tel að ávinnast myndi með
umræddri breytingu isienska mynt-
kerfisins.
1 Reynslubundið hagræði þess,
viðurkennt i verki af fjölmörgum
þjóðum, að fara ekki niður úr vissu
lágmarki með gildi aðaleiningar gjald-
miðils, en hafa hundruðustu hluta
aðaleiningar sem undirmynt með ein-
hverju nafni. Seðlabankastjóri bendir á
japanska yenið, sem er verðminna en
krónan. Ágætt. þetta var þaðeina. sem
okkur vantaði, undantekning til að
sanna regluna
2. Mynstur myntkerfisins. þjóðlegt
og alþjóðlegt í senn, myndi endur-
heimtast og varðveitast óbrenglað og
hinn endurbætti, þróttmikli gjaldmiðill
gegna hlutverki sínu með sóma fyrir
land og þjóð
3 Aukastafalausar tölur í bókhaldi
meiða fegurðar- og færslutilfinningu
margra manna og minna einna helst á
halaklippta hunda. Margir myndu
fagna því, þegar af þessari ástæðu, að
losna við halaklippingana úr bók-
haldinu, en fá í staðinn gamla góða
talnamynstrið. sem er svo samgróið
vitund alls þorra þjóðarinnar.
4 Aukið traust á gjaldmiðlinum og
vaxandi virðing fyrir peningum yfirleitt
Frelsun frá því að upplifa það í fram-
tíðinni, að halaklipptu hundarnir í bók
haldinu haldi áfram að lengjast uns
nota þyrfti rafknúna hjólastóla til að
skjögta milli debet og kredit Frelsun
frá því, að flotkrónurnar létu sig hafa
það einn góðan veðurdag að breytast í
fiðraðar flugkrónur. sem flögra myndu
um loftin blá, fáum þó til gagns eða
gleði
Aurafórnin, sem verðbólgunni var
færð í tveimur áföngum, breyting engu
sem nemur um þessa þróun, og er því
að mestu út í bláinn.
Lokaorð
Nú er ég búinn að endurtaka orðið
seðlabankastjórinn svo oft í þessari
Framhald á bls. 30
FRA LEH9BEININGASTÖÐ HÚSMÆflRA
Þvottur á
tízkuflíkum
Ljós fatnaður er nú vlða á
boðstólum í tizkuverzlunum og
skal hér á það bent, að menn
ættu að kynna sér vel, hvernig
halda eigi honum hreinum, áð-
ur en kaupin eru gerð. En slík-
um fatnaði fylgja yfirleitt leið-
beiningar um meðferð. Neyt-
andinn verður að gera þær
kröfur að tryggt sé að fatnaóur-
inn verði hreinn og vel útlít-
andi eftir þá þvottameðferð
sem framleiðandinn mælir
með.
Gerviefni eru yfirleitt þvegin
I ylvolgu vatni og er mjög auð-
velt að ná burt öllum
óhreinindum, jafnvel þótt hita-
stig þvottavatnsins sé ekki
meira en um 40°C.
Hvít eða mjög ljós baðmullar-
efni þarf hinsvegar að þvo I
vatni sem er nálægt suðumarki,
ef góður árangur á að nást. Að
visu er unnt að halda hvítum
baðmuliarfatnaði sæmilega
hreinum mjög lengi með slíku
háttalagi. Það er þvi mesti mis-
skilningur að framleiða hvítar
baðmullarskyrtur með svörtum
skrautsaumi sem lætur lit ef
þvottavatnið er heitara en 40°C
heitu vatni.
Árangurinn af slíkum þvotti
má sjá á meðfylgjandi mynd.
Eigandinn lagði vestið i bleyti
yfir nótt i vatn með þvottaefni
sem i eru efnakljúfar til þess að
fá sem beztan árangur af þvott-
inum. Sennilega hafa efna-
kljúfarnir með einhverjum
hætti valdið því að málmurinn í
tölunum og í rennilásunum
leystist upp að einhverju leyti.
En undir tölunum á vestinu
voru komnir allstórjr ryðblettir
og rennilásarnir hafa látið lit í
vestið.
S.H.