Morgunblaðið - 07.06.1977, Síða 16

Morgunblaðið - 07.06.1977, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1977 GORSHKOV-KENNINGIN Afríkuferðalög Podgornys forseta og Fidels Castro sýna að kommúnistarlkin leggja miklu meiri áherzlu á svörtu álfuna en Vesturveldin, segir Afríkumálasérfræðingur brezka blaðsms Observer, Colin Legum, í grein, sem hér verður endursögð Veruleg hætta er á því að bæði austurhorn Afríku og suðurhluti álfunnar verði púðurtunnur. Árangur hernaðaríhlutunar Rússa og Kúbumanna í Angola 1975 hlaut að gera það að verkum að þeir vildu reyna að fylgja sigrum sínum eftir, ekki sízt þar sem minnstu munaði að sáttatilraunir dr Kissingers heppnuðust Hins vegar væri rangt að ætla að Rússar og Kúbumenn fylgdu samræmdri stefnu, þar sem Ijóst er að Castro telur sig hafa sérstöku hlutverki að gegna í þriðja heiminum. Rússar fylgja svo frumlegri og djarfri stefnu í Afríku og á Indlandshafi að hún jaðrar við ævintýrastefnu og eins miklar líkur eru á þvi að hún færi Rússum mikilsverða ávinninga og að hún leiði af sér skakkaföll eins og þegar þeir misstu aðstöðu sína í Egyptalandi, Súdan og Norður-Jemen. Jafn- framt er stefna Rússa miklu ísmeygilegri og alvarlegri, en ekki eins árangursrik og vest- rænir herfræðingar láta í veðri vaka Til dæmis er rangt að segja að Rússar hafi herstöðvar í Afríku, þar sem i því felst að herstöðin sé yfirráðasvæði þeirra og að þeir þurfi ekki að óttast fjandsamlegan þrýsting heimamanna og skyndileg stjórnarskipti. Hins vegar hafa Rússar flotaaðstöðu eins og vestræn ríki, en í því felst að skip þeirra geta lagzt við bryggju og tekið eldsneyti og vistir Vafasamara er hvort Rússar hafi viðgerðarað- stöðu og aðstöðu til að geyma vopn og varahluti. LYKILLINN Rússar hafa fyrst og fremst áhuga á flota- aðstöðu og það stríðir ekki gegn þeirri stefnu þróunarlanda að halda sig utan valdablokka Slík aðstaða þarf ekki að leiða til ásakana um hernaðarítök eins og uppi varð á teningnum þegar Rússar reyndu að gera Alexandriu að rússneskri herbækistöð í tíð Nassers Lykillinn að stefnu Rússa í Þriðja heiminum er Gorshkov-kenningin. sem miðar að því að gera Rússa að stórveldi á úthöfunum í fyrsta skipti í sögu þeirra. Yfirmaður sovézka flotans, Sergei Gorshkov aðmíráll, er snjallasti sjóhernaðar- sérfræðingur, sem Rússar hafa átt í upphafi kjarnorkualdar, þegar herfræðingar i austri og vestri hvöttu til þess að dregið yrði úr hlutverki herskipa, háði hann ge/siharða bar- áttu fyrir þvi í Kreml að fá viðurkennt það sjónarmið sitt, að lykillinn að „vörnum Rússa væri geta þeirra til að koma á fót nýtízkuflota, sem væri fullfær um að finna svör við síðustu nýjungum í herbúðum óvinarins hvar sem væri i heiminum." Gorshkov fór með sigur af hólmi 1950 og síðan hefur gömlum flota beitiskipa, tundurspilla og venjulegra kafbáta verið breytt í „kjarnorkuknúinn flota búinn eldflaugum', þar sem aðaláherzlan er lögð á kjarnorkukafbáta og þotur sem hafa bæki- stöðvar á landi Kúbudeilan 1962 styrkti málstað eflingar sovézka flotans, þar sem Krústjov vað að gefast upp fyrir flotayfir- burðum Bandaríkjamanna FORSENDAN Forsenda Gorshkov-kenningarinnar var flotaaðstöðunet um allan heim, en það hefur verið áhugamál Rússa frá dögum Péturs mikla Slíka aðstöðu fengu Rússar ekki fyrr en Krústjov tókst að tryggja um hríð aðgang að Alexandríu, H vana og seinna Berbera, Aden (Suður-Jemen) og Hodeida (Norður- Jemen) Gorshkov virðist ekki gera greinar- mun á „flotastöðvum” og „flotaaðstöðu" í bók sinni „Fotamáttur rikisins", sem er aðeins samin til innanlandsneyzlu. Sovézkir diplómatar hafa hins vegar vit á því að biðja ekki um gamaldags herstöðvar Á sumum stöðum i bókinni talar Gorshkov eins og gamaldags heimsveldissinni eins og þegar hann segir „Hafið er einskismannsland og á því mæta flotar ekki mörgum þeim tálm- unum, sem koma i veg fyrir beitingu annarra greina hersflans á friðartimum í pólitískum tilgangi. . ." Meðal þessara markmiða segir hann að séu „áhrif á strandríki" og „hæfni til að magna hernaðarógnun á hvaða stig sem er, allt frá því að sýna hernaðarmátt og til þess að setja her á land " Hernaðarstefna Rússa miðast við það tvennt að mæta hvers konar ógnun úr vestri og halda í skefjum hvers konar ógnun frá Kínverjum Rússar hafa miklu meiri áhyggjur af kínversku „hættunni" en möguleikum á árás úr vestri Ótti þeirra við „heimsyfirráða- metnað" Kínverja ræður að miklu leyti stefnu þeirra i Afríku Þeir telja þann árangur, sem stefna Kínverja hefur borið, einkum í austan- verðri og suðaustanverðri Afríku, alvarlega Fidel Castro og Neto Angola forseti ógnun við hernaðarhagsmuni sina um allan heim Gagnstætt því sem almennt var talið þjónaði því íhlutun Rússa í Angola 1975 fremur þeim tilgangi að halda Kínverjum í skefjum en að skaða vestræna hagsmuni. Því má ætla að tilgangur Afrikuferðar Podgornys hafi verið þríþættur að koma á vinsamlegum samskiptum við strandriki, sem vilja veita Rauða flotanum þá aðstöðu. sem hann þarfn- ast til þess að hann gæti gert Rússa að stórveldi á úthöfunum, að spilla vináttu Afríkuríka og Kínverja og veikja áhrif og hagsmuni vesturveldanna AOSTAÐA Fyrir rúmum tíu árum féllust Rússar á að vopna Sómalíulýðveldið þegar Vesturveldin höfnuðu tilmælum þess um aðstoð af ótta við kröfur sómala um breytingar á landamær- unum að Eþíópíu, Kenýa og Djibouti sem fylgdu vestrænum rikjum að málum. Síðan hefur verið fjölgað í sómalska hernum úr 4 000 mönnum i 20 000, hann hefur fengið góða þjálfun og er orðinn nýtískulegur með aðstoð Rússa og flugher landsins hefur jafn- vel á að skipa MIG21-þotum í staðinn hafa Rússar fengið flotaaðstöðu i Berbera og þeir hafa svipaða en ekki mjög mikilvæga að- stöðu i Aden, svo að R uði flotinn getur haldið sér úti á Indlandshafi allt til Indlands- skaga, Persaflóa og Suður-lndlandshafs Hins vegar berst Saudi-Arabía gegn þessari nærveru Rússa á Rauðahafi og í fyrra bauð landið Sómalílýðveldinu efnahagsað- stoð gegn því að Rússum yrði sagt að fara. Fyrrverandi sendiherra Bandarikjanna i Gorshkov aðmfráll. höfundur kenningar sem er lykill að stefnu Rússa Saudi-Arabiu, James Aikins, hefur kennt Pentagon um að hafa eyðilagt þetta sam- komulag. þar sem ráðuneytið óttaðist að bandaríska öldungadeildin fengist ekki til að samþykkja nauðsynlegar fjárveitingar til byggingar bandarísku herstöðvarinnar á Diego Garcia ef Rússar færu frá Berbera. Saudi-Aröbum varð hins vegar betur ágengt í því að fá Norður-Jemen til að binda enda á aðstöðu Rússa í Hodeida, sem eitt sinn var talað um sem „mikilvæga rússneska her- stöð", þótt það væri fáránlegt Vegna þeirrar miklu þýðingar, sem Rauða haf hefur samkvæmt Gorshkov-kenningunni, hljóta Rússar að óttast að Saudi-Aröbum verði jafnmikið ágengt i Sómalíu. Sennilega Hvað eru Rússar og Kúbumenn að gera í Af ríku! MIÐJAROARHAF TUNISIA ALSIR EGYPTA LANO SAU0I ARABIA NOROUR JEMEN Hodeidaj SUOUR n i GUINEA BISSAU Djiboutl EÞÍÓPIA^ Berbera guinea' iConakry NIGER'A CONGO Tí NZANIA ZAMBIA RM0DESIA SUÐUR AFRÍKA INDLANDSHAF 0HLYNNT RUSSUM ANDVÍG w RUSSUM © TVlRÆÐ 0SOVEZK AÐSTAÐA 0 M LES 59P Cape Town 1» Afrlkukort sem sýnir aSstöSu Rússa. er það skýringín á þvl hvers vegna Rússar hafa vingazt I 18 mánuði við herforingja- sfjórnina i Eþíópíu, þótt Eþlópiumenn séu erfðafjendur Sómala, sem Rússar verða að hafa góða vegna aðstöðunnar sem þeir fá hjá þeim. Það gerir ástandið ennþá flóknara að Sómalir styðja aðskilnaðarsinna i Eritreu, en Rússar hafa hrósað Eþíópiustjórn fyrir „sanna byltingarstefnu" og sovézk blöð hafa lýsl yfir stuðningi við tillögu stjórnarinnar I Addis Ababa um laun Eritreu-málsins, þótt Rússar hafi áður stutt aðskilnaðarsinna I Eritreu KÚVENDING Sómalir urðu í fyrstu uggandi vegna þess- arar kúvendingar Rússa, einkum vegna þess að Eþíópíumenn hafa áhuga á því að þiggja vopn af Rússum í stað Bandaríkjamanna áður. Sómalir hafa spurt Rússa hvernig þeir geti tryggt að vopnunum verði ekki beitt gegn Sómölum ef til átaka kæmi út af Djibouti, þegar Frakkar fara þaðan í sumar eins og þeir hafa lofað Sómalir hafa líka áhyggjur af því að vopnunum verði beitt gegn Eritreumönnum. Rússar reyna að full- vissa Sómali um að ef Eþíópíumenn snúi baki við Bandaríkjamönnum og halli sér að Rússum verði hægt að berjast fyrir hugmynd Sómala um stofnun sambandsríkis Eþíópfu, Sómalíu, Eritreu og Djibouti. Jafnvægi gæti myndazt á austurhorni Afríku með tilkomu slíks ríkis og „Pax Sovietica" sem Rússar mundu tryggja. Þar með fengju Rússar einnig mikilvæga aðstöðu fyrir her sinn og flota. ekki aðeins í Berbera. heldur einnig í eþíópísku hafnarbæjunum Assab og Massawa við Rauðahaf og þar að auki í Djibouti þegar Frakkarfara. Fidel Castro gegndi því hlutverki að fara á milli Mogadishu og Addis Ababa og sann- færa alla hlutaðeigandi leiðtoga um gildi slíks „marxistabandalags." En andstæðingar Rússa í þessum heimshluta hafa sameinazt gegn slíku sambandsríki við Rauðahaf undir verndarvæng Rússa. Þeir hafa boðað til ráð- stefnu í borginni Taiz í Norður Jemen til að kanna aðra áætlun og boðið til hennar ráða- mönnum Sómalíu. Súdan, Norður— og Suður-Jemen. í raun og veru standa Saudi- Arabar á bak við ráðstefnuna. en þeir kjósa að láta lítið á sér bera. Fréttir eru um að Saudi-Arabar hafi hert tilraunir sínar til að fá Sómala og Suður-Jemena til að hafna rússnesku áætluninni og samþykkja í staðinn stofnun „Rauðahafs-bandalags". FIMM SVÆÐI ZAusturhorn Afriku er hins vegar aðeins eitt fimm svæða i Afriku þar sem Rússar seilast til áhrifa Enginn vafi virðist leika á þvi að Rússum verði boðið að gegna þýðingarmiklu hlut- verki I sunnanverðri Afriku ef vesturveldun- um tekst ekki að leysa vandamál Rhodesiu og Suðvestur-Afriku (Namibiu) og fyrsta skrefið yrðu vopnasendingar og þjálfun skæruliða I Mozambique Stórn Mozambique vill öflugan bandamann til að koma I veg fyrir árásir Rhódesiuhers inn fyrir landamær- in og afstýra hættu á þvi að Suður- Afrikumenn geri slika árásir siðan Mozambique hallaði sér að Klnverjum áður en landið fékk sjálfstæði. ekki Rússum En skæruliðar blökkumanna. sem berjast i Rhódesiu og hafa bækistöðvar I Mozam- bique, geta komist að þeirri niðurstöðu að þeir eigi einskis annars úrkosti en að vinna sigur i baráttunni gegn stjórn lan Smiths Ef það gerist er liklegt að Rússar muni sjá skæruliðum fyrir vopnum Það mundi ger- breyta eðli baráttunnar gegn Suður-Afríku og Rússar fengju mikilsvert hlutverk Þriðja hagsmunasvæði Rússa er I Austur- Afríku Eini skjólstæðingur þeirra þar er Idi Amin hershöfðingi. sem gæti ekki haldið uppi stalínistiskri ógnarstjórn nema með hernaðaraðstoð Rússa Rússar styðja hann af því hann er eini Afríkuleiðtoginn á þessum slóðum, sem vill þiggja aðstoð þeirra. og hann þarfnast hennar mjög Kenyamenn eru fjandsamlegir Rússum og Tanzania fær hernaðaraðstoð frá Klnverjum Nyerere for- seti hefur aldrei verið i miklu uppáhaldi i Moskvu. VINIR GADDAFY Fjórða hagsmunasvæði Rússa er meðfram strönd Miðjarðarhafs þar sem þeir einbeita sér að „vináttu" við Alsir og Libýu En bezti vinur þeirra er sá eindregni andkommúnisti og múhameðstrúarmaður Gaddafy ofursti. aðallega vegna þess að báðum er eins illa við Sadat og Egypta. Jafnframt er þægileg að- staða fyrir herskip I Tripoli Fimmta hagsmunasvæði Rússa er með- fram Atlantshafsströnd Afrlku, þar sem þeir hafa aðgang að fjórum höfnum: Conakry, Framhald á bls. 25

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.