Morgunblaðið - 07.06.1977, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1977
19
HÞróltlrl
Viðar
Hörður
Viðar og Hörður
til Svíþjóðar?
MIKLAR líkur eru á því að
handknattleiksmennirnir
Viðar Símonarson, FH, og
Hörður Harðarson,
Ármanni, leiki með
Víkingur
og IBK
í kvöld
EINN leikur fer fram f 1. deild
íslandsmótsins i knattspyrnu i
kvöld. Víkingur og Keflavík leika
á Laugardalsvellinum og hefst
leikurinn klukkan 20. í athugun
er að setja leik KR og Breiðabliks
á annað kvöld, en óvíst er hvort af
því getur orðið vegna kastlands-
keppni íslendinga og Dana, sem
fram fer á vellinum á sama tíma.
sænska 3. deikdarleiðinu
Hammerby næsta keppnis-
tímabil, en eins og fram
hefur komið í fréttum, má
nær fullvíst telja að
Hilmar Björnsson þjálfi
þetta lið næsta ár.
Þeir Viðar og Hörður fóru með
Hilmari til Svíþjóðar fyrir
skömmu og léku þá tvo leiki með
félaginu. Stendur þeim báðum til
boða að keppa með félaginu
næsta vetur og hafa þeir Viðar og
Hörður báðir mikinn hug á því að
taka boðinu. Ef úr verður, getur
Viðar ekki keppt með íslenzka
landsliðinu í HM í Danmörku í
byrjun næsta árs.
Eins og áður hefur komið fram í
Mbl. eru keppnislið Hammerby i
boltaíþróttum öll í 1. deildunum
sænsku nema handknattleiksliðið
og á nú að bæta úr því með því að
fá til liðsins nýja menn, þjálfara
og leikmenn.
—SS.
KAhefurfor-
ystu í2. deild
KNATTSPYRNUFÉLAG Akur-
eyrar hefur nú forystu í 2. deild
Íslandsmótsins í knattspyrnu. KA
sigraði Selfoss á Selfossvelli á
laugardaginn 2:1 og hefur félagið
nú hlotið 7 stig úr 4 fyrstu leikj-
um sínum. Allir leikirnir hafa
verið á útivöllum og fyrsti heima-
leikur KA verður ekki fyrr en í 5.
umferð 10. júní, en þá mætast tvö
efstu liðjn, KA og Ármann, á
Akureyri. Er þetta vægast sagt
skrítin niðurröðun, en KA stend-
ur óneitanlega vel að vígi eftir
fyrstu leikina.
Leikið var á malarvellinum á
Staðan í
2. deild
Staðan er þessi í leiki helgarinnar: 2. deild eftir
KA 4 3 1 0 7:3 7
Ármann 4 3 0 1 10:3 6
Haukar 4 2 2 0 6:2 6
Þróttur R 4 2 1 1 5:3 5
Selfoss 4 2 0 2 4:4 4
Reynir S 4 2 0 2 6:6 4
Þróttur N 4 1 1 2 3:4 3
Völsungur 4 1 1 2 3:6 3
ÍBÍ 4 1 1 2 2:6 3
Reynir Á 4 0 1 3 2:8 1
Selfossi og kom það mörgum á
óvart, þvi grasvöllurinn við hlið-
ina virtist í góðu standi. Sterkur
vindur var á annað markið og
hafði KA vindinn i bakið og skor-
aði þá tvö mörk. Fyrra markið
skoraði Ármann Sverrisson af
stuttu færi eftir að skotið hafði
verið í þverslá og boltinn hrokkið
út á völlinn aftur. Á 35. mínútu
bætti Eyjólfur Ágústsson við
marki eftir langt innkast.
í seinni hálfleik snerist dæmið
við, Selfoss sótti meira án þess þó
að skapa sér verulega göð tæki-
færi. Eina mark Selfyssinga kom
þegar korter var eftir af leiknum
og skoraði Guðjón Arngrímsson
markið eftir varnarmistök KA-
manna. Á siðustu sekúndunum
fékk KA hornspyrnu sem Sig-
björn Gunnarsson tók. Boltinn fór
í mark Selfoss en góður dómari
leiksins, Einar Hjartarson, hafði
flautað leikinn af áður.
Hjá KA átti Jóhann Jakobsson
einna beztan leik en í liði Selfoss
var Tryggvi Gunnarsson lang-
beztur.
—Sigb.G/SS.
Sjá nánar um leiki 2.
deildar um helgina á bak-
síðu íþróttablaðsins.
Guðgeir til IBV
ef hann hættir í atvinnumennsku
íþróttabandalag Vest-
mannaeyja hefur til-
kynnt félagaskipti Guð-
geirs Leifssonar úr belg-
fska liðinu Sporting
Charleroi í ÍBV. Mun
Guðgeir því leika með
Vestmannaeyingum
seinna í sumar að öllu
óbreyttu, en það gæti
breytzt ef Guðgeir fær á
næstunni tilboð frá ‘er-
lendum atvinnumanna-
liðum.
Eins og fram kom í Mbl. fyrir
helgina er Guðgeir Leifsson nú
á sölulista hjá belgíska félaginu
Charleroi. Hafa 5—6 félög i
Belgíu, Frakklandi og Þýzka-
landi spurzt fyrir um hann og
eitt þeirra, 1. deildarliðið Rot
Weiss Essen í Þýzkalandi,
hefur átt viðræður við Guðgeir.
Morgunblaðið gat hins vegar
ekki skýrt frá því i sömu frétt,
að Guðgeir hefur haldið þeim
möguleika opnum að koma
heim ef hann fær ekki viðun-
andi tilboð. Hefur Guðgeir átt
viðræður við Vestmannaeyinga
vegna þessa og sendi ÍBV til-
kynningu um félagaskipti Guð-
geirs til KSÍ síðdegis á föstu-
daginn og opinberaði þar með
málið. Með tilkynningunni
fylgdu nauðsynlegir pappírar
frá Charleroi, en þá pappira
kom Ásgeir Sigurvinsson með
til landsins í siðustu viku.
Áður en Guðgeir hélt í at-
vinnumennskuna til Belgíu lék
hann með Víkingi tvívegis og
Fram hér heima.
—SS.
Þrjú félög hafa
haft samband
við Guðmund
GUÐMUNDUR Þorbjörnsson,
miðherjinn ungi f Val, virðist
vera í miklu áliti hjá belgfskum
knattspyrnufélögum.
Þrjú félög þar f landi hafa haft
samband við Guðmund á sfðustu
dögum og spurzt fyrir um það,
hvort hann væri tilleiðanlegur til
að koma utan, leika æfingaleiki
og ræða um hugsanlegan atvinnu-
samning.
Danski þjálfarinn Jaek John-
son, sem þjálfaði Akureyringa á
sfnum tfma, var milligöngumaður
fyrir eitt félagið, og hafði Guð-
mundur ekki áhuga á tilboði
hans. Ekki lá Ijóst fyrir frá hvaða
félagi það tilboð var, en hin tvö
tilboðin munu vera frá félögum f
1. deildinni belgfsku.
— SS.
KRISTJAN
ÍVÍKING
KRISTJÁN Sigmunds-
son, Iandsliðsmarkvörð-
ur í handknattleik, hefur
tilkynnt félagaskipti úr
Þrótti í Vfking. Var til-
kynningin um félaga-
skiptin send HKRR f
gær.
Kristján Sigmundsson er
tæplega tvítugur að aldri. Hann
vakti athugli fyrir góða mark-
vörzlu fljótlega eftir að hann
byrjaði að leika með meistara-
flokki Þróttar, og hefur hann
verið ein traustasta stoð meist-
araflokks félagsins siðastliðin
ár. Þegar pólski þjálfarinn
Janusz Cherwinsky tók við
þjálfun landsliðsins valdi hann
Kristján einn af þremur mark-
vörðum landsliðshópsins.
Hefur Kristján siðan verið i
hópnum og tók hann m.a. þátt í
hinni frækilegu för landsliðsins
til Austurríkis sl. vetur. Kom
hann inn á í leiknum við Tékka
um 3. sætið og varði þá m.a. tvö
vftaköst.
Ekki er vafi á þvf að Kristján
mun styrkja Víkingsliðið veru-
lega, en markvarzlan hefur
verið höfuðverkur þessa annars
sterka handknattleiksliðs.
—SS.
Útlendingar
í íslenzkan
handbolta?
ÁRSÞING Ilandknattleikssam-
bands íslands verður haldið í
félagsheimirinu á Seltjarnarnesi
um næstu helgi. Fjölmargar til-
lögur liggja fyrir þinginu og má
þar nefna tillögu frá Víkingi, um
að erlendum leikmönnum verði
leyft að Ieika með íslenzkum lið-
um, en þó aldrei fleiri en fjórum
mönnum með hverju liði.
Bergur Guðnason
formaður Vals
AÐALFUNDUR Knattspyrnufé-
lagsins Vals var haldinn s.I. föstu-
dag.Ægir Ferdinandsson kaup-
maður lét nú af formennsku í
félaginu og var Bergur Guðnason
lögfræðingur kjörinn formaður
I félagsins i hans stað.
22 menn valdir í
leikinn við N-íra
LANDSLIÐSNEFND KSÍ, Jens
Sumarliðason, Árni Þorgríinsson
og Tony Knapp hefur valið 22
manna hóp fyrir landsleikinn
gegn Norður-írlandi á Laugar-
dalsvelli n.k. laugardag, en leikur
þessi er sem kunnugt er liður í
heimsmeistarakeppninni f knatt-
spyrnu. Í hópnum cru allir 16
leikmennirnir, sem þátt tóku f
leiknum gegn stjörnuliði Bobby
Charltons í sfðustu viku og að
auki 6 leikmenn, þar af 6 atvinnu-
menn, sem leika með erlendum
liðum. Í vikunni verður fækkað f
hópnum niður f 16 leikmenn.
Leikmennirnir 22 eru þessir:
Markverðir:
Árni Stefánsson I'ram
Diðrik Olafsson Víkingi
Sigurður Dagsson Val
Varnarleikmenn:
Einar Þórhallsson Breiðabliki
Gísli Torfason ÍBK
Janus Guðlaugsson FH
Jóhannes Eðvaldsson Celtic
Jón Gunnlaugsson ÍA
Marteinn Geirsson
Royal Union
Viðar Halldórsson FH
Tengiliðir:
Albert Guðmundsson Val
Árni Sveinsson ÍA
Ásgeir Sigurvinsson
Standard Liege
Atli Eðvaldsson Val
Guðgeir Leifsson Charleroi
Hörður Hilmarsson Val
Karl Þórðarson ÍA
Framlínumenn:
Guðmundur Þorbjörnsson Val
Ingi Björn Albertsson Val
Ólafur Danivalsson FH
Kristinn Björnsson ÍA
Teitur Þórðarson Jönköping.
Sjá einnig
íþróttir á
bls. 38