Morgunblaðið - 07.06.1977, Qupperneq 40
ai<;iasin<;asiminn er:
22480
au<;lVsin<;asíminn er:
22480
ÞRIÐJUDAGUR 7. JUnI 1977
Sjómannadagurinn var haldinn hátfðlegur f öllum sjávarplássum
landsins á laugardag og sunnudag og var dagskráin vfða fjöl-
breytt að vanda. Þessa mynd tók Ragnar Axelsson Ijósmyndari
Mbl. f Nauthólsvfk á sunnudag þegar koddaslagurinn fór fram
þar, en hátfðahöldin þar voru f jölsótt. Sjá bls. 12 og 13 f blaðinu f
dag.
Sjávarútvegsráðherra í sjómannadagsræðu:
„Frekari takmark-
anir á þorskveið-
ar innan skamms,,
Alftaungarnir fjórir f fylgd foreldra sinna á Reykjavfkurtjörn f gær en nú er mikil gróska f
f jölskyldulffi Tjarnarbúa. Ljósmynd Mbl. RAX.
Um 300 kr.
fyrir kílóið
af loðnu í
hundamat
I VOR voru flutt til Norðurlanda
milli 10 og 11 lestir af þurrkaðri
loðnu f hundafóður. Líkaði mjög
vel við þessa vöru og fengust yfir
300 krónur fyrir hvert kfló. Það
var íslenzka útflutningsmiðstöð-
in sem stóð fyrir þessum útflutn-
ingi og samdi upphaflega um sölu
á 100 lestum af þurrkaðri loðnu,
Framhald á bls. 24.
Verð á
tómötum
lækkar
SÖLUFELAG garðyrkju-
manna hefur ákveðið
sumarverð á tómötum og sam-
kvæmt því kostar hvert kíló af
tómötum í fyrsta verðflokki
475 krónur i heildsölu, en kost-
aði fyrr í sumar 675 krónur. Að
sögn Þorvalds Þorsteinssonar,
framkvæmdastjóra Sölufélags-
ins, verður heildsöluverð
tómatanna því lægra nú í
sumar en í fyrrasumar, því þá
var heildsöluverð hvers kílós
485 krónur. Fyrir nokkru var
ákveðið sumarverð á gúrkum
og kostar hvert kíló af þeim
400 krónur í heildsölu. Álagn-
ing á grænmeti er, sem kunn-
ugt er, frjáls en sé miðað við
samsvarandi álagningu og var
á tómötum í verzlunum fyrr í
sumar má gera ráð fyrir að
útsöluverð hvers kílós út úr
búð verði nú um 640 krónur.
Fátt af öðru grænmeti en
gúrkum og tömötum er enn
komið á markað en helzt eru
það steinselja og salat.
ATHYGLI auglýsenda er
vakin á því, að auglýsingar,
sem birtast eiga í Morgun-
blaðinu næstkomandi
sunnudag, þurfa að hafa
borizt auglýsingadeild eigi
sfðar en klukkan 17 næst-
komandi fimmtudag, 9.
júnf.
4 álftaungar í
Tjarnarhólma
ÞAÐ voru stolt álftahjón sem rás-
uðu r gær um Tjörnina me8 ung-
ana slna fjóra sem þau komu upp f
litla hólmanum á norSurtjörninni.
AS undanförnu hefur álftamóSirin
leg>8 þolinmóS og róleg á hreiSri
sfnu, en á laugardagsmorgun var
farinn a8 færast fótur og litlir
álftahnoSrar voru komnir ur
eggjunum. Á laugardag fór fjöl-
skyldan f fyrstu könnunarferSina
út á Tjörnina til þess a8 kynna
fjórburana fyrir öSrum fbúum
Tjarnarinnar og ekki einu sinni
svartbakurinn raskaSi ró þeirra þvf
þau sómahjón telja sig eiga f fullu
tré vi8 þá varga. VafalftiS hafa
svartbakarnir þó fengiS vatn I
munninn þegar þeir sáu öskugráa
álftaungana synda örugga f návist
stoltra foreldra. A8 lokinni hring-
fer8 um Tjömina var aftur haldiS f
litla hólmann þar sem hreiSriS er
og ungarnir sofa á nóttinni. Álfta-
pabbinn gaf stöku sinni frá sér
hóandi blásturshljóS „hú-hú-hú"
en álftin er sem kunnugt er
háværust allra svana.
Samningafundirnir í gær:
í SJÓMANNADAGSRÆÐU Matt-
hfasar Bjarnasonar sjávarútvegs-
ráðherra vék hann að nýjum regl-
um og aðgerðum í fiskverndar-
málum og ræddi ráðherra þá sér-
staklega um þorskveiðar við land-
ið, en f ræðu sinni lýsti ráðherra
þvf yfir að innan skamms yrði að
setja enn frekari takmarkanir á
þorskveiðar. í Sjómannadags-
blaði Morgunblaðsins s.l. sunnu-
dag fjallar Jón Jónsson forstöðu-
maður Hafrannsóknastofnunar-
innar um stöðu þorskstofnsins og
segir hann m.a. um eðlilega nýt-
ingu á þorskstofninum: „Raun-
hæfasta leiðin til þess að ná þessu
marki, er að setja hámark á afla
þann, sem taka má á ári hverju.
Hafrannsóknastofnunin hefur
þegar Iagt fram tillögur um að
hámarksþorskafli á þessu ári
verði 275 þús. tonn, en verði sókn-
in ekki takmörkuð er áætlað að
heildarþorskaflinn geti orðið um
360 þús. tonn.
Þegar sjávarútvegsráðherra
vék að þeim friðunaraðgerðum í
fiskveiðum sem búið er að fram-
kvæma og þeim sem eftir á að
framkvæma, þá sagði hann m.a.:
„Sjómenn og útgerðarmenn
þekkja allar þessar aðgerðir, enda
bitna þær oft hart á þeim í minni
afla og auknum tilkostnaði, en
Framhald á bls. 24.
Öformlegar viðræð-
ur forystumannanna
SAMNINGAFUNDIR aðila
vinnumarkaðarins stóðu f hálfa
þriðju klukkustund f gær og hef-
ur nýr fundur verið hoðaður í dag
klukkan 16. Samkvæmt upplýs-
ingum Björns Jónssonar, forseta
ASÍ, gerðist Iftt markvert á fund-
inum i gær, en hann átti óform-
legar viðræður við formann
Vinnuveitendasambands íslands,
Jón II. Bergs, að viðstöddum
sáttasemjara rfkisins, Torfa
Hjartarsyni. Þar voru viðhorf
kjaramálanna rædd og var samn-
inganefndunum sfðan gerð grein
fyrir þeim. Samkvæmt upplýsing-
um, sem Mbl. fékk f gær, mun
sáttasemjari hafa lagt rfka
áherzlu á að aðilar færu nú að
nálgast á einhvern hátt sáttahug-
myndir sáttanefndar frá 17. maf.
Björn Jónsson, forseti ASÍ,
kvaðst ekkert vilja segja um til-
boðið, sem VSÍ lagði fram á
sunnudag, en vísaði á fréttatil-
kynningu ASÍ frá í gær um tillög-
una. Baldur Guðlaugsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Vinnuveitenda-
sambandi íslands, sagði, að þessi
tillaga VSÍ. væri öðru vísi upp
byggð en sú fyrri, til að mynda
gengi hún lengra i launajöfnunar-
átt. „Annað megineinkenni tillög-
unnar er," sagði Baldur, ,,að
upphafshækkun kaupsins er nú
hærri en í fyrra tilboðinu og er
kaupmátturinn þar af leiðandi
fyrir þá lægst launuðu og meðal-
tekjufólk talsvert hærri á þessu
ári. Þá gerir Vinnuveitendasam-
bandið tillögu um breytingar á
vísitölumálunum, sem þýðir að
verðbólguáhrif nýja tilboðsins'
Framhald á bls. 24.
Allsherjar-
verkfall
nyrdra í dag
ATHAFNALÍF á Norðurlandi
verður að miklu leyti lamað f
dag, en þá verður þar í gildi
þriðja landshlutaverkfallið
sem Alþýðusamband íslands
hefur boðað og spannar það
allt svæðið frá Hvammstanga
að vestan til Raufarhafnar að
austan, samkvæmt upplýsing-
um Vinnuveitendasambands-
ins. Mun innanlandsflug Flug-
félags íslands til staða norðan-
lands m.a. liggja niðri af þess-
um ástæðum.
í gær var í gildi verkfall í
öllum starfsgreinum innan
ASÍ á Suðurnesjum, Árnes-
sýslu, Vestmannaeyjum og
Rangárvallasýslu. Hafði það
m.a. þau áhrif að allt milli-
landaflug héðan féll niður,
engin mjólkurframleiðsla var í
Mjólkurbúi Flóamanna og
vinna lá niðri við Sigöldu, svo
að eitthvað sé talið. Að sögn
formælanda ASÍ voru þau frá-
vik helzt frá þessum verkfalls-
aðgerðum að félagar í verka-
Framhald á bls. 24.
Farnir að fá loðnu
yið Nýfundnaland
ÍSLENZKU loðnuskipin tvö, sem
eru að veiðum við Nýfundnaland
lönduðu f fyrsta sinn á sjómanna-
daginn f bænum Catalina, sem er
fyrir norðan St. Johns, en þá lánd-
aði Grindvfkingur GK 160 tonn-
um og Harpa RE 60 tonnum.
Grindvíkingur fékk loðnuna um
leið og skipið kom á miðin á laug-
ardag, en Harpa var þá búin að
vera nokkra daga á miðunum.
Loðnuna fengu skipin 30—40 míl-
ur austur af Catalina, en þau hafa
leyfi til að fiska allt uppundir
land. Þau skip, íslenzk sem áður
hafa verið á Ioðnuveiðum við Ný-
fundnaland, hafa þurft að halda
Framhald á bls. 24.
Fingratap
í garð-
sláttuvélum
UNDANFARNA daga hafa
nokkrir menn f Reykjavfk
misst fingur þegar þeir voru
að fást við vélknúnar garð-
sláttuvélar f görðum sfnum og
einn missti 4 fingur þrátt fyrir
10 ára reynslu með garðsláttu-
vél sína. Samkvæmt upplýs-
ingum Leifs Jónssonar, læknis
á Slysadeild Borgarspftalans,
hefur einnig verið nokkuð um
rafmagnsbruna f sambandi við
notkun garðsláttuvéla, og hvað
hann sérstaka ástæðu til þess
að vara menn við og sýna
fyllstu aðgát f meðferð þessara
tækja. Undanfarin vor hefur
ávallt verið nokkuð um alvar-
leg slys vegna óvarkárni í með-
ferð garðsláttuvéla.