Morgunblaðið - 09.06.1977, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR
126. tbl. 64. árg.
FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Autt sæti Amins
í brennidepli á
samveldisfundi
London, 8. júní. Reuter. NTB.
VANDAMÁL þriðja heimsins og myndun meirihlutastjórna blökku-
manna í Rhódesíu og Namibíu (Suðvestur-Afríku) eru efst á baugi á
ráðstefnu brezka samveidisins er hófst i Lancaster House f London f
dag.
Ráðstefnuna sitja leiðtogar 33
ianda þar sem búa einn fjórði
mannkynsins. Stólar Uganda og
Seychelle-eyja stóðu auðir þegar
James Callaghan forsætisráð-
herra flutti setningarræðuna.
Ottast
innrás
málaliða
Vietoria, Seychelle-eyjum,
8. júní. Reuter.
ALBERT Rene, forseti bylt-
ingarstjórnarinnar á Sey-
chelle-eyjum á Indlandshafi,
sagði í dag að stjórn sfn að-
hylltist sósíalisma, sem hæfði
eyjunum, en ekki marxisma,
og sakaði James Mancham frá-
farandi forseta um að ráða
málaliða í sína þjónustu tii að
gera gagnbyltingu.
Hann sagði að ef byltingar-
tilraun yrði gerð mundi nýja
stjórnin leita eftir stuðningi
erlendra ríkja, hvort heldur
Bretlands, Frakklands eða
annarra landa.
Framhald á bls 22
INDIA
Maldivene !| “{|j
HA6ASA6KAR *Hour;tíus ‘"lii
Seychelleeyjar.
Enginn vissi síðdegis hvar Idi
Amin forseti var niðurkominn ,og
sendiherra Seychelle-eyja í Lond-
on neitaði að sitja ráðstefnuna
fyrir hönd hinnar nýju byltingar-
stjórnar landsins.
Auður stóll Amins stóð gegnt
stól Callaghans og dreifði athygl-
inni frá sjálfum störfum ráðstefn-
unnar.
í setningarræðu sinni lagði
Callaghan áherzlu á stöðugt
breikkandi bil sem væri staðfest
milli rikra þjóða og snauða og
kvað það einhverja mestu ógnun
vorra tíma. Hann sagði enn frem-
ur að vandamál sunnanverðrar
Afríku yrðu æ alvarlegri ef á
þeim fyndist ekki skjót lausn.
Kenneth Kaunda Zambiuforseti
hvatti til þess i sinni ræðu að
samveldislöndin hertu á tilraun-
um sínum til að tryggja myndun
framhald á bls. 17
AUTT SÆTI Idi Amins Ugandaforseta á samveldisráðstefnunni í
Lancaster House í London. Andspænis sitja, talið frá vinstri:
Shridath Ramphal, framkvæmdastjóri samveldisins, James Call-
aghan, forsætisráðherra Breta, Kenneth Kaunda, forseti Zambiu,
og Michael Somare, forsætisráðherra Papua Nýju Guineu sem
einn fundarmanna gagnrýndi Amin beint.
Reyna
sættir
Aessen. 9. júní. Reuter. NTB.
SUÐUR-Mólúkkarnir, sem enn
halda 55 manns gíslingu í járn-
brautarlest og skóla f Norður-
Hollandi, halda nýjan fund með
tveimur milligöngumönnum á
morgun að því er talsmaður hol-
lenzku stjórnarinnar skýrði frá í
dag.
Fundurinn verður haldinn i
lestinni sem er á valdi Suður-
Mólúkkanna skammt frá bænum
Aessen.
Lestarræningjarnir slepptu í
dag 46 ára gömlum gísl, Theo van
Latlem, sem var fluttur í sjúkra-
hús þar sem sagt var að hann væri
hjartveikur.
Fyrsti fundur Suður-
Mólúkkanna og milligöngu-
mannanna var haldinn á laugar-
dag, en fór út um þúfur þar sem
Suður-Mólúkkarnir héldu fast við
kröfur sínar og talsmenn stjórn-
arinnar sögðu að tilgangslaust
væri að halda viðræðunum áfram.
Þar sem bæði mannræningjarn-
ir og stjórnvöld hafa óskað eftir
fundinum sem verður haldinn á
Framhald á bls 22
Idi Amin hefnir sín á
300 Bretum í Uganda
Nairobi, 8. júní. Reuter. AP.
ALLT VAR enn á huldu í kvöld um dvalarstað Idi Amins, forseta
Uganda, sem var enn sagður á leið til London,. Til þess að hefna fyrir
tilraunir Breta til að koma í veg fyrir að hann sitji ráðstefnu brezka
samveldisins f London bönnuðu yfirvöld f Uganda f dag um það bil 300
Bretum sem þar búa að fara úr landi.
í KVÖLD sagði Uganda-útvarpið
að Amin væri kominn til London
en skýrði það ekki nánar og gat
ekki heimilda. Brezkir embættis-
menn sögðust ekkert vita: „Ef
hann er hér hefur enginn sagt
okkur það,“ sagði talsmaður
brezku stjórnarinnar.
Idi Osman, talsmaður Amins T
London, sagði að Ugandaforsetí
hefði enn í hyggju að sækja sam-
veldisráðstefnuna og bætti við:
„Hann kemur fyrir helgi.“
Osman neitaði að svara spurn-
ingum um hvar Amin væri niður-
kominn en sagði: „Hann mun
Spánverjar herða á
öryggisráðstöfunum
Madrid, 8. júnf. Reuter.
ÖLL LEYFI hermanna og iögreglumanna á Spáni voru afturkölluð í dag vegna kosninganna eftir viku og
þar með hefur verið hafizt handa um að hrinda í framkvæmd ströngum öryggisráðstöfunum sem eiga að
tryggja að kosningarnar fari friðsamlega fram.
í Baskahéruðunum hófu hópar
vinstrisinna jafnframt vikulanga
baráttu í dag fyrir náðun allra
pólitískra fanga af baskneskum
ættum. Baráttan á að ná hámarki
með áskorun um allsherjarverk-
fall daginn fyrir kjördag.
öryggisráðstafanir eru gerðar í
kjölfar vélbyssuárásar sem varð
tveimur þjóðvarðliðum að bana í
Barcelona og sprenginga sem ollu
skemmdum á orkuverum og end-
urvarpsstöð sjónvarps í Madrid og
Baskahéruðunum. Yfirvöld óttast
að öfgamenn geri lokatilraun til
að spilla fyrir kosningunum.
Þjóðvarðliðar fundu í dag
sprengju í öðru orkuveri skammt
frá höfuðborginni. í Santiago ollu
þrjár eldsprengjur skemmdum í
dómhúsi borgarinnar í nótt.
Skæruliðasamtökin Eta lýstu sig i
dag ábyrga á flestum sprengjutil-
ræðum siðustu daga i tilkynningu
til blaða. Framhald á bls 22
Eftir vélbyssuárás i Madrid.
Ennþá á leiðinni
koma svo allir sjái og ekki um
bakdyrnar. Ef Amin forseti kem-
ur mun hann koma í forsetaþotu
sinni en ekki með áætlunarflug-
vél.“
Útvarpið i Uganda varaði
brezku stjórnina við þvi að reyna
að bjarga Bretunum og benti á að
þeir byggju á víð og dreif um
landið. Þeir eru aðallega trúboð-
ar, en í hópi þeirra eru einnig
kaupsýslumenn og bændur.
Jafnframt hélt útvarpið því
fram að brezk könnunarflugvél
hefði sézt í lofthelgi Uganda í
dag. Talsmaður brezka utanríkis-
ráðuneytisins visaði þessu á bug.
Margir eru ekki vissir um hvort
Amin hafi í raun og veru farið úr
landi þótt Uganda-útvarpið segði
frá því í gær að hann hcfði milli-
lent í vinveittu Arabalandi og orð-
rómur væri um að það land væri
Líbýa, en yfirvöld í Líbýu hafa
visað því á bug.
Frá Kampala hafa borizt óstað-
festar fréttir um að Amin forseti
hafi sézt í höfuðborginni i gær-
kvöldi eftir að útvarpið hafði sagt
að hann væri farinn úr landi.
Staðgengill Amins, Mustafa
Adrisi hershöfðingi, sem er af
sama ættflokki og forsetinn sendi
frá sér fréttina um að Bretunum
yrði haldið i gíslingu. Tilkynnt
hefur verið að herlögreglan hafi
verið sett undir beina stjórn
Amins og Adrisi stjórni henni i
fjarveru forsetans.
Talsmaður Amins sem svaraði i
síma í aðalstöðvum Amins í dag
kvaðst telja að Amin væri kominn
til London. Talsmaður Amins
sem fréttamaður norska útvarps-
ins hringdi í sagði að Amin væri á
leið með skipi til London frá
Arabalandi þar sem hann hefði
gist í nótt.
Mannréttindi ’77:
81 sviptur starfi
í Tékkóslóvakíu
Vfn 8. júnf — Reuter.
MEIRA EN 80 þeirra, sem undir-
rituðu mannréttindayfirlýsingu
'77 í Tékkóslavakíu, hafa verið
sviptir atvinnu sinni frá því að
yfirlýsingin var birt í janúar,
samkvæmt yfirlýsingu, sem birt
var í gærkvöld.
Yfirlýsingin, sem er sú ellefta
sem gefin er út i mótmælaskyni
við stefnu tékknesku stjórnarinn-
hr, segir, að þar til í apríl hafi 81
verið sviptur starfi sinu. Prófess-
or Jiri Hajek, sem er eini talsmað-
ur hópsins, sem eftir er, og tíu
aðrir, sem reknir hafa verið úr
starfi fyrir stuðning við mann-
Framhald á bls 22