Morgunblaðið - 11.06.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JUNÍ 1977
3
Létt klassískir kammertónleikar
á Akranesi og í Norræna húsinu
BERNARD Wilkinson, flautu-
leikari, John Collins, sellóleik-
ari og Sveinbjörg Vilhjálms-
dóttir, pianóleikari, halda tón-
leika f sal Tónlistarskóla Akra-
ness mánudaginn 13. júnf nk.
kl. 21 og f Norræna húsinu
þriðjudaginn 14. júnf kl. 20.30.
Á efnisskrá eru trfó eftir
Haydn, Weber í Martinu. Að-
göngumiðar verða seldir við
innganginn.
Wilkinson er Englendingur
og nú fyrsti flautuleikari í sin-
fóniuhljómsveit Islands, Coll-
ins hins vegar bandarískur og
fyrsti sellóleikari í sinfóníu-
hljómsveitinni auk þess sem
hann kennir við Tónlistarskól-
ann i Reykjavík og Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar
þar sem Sveinbjörg er einnig
kennari.
Unglingalúðrasveit Tónlistarskólans f Garðabæ.
Lúðrasveit Tónlistarskólans í
Garðabæ spilar í Hveragerði
UNGLINGALÚÐRASVEIT
Tónlistarskólans f Garðabæ
mun á morgun leggja upp í
eins dags ferðalag og er ráðgert
að spila á Heilsuhæli N.L.F.Í.
og í Eden f Hveragerði. Alma
Hansen, skólastjóri Tónlistar-
skólans f Garðabæ, sagði að
unglingalúðrasveitin starfaði í
tveimur deildum, eldri og
yngri deild. Deildirnar verða
sameinaðar og taka báðar þátt í
þessari hljómleika- og
skemmtiferð.
Stjórnandi lúðrasveitarinnar
er Björn R. Einarsson, en lúðra-
sveitin hefur starfað nú i um
eitt og hálft ár. Alma Hansen
sagði að síðasta verkefni lúðra-
sveitarinnar á þessu vori væri
að spila 17. júni fyrir skrúð-
göngu. Lúðrasveitin mun spila
kl. 16.30 i Eden og um kl. 18 í
Heilsuhælinu i Hveragerði.
Aldin hjón
sýna
í Hveragerði
NU STENDUR yfir í félags-
heimilinu í Hveragerði mál-
verkasýning aldina hjóna frá
Hofi í Dýrafirði, Guðmundu
Jónu Jónsdóttur og Gunnars
Guðmundssonar. Sýningin
stendur aðeins til mánudags og
er sölusýning. Þess má geta að
kaffiveitingar eru á staðnum.
Teflir f jöltefli
á tveimur stöð-
um um helgina
JÓN L. Árnason, íslandsmeist-
ari f skák, hefur teflt fjöltefli f
tveimur skólum á höfuðborgar-
svæðinu, Valhúsaskóla og
Hagaskóla. IVIætti hann þar 33
andstæðingum, sigraði 30 og
gerði 3 jafntefli.
I dag klukkan 14 teflir Jón
svo fjöltefli i sal Menntaskólans
í Reykjavík, Casa Nova, og á
morgun á sama tima teflir hann
fjöltefli i Laugarlækjaskóla.
Hann mun tefla í fleiri skólum
um helgar út júní. 1 júlí fer
hann svo á sterkt mót i Banda-
ríkjunum, World Open, eins og
fram hefur komið i blaðinu og
auk þess teflir Jón á Norður-
landam ótinu í Finnlandi
seinna í júlí.
Jón L. Árnason
Fiskim jöl lækkar í verði
Danir hafa selt m jöl á 7,30 dollara proteineininguna
SÍÐUSTU daga hefur fiskimjöl
lækkað f verði á heimsmarkaði og
hefur verðið nú komizt niður í
7,30 dollara proteineiningin, en
marga undanfarna mánuði hefur
verðið verið 7,80 — 7,90 dollarar
proteineiningin og einstaka sala
hefur náð 8 dollurum.
Jónan Jónsson framkvæmda-
stjóri Sildar- og fiskimjölverk-
smiðjunnar h.f., sagði í samtali
við Morgunblaðið i gær, að verð-
lækkunin hefði fyrst komið fram
fyrir nokkrum dögum er Danir
seldu Ungverjum .um 8000 lestir
af mjöli, en það var selt á 7.50
dollaara proteineiningin. Siðan
gerðist það í fyrradag, að Danir
seldu mjöl á ný, að þessu sinni 13
— 14 þúsund lestir til Póllands á
7.30 — 7.40 dollara proteineining-
una.
Að sögn Jónasar hefur verið
lítið urh mjölsölur undanfarnar
vikur á heimsmarkaði, en mikil
veiði hefði verið hjá dönskum
fiskiskipum um tima og mjöl-
birgðir safnazt fyrir hjá dönsku
verksmiðjunum, þannig að þær
hefðu verið tilneyddar að selja.
Ekki vildi Jónas spá neinu um
framvindu mála, en tók fram, að
ekkert væri veitt í Perú um þess-
ar mundir og sömuleiðis i S-
Afríku, þar væri ástandið reyndar
þannig, að þeir flyttu nú mjöl inn.
Sagði hann, að það sem mestu
réði um mjölmarkaðinn á næst-
unni væri soyabaunauppskeran.
r
HÁTÍÐAHLJÓMLEIKAR 1 7. júní í Háskólabíói kl. 1 7.00
Efnisskrá Vivaldi — GLORÍA
J.S. Bach KONSERT í D-MOLL fyrir 2 einleiksfiðlur og
hljómsveit.
Einleikarar: María Ingólfsdóttir
Rut Ingólfsdóttir
J.S. Bach MAGNIFICAT
Pólýfónkórinn
Kammerhljómsveit
Einsöngvarar: Hannah Francis, sópran
Ruth L. Magnússon, alto
Jón Þorsteinsson, tenór
Hjálmar Kjartansson, bassi
Stjórnandi: Ingólfur Guðbrandsson.
KVEÐJUHLJÓMLEIKAR 22. júní kl. 21.00 í Háskólabiói
Efnísskrá: G.F. Hándel — MESSÍAS
Pólýfónkórinn
Kammerhljómsveit
Einsöngvarar: Kathleen Livingstonö, sópran
Ruth L. Magnússon, alto
NeiLMáckie, tenór
Michael Rippon, bassi
Stjórnandi: Ingólfur Guðbrandsson
Fyrir aðgang að báðum tónleikunum e;r afsláttarverð kr. 4.000
STYRKIÐ PÓLÝFÓNKORINN
t '
Undirritaður óskar að tryggja sér sæti á, hljómleika Pólýfónkórsins og
styrkja um leið söngferð hans til Ítalíu.
^ Klippið hér og póst-
N leggið pöntun t pósthólf
0 1346
£ Símapantanir: 20100
Pantanir, sem ekki
verður vitjað fyrir 16
júní verða seldar öðr-
um.
Aðgöngumiðar hjá.
Ferðskr. Útsýn.
S Bókav.
4 Sigf. Eymundssonar.
Hljóðfærah Reykjav
Aðgöngumiðapöntun:
Nafn:
Heimili:
Sfmi:.
Hátiðahljómleikar 17. júnt - fjöldi miða
Kveðjuhljómleikar 22. júnl - fjöldi mi8a
Barokkhátfð I Reykjavtk
- báðir hljómleikar - fjöldi miða ___
Pólýfónkórinn .
| @ Barokkhátíð í Reykj avík @ ^
| Listviðburður sem ekki verður endurtekinn f