Morgunblaðið - 14.06.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.06.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNl 1977 3 F orsetinn í sjúkrahúsi Forseti íslands, doktor Kristján Eldjárn, liggur nú á Landspltal- anum. þar sem hann verður I nokkra daga til meðferðar vegna aðkenningar að æðabólgu I fæti. Forsetahjónin komu heim á sunnudag frá Svíþjóð, þar sem þau voru i boði Uppsalaháskóla. Fíkniefnamálin: 4 í gæzlu Á LAUGARDAGINN var maður á þritugsaldri úrskurðaður i allt að 30 daga gæzluvarðhald vegna fíkniefnamálanna, sem byrjað var að rannsaka í siðustu viku. Fyrir i gæzluvarðhaldi sátu þrir menn vegna sömu mála. Höfuðkúpu- brotinn eft- ir slagsmál TVEIR menn um í\fiugt lentu I illdeilum á Hjallabrekku f Kópa- vogi um áttaleytið s.l. laugardags- kvöld. Mögnuðust deilurnar svo mjög, að mennirnir byrjuðu að slást og lauk átökunum á þann veg, að annar þeirra féll í valinn höfuð- kúpubrotinn. Hann liggur á sjúkrahúsi en er ekki lífshættu- lega slasaður. Mennirnir þekktust ekkert. Þeir munu hafa neytt áfengis fyrr um daginn. Fró uppboðinu slSastliðinn laugardag. Hópflug ítala selt fyrir yfir eina milljón króna FÉLAG frímerkjasafnara hélt frf- merkjauppboð sl. laugardag í Vík- ingasal Hótel LoftleiSa. Eins og oftast áSur voru þar saman komn- ir margir safnarar til þess aS freista þess aS ná í eigulega hluti fyrir söfn sín, enda var uppboSiS mjög fjölbreytt. Langhæsta verS, sem nokkurn tlma hefur fengizt fyrir Islenzk frlmerki hér á landi, fékkst fyrir Hópflug ítala 1933 I fallegum, óstimpluSum fjóblokk um — eSa 1.1015.000. Þess kon- ar fljórblokkir eru geysifágætar og sjást nær aldrei á uppboSum. Næsthæst boS fékkst I samskonar merki á bréfsnifsum, stimpluSum I HafnarfirSi, og voru þær slegnar á 230 þús. krónur. Á þessu uppboði voru fjölmargar fallegar fjóblokkir, og seldust sumar þeirra við góðu verði Má þar nefna yfirprentunina 10 kr /1kr. Fr. VIII á 100 þús., 6 aur. í GILDI 02 — 03 með svartri yfirprentun á 95 þús og 8 sk á 68 þús Annars gengu margar blokkir til baka, og var lágmarksboði þeirra þó stillt í hóf víða, enda þótt það væri vissu- lega allhátt í krónutölu. Umslög eru oftast eftirsótt Eitt slíkt frá 1896 var slegið á 65 þús. kr., enda var það fallegt umslag Önnur fóru við lægra verði og sum jafnvel miklu lægra en búast hefði mátt við Þá var boðið nokkuð vel í ýmsa stimpla, en þó er svo að merkja sem heldur hafi dregið úr eftirspurn eftir sumum þeirra Þegar á allt er litið, var miklu rólegra yfir þessu uppboði en upp- boði F.F í apríl, og var slíkt næsta einkennilegt, ekki sízt þegar haft er í huga, að nú sóttu það allmargir erlendir safnarar, sem hér hafa verið í sambandi við Frimex 7 7 Hefði mátt gera ráð fyrir, að þeir hleyptu fjöri í boðin, en það gerðu þeir ekki. þótt þeir hrepptu vitanlega þó nokk- ur boð Látið drauminn rætast... TU suðurs meó SUNNU Aðeins það gottfyrir Sunnufarþega Áfangast./Brottfarard. APRÍL MAÍ JÚNÍ JÚLÍ ÁGÚST SEPT. OKT. NÓV. DES MALLORCA 3. 17. 1. 22. 12. 3. 24, 31. 7, 14. 21. 28 4. 11. 18. 25. 2. 16, 30. 12. 3. 18. COSTA BRAVA 3. 17. 1. 22. 13. 4 25 8 15 22 29 5 12. COSTA DEL SOL 1. 17. 6. 20. 3. 17. 8. 29. 5. 12. 19. 26. 2. ~9j 16, 30. KANARÍEYJAR 2. 6. 23. 14. 2. 16. 7, 28. 11. 25. 8. 22. 8. 22. 12. 3. 17. 23. GRIKKLAND 5. 19. 10. 24. 7. 21. 5. 19. 2.9.16, 23. 30. 6. 13. 20, 27. 11. 25. MALLORCA dagflug é sunnud. Eftirsóttasta paradís Evrópu. Sjórinn, sól- skinið og skemmtanalífið eins og fólk vill hafa það. Tvær Sunnuskrifstofur, og hópur af íslensku starfsfolki. barnagæsla og leikskóli. Bestu og eftirsóttustu hótel og íbúðir, sem hægt er að fá, svo sem: fíoyal Magaluf, Porto Nova, Antillas Barbados, Guadalupe, Helios og Hotel 33 fyrir unga fólklð (Klubb 32). COSTABRAVA dagflug é sunnudögum- ménudögum. Lloret de Mar, eftirsótt- asti skemmtiferðastaðurinn á hinni fögru Costa Brava strönd. Við bjóðum glæsilegar og friðsælar fjölskyldu íbúðir Trimaran, rétt við Fanals baðströndina, einnig hið vinsæla Hotel Carolina og sérstakt unglingahótel i miðbænum, skammt frá baðströndinni. Fjöldi möguleika á fjölbreyttum skoðunarferðum, til fríríkisins Andorra, Barcelona, Frakklands, siglingar með ströndinni. Óvenju lit- skrúðugt skemmtanalíf. Sunnu skrifstofa með þjálfuðu starfsfólki á staðnum. COSTA DEL SOL dagflug é föstud. Heillandi sumarleyfisstaður. náttúrufeg- urð, góðar baðstrendur, fjölbreytt skemmtanalíf og litríkt þjóðlif Andalusiu. Margt um skoðunar og skemmtiferðir, til Afríku, Granada, Sevilla Nú bjóðum við eftirsóttustu iúxusibúðirnar við ströndina í Torremolinos Playa Mar, með glæsilegum útivistarsvæðum. sundlaugum og leikvöllum, loftkældar lúxus- íbúðir Einnig Las Estrellas, Hotel Don Pablo, Hotel Palma Sol og Hotel Equvador fyrir uoga fólkið. Eigin skrifstofa Sunnu i Torremolinos með þjálfuðu starfsfólki. Bamaqæsla og leikskóli KANARkEYJAR vetur. sumar. vor og haust, dagflug é laugardögum-fimmtudög um. Sólskinsparadis allan ársins hring. Nú fá islendingar í fyrsta sinn tækifæri tll sumarleyfisdvalar á Kanaríeyjum. Púsundir þekkja af eigin reynslu þessar paradisareyjar I vetrarsól Hóflegur hiti. góðar baðstrendur. fjölbreytt skemmtana- lif. Kanarieyjar eru frihöfn með tollfrjálsa verslun. Hægt að velja um dvol á vinsælustu og bestu hótelum og ibúðum á Gran Canaria og Tenerife svo sem: Koka, Corona Blanca, Corona fíoja, Los Salmones. Hotel Wnikiki og Tenerife Playa. Sunnu skrifstofa með islensku starfsfólki nú opin allan ársins hring GRIKKLAND dagflug é þriðjud. Nýr og heillandi sumarleyfisstaður islend- inga. í fyrsta sinn beint flug frá íslandi til Grikklands, á rúmum 5 klst Óviðjafn- anleg náttúrufegurð og sögustaðir sem heilla Góðar baðstrendur i fögru um- hverfi í baðstrandarbæjum 15-25 km frá Aþenu. Fjölbreytt skemmtanalif Ny glæsileg hótel og ibúðir. Einnig hægt að dvelja á hóteli og smáhýsahverfi á eynni KfííT Reyndir islenskir fararstjórar Sunnu á stöðunum. KAUPMANNAHÖFN Tvisvar i mánuði janúar — april Einu sinni i viku maí — október. íslensk skrifstofa Sunnu opin i Kaupmannahofn i Júni — september, til þjónustu við Sunnufarþega. LONDON Vikulega allan ársins hring RÍNARLANDAFERÐIR KANADA í samvinnu við vestur islendinga getur Sunna boðið upp á 3 mjög hagstæðar flugferðir til Winnipeg Brottfarardagar 27 mai. 4 vikur. 26. júni, 3 vikur, 15. júli, 3 vikur. Áætlað flugfargjald 54 800. Efnt verður til ferða is- lendinga i sambandi við flugferðirnar um islendingabyggðir nýja íslands. Banua- rikjanna, Calgary, og Kyrrahafsstranda. Peim seín oska utveguð dvol á islenskum heimilum vestra. Geymið auglýsinguna. FERÐASKRIFSTOFAN SUNNA UEKJARGOTU 2 SIMAR 16400 12070 Viimingsnúmer í landshapp- drætti Sjálfstæðisflokksins DREGIÐ var hjá borgarfógeta f landshappdrætti Sjálfstæðis- flokksins s.l. laugardag. Upp komu eftirtalin vinnings- númer: Nr. 57869 til New York með Flugleiðum fyrir 2. Nr. 4083 til Stokkhólms með Flugleiðum fyrir 2. Nr. 62504 til Luxemburg með Flugleiðum fyrir 2. Nr. 69577 til Parfsar með Flugleiðum fyrir 2. Nr. 4723 til Kaupmannahafnar með Flugleið- um fyrir 2. Nr. 73867 til London með Flugleiðum fyrir 2. Nr. 61844 Mallorkaferðir tJrvals fyrir 2. Nr. 31857 Mallorkaferðir tlrvals fyrir 2. Nr. 3241 Mallorkaferðir tlrvals fyrir 2. Nr. 32623 Mallokraferðir Úrvals fyrir 2. Nr. 45165 Ibizaferðir tJrvals fyrir2. Nr. 15509 Ibizaferðir tlrvals fyrir 2. Nr. 61484 Ibizaferðir tJrvals fyrir2. Nr. 333 Ibizaferðir tlrvals fyrir 2. Eigendur ofantaldra vinnings- miða framvísi þeim í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins, Valhöll, Háaleitisbraut 1. Sjálfstæðisflokkurinn þakkar öllum þeim fjölmörgu, sem þátt tóku í stuðningi við flokkinn með kaupum á happdrættismiðum. (Fréttatilkynning). Vegir um miðhálend- ið ófærir „Það er mikill snjór á miðhá- lendinu en vegirnir eru blautir og illa farnir, þannig að það er af og frá að það þýði nokkuð að leggja á þá eins og er,“ var svarið sem Mbl. fékk f gær hjá vegaeftirlitinu, er blaðið spurð- ist fyrir um færð á vegum yfir miðhálnndið. Þó er fært I Land- mannalaugar að öðru leyti en því að vegurinn að laugunum sjálfum er ófær svo fólk verður þá að ganga sfðasta spölinn. Ætlunin er að kanna veginn um Sprengisand næstu daga og einnig vegina um Uxahryggi og Kaldadal, en þeir eru ófærir fyrst og fremst vegna úrrennsl- is og bleytu. Sama er að segja um Kjalveg og er þar einkum Bláfellsháls, sem er illa farinn, en sem fyrr segir er ekki mikill snjór á þessum vegum. Eggert Haukdal fékk flest at- kvæði í prófkjöri sjálfstæð- ismanna í Rangárvallasýslu Eggert Ilaukdal á Bergþórshvoli fékk flest atkvæði í prófkjöri á vegum fulltrúaráðs Sjálfstæðis- flokksins I Rangárvallasýslu fyrir helgina. Hlaut Eggert 37,8% greiddra atkvæða, en til að kosn- ing yrði bindandi var markið sett við45% atkvæðamagn. Eggert fékk 367 atkvæði, en næstflest atkvæði hlaut Jón Þor- gilsson, Hellu, 317 atkvæði, eða 32,7% greiddra atkvæða. Sigurð- ur Óskarsson, Hellu, hlaut 133 atkvæði og Hálfdán Guðmunds- son, Hellu, 130 atkvæði. Á kjörskrá voru 1037, flokks- bundnir og yfirlýstir stuðnings- menn Sjálfstæðisflokksins. At- kvæði greiddu 970 og voru auðir seðlar 23 talsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.