Morgunblaðið - 14.06.1977, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.06.1977, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNI 1977 19 Janne Experiment, alþjóðlegur félagsskapur: Vilja aukin sam- skipti við ALÞJÓÐLEGUR félagsskap- ur, The Experiment in Inter- national Living, annazt ýmiss konar fyrirgreiðslu f samskipt- um fólks af öllum þjóðernum. M.a veitir félagsskapurinn að- stoð fólki sem vill dvelja I hin- um ýmsu löndum um tfma, og er fólki komið fyrir sem fjöl- skyldumeðlimum þar. Gildir þetta bæði um einstaklinga og hópa og t.d. hafa hópar skóla- fólks fengið aðstoð í sambandi við skólaferðalög og fræðslu- ferðalög. Fyrir nokkru var hér á ferð á leið frá Bandaríkjunum dönsk stúlka aó nafni Janne Ernest Andersen, en hún starfar á dönsku skrifstofunni í þessum alþjóðlega félagsskap, en skrif- stofan er til húsa í Badstue- strede 17, I, í Kaupmannahöfn. í spjalli við Morgunblaðið sagði Janne, að norrænu deildirnar hefðu mikinn áhuga á að hafa Islendinga meira samband við ísland í þessum efnum en starfsemin er mjög vaxandi innan Norður- landanna. The Experiment In Inter- national Living var stofnað 1932 og markmið þess er að auka kynni milli fólks af 'ýms- um þjóðernum. skilning, viró- ingu og vináttu án tillits til stjórnmála- eða trúarskoðana. Þeir sem ferðast með fyrir- greiðslu samtakanna líta ekki á sig sem gesti eða ferðamenn, heldur hluta af því mannlífi og umhverfi sem þeirr ganga til móts við. Þeir sem haf a áhuga á að komast í kynni við þessa starfsemi og nota möguleika hennar geta skrifað á fyrr- greint heimilisfang í Kaup- mannahöfn og fengið upplýs- ingar og bæklinga um hina ýmsu möguleika í starfinu. Simanúmerið í Kaupmanna- hafnardeildinni er 01-110195. Samstarfsnefnd til verndar landhelginni afhenti Gunde- lach og Judd mótmælabréf SAMSTARFSNEFNDIN til verndar landhelginnar afhenti þeim Finn Olav Gundelach og Frank Judd bréf, er þeir voru hér til viðræðna I sfðustu viku. í bréfinu segir m.a. að það sé með öllu „óskiljanlegt forsvars- mönnum íslenzkra launþegasam- taka“, að Efnahagsbandalagið skuli við ríkjandi aðstæður leyfa sér að gera út sendinefnd á fund íslenzku ríkisstjórnarinnar, „sendinefnd til þess að öðlast ákveðinn hluta íþeirri einu of- nýttu auðlind, sem stendur undir tilveru og lífskjörum íslenzku þjóðarinnar.“ Þá er harðlega átal- in sú hótun sem felst í þvi að á sama tima og rætt skal um fisk- veiðimál er send nefnd til við- ræðna um tollasamning islands og Efnahagsbandalagsins. Segir i bréfinu, að koma þess- ara manna til íslands virðist sanna, að EBE geri sér það ekki ljóst að „um gagnkvæma fisk- veiðisamninga milli islands og EBE getur ekki verið að ræða, þvi Efnahagsbandalagið eigi ekkert til að láta á móti fiskveiðiréttind- um við island." „Forsenda fyrir vináttu og samvinnu íslands og EBE í framtíðinni er ný og gjör- breytt stefna EBE í fiskveiðimál- um, sem eru i samræmi við grund- vallaratriði Rómarsáttmálans. Launþegasamtökin á íslandi von- ast til þess að ferð ykkar hingað til lands verði upphaf þessarar nýju stefnu," segir í lok bréfsins. A-Barðstrendingar: Nefnd á fund ríkisstjórn- arinnar til að fá Þörunga- vinnsluna aftur í gang Miðhúsum, 13. júnf. I gær stóðu hreppsnéfndir A- Barðastrandarsýslu að stórum og vel sóttum fundi á hótel Bjarkar- lundi um málefni Þörungavinnsl- unnar. Á fundinum kom fram hörð gagnrýni á iðnaðarráðherra og ríkisstjórn fyrir að klúðra þannig málum, að þegar í sjón- máli væri að reka mætti verk- smiðjuna hallalaust þá héldi ríkis- stjórnin að sér höndum. Einnig varð stjórn verksmiðjunnar fyrir allharðri gagnrýni og sérstaklega fyrir það að standa að uppsögnum starfsfólks verksmiðjunnar. Töldu fundarmenn að stjórnin hefði átt að bíða aðalfundarins, sem á að vera 30. jiíní., með þær aðgerðir. Samþykkt var að senda sjö manna nefnd á fund ríkisstjórn- arinnar til að freista þess að fá verksmiðjuna í gang aftur. Á fundinum var samþykkt til- laga frá aðalfundi Kaupfélags Króksfjarðar, sem gekk í svipaða át'. og umræður fundarins. Einnig létu fundarmenn i ljós það álit að þingmenn okkar hefðu verið tóm- látir um þetm brýna byggða- stefnumál og var þá Gisla Jóns- sonar, þingmanns Barðstrend- inga, minnzt til samanburðar, en iiann lét sig ekki vanta, þegar hagsmunamál byggðarinnar voru i veði annars vegar. — Sveinn. Um helgina veittu forráðamenn vöruflugfélagsins Iscargo heildverzluninni A. Wendel viðurkenningu sem fyrsta viðskiptavini félagsins á nýrri flugleið þess, New York — Reykjavfk. Fyrsta flugvél Iscargo frá New York lenti í Reykjavík á fimmtudag og meðal þess, sem var innanborðs, voru tvær steinsagir fyrir A. Wendel. Myndin sýnir Hallgrím Jónsson, framkvæmdastjóra Iscargo, afhenda Adolf Wendel, sem er í miðjunni, blóm og kampavín. Til vinstri er Lárus Gunnarsson, tæknilegur framkvæmdastióri Iscargo.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.