Morgunblaðið - 14.06.1977, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.06.1977, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14 JtlNl 1977 21 MARKIÐ FRA ÞREMUR SJONARHORNUM — Efst til vinstri sést Ingi Björn Albertsson skjóta að marki N-íranna í leiknum á laugardag- inn, Pat Jennings situr flötum beinum á vellinum og á myndinni til hægri sést glöggt hve litla möguieika varnarmennirnir eiga á að stöðva knöttinn. A stóru myndinni fagnar Ingi Björn marki sínu um leið og knötturinn snertir netmöskvana, örvæntingarsvipurinn leynir sér ekki á í látbragði tranna. Fyrsti sigur Islendinga íheimsmeistarakeppni FYRSTI SIGUR ÍSLANDS í knattspyrnuleik f heimsmeistarakeppni kom gegn Norður-írum á Laugardalsvellinum á laugardaginn. Eitt mark gegn engu urðu úrslit leiksins, þökk sé marki Inga Björns Albertssonar í fyrri hálfleiknum. Þessu úrslit færa okkur enn einu þrepinu ofar í knattspyrnustiganum, eða eins og einhver sagði: við erum ekki lengur þriðja flokks knattspyrnuþjóð, þessi sigur og árangur undanfarinna ára hefur komið okkur upp f 2. flokk f Evrópu. Oft hefur íslenzka knattspyrnu- landsliðið leikið betur en á laugardaginn — en tapað. Það sem fyrst og fremst skóp sigurinn gegn N-írum var góð barátta allra leikmanna liðsins, viljinn til að vinna og þó kannski framar öðru — vel útfærð leikaðferð, þar sem fslenzku leikmennirnir spiluðu ekki bara með fótunum heldur einnig, og ekki síður, með höfð- inu. Skynsemin var í fyrirrúmi hjá íslenzka liðinu, írarnir fengu mikið svæði á miðjunni. Atvinnu- mennirnir fengu að leika sér þar með knöttinn, en er þeir nálguð- ust markið kom varnarsveit Is- lenzka liðsins á vettvang og gaf írunum engan frið. Þá unnu allir leikmennirnir saman og gáfu hvergi eftir. Aðeins einu sinni i leiknum brást vörnin, írarnir prjónuðu sig snilldaríega í gegn, en Sam Mcllroy, þessum snjalla bikarmeistara Manchester United, brást illilega bogalistin fyrir miðju markinu. Það var athyglisvert að sjá til íslenzka liðsins í seinni hálfleikn- um þegar liðið hafði eins marks forskot að verja. Þá kom reynsla leikmanna og hversu vel þeir eru orðnir samspilaðir í ljós. í stað þess að gerast taugaóstyrkir, eins og maður hefur svo oft séð hjá íslenzku landsliði, var rósemi rfkjandi meðal leikmanna. Þeim lá ekkert á, það voru írarnir sc þurftu að sækja, og þeim var efnr látið allt erfiðið úti á vellinum. Það var eins og íslenzku leik- mennirnir væru þrautreyndir at- vinnumenn upp til hópa, en Ir- arnir hinir æstu áhugamenn. Strákarnir kunnu greinilega orðiÓ að vera yfir f landsleik. Byrjun leiksins var mjög dauf, það var eins og vantaði neistann hjá báðum liðum. Irarnir voru gætnir, en okkar menn seinir í gang. Þó átti landinn fyrsta tæki- færi leiksins er Marteinn Geirs- son stóð fyrir opnu marki eftir aðeins 3 mínútur, en brást boga- listin. Eftir að Ingi Björn skoraói síðan á 33. mínútu færðist mikið fjör f leikinn. trarnir bættu sóknarmanni við, leikurinn varð harðari en áður 'og tækifærum fjölgaði. I síðari hálfleiknum voru Ir- arnir í aðalhlutverkum. Þeir léku oft bráðvel úti á vellinum, en það er ekki nóg. Færi áttu þeir engin og þvi engin mörk. Þeir voru greinilega óhressir í lok leiksins, þeir höfðu haldið að þeir væru að fara í skemmtiferð til íslands, en það er lítil skemmtun að tapa landsleik. Ef til vill hafa þeir van- metið landann, en það er orðið hverju knattspyrnuliði óhollt. Norður-frsk knattspyrna setur ofan við þennan ósigur og var þó ekki úr háum söðli að falla miðað við árangur sfðasta árs. íslenzka liðið var vel að þessum sigri komið og það verður gaman að sjá landsliðið i leikjunum á Laugardalsvelli gegn Norðmönn- um og Svfum. Þá verða að vísu ekki allir atvinnumennirnir með, en áhugamennirnir okkar standa fyrir sínu. Það sýndu þeir á laugardaginn og sumir þeirra földu atvinnumennina í skugga sínum. Beztu menn íslenzka liðs- ins voru áhugamennirnir Ólafur, Janus og Ingi Björn, en atvinnu- mennirnir Marteinn og Guðgeir stóðu þeim þó ekki langt að baki. Annars er ekki rétt að vera að skipta landsliðinu f hópa áhuga- og atvinnumanna. Landsliðið er ein heild. SIGURÐUR DAGSSON stóð i marki íslenzka liðsins og þessi Pat Jennings fslenzkrar knattspyrnu gerði fá mistök í leiknum. Hann virtist þó ekki öruggur í úthlaup- um sinum, en hins vegar bjargaði hann nokkrum sinnum mjög vel á marklfnunni. Þar er Siggi Dags engum líkur. ÓLAFUR SIGURVINSSON lék þennan leik mjög vel, mun betur en undirritaður átti von á, þar sem Ólafur hefur staðið sig mið- lungi vel með ÍBV-liðinu í sumar. Ólafur virðist vaxa þegar til landsleikja kemur og hann gætti McGreerys, hættulegasta sóknar- manns Iranna, eins og sjáaldur auga síns í leiknum. Sá komst ekki upp með neitt múður. JANUS GUÐLAUGSSON lék þarna sinn fyrsta landsleik, en það var eins og hann væri frekar að leika sinn 100. landsleik. Janus lék eins og sá sem valdið hefur og sýndi enga minnimáttarkennd. Snjall leikmaður. JÓHANNES EÐVALDSSON virkar nokkuð þungur, en er sami kletturinn i vörninni og áður. Ir- arnir áttu ekki möguleika á að ná skallaboltum væri landsliðsfyrir- liðinn nálægur. MARTEINN GEIRSSON virtist vera alls staðar þar sem eitthvað var um að vera í vörninni. Hann virtist sterkari nú en nokkru sinni og er þó talsvert sagt. GlSLI TORFASON lék fyrir framan miðverðina. Hann lék þennan Ieik ekki eins vel og gegn Bobby Charlton-liðinu, en slapp þó þokkalega frá sínu. GUÐGEIR LEIFSSON átti margar skfnandi góðar sendingar í leiknum, en mætti þó gjarnan vera fljótari að losa sig við knött- inn. Flestar hættulegustu sóknar- lotur fslenzka liðsins áttu upptök hjá Guðgeiri. ÁSGEIR SIGURVINSSON hefur oft leikið betur með fs- lenzka landsliðinu og sannast sagna olli hann nokkrum von- brigðum í leiknum. Ásgeir var þó langt frá því að vera slakur en maður ætlast bara til svo mikils af honum. Það er þó ekki hlaupið aö því að sýna stórleik og vera í eins strangri gæzlu og Ásgeir var á laugardaginn. INGI BJÖRN ALBERTSSON er leikmaður með einstakt næmi fyr- ir mörkum og marktækifærum. Það fer ekki mikið fyrir Inga Birni langtimum saman, en fyrr en varir er hann búinn að skora. Annars var Ingi meira áberandi i þessurn leik en oft áður, skapaöi sér og öðrum tækifæri, auk þess sem hann hjálpaði vel til á miðj- unni. GUÐMUNDUR ÞORBJÖRNS- SON virtist eitthvað miður sfn í þessum leik. Fékk ekki þær send- ingar sem hann þarf að fá, til að moða úr meiddist í leiknum og varð að fara útaf. TEITUR ÞÖRÐARSON byrjaði leikinn mjög vel, greinilega breyttur leikmaður frá því sem áður var og spilar knettinum bet- ur. Heldur dró af Teiti er leið á leikinn og sást hann lítið í seinni hálfleiknum. ATLI EÐVALDSSON kom inn á i seinni hálfleiknum og stóð sig vel meðan hann var inn á. UM LEIKMENN N-ÍRA er það að segja að miðverðirnir Allan Hunter fyrirliði liðsins og „rauða ljónið" James Nicholl voru beztir ásamt varamanninum Derek Spence, sem skapaði þau fáu tækifæri, sem Irarnir fengu. Þá sýndi Mcllroy skemmtilega takta annað slagið, en stóð sig ekki næstum eins vel og maður hafði búist við af honum. LIÐ ISLANDS: Sigurður Dags- son, Ólafur Sigurvinsson, Janus Guðlaugsson, Jóhannes Eóvalds- son, Marteinn Geirsson, Gísli Torfason, Guðgeir Leifsson, Ás- geir Sigurvinsson, Ingi Björn Al- bertsson, Guðmundur Þorbjörns- son, Teitur Þórðarson og Atli Eð- valdsson. LIÐ NORÐUR-lRLANDS Jennings, Rice, Nelson, J. Nicholl, Hunter, Hamilton, McGrath, Mcllroy, Jackson, McCreery, And- erson, Spence og Armstrong. DÖMARI: Rudi Glöeckner frá A-Þýzkalandi dæmdi þarna sinn siðasta knattspyrnulandsleik og þessi „senjór" knattspyrnudóm- ara stóð fyrir sinu að vanda. Mað- ur sem greinilega þekkir alla klæki knattspyrnunnar. Hann bókaði Gísla Torfason og Sanuny Mcllroy.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.