Morgunblaðið - 14.06.1977, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNt 1977
Æbílaleigan
felEYSIR
LAUGAVEGI 66
CAR RENTAL
24460
Hótol og flugvallaþjónusta.
Hópferöabílar
8—50 farþega.
Kjartan Ingimarsson
Sim. 86155. 32716
® 22 022
RAUÐARÁRSTIG 31
______________/
Ný
kjólasending
í stærðum 37 til 49
Gott verð.
Klapparstig 37
Verksntíóju _
útsata
Atafoss
Opid þridjudaga 14*19
fimmtudaga II— IK
á útsölunm:
Flækjulopi
Hespulopi
Flækjuband
Endaband
Prjónaband
Vefnaðarbútar
Bílateppabútar
Teppabútar
Teppamottur
ÁLAFOSSHF
MOSFELLSSVEIT
Al íílASINíiASIMINN KK:
22480
iflorjjmibTntMÍi
Útvarp Revkjavlk
ÞRIÐJUDNGUR
14. júní
MORGUNNINN
7.00 Morj'unútvarp
Veúurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. MorKunleikfimi kl.
7.15 og 9.05 Fréttir kl. 7.30,
8.15 (og forustugr. dagbl.),
9.00 og 10.00. Morgunbæn kl.
7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Ingibjörg Þorgeirs-
dóttir les fyrri hluta frásögu
sinnar um kúasmalann.
Tilkvnningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða. Morgunpopp
kl. 10.25.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Leonid Kogan og Elisabeth
Gilels leika Sónötu nr. 1 í
G-dúr op. 3 nr. 1 fyrir tvær
fiðlur eftir Leclair/
Kammerhl jómsveitin f
Moskvu leikur Konsert f d-
moll fyrir strengjasveit eftir
Vivaldi; Kudolf Barchai
stjórnar/ Johannes-Ernst
Köhler og Gewandhaus
hljómsveitin f Leipzig leika
Konsert f g-moll op. 4 nr. 1
fyrir orgel og hljómsveit eft-
ir Handel; Kurt Thomas
stjórnar/ Ilátíðarhljómsveit-
in í Bath leikur Illjóm-
sveitarsvítu nr. 2 í h-moll eft-
ir Bach; Yehudi Menuhin
stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkvnningar
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Við vinnuna:
Tónleikar.
SÍÐDEGIÐ
14.30 Miðdegissagan; „Elenóra
drottning" eftir Norah Lofts
Kolbrún Friðþjófsdóttir
byrjar að lesa þýðingu sína.
15.00 Miðdegistónleikar
Nicola Moscona, Columbusar
drengjakórinn, Robert Shaw
kórinn og N.B.C. sinfóníu-
hljómsveitin flytja upphafs-
þátt óperunnar „Mefistó-
felesar" eftir Boito; Arturo
Toscanini stjórnar. Hljóm-
sveit franska útvarpsins leik-
ur Sinfónfu í Es-dúr op. 2 nr.
1 eftir Saint-Saéns; Jean
Martinon stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popp
17.30 Sagan: „Þegar Coriander
strandaði" eftir Eilis Dillon
Baldvin Halldórsson leikari les
(14).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. D;gskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Almenningur og tölvan
Fjórða og síðasta erindi eftir
Mogens Boman í þýðingu
Hólmfrfðar Árnadóttur
Haraldur Olafsson lektor les.
20.00 Lög unga fólksins
Sverrir Sverrisson kynnir.
21.00 Iþróttir
Ilermann Gunnarsson sér um
þáttinn.
21.15 Lffsgildi; fyrsti þáttur
Um aðalflokka gildismats og
áhrif þess á viðhorf fólks og
skvnjun.
Umsjón: Geir Vilhjálmsson
sálfræðingur.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Kvöldsagan: „Vor í verum“
eftir Jón Rafnsson
Stefán Ögmundsson les (23).
22.40 Harmonikulög
Jo Privat og félagar leika.
23.00 A hljóðbergi
Undir gálganum, enskur
skemmt iþáttur. Flvtjendur:
Roger McGough, John Gor-
man og Michel McGear.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
m
ÞRIÐJUDAGUR
14. júnf
20.00 Fréttir og veður
20.25 Augiýsingar og dag-
skrá.
20.30 Herra Rossf f ham-
ingjuleit.
Itölsk teiknimynd. 2. þáttur.
Þýðandi Jón O. Edwald.
20.50 Ellery Queen.
Bandarfskur sakamála-
myndaflokkur.
Morðið f lyftunni.
Þýðandi Ingi Karl Jóhannes-
son.
i 21.40 Samleikur á fiðlu og
pfanó. Agnes Löve og
j Helena Lehtelá Mennander
leika sónötu eftir Claude
Debussy. St jórn upptöku Eg-
I ill Eðvarðsson.
1 21.55 Hvers er að vænta?
Bandarísk fræðslumynd.
Hafið, uppspretta Iffsins.
Þýðandi og þulur Jón O.
Edwald.
22.20
Dagskrárlok.
ELLERY Queen glfmir f kvöld við þá gátu hver framdi hið
dularfulla morð f lyftunni.
Ellery Queen — KL. 20.50:
H ver drap
bladakónginn?
• BLAÐAUTGEFANDI eða
réttara sagt blaðakóngur er á
leið til vinnu sinnar árla dags
og heldur upp á skrifstofu sína
f lyftu. En út úr lyftunni kom
hann ekki aftur, þvf þar er
hann drepinn. En hver drap
blaðakónginn, er spurningin,
sem Ellery Queen glfmir við f
kvöld, f þættinum, sem nefnist
Morðið f lyftunni og er á dag-
skrá kl. 20.50.
Morðið á blaðakónginum er
harla dularfullt og þegar farið
er að rannsaka það kemur i ljós
að ýmsir úr hópi starfsmanna
hans eru liklegir til að hafa átt
þátt i morðinu. Sem fyrr kemur
Eliery Queen til sögunnar sem
þessi bráðsnjalli ungi maður,
sem virðist nánast vera í öðrum
heimi er hann hugsar um lausn
gátunnar en fær allt í einu hug-
boð um lausnina. í þættinum
kemur einnig við sögu ungur og
framagjarn blaðamaður, sem
jafnan er á höttunum eftir stór-
fréttinni. En spurningin er
hver er morðinginn?
MiddcííLssaíían - KL. 14.30:
Bóndakona les eigin þýðingu
á sögunni Elenóra drottning
I DAG KLUKKAN 14.30 hefst í
útvarpinu lestur nýrrar mið-
degissögu og nefnist sagan
Elenóra drottning. Það er Kol-
brún Friðþjófsdóttir, sem þá
hefur að lesa þýðingu sína en
höfundur sogunnar er Norah
Lofts.
Kolbrún er bóndakona og býr
í Litluhlíð i Barðastranda-
hreppi í Vestur- Barðastrandar-
sýslu, en fædd er hún á
Patreksfirði. Á undanförnum
árum hefur hún nokkuð fengist
við þýðingar og hefur þar eink-
um verið um að ræða barnasög-
ur og hefur ein slík komið út i
bókarformi. Eina útvarpssögu
hefur Kolbrún þýtt.
Sagan um Elenóru drottn-
ingu gerist á miðöldum eða í
lok Krossferðatímabilsins og er
saga Norah Lofts skáldsaga,
sem byggð er á sannsögulegum
heimildum og kunnum atburð-
um. Elenóra elst upp við meira
frjálsræði en þá tiðkaðist með
kvenfólk og það uppeldi á eftir
að valda henni nokkrum erfið-
léikum síðar á lífsleiðinni. Hún
er einkabarn og erfir stórt land-
svæði i Suður-Frakklandi. Á
timabili verður Elenóra drottn-
ing Frakklands og hún er móðir
Ríkharðs ljónshjarta. Ýmsar
fleiri kunnar persónur úr ver-
aldarsögunni koma hér við
sögu.
Lífsgildi — KL. 21.15:
Hvað er gildismat?
Geir Vilhjámsson
LÍFSGILDI er heiti á
þáttum, sem fluttir verða
á næstunni í útvarpinu
og er sá fyrsti þeirra á
dagskránni í kvöld kl.
21.15. Það er Geir Vil-
hjálmsson sálfræðingur,
sem hefur umsjón með
þessum þáttum og fjallar
sá fyrsti þeirra um
giidismat og áhrif þess á
viðhorf fólks og skynjun.
Geir sagði í samtali við
blaðið að hann hefði hug
á að beina einkum augum
að tveim atriðum í þess-
um þætti en það væri
fyrst spurningin um
hvaða starfsemi hjá
manninum væri nefnd
gildismat og þá hvernig
það segir til sin i per-
sónuleikagerð, þörfum
og skynjun fólks. Hitt
atriðið er spurningin,
hvað gildismat sé félags-
lega og menningarlega.
Verður í upphafi
þáttarins flutt stutt
fræðilegt erindi um þetta
efni en í framhaldi af því
verða tekin dæmi um
gildismat og þá úr dag-
lega lífinu. Leitar Geir
svara hjá fólki við ýms-
um spurningum er tengj-
ast efni þáttarins.