Morgunblaðið - 14.06.1977, Síða 17

Morgunblaðið - 14.06.1977, Síða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNl 1977 l ' - - r'- ' ' •"' . Starfsmenn Þörungavinnslunnar: Lýsa furðu sinni á vinnu- brögðum stjómar Þörungavinnslunnar h.f. ÞANGSKURÐARMENN og starfsmenn Þörungavinnslunnar h.f. á Reykhólum komu saman til fundar á Reykhólum I fyrradag og fjölluðu um málefni Þörunga- vinnslunnar. t samþykkt, sem var gerð á fundinum, var þess krafizt, að hreppsnefndir, sem eiga I verksmiðjunni, og stjórn verk- smiðjunnar gerðu hreint fyrir sinum dyrum og telja fundar- menn, að rekstrargrundvöllur sé fyrir hendi ef rekstrarformi verk- smiðjunnar verði breytt. Sam- þykkt fundarins fer hér á eftir. Fundur þangölfunarmanna og starfsmanna Þörungavinnslunnar h.f., haldinn á Reykhólum þriðju- daginn 7. júní 1977, beinir þeim eindregnu tilmælum til hrepps- nefnda þeirra, er hlut eiga i Þör- ungavinnslunni h.f., að þær hlut- ist til um, að haldinn verði opinn fundur eigi siðar en sunnudaginn 12. júní n.k. til að taka afstöðu til þeirrar stöðu, sem nú er komin upp, þar sem stjórn Þörunga- vinnslunnar h.f. er opinberlega búin að gefast upp á starfrækslu og starfsfólki hefur verið sagt upp. Telur fundurinn brýna nauðsyn bera til þess, að sem allra mest eining og samstaða náist inn- an þess hóps, sem beint eða óbeint hefur hagsmuna að gæta i þessu efni. Fundurinn varar eindregið við Framhald á bls. 30 „Sjússar glæða sálaryl" syngja konungarnir fjórir, en þá leika Sigurð- ur Björnsson, Guðmundur Jónsson, Kristinn Hallsson og Garðar Cortes. Sýningum á Hel- enu f ögru f ækkar SÖNGLEIKUR Offenbaehs, Helena fagra, sem nú er sýndur í Þjóðleikhúsinu hefur nú verið sýndur nokkrum sinnum við ágætar undirtektir leikhúsgesta, segir f frétt frá Þjóðleikhúsinu. Segir einnig að staðfærslur þýð- andans, Kristjáns Arnasonar, og leikgerð Brynju Benediktsdóttur og Sigurjóns Jóhannssonar þyki frumlegar. 1 sýningunni koma fram bæði leikarar og söngvarar Þjóðleikhússins, tslenzki dans- flokkurinn og 27 manna hljóm- sveit, alls um 80 manns, og sé þetta þvf ein af viðamestu sýning- um Þjóðleikhússins. Þjóðleikhúsið vill benda fólki á að draga ekki of lengi að sjá sýn- inguna þar eð gert sé ráð fyrir að sýningum ljúki á þessu leikári og verður söngleikurinn því aðeins sýndur út þennan mánuð. Næsta sýning á Helenu fögru verður á laugardagskvöld kl. 20.00. Meistarasamband byggingarmanna: Vill leggja niður Húsnæð- ismálastofnun ríkisins AÐALFUNDUR Meistarasam- bands byggingarmanna var hald- inn f Grindavfk fyrir nokkru og hafa blaðinu borizt nokkrar álykt- anir fundarins. t ályktun alls- herjarnefndar er skorað á Lands- samband iðnaðarmanna að beita sér fyrir auknum lagfæringum á skattlagningu rfkisins á efni, vör- um og vélum til bvggingariðnað- ar. t ályktun fræðslunefndar er lýst yfir stuðningi við þær tillög- ur, sem fram koma f áfanga- skýrslu nr. 2 þar sem fjallað er um verkmenntun byggingariðn- aðarins og segir að nauðsynlegt sé að auka verulega starfskynningu f grunnskóla og að einnig þurfi að gefa iðnaðarmönnum kost á við- auka- og endurmenntun. Þá segir í ályktun frá húsnæðis- mála- og lánamálanefnd að hús- næðismálastjórn skuli lögð niður og í hennar stað komi stjórn hús- næðismála frá ráðuneyti og ann- ist veðdeild Landsbanka íslands úthlutun og afgreiðslu lána til íbúðarbygginga. Segir í ályktun- inni að með breyttu fyrirkomu- lagi megi spara tugi milljóna og nota þær til aukinnar lánastarf- semi. Tryggt verði að afhending lána fari fram eigi síðar en einum mánuði eftir að fokheldisvottorð og önnur tilskilin gögn hafa borizt lánastofnuninni og áherzla er lögð á að húsbyggjandi geti treyst á tímasetningu á afgreiðslu lána. í annarri ályktun frá húsnæðis- mála- og lánamálanefnd segir að jafnrétti í lána- og lóðamálum ásamt frjálsri samkeppni sé væn- legast til að draga úr byggingar- kostnaði og ef stjórnvöld vilji í raun lækka byggingarkostnað sé það bezt gert með lækkun á skatt- gjöldum af byggingarvörum og frjálsara fjármagni til hins al- menna húsbyggjanda. Stofnfundur félags um sögu flugs á íslandi FYRIR skemmstu komu saman til fundar I Reykjavfk áhuga- menn um sögu flugs og flugminja á tslandi og var fundur þeirra undirbúningsfundur að stofnun félags um þessi mál. Nú hefur verið ákveðið að boða til stofn- fundar félags, sem beri heitið ts- lenzka flugsögufélagið og verður fundurinn f ráðstefnusal Hótel Loftleiða I kvöld, þriðjudag kl. 20.30. Að sögn eins þeirra, sem unnið hafa að undirbúningi stofnunar félagsins, Baldurs Sveinssonar, er ætlunin að verkefni félagsins verði að safna saman öllum þeim fróðleik, sem til er um flug á íslandi, hvort sem það er i formi ljósmynda eða frásagna. Þá er það vilji aðstandenda þess að reynt verði að varðveita þær flugvélar, sem sett hafa svip á íslenzka flug- sögu og enn eru til. Eigi að koma slíkri varðveizlu við þarf til þess gott húsnæði og það hafa áhuga- menn um söfnun flugvéla ekki fundið. GLJAFAXI, fyrsta DC-3 flugvélin, sem Flugfélag tslands átti og gaf Landgræðslunni fyrir nokkrum árum. Þristurinn, eins og þessar vélar voru oft nefndar, er eitt dæmi um vél sem markað hefur djúp spor I fslenzka flugsögu og þá vél vilja flugáhugamenn varðveita. iT Wang rafreiknar eru ekki aðeins ffyrir lítil fyrirtæki Wang - rafreiknar eru ekki skrýtin óskiljanleg tæki frá Austur - Asíu, heldur amerísk gæöavara, framleidd undir einkunnarorðunum: Einfalt, sveigjanlegt, áreiöanlegt. Wang býður yður einfaldleika. Meöferö tækja og forrita krefst ekki sérmenntaös starfsliðs, þjálfun fylgir með í kaupunum. Wang býður yður sveigjanleika. Veljið þann tækjabúnað, sem hentar fyrirtæki yðar í dag. Við fullvissum yður um, að þér getið notað þann búnað, sem grunn til að byggja á frekari umsvif í gagnavinnslu eftir því sem fyrirtæki yðar stækkar, án kostnaðarsamra breytinga á forritum. Wang býður yður áreiðanleika. Sérþjálfaðir viðgerðarmenn ásamt nægum varahlutum, tryggja örugga viðhaldsþjónustu. Tilbúin forritasöfn á Wang - rafreikna fyrir verslunar og framleiðslufyrirtæki, verkfræöistofur, sveitarfélög, lífeyrissjóði og sparisjóði. Stuttur afgreiðslufrestur. Wang tölvur eru nú þegar í notkun hjá íslenskum fyrirtækjum. Hringið eða komið og skoðið Wang - rafreikni i tölvudeild Heimilistækja s.f. Wang lausn er ódýrari en þér haldið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.