Morgunblaðið - 14.06.1977, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNl 1977
„I hinum umstefndu um-
mælum felst harkaleg
árás á æru áfrýjenda”
Hinir reglulegu dómarar Hæstaréttar viku sæti í máli þessu og tóku borgarfógeti, Halldór Þorbjörnsson yfirsakadómari, Unnsteinn Beck
mennirnir á meðfylgjandi mynd sæti þeirra og kváðu upp dóm I borgarfógeti og Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl.
málinu. Talið frá vinstri, Jón Finnsson hrl, Þorsteinn Thorarensen
Um efnishlið málsins er sú
krafa gerð af hálfu aðalstefnda,
að honum verði tildæmdur máls-
kostnaður í héraði og fyrir Hæsta-
rétti, en af hálfu varastefnda
aðallega, að staðfest verði sú
niðurstaða héraðsdóms, að sak-
fella hann ekki, en til vara, ef
hann verði sakfelldur, að honum
verði aðeins dæmdur hegningar-
auki, skv. 78. gr. hegningarlaga,
sbr. dóm í hæstaréttarmáli nr.
110/ 1975. Þá er þess krafist að
varastefnda verði tildæmdur
málskostnaður úr hendi áfrýj-
enda í héraði og fyrir Hæstarétti.
Máli því sem lögmaður stefndu
vitnar til, nr. 26/ 1977, hefur ver-
ið áfrýjað til Hæstaréttar með
áfrýjunarstefnu 11. febrúar s.l.,
en gögn málsins hafa enn ekki
borist dóminum. Áfrýjendur eru
hinir sömu og i máli því sem hér
er til meðferðar, en stefndur er
Svavar Gestsson einn. Eru eigi
efni til þess að taka til greina,
kröfur um sameiningu þessara
mála.
Ummæli þau sem stefna lýtur
var ekki annað en lá í augum uppi
áður. Aðferðirnar við undir-
skriftasöfnunina hafa verið marg-
ar og hver annarri soralegri. Sá
sem þetta ritar hefur fregnað að
reynt hafi verið að fá börn og
unglinga undir kosningaaldri til
þess að skrifa undir, svo og and-
lega vanheilt fólk, eitthvað hefur
verið um það að menn hafi skrif-
að undir fyrir aðra, samkvæmt
„munnlegu umboði" þeirra og
eins virðast undirskriftasafnar-
arnir ekkert vera að súta það þótt
sömu manneskjurnar skrifi undir
margsinnis. Þannig hefur heyrst
að þrjú eintök af Watergatevíxl-
inum hafi gengið á meðal starfs-
fólks sjúkrahúss nokkurs hér í
borg, og skrifuðu sömu manneskj-
urnar þar upp á öll þrjú eintök-
in.“
Ljóst er að öllum ummælunum
er fyrst og fremst stefnt að áfrýj-
endum í máli þessu. í þeim er
dróttað að áfrýjendum að þeir
hafi gerst sekir um brask og
skúmaskotamakk (stefnuliður
1.2), að afstaða þeirra mótist fyrst
felst harkaleg árás á æru áfrýj-
enda. Af þeim sökum þykir mega
fallast á, að áfrýjendur eigi rétt
til nokkurs fégjalds úr hendi
varastefnda skv. 1. mgr. 264. gr.
alm. hgl. Þykir fégjald þetta hæfi-
lega ákveðið 25.000 kr. til hvers
áfrýjenda, auk 9% ársvaxta frá 2.
febrúar 1974 til greiðsludags.
Samkvæmt 2. mgr. 241. gr. alm.
hegningarlaga þykir rétt að dæma
varastefnda til þess að greiða
áfrýjendum sameiginlega 25.000
kr. til að kosta birtingu forsendna
og dómsorðs dóms þessa í opin-
berum blöðum.
Þá þykir skv. 2. mgr. 22. gr. 1.
57/ 1956 rétt að skylda vara-
stefnda til þess að birta dóm
þennan i fyrsta eða öðru tölublaði
Þjóðviljans, sem út kemur eftir
að dómur þessi er birtur.
Eftir þessum úrslitum ber að
dæma varastefnda til að greiða
áfrýjendum sameiginlega 160.000
kr. f málskostnað í héraði og fyrir
Hæstarétti, en rétt þykir að máls-
kostnaður að því er varðar aðal-
stefnda falli niður.
HÉR FER á eftir f heild dómur
Hæstaréttar Islands f máli 12 af
14 aóstandendum undirskrifta-
söfnunarinnar „Varið land“ gegn
Degi Þorleifssyni blaðamanni á
Þjóðviljanum og til vara gegn
Svavari Gestssyni ritstjóra.
Dómurinn var kveðinn upp s.l.
mánudag:
Ár 1977, mánudaginn 2. mai,
var i Hæstarétti í málinu nr.
44/1976: Bjarni Helgason, Björn
Stefánsson, Hreggviður Jónsson,
Jónatan Þórmundsson, Ólafur
Ingólfsson, Stefán Skarphéðins-
son, Unnar Stefánsson, Þorsteinn
Sæmundsson, Þorvaldur Búason,
Þór Vilhjálmsson, Ragnar Ingi-
marsson og Valdimar J. Magnús-
son gegn Degi Þorleifssyni aðal-
lega en til vara Svavari Gestssyni
uppkveðinn svohljóðandi
dómur:
Mál þetta dæma sem varadóm-
arar í Hæstarétti Halldór Þor-
björnsson yfirsakadómari, Guð-
mundur Ingvi Sigurðsson hæsta-
réttarlögmaður, Jón Finnsson
hæstaréttarlögmaður, Unnsteinn
Beck borgarfógeti og Þorsteinn
Thorarensen borgarfógeti.
Áfrýjendur hafa skotið máli
þessu til Hæstaréttar með stefnu
24. febrúar 1976 og gera þær dóm-
kröfur:
1. að ummæli þau sem stefnt er
út af verði dæmd dauð og ómerk.
2. að dæmd verði þyngsta refs-
ing fyrir ummælin.
3. að hverjum áfrýjenda verði
dæmdar 100.000 kr. í miskabætur
auk 9% ársvaxta frá 2. febrúar
1974 til greiðsludags.
4. að áfrýjendum sameiginlega
verði dæmdar 25.000 kr. til að
kosta birtingu forsendna og dóms-
orðs væntanlegs dóms í opinber-
um blöðum.
5. að þeim sem dæmdur verður í
málinu verði gert að sjá um að
birtar verði forsendur og dómsorð
væntanlegs dóms í 1. eða 2. tölu-
blaði dagblaðsins Þjóðviljans, er
út kemur eftir birtingu dómsins.
6. að stefnda verði gert að
greiða áfrýjendum sameiginlega
hæfilegan málskostnað í héraði
og fyrir Hæstarétti.
Af hálfu stefndu hefur í fyrsta
lagi verið gerð krafa urh að mál
þetta verði sameinað hæstaréttar-
málinu nr. 26/ 1977: Bjarni
Helgason o.fl. gegn Svavari Gests-
syni, svo að kostur verði að tiltaka
refsingu, ef dæmd yrði, í einu
lagi.
að birtust í tveimur greinum í
dagblaðinu Þjóðviljanum, hin
fyrri í 16. tölublaði, er út kom 20.
janúar 1974, en hin síðari í 27.
tölublaði, er út kom 2. febrúar s.á.
Undir fyrri greininni standa bók-
stafirnir DÞ, en undir hinni síðari
dþ. Höfundur er að öðru leyti
ekki nafngreindur. Samkvæmt 2.
mgr. 15. gr. 1. 57/ 1956 ber höf-
undur þvi aðeins refsi- og fébóta-
ábyrgð á efni rits, að hann hafi
nafngreint sig. Merkin DÞ og dþ
verða ekki talin næg nafngrein-
ing í skilningi nefnds lagaákvæðis
og skiptir ekki máli þótt aðal-
stefndi Dagur Þorleifsson blaða-
maður við Þjóðviljann hafi lýst
yfir þvi að hann sé höfundur
greinanna. Skv. 3. mgr. 15. gr. 1.
57/ 1956 verður ábyrgð á um-
mælunum því lögð á ritstjóra
blaðsins, varastefnda Svavar
Gestsson, en aðalstefndi verður
sýknaður af kröfum áfrýjenda.
Hinum átöldu ummælum er lýst
í héraðsdómi, að undanteknum
ummælum skv. stefnulið II. 5.,
sem ekki eru tilfærð þar í heild.
Þau hljóða svo:
„Öllum brögðum beitt
Aðferðir þær, sem beitt hefur
verið til þess að afla undirskrifa
undir Watergate-víxilinn, hafa
ekki afhjúpað algert siðleysi og
andlegan sóðaskap þeirra er á
bakvið þann vixil standa — það
og fremst af efnahagslegum
hlunnindum sem þeir eða aðilar
tengdir þeim hafi af hérvist hers-
ins (II.2), að aðferðir við söfnun-
ina hafi verið soralegar og beitt
við hana stéttarvaldi borgarastétt-
arinnar, atvinnurekendavaldinu.
(II. 5. og 6). Aðdróttanir þessar,
sem engum stoðum hefur verið
rennt undir, eru brýnt brot gegn
235. gr. alm. hegningarlaga. Að
öðru leyti eru hin átöldu ummæli
samsafn stórfelldra móðgunar-
yrða um áfrýjendur, og varða þau
við 234 gr. hegningarlaga.
Með dómi Hæstaréttar upp-
kveðnum 4. f.m. f málinu nr. 110/
1975: Bjarni Helgason o.fl. gegn
Ulfari Þormóðssyni og til vara
Svavari Gestssyni, en áfrýjendur
þá voru hinir sömu og i þessu
máli, var varastefndi Svavar
Gestsson dæmdur í 20.000 kr. sekt
fyrir- ærumeiðandi ummæli um
áfrýjendur. Refsingu hans ber
því að tiltaka nú sem hegningar-
auka með hliðsjón af 78. gr.
almennra hegningarlaga og verð-
ur hann ákveðinn 30.000 króna
sekt til ríkissjóðs. Skv. 53. gr. alm.
hegnl. sbr. 7. gr. 1. 101/ 1976
verður vararefsing ekki ákveðin.
Staðfesta ber ákvæði hins áfrýj-
aða dóms um ómerkingu allra
hinna átöldu ummæla, skv. 1.
mgr. 241. gr. alm. hegningarlaga.
í hinum umstefndu ummælum
Dómsorö:
Aðalstefndi Dagur Þorleifsson
skal vera sýkn af kröfum áfrýj-
enda í máli þessu. Málskostnaður
að þvi er hann varðar falli niður.
Ákvæði hins áfrýjaða dóms um
ómerkingu ummæla skulu órösk-
uð.
Varastefndi Svavar Gestsson
greiði 30.000 króna sekt til ríkis-
sjóðs.
Varastefndi greiði áfrýjendum,
Bjarna Helgasyni, Birni Stefáns-
syni, Hreggviði Jónssyni, Jónatan
Þórmundssyni, Ólafi Ingólfssyni,
Stefáni Skarphéðinssyni, Unnari
Stefánssyni, Þorsteini Sæmunds-
syni, Þorvaldi Búasyni, Þór Vil-
hjálmssyni, Ragnari Ingimarssyni
og Valdimar J. Magnússyni hverj-
um um sig 25.000 króna fégjald
ásamt 9% ársvöxtum frá 2. febrú-
ar 1974 til greiðsludags.
Varastefndi greiði áfrýjendum
sameiginlega 25.000 kr. til þess að
kosta birtingu forsendna og dóms-
orðs dóms þessa í opinberum
blöðum.
Varastefndi skal birta dóm
þennan í fyrsta eða öðru tölublaði
Þjóðviljans, sem út kemur eftir
birtingu dómsins.
Varastefndi greiði áfrýjendum
sameiginlega 160.000 kr. í máls-
kostnað i héraði og fyrir Hæsta-
rétti.
Dóminum ber að fullnægja að
viðlagðri aðför að lögum.
Dómur Hæstaréttar í máli 12 af 14 aðstand-
endum „Varins lands” gegn Þjóðviljamönnum
Arnar Þorgeirsson
Varði doktors-
ritgerð í Lundi
Arnar Þorgeirsson, læknir,
varði doktorsritgerð við lækna-
deild Háskólans I Lundi, 25. maf
sl. Fjallaði ritgerðin um ofnæmi
af völdum Epoxy-plastefna og
benda niðurstöður til þess, að
koma megi I veg fyrir ofnæmis-
áhrif með þvf að nota aðeins þau
Epoxy-plastefni, sem ekki inni-
halda minnstu gerðir mólekúla.
Doktorsvörninni stjórnaði Hans
Rosman, prófessor, yfirlæknir við
húðsjúkdómadeild Háskólans i
Lundi, en þar hefur Arnar starfað
undanfarin sex ár, en hann varð
sérfræðingur i húðsjúkdómum
1970. Andmælandi var Jan Wahl-
berg, dósent við Karólínska-
sjúkrahúsið i Stokkhólmi.
Arnar Þorgeirsson er fæddur á
Húsavik 1936, sonur Ólafar Bald-
vinsdóttur og Þorgeirs Sigurðs-
sonar. Hann lauk prófi i læknis-
fræði frá H.l. 1963 og hefur starf-
að i Svíþjóð frá 1965.
Kona Arnars er Guðriður Guð-
mundsdóttir.
Ekið á
hryssu
Um helgina var ekið á sex vetra
hryssu á þjóðveginum við bæinn
Kiðafell í Kjós. Varð að aflífa
hryssuna. Bifreiðarstjórinn stakk
af og eru það tilmæli rannsóknar-
lögreglunnar i Hafnarfirði að
hann gefi sig fram svo og þeir
aðrir, sem veitt geta upplýsingar
um málið.
Fyrstu
firmakeppni
Mjölnis
lokið
Nú er lokið fyrstu firma-
keppni Skákfélagsins Mjöln-
is. Tefldar voru 10 umferðir
eftir Monradkerfi, en þátt-
takendur voru alls fimmtiu.
Teflt var í Fellahelli, Breið-
holti. Urslit urðu sem hér
segir:
1. Magnús E. Baldvinsson,
úra- og skartgripaverzlun.
2.—3. Rekstrarráðgjöf sf„
Samvinnubanki íslands.
4.—8. Sjálfsalinn hf. Ár-
mannsfell hf„ Efnagerðin
Valur, Sportmagasínið Goða-
borg, Sjóklæðagerðin hf. 9.
Árbæjarapótek.
Hamarinn með
lægst tilboð í
Engidalsskóla
Opnuð hafa verið tilboð i bygg-
ingu Engidalsskóla i Hafnarfirði.
Sjö verktakar buðu í framkvæmd-
ina, en lægsta tilboðið var frá
Hamrinum hf. að upphæð 98.5
milljónir króna. Hæsta tilboðið
hljóðaði upp á kr. 135,5 milljónir
króna. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
hefur samþykkt að leitað verði
samningá við Hamarinn um verk-
ið á grundvelli tilboðs fyrirtækis-
ins.