Morgunblaðið - 14.06.1977, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNl 1977
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNl 1977
23
| Rabbað við leikmenn og þjálfara að leik loknum
Umsögn, viðtöl og lýsing á landsleiknum: Ágúst I. Jönsson.
Myndir: Emilia Björnsdóttir, Frjðþjófur Ilelgason og Ragnar Axelsson.
„Þeir iéku betur, en
við áttum færin"
— ÉG VIÐURKENNI það fús-
lega að þeir léku betri knatt-
spyrnu en við f þessum leik, enda
höfum við oft leikið betri knatt-
spyrnu en að þessu sinni, en tap-
að þó, sagði Tony Knapp lands-
liðsþjálfari að loknum sigurleikn-
um við N-íra á laugardaginn.
Knapp var eðlilega ánægður með
sigurinn, fyrsta sigur íslands ii
heimsmeistarakeppni fyrr og síð-
ar. Undir stjórn Tony Knapps
hefur íslenzka knattspyrnulands-
liðið náð betri árangri en nokk-
urn dreymdi um fyrir fjórum ár-
um síðan.
— Við tókum nokkra áhættu í
þessum leik, sagði Knapp. —
Leikkerfið var nýtt fyrir strákana
og í liðinu voru leikmenn, sem ég
hef ekki séð leika síðan í fyrra-
haust. Allir skiluðu þeir sinu
hlutverki vel og ég get ekki verið
annað en hæstánægður með
frammistöðu strákanna.
— Þeir voru mun meira með
knöttinn, enda var leikaðferð okk-
ar sú í seinni hálfleiknum að gefa
þeim eftir svæði. Eigi að síður
áttum við 4 dauðafæri í leiknum
Ásgeir Sigurvinsson I kröppum dansi, afþrengdur af leikmönnum
N-lra.
Helztu tækifæri
OF LANGT MÁL yrði að rekja nákvæmlega öll tækifæri
landsleiksins á laugardaginn. Hér á eftir verður minnis-
bókin iátin tala, en stiklað á stóru og aðeins getið helztu
viðburða leiksins.
3. mínúta: Ásgeir Sigurvinsson
framkvæmir aukaspyrnu vinstra
megin og gefur vel inn í teiginn.
Jóhannes Eðvaldsson skallar
knöttinn fyrir markið og við
stöngina vinstra megin nær Mar-
teinn Geirsson knettinum. Hon-
um mistekst þó markskotið og
knötturinn fer framhjá úr dauða-
færi.
7. mínúta. Guðgeir Leifsson og
Guðmundur Þorbjörnsson spila
sig í gegnum vörn íranna og gefið
er á Inga Björn. Góðu skoti hans
er naumlega stýrt i horn.
33. Ingi Björn gefur knöttinn út
á Ásgeir Sigurvinsson. Pat Jenn-
ings hálver þrumuskot Ásgeirs.
Knötturinn hrekkur út í mark-
teiginn og Ingi Björn á ekki í
erfiðleikum með að senda knött-
inn í bak marksins, en á leiðinni
þangað snerti knötturinn þó Pat
Rice.
38. mínúta. Ingi Björn gefur vel
fyrir markið frá hægri. Teitur
virðist í góðu færi, en millimetr-
um munar að hann nái að skalla.
41. minúta. írarnir fá sitt fyrsta
hættulega tækifæri í leiknum eft-
ir hornspyrnu, en varið er frá
varamanninum Spence.
43. mínúta. Bezta færi ira í
leiknum, Mcllroy og Spence
prjónuðu sig i gegn, en Sigurður
Dagsson varði vel laust skot Mcll-
roys.
44. mínúta. Ingi Björn Alberts-
son kemst einn innfyrir vörn Ir-
anna, en missti knöttinn of langt
frá sér, þannig að auðvelt var
fyrir Jennings að góma knöttinn.
65. mínúta. Eftir allþunga sókn
íranna snúa íslenzku leikmenn-
irnir vörn i sókn og Ingi Björn
kemst á auðan sjó fyrir innan
vörn iranna eftir snilldarsend-
ingu Guðgeirs. Ingi virtist of
feiminn við Jennings í marki ír-
anna og Jaust skot hans fór fram-
hjá.
70. mínúta. Aukaspyrna Guð-
geirs af um 25 metra færi smýgur
utan með varnarvegg N-íranna,
en snertir yzta leikmanninn það
mikið að knötturinn fer utan með
stöng og í horn.
85. minúta. Hamilton á góðan
skalla að íslenzka markinu, sem
Sigurður ver mjög vel og á sió-
ustu mínútu leiksins ver Sigurður
aftur erfiðan skallabolta, að þessu
sinni frá Hunter, eftir horn-
spyrnu.
Tíu þúsund
áhorfendur
10.269 áhorfendur keyptu sig
inn á landsleik tslendinga og
Norður-lra á laugardaginn. Er
það nokkru minna en búast hefði
mátt við, sé leikurinn gegn
stjörnuliði Bobby Charltons hafð-
ur í huga, en hann sáu liðlega 8
þúsund áhorfendur. Áhorfendur
studdu vel við bakið á Islenzku
leikmönnunum á laugardaginn
og fögnuðu þeim vel í iok leiks-
ins.
gegn 1 þeirra, þannig að sigurinn
tel ég vera fyllilega verðskuldað-
an. Um leikmennina vil ég segja
það að Ingi Björn Albertsson
hafði nokkuð frjálsara hlutverk í
þessum leik en aðrir. Hann átti að
vera í marktækifærunum og gerði
vel það sem fyrir hann var lagt,
en þar að auki kom hann vel aftur
og hjálpaði í vörninni. Janus Guð-
laugsson var eini nýliðinn í ís-
lenzka liðinu, en ég vissi vel að ég
gæti treyst honum í þessum erf-
iða leik. Janus stóð sig jafnvel
enn betur en ég bjóst við.
— Um landsleikina í sumar vil
ég segja það að við getum staðið
okkur mjög vel gegn Belgum og
Norður-írum síðar í sumar. Á
„deginum okkar" getum við jafn-
-vel unnið þessar sterku knatt-
spyrnuþjóðir á útivelli. Ég geri
mér hins vegar grein fyrir að
möguleikarnir eru ekki miklir
gegn Hollendingum ytra, þeir eru
líka með bezta knattspyrnulið i
heimi að mínu mati. Næsti leikur
okkar er gegn Norðmönnum hér
heima og þann leik ættum við að
vinna, en leikurinn við Svía verð-
ur eflaust mun erfiðari. Svíar
eiga mjög gott lið, sem þegar hef-
ur tryggt sér þátttökurétt i úrslit-
um HM í Argentínu næsta haust,
sagði Tony Knapp að lokum.
„Ég hefði átt að
skora þrjú mörk"
— ÉG HEFÐI átt að skora þrjú mörk
I þessum leik, sagði Ingi Björn Al-
bertsson, markaskorarinn mikli, að
loknum leiknum á laugardaginn. Ingi
skoraði eina mark leiksins og I leikn-
um gegn Bobby Charlton fyrir hálf-
um mánuði gerði hann þrjú mörk.
Eftir að Jennings hafði hálfvarið
gott skot Ásgeirs lenti knötturinn
fyrir framan fætur mina og ég gat
ekki annað en skorað. Sfðar I leikn-
um komst ég einn innfyrir vörn ír-
anna og hefði átt að skora. í fyrra
skiptið missti ég þó knöttinn of langt
frá mér, boltinn skaust frá mér f
bleytunni á vellinum og ekkert varð
úr þeirri sókn. í seinni hálfleiknum
komst ég aftur innfyrir þá, en hélt ég
væri rangstæður. Jennings hélt það
greinilega Ifka. þar sem hann stóð
rólegur á marklfnunni án þess að
gera nokkuð. Laust skot mitt fór rétt
framhjá markinu.
— Blessaður vertu, þessir varnar-
menn þeirra eru sfzt betri en margir
leikmennirnir f 1. deildinni hjá okk-
ur, sagði Ingi Björn að lokum.
trarnir sækja að Islenzka markinu, Jóhannes Eðvaldsson og Marteinn Geirsson
eru til varnar.
„Gæti unnið
þá einn"
— EINHVER þeirra sagði. þegar við
gengum framhjá þeim, að hann gæti
unnið okkur einn sfns liðs. þeir voru
svo öruggir með sjálfa sig greyin,
sagði Ólafur Sigurvinsson er við
ræddum við hann I búningsherbergi
fslenzka liðsins að leiknum loknum.
— Okkur Ifkaði ekki þessi gorgeir f
þeim og vorum ákveðnir f að selja
okkur dýrt. Það má eiginlega segja
að þessi setning hafi hjálpað okkur
mjög til að vinna leikinn. Þegar þeir
svo fundu fyrir mótstöðunni frá okk-
ur urðu þeir ósköp litlir greyin, hálf-
gerðar grenjuskjóður. sagða Ólafur
Sigurvinsson.
„Hefðum getað unnið
ennþá stærri sigur"
— SIGUR sem þessi færir ísland
eðlilega ofar f knattspymustigaAum,
en reyndar höfum við staðið okkur
betur en staða okkar segir, þar sem
við höfum ávallt verið f erfiðum riðt-
um f Evrópu- og heimsmeistara-
keppnum, sagði fyrirliði fslenzka
landsliðsins, Jóhannes Eðvaldsson,
að leiknum á laugardaginn loknum.
— Við nefðum getað unnið enn
stærri sigur, 3—4 mörk hefðu ekki
verið fjarri lagi, an þvf má heldur
ekki gleyma að þeir áttu dauðafæri f
leiknum og voru klaufskir að skora
ekki. N-írarnir eru f rauninni alls ekki
sterkari en þeir voru f dag, en þó má
ekki gleyma þvf að þeir eru þreyttir,
nýbúnir með erfitt keppnistfmabil.
Þeir verða erfiðari heim að sækja f
haust, en Samt ættum við að geta
unnið þá, sagði Jóhannes að lokum.
„Hef sjaldan
sofiðbetur"
NÝLIÐINN Janus Guðlaugsson lék
sinn fyrsta landsleik eins og sá sem
valdið hefur og reynsluna. Við spurð-
um hann að leiknum loknum hvort
hann hefði ekki verið taugaóstyrkur
fyrír leikinn.
— Nei, ég get nú ekki sagt það,
sagði Janus. — Mér leið bara vel
fram að leiknum og hef sjaldan sofið
betur en aðfararnótt laugardagsins.
Enda er akki erfitt að koma f lands-
liðshópinn, strákamir ffnir og andinn
eins og bezt verður á kosið.
Við spurðum Janus hvort það værí
akki erfitt að leika sem fremsti mað-
ur með FH-liðinu. an koma sfðan
sem bakvörður inn f landsliðið. Sagði
Janus að svo væri ekki Bakvarðar-
staðan byði upp á sóknarmöguleika
og þyrfti bakvörður f nútfmaknatt-
spymu að hafa talsvert af hæfileik-
um útherjans fyrir 10 árum. — Auk
þess er bakvarðarstaðan gömul hjá
mér. sagði Janus. — Ég lék minn
fyrsta unglingalandsleik sem bak-
vörður, það var einmitt gegn írum
hérá Laugardalsvellinum.
„Tókum þá
grimmt við
vítateiginn"
— VIÐ BYRJUÐUM þetta ró-
lega, en fengum þó ágæt færi f
byrjuninni og enginn betra færi
en ég, sem ég þó misnotaði illi-
lega, sagði varnarmaðurinn
sterki, Marteinn Geirsson, eftir
leikinn.
— Þegar ég komst i þetta færi,
fannst mér ég hafa nægan tima,
sem ég lfka hafði. Ég leyfði knett-
inum að hoppa einu sinni, en ætl-
aði síðan að senda knöttinn í
markið. Einhvern veginn mis-
reiknaði ég þó knöttinn og i stað
þess að sjá hann lenda f netinu,
lenti hann fyrir utan stöng eftir
algjörlega misheppnað skot.
— I seinni hálfleiknum létum
við þá um að erfiða, en hugsuðum
aðallega um að verjast sjálfir.
Þess vegna gáfum við þeim svæði
fyrir utan teig, en tókum þá siðan
grimmt er þeir nálguðust teiginn.
Þetta hafðist hjá okkur, en leikur-
inn var mjög erfiður og ég var
alveg búinn undir lokin og þá
fann ég að sinadrátturinn var
ekki langt undan.
— Þetta var kærkominn sigur
og það segi ég satt að það er alltaf
jafn gaman að koma heim og leika
með landsliðinu. 'Andinn einstak-
ur í liðinu og maður hlakkar
hreinlega til að leika landsleiki
með þessum strákum, sagði Mar-
teinn að lokum.
X?
3
Nú eiga allir sem hyggja á ferðalög kost á afsláttar- Snúið ykkur til söluskrifstofa okkar, umboðsmanna eða
fargjaldi allt árið án þess að fara í skipulagða hópferð, ferðaskrifstofanna, og fáið nánari upplýsingar, um
og án þess að vera félagsbundinn í einhverjum samtökum. "Almennu sérfargjöldin” áður en þið skipuleggið fríið, og
Til viðbótar allt að 40% afslætti, samkvæmt "almennum gið niunið komast að raun um að þau eru FARGJÖLD SEM
sérfargjöldum”, veitum við sérstakan 25% unglingaafslátt, ^ M FENGUR ER AÐ.
þeim sem eru á aldrinum 12-22ja ára.
Eaupmannahöfn
Fargjaldakostnaöur fyrir
einstakling til þriggja
borga, báðar leiðir.
Venjulegt fargjald kr:
"Almennt sérfargj. kr:
Mismunur kr=
Afsláttur..
80.960
53.740
27.220
33,62%
London
71.820
45.840
25.980
36,16%
Barcelona
110.760
65.860
44.900
40,54%
Fargjaldakostnaður fyrir
hjón með tvö börn til
leiðir.
Venjulegt fargjald kr:
"Almennt sérfargj. kr:
Mismimur kr:
Afsláttur..
Kaupmannahöfn
242.880
161.220
81.660
33,62%
London
215.460
137.520
77.940
36,16%
Barcelona
335.280
197.580
137.700
40,54%
'Si
flvcfélac L0FTUIBIR
LSLAXDS