Morgunblaðið - 14.06.1977, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNl 1977
/
Ok á menn
ÖLVUÐ stúlka úr Reykjavfk ók á
þrjá pilta aðfararnótt sunnudags
:ð loknum dansleik f Árnesi.
Sluppu piltarnir með skrámur, en
stúlkan ók sfðan á kyrrstæðan bfl
hjá skemmtistaðnum og stór-
skemmdi hann.
Bílvelta hjá
Skálholti
UNG stúlka handleggsbrotnaði og
kjálkahrotnaði er bifreið úr
Reykjavfk valt hjá Skálholti á
laugardag. Stúlkan var farþegi f
bflnum og var hún og tveir karl-
menn, sem hlutu minni háttar
meiðsl, flutt f slysadeild Borgar-
spftalans.
Athuffasemd
VEGNA fréttar í Mbl. nýlega um
umferðarfræðslu fyrir ung börn í
formi brúðuleikhúss skal tekið
fram, að fræðslan er skipulögð af
Umferðarráði og hefur Guðrún
Erla Björgvinsdóttir starfsmaður
ráðsins haft veg og vanda af
undirbúningnum. Fræðslan verð-
ur í flestum bæjum landsins og
veita lögregluyfirvöld á hverjum
stað aðstoð við framkvæmd henn-
ar.
— Flotaæfingar
Framhald af bls. 1
1 Kosyth í Skotlandi sagði hol-
lenzki flotaforinginn Kees
Gerretse i dag, að NATO veitt-
ist stöðugt erfiðara að fylgjast
með öllum herskipum Rússa á
Norðursjó, Atlantshafi og Norð-
ur-íshafi þar sem þeim hefði
fjölgað svo gífurlega. Hann
kvað vopnabúnað sovézku skip-
anna athyglisverðan.
— Skotárás
Framhald af bls. 1
árásarmanninn og hann sakaði
ekki.
íbúar Jóhannesarborgar eru
við þvi búnir að aftur brjótist út
óeirðir í Soweto þar sem blökku-
menn búa sig undir að minnast
afmælis óeirðanna 16. júni í fyrra
er breiddust út til annarra
blökkumannabæja og kostuðu
rúmlega 500 blökkumenn lifið.
Leiðtogi stúdenta í Soweto
Sechaba Hontsiisi, og 19 aðrir þel-
dökkir nemendur voru handtekn-
ir um helgina vegna áformanna
um að minnast afmælis óeirð-
anna.
Jafnframt hefur Stellenbosch-
háskóli tilkynnt, að blökkumönn-
um verði leyft að stunda nám við
skólann með vissum skilyrðum.
Þeir fá aðeins að stunda nám í
greinum sem eru ekki kenndar
við háskóla blökkumanna og sama
gildir um kynblendinga og Ind-
verja.
— Blóðhundar
fundu Ray . .
Framhald af bls. 1
laufahrúgu I skógi aðeins m
sjö kilómetra frá fangelsinu.
Hann var þreyttur og illa til
reika og veitti enga mót-
spyrnu. „Það er allt í lagi með
mig,“ sagði hann er hann var
handjárnaður.
Félagi Rays, Douglas
Shelton, leikur enn lausum
hala. Félagi þeirra Donald
Caylor var handtekinn 5 tím-
um á eftir Ray. Tveir fanganna
sem flúðu voru handteknir á
sunnudag: Larry Hacker, sem
talið er að hafi skipulagt flótt-
ann, og Earl Hill. Einn fangi,
David Lee Powell, var hand-
tekinn á laugardag.
Leitin að Ray var ein sú um-
fangsmesta sem gerð hefur
verið í Tennessee, og Griffin
Bell dómsmálaráðherra og
Carter forseti fengu jafnóðum
upplýsingar um leitina frá
stjórnanda hennar, Joel
Plummer.
Ray var færður í læknisskoð-
un þegar honum hafði verið
skilað aftur til fangelsisins og
var siðan fluttur i sjúkrahús
fangelsinins þar sem sagt var
að hann væri illa skrámaður
en hefði ekki orðið meint af. í
ráði var að 160 þjóðvarðliðar
hæfu þátttöku í leitinni nokkr-
um klukkutímum eftir að hann
fannst.
Embættismenn segja að
ósannað sé að Ray og félagar
hans hafi fengið aðstoð utan
fangelsisíns til að flýja.
Talið er víst að Ray verði
settur í nokkurra vikna ein-
angrun. Embættismenn gera
ekki ráð fyrir að Ray segi þeim
nokkuð frá því hvernig honum
tókst að komast út úr fangels-
inu.
— Spánn
Framhald af bls. 1
skemmdum í dómshúsum í Barce-
lona og Valencia, bókabúð i
Madrid og i banka i Las Palmas á
Kanarieyjum.
Samkvæmt skoðanakönnunum í
dag fær Miðflokkasamband
Adolfo Suarez 141 þingsæti af 350
í kosningunum og því ekki nógu
mörg þingsæti til að stjórna eitt.
Sósíalistaflokkurinn PSOE undir
forystu Felipe Gonzalez fær 121
þingsæti samkvæmt könnunun-
um.
Gonzalez sagði í dag, að PSOE
væri fús til stjórnarsamvinnu
með Suarez ef allir stjórnmála-
flokkar yrðu viðurkenndir, allir
pólitískir fangar yrðu látnir iaus-
ir, útlögum yrði leyft að snúa
heim, ný stórnarskrá yrði samin
og ráðstafanir yrðu gerðar til að
bæta efnahagsástandið án þess að
þær sköðuðu hagsmuni verka-
manna.
Suarez hefur sagt, að hann
muni segja af sér ef hann fær
ekki nógu mikinn stuðning til að
stjórna örugglega.
— Rabbað við
Unni Maríu
Framhald af bls. 2
hennar. Ingólfur Guðbrandsson,
sem heldur um tónsprotann á þess-
um tónleikum — að minnsta kosti
hvarflaði sú spurning að blaðamanni
hvernig það væri fyrir dóttur að taka
þátt i tónleikum, sem faðir hennar
stjórnaði
„Það er nú ekki gott að svara
þessu," sagði Unnur María. „Ég hef
nú leikið það mikið með honum, að
segja má að maður hafi vanizt því
alveg frá barnæsku. En þetta hefur
vafalaust bæði sína kosti og galla,
eins og gengur. Annars verð ég að
segja það. að ég hef alltaf haft mjög
gaman að taka þátt í þessum tón-
leikum Pólýfónkórsins, því að bæði
hefur hann flutt svo fallega tónlist á
þessum tónleikum og ekki siður hitt,
að þetta hefur verið svo skemmtilegt
fólk í kórnum Svo að ég stóðst ekki
freistinguna núna þegar mér var
sagt hvað til stóð, þótt það kostaði
það að ég yrði að koma heim fyrr en
ég hafði ætlað mér og verða þvi af
ýmsum tónlistarhátíðum sem mér
hafði verið boðið til. En mér finnst
það sannarlega þess virði, því að
það er ekki á hverjum degi sem farið
er frá íslandi i tónlistarferð af þessu
tagi og ef ég gæti orðið þar liðsauki,
þá vildi ég leggja mitt af mörkum."
Þegar Ítalíuferðin er afstaðin og
sumarið liður tekur London við. „Ég
er á förum þangað til að læra áfram í
vetur og verð í einkatfmum hjá
Nathan Mflstein," segir Unnur. „Ég
fékk Rotary-styrk, sem styrkir mig að
öllu leyti til þessa náms. Ég hef
reyndar haft nokkur kynni af Nathan
áður. Þetta er stórkostlegur kennari.
en um leið hefur hann mikla reynslu
sem einleikari og mér finnst hann
vera einn af fáum sem eftir eru, sem
hafa þennan gamla kúltúr f sam-
bandi við list fiðluleiksins. Svo að ég
hlakka mjög til dvalarinnar hjá hon-
um og ætla jafnframt að leika tölu-
vert í London á næsta vetri."
Talið berst að efnisskrá tónleika
Pólýfónkórsins. „Petta er allt barrók-
músfk, því að þarna verða leikrn
verk eftir Vivaldi, Bach og Hándel,"
segir Unnur María. „Jú, ég hef sjálf
mjög gaman af að spila barróktón-
list, og sumt af því sem samið hefur
verið í þeim stfl er með þvf fallegasta
sem skrifað hefur verið, gullkorn
sem munu halda áfram að lifa eins
og þau hafa lifað fram til þessa Og
fyrir mitt leyti get ég sagt að Ifklega
er Bach mitt eftirlætistónskáld "
En setja tónlistarmenn sig þá í
sérstakar stellingar þegar þeir leika
t.d. barróktónlist Unnur María bros-
ir við og svarar: „Auðvitað fer ekki
hjá því að túlkandi setji sig inn í stíl
viðkomandi tónskálds og þess tfma-
bils, sem hann var uppi á, og byggi
síðan túlkun sína á því Það er þess
vegna heilmikill munur á þvi að
leika tónlist eftir barrókmeistarana
eða síðari tíma tónskáld "
Tónlistarmenn leggja töluvert á
sig til að ná hinum rétta andblæ
barróktímabilsins, og Unnur segir
að víða erlendis sé komin vakning
fyrir smíði gamalla barrókhljóðfæra
og barrókfiðlubogans. „Barrókbog-
inn þykir töluverð nýlunda í túlkun á
verkum Bachs, því að auðvitað
samdi Bach tónlist sfna með tilliti til
þessa boga. sem er með miklu víðari
sveigju en nútímaboginn og gefur
þar af leiðandi mun betur eftir,
þannig að hægt er að spila auðveld-
lega hljóma yfir alla strengi fiðlunn-
ar samtímis. Sjálf hef ég spreytt mig
á barrókkboganum og fannst það
mikil upplifun En á þessum tónleik-
um. sem framundan eru. leik ég
auðvitað með þessum vengjulega
boga, þvi að ekki þýðir annað en
fullt samræmi sé innan hljómsveitar-
innar."
— Iðnkynning
Framhald af bls. 2
ásamt þjóðminjaverði og minjaverði
Reykjavíkurborgar. Iðnminjanefnd af-
henti á s.l. ári Þjóðminjasafni íslands
vísi að iðnminjasafni og verða þessir
gripir ásamt öðrum hlutum settir upp í
sýningarskála Árbæjarsafns Sýning-
una í Árbæ er sfðan reynt að tengja við
sýninguna í Laugardalshöllinni með
sérstökum strætisvagnaferðum. en
tveir vagnar. sérstaklega merktir iðn-
kynningu í Reykjavík, verða f notkun
meðan á henni stendur.
Af öðrum atriðum iðnkynningar í
Reykjayfk má nefna að islenzkar iðnað-
arvörur verða kynntar í verzlunum og
hefur verið leitað samstarfs við Kaup-
mannasamtök íslands, eins og áður er
getið. og óskað verður eftir því við
framleiðendur að þeir bjóði vöru sína á
kynningarverði. Önnur atriði eru heim-
sóknir í fyrirtæki, sem almenningi
verður gefinn kostur á, umbúðasam-
keppni og sýning íbúða. Dagur
iðnaðarins verður sfðan haldinn 30.
september, en þá verður efnt til um-
ræðufundar um iðnaðarmál og iðnþró-
un í Reykjavík og fyrirtæki, iðnaðar-
menn og iðnverkafólk verða heiðruð.
Hjalti Geir Kristjánsson, formaður
verkefnisráðs íslenzkrar iðnkynningar,
sagði að skoðanakannanir Hagvangs
hefðu sýnt það, að viðhorf fólks til
fslenzks iðnvarnings hefur breytzt mjög
til hins betra. í fyrstu könnuninni, sem
fram fór f maí 1976, hefðu 12%
aðspurðra talið ekkert jákvætt við ís-
lenzkar iðnaðarvörur, 5% er spurt var í
júní 1976 og þessi hópur hefði verið
horfinn er spurt var í skoðanakönnun í
febrúar s.l. og markaðskönnun í verzl-
unum sýndi einnig, að hlutdeild
íslenzkra iðnaðarvara hefði einnig
aukizt.
Af öðrum verkefnum iðnkynningar
sem framundan eru má nefna iðnkynn-
ingu á Selfossi 1 6. júní n.k og síðan
iðnkynningar á ísafirði og Hellu á
Rangárvöllum, sennilega báðar í ágúst-
mánuði. og verður iðnkynningin á
Hellu líklega í sambandi við 50 ára
afmæli verzlunar-réttinda Hellu.
— 30 þúsund
króna hækkun
Framhald af bls. 44
taka þess i stað upp samningaaðferðir
sem tryggi skjóta og örugga lausn
Það er auðvitað ýmislegt. sem veld-
ur þessum drætti á Loftleiðahótelinu i
Reykjavik. Eitt er það. að stjórnvöld
skuli ekki hafa gengið nógu hreint til
verks og kynnt það sem þau vilja gera
Það er eins og allir sitji bara og biði
með sln tromp uppi ( erminni og
enginn segist geta gert neitt fyrr en
Ijóst sé. hvað aðrir ætlast fyrir. Þá er
þetta pukur með sérkröfurnar alveg
dæmalsut. Við hjá Verkamannasam-
bandinu vorum plndir til að svara svo
að segja á stundinni en svo llðst öðrum
að draga þessi mál öll á langinn.
Hitt er svo annað mál að aðstæður
allar eru hér betri fyrir samkomulag
Um 80% af okkar fólki vínnur í fiski.
sem einfaldar málið náttúrlega og hér
eru flestir iðnaðarmenn ófélagsbundn-
ír, nema jarniðnaðarmenn, sem hafa
aflýst slnu yfirvinnubanni. Hér hefur
aflazt vel að undanförnu og það gerir
auðvitað atvinnurekendur fúsari til
samkomulags
Þannig má segja að aðstaðan sé öll
einfaldari hér en fyrir sunnan. en engu
að siður tel ég að þetta sé það. sem
koma skal, að fjórðungssamböndin
semji hvert um sig. Það þýðir ekkert að
vera að rexa yfir einhverjum einstökum
atriðum hverju sinni, hvort til dæmis
Austfirðingar næðu einhverju inn I sina
samninga, sem við næðum ekki i það
skiptið Það kæmi þá bara inn í okkar
samninga næst Þannig held ég að það
verði að einfalda þessi samningamál
öll og stórt skref í þá átt er að fella
niður tortryggni og öfund, semja I
fjórðungununum og láta aðstæður
hverju sinni ráða samkomulagi á hverj-
um stað
Hins vegar er það ekkert nýtt að við
skipum okkar málum sjálfir þvi við
höfum alltaf gengið endanlega frá okk-
ar samningum hér heima. En þetta er i
fyrsta skiptið. sem við tökúm okkur
svona sterkt út úr með frumkvæði að
samkomulagi "
Þá kvaðst Pétur vilja benda einnig á
að sjómannasamningar hefðu oft verið
gerðir á undan á Vestfjörðum og
stundum á eftir heildarsamningum."
Við föum í það að lita á sjómanna-
samningana, þegar þetta er frá," sagði
hann, þegar Mbl. spurði um þá.
Morgunblaðið reyndi einnig að ná
tali af Jóni Páli Halldórssyni, formanni
Vinnuveitendafélags Vestfjarða, en án
árangurs.
— Mólúkkar
Framhald af bls. 25
fylgdust með atburðunum,
þöglir og skelfdir."
Skömmu síðar bárust fregnir
af þvi að atlaga hefði einnig
verið gerð að skólanum I
Bovensmilde. Fljótlega sáust
hermenn veifa frá skólanum og
taka hans gekk mun skjótar
fyrir sig og þóttust menn sjá að
þar hefði ekki orðið manntjón.
Á hinn bóginn tók áhlaupið á
lestina um fjórtán minútur og
svo áköf var skothríðin að sjón-
arvottar, sem ýmsir voru ást-
vinir gíslanna, biðu milli vonar
og ótta hver orðið hefðu afdrif
ættingja sinna.
Jafnskjótt og hermennirnir
höfðu náð lestinni á sitt vald
voru gislarnir þar og einnig
þeir sem voru í skólanum flutt-
ir á sjúkrahús eða til læknis-
skoðunar. Mólúkkarnir þrir
sem særðust i lestinni voru
fluttir fyrst til læknisaðgerðar
en síðan i sérstaka gæzlu. Einn
Mólúkkanna mun vera alvar-
Iega slasaður og i hópi mann-
ræningjanna sem létu lífið var
ein ung stúlka.
„Nú verða
Mólúkkarnir
að fara...“
„Kannski halda þeir að nú sé
allt um garð gengið og nú falli
allt í ljúfa löð — en slíkt er
ógerningur. Við erum þeirrar
skoðunar að Mólúkkarnir verði
að fara héðan.“ Þetta sagði
bankastarfsmaður í Bovens-
milde eftir að gíslarnir höfðu
verið frelsaðir. Sjö ára gömul
dóttir hans hafði verið I hópi
barnanna seni höfð voru í haidi
í skólanum, en mannræningj-
arnir slepptu síða án þess að
gera þeim mein.
Sú skoðun er útbreidd í Hol-
landi og þó einkum í Assen og
Bovensmilde að ekki þurfi mik-
ið út af að bera til að allt fari í
bál og brand milli Mólúkka og
Hollendinga. Mikil beiskja og
gremja er á báða bóga og ríkis-
stjórnin hefur þegar gert ráð-
stafanir til að lægja öldurnar;
forystumenn Mólúkka I
Bovensmilde og Assen hafa
verið kvaddir á fund með full-
trúum rikisstjórnarinnar og
íbúðarhverfi Mólúkkamanna á
þessum stöðum og víðar í Hol-
landi verða áfram undir
strangri gæzlu.
Það er ljóst að margir Mól-
úkkar af eldri kynslóðinni eru
mjög andvtgir þeim hörkulegu
aðferðum sem yngri Mólúkkar
hafa nú beitt tvivegis. Hafa
þeir reynt að beita áhrifum sin-
um við hina yngri menn og
meðan á umsátrinu stóð urðu
margir Mólúkkar til að for-
dæma ránin og biðja gislunum
griða. Sömuleiðis komu margir
Mólúkkar bæði konur og karl-
ar, að skólanum í Bovensmilde
meðan börnin voru höfð þar í
haldi og að Iestinni — eða eins
nálægt og leyft var að fara, og
báðust þar fyrir klukkustund-
um saman um að mannræningj-
arnir slepptu gislum sinum.
Margir hollenzkir íbúar
Bovensmilde og Assen hafa
sagt við fréttamenn að lögregla
og hermenn hafi ekki sýnt
nægilega hörku þvi að ungir
Mólúkkar hafi vaðið uppi með
hvers kyns tilburði til ofbeldis
án þess að neitt væri að gert.
Meðal annars hefðu ungir Mól-
úkkar stundað skotæfingar i
skógunum í kringum þorpin án
þess nokkuð væri að gert. „Það
getur verið að umsátrinu sé lok-
ið en nú fyrst er baráttan að
byrja,“ er haft eftir einum Hol-
lendingi og margir óttast að orð
hans bergmáli afstöðu mjög
margra Hollendinga eftir þessa
síðustu atburði.
Engu að síður ríkti þó fögn-
uður og gleði í Bovensmilde og
Assen og lifið þar virtist ganga
sinn vanagang að nýju, að sögn
fréttamanna. Margir drógu
fána að hún og skreyttu hús sín
með blómum til að halda upp á
frelsun gíslanna. I hverfi Mól-
úkka í bænum var kyrrt og
fjölda margir komu til minn-
ingarguðsþjónustu þar um Mól-
úkkana sem féllu. í Bovens-
milde var I gær haldin sams
konar minningarguðsþjónusta
um gislana tvo og var mikill
hátíðleika- og alvörublær yfir
athöfninni að sögn frétta-
manna.
— Fornbflaklúbb-
urinn
Framhald af bls. 13
kunnáttu í meðferð, viðhaldi og
viðgerðum gamalla bíla. Þá
hyggst klúbburinn efna til sýn-
inga, hópaksturs og/eða hæfnis-
aksturs á gömlum bílum a.m.k.
einu sinni á ári.
Fyrsta verkefni klúbbsins verð-
ur nú 17. júni nk. er klúbbfélagar
munu leggja fram skerf til hátið-
arhaldanna. En þjóðhátiðarnefnd
og borgarstjórn hafa fúslega þeg-
ið boð klúbbsins um hópakstur
félagsmanna á sínum gömlu bíl-
um og er fyrirhugað að aka tvo
hringi kringum Tjörnina. Siðan
mun klúbburinn efna til sýningar
á gömlum bílum i porti Austur-
bæjarskólans og mun hún standa
frá kl 17—19 hinn 17. júni. Vill
klúbbstjórnin beina því til félags-
manna sinna, að þeir b.regðist
skjótt við og tilkynni þátttöku til
sýningarnefndar.
Félagsmenn í Fornbílaklúbbi
Islands geta þeir orðið, sem eiga
ökutæki sem er minnst 20 ára.
Áhugamönnum um gamla bila er
einnig heimil innganga í klúbb-
inn. í stjórn klúbbsins voru kjörn-
ir eftirfarandi félagar:
Formaður Jóhann E. Björnsson,
ritari Pétur Maack Þorsteinsson,
gjaldkeri Þorsteinn Baldursson,
Bjarni Einarsson og Kristján
Jónsson meðstjórnendur.
— Mólúkkar
Framhald af bls. 1
skýrðu frá þvi í dag, að foringi
hermdarverkamannanna hefði
sagt gíslunum, að yfirvöld i
landinu væru of önnum kafin við
stjórnarmyndun eftir þingkosn-
ingarnar, sem fram fóru meðan
gíslarnir voru í haldi, til að hugsa
um afdrif þeirra. Hefðu gislarnir
trúað þessu og hefði því verið
brugðið á það ráð að ýkja mjög
frásagnir af vanlíðan í lestinni til
að reyna að fá yfirvöld til að láta
til skarar skríða í samningavið-
ræðum við hermdarverkamenn-
ina.
Það var fyrir forgöngu tveggja
kvenna I lestinni að ákveðið var
að segja andlega vanlíðan gísl-
anna mun alvarlegri en hún raun-
verulega var. Fékk önnur þeirra
leyfi Suður-Mólúkkanna til að
ræða við fulltrúa stjórnarinnar
um talstöð. Sú liggur nú í sjúkra-
húsi vegna skotsára er hún hlaut i
árásinni á laugardagsmorgun.
Fréttamaður, sem ræddi við hina
konuna í dag, segir að hún virðist
engan skaða hafa beðið af dvöl-
inni í lestinni, og hefur eftir
henni, að þetta hafi verið eins og
þriggja vikna sumarfri.