Morgunblaðið - 14.06.1977, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNI 1977
33
Smyglaði bjórinn
af Vellinum?
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi svar frá Einari Karli
Haraldssyni, öðrum umsjónar-
manni sjónvarpsmyndaflokksins
Ríkí í rfkinu, við fyrirspurn
Björns Hermannssonar, toll-
stjóra, f Morgunblaðinu nýlega:
Björn Hermannsson, tollstjóri,
hringdi fyrir nokkru i undirritað-
an og óskaði upplýsinga um þá
fullyrðingu að mikið hefði verið
um smyglaðan bjór á dansleik
sem sjónvarpið kvikmyndaði í
sambandi við þáttinn „Ríkið í rík-
inu“. Hann fékk þá allar upplýs-
ingar sem handbærar voru, en
hefur nú séð ástæðu til þess að
bera fram spurningar opinber-
lega í Morgunblaðinu.
Það var alls ekki ætlun umsjón-
armanna þáttarins að taka það
fram sérstaklega að umræddur
dansleikur var kvikmyndaður í
Félagsheimilinu Stapa, Ytri-
Njarðvík, enda ástandið þar ekki
ýkja frábrugðið því sem tíðkast i
öðrum félagsheimilum. Því síður
var ætlunin að draga Kristbjörn
Árnason, framkvæmdastjóra, inn
i þetta mál, en á viðtali við hann
byggðist fullyrðingin um smygl-
aða bjórinn. Tollstjóra var bent á
að hafa samband við hann um
frekari upplýsingar. Úr því hann
hefur ekki komið því í verk er
sjálfsagt að koma á framfæri í
Morgunblaðinu árangrinum af
nokkrum símtölum sem undirrit-
aður átti við fólk á Suðurnesjum á
fimmtán minútum i morgun eftir
lestur yfirlýsingar Björns Her-
mannssonar.
Kristbjörn Árnason ítrekaði
það í samtali í morgun að hann
teldi bjórsmygl talsvert vanda-
mál, þótt hann vildi ekki fullyrða
hversu umfangsmikið það væri.
Staðreynd væri hinsvegar að
krakkar kæmust í sjálfsala á
Keflavíkurflugvelli og ættu greið-
an aðgang að Vellin um þvi girð-
ingin kringum hann væri eins og
gatasía.
Þá kom það einnig fram við
eftirgrennslan í morgun að barna-
verndar- og áfengisvarnarnefndir
Keflavíkur og Njarðvikur hafa
tekið þetta mál upp og rætt það.
Hefur verið farið fram á að þess-
ari leið til þess að ná i áfengan
bjór yrði lokað fyrir börnum og
unglingum, en ekkert borið á að-
gerðum í þessa átt.
Víkingur Sveinsson, rannsókn-
arlögreglumaður í Keflavík stað-
festi það i viðtali í morgun að við
yfirheyrslur hefði komið fram að
krakkar stunduðu það að ná í bjór
úr sjálfsölum á Keflavikurflug-
velli. Það væru því til ákveðin
dæmi um þessa aðferð, en Víking-
ur vildi ekkert um það fullyrða
hvað mikið hún væri notuð. Hann
taldi þó ekki óeðlilegt að gera ráð
fyrir að einhverjir unglingar, sem
þetta stunduðu, dreifðu bjór og
seldu til kunningja sinna. Hann
tók einnig fram að hægt væri að
ganga inn og út um girðinguna
kringum Keflavíkurflugvöll nán-
ast hvar sem vera skyidi.
Sjálfsalar þeir sem hér hafa
verið gerðir að umtalsefni eru á
tilteknum stöðum í bandarísku
herstöðinni og í sumum íbúða-
blokkum bandarikjamanna þar.
Ásóknin í þessa sjálfsala tak-
markast ekki við unglinga.
Við þetta bætist svo að sjálf-
sögðu það að sterklega má gera
ráð fyrir að .töluvert sé um að
bandarískir hermenn og aðrir
starfsmenn á Keflavikurflugvelli
drýgi tekjur sínar með bjórsölu,
a.m.k. hafa þeir nýlega orðið upp-
vísir af dreifingu fíkniefna.
Á dansleiknum sem sjónvarpið
kvikmyndaði í Stapa var talsvert
um að samkomugestir hefðu bjór-
dósir um hönd. Að sjálfsögðu
voru þeir ekki spurðir hver fyrir
sig hvaðan þeim kæmi bjórinn,
enda eins víst að fátt hefði orðið
um svör, en í ljósi fyrrgreindra
upplýsinga er ekki óeðlilegt að
dregnar séu vissar ályktanir um
hvernig og hvaðan hann er upp-
runninn.
Nábýlið við herinn hefur ýmsan
„óþrifnað" I för með sér, svo not-
að sé orðafar tollstjóra og vilji
hann fá haldbetri upplýsigar um
óþrifin en hægt er að fá á 15
mínútum með samtölum við fólk á
Suðurnesjum, ætti hann aó
bregða sér á ball í Stapanum við
fyrsta tækifæri.
Reykjavík, 2. júni 1977
Virðingarfyllst
Einar Karl Ilaraldsson.
Bændaferð frá Noregi,
„prinspóló og kók”
í Morgunblaðinu i dag sendir
Sigríður Fanney á Egilsstöðum,
bændaforystunni kveðjur sinar
og átelur að veita skuli norsku
bændafólki .prinspóló og kók.
Réttilega bendir hún á, að öllu
þjóðlegra væri að gefa þeim flat-
brauð með hangikjöti og glas af
súrmjólk. Þar sem þessi umrædda
frétt var höfð eftir mér í Tíman-
um, tel ég rétt að gefa smá skýr-
ingu.
Sunnudaginn 12. júní munu
koma hingað til landsins 126
bændur og húsfreyjur ásamt
ungu fólki úr sveitum N-Noregs.
Flugvélin með þá innanborðs
mun lenda á flugvellinum vió Ak-
ureyri kl. 22.00, þá mun bænda-
fólk úr byggðum Eyjafjarðar taka
á móti norsku gestunum á flug-
vellinum og bjóða þeim heim til
gistingar. Norðmennirnir munu
gista tvær nætur á bæjum við
Eyjafjörð, þar mun að sjálfsögðu
veröa tekið vel á móti þeim. Þann
13. júní mun hópurinn ferðast um
S-Þingeyjarsýslu og þar mun bún-
aðarsambandið taka á mótí þeim.
Skagfirðingar hafa einnig boðið
öllum hópnum gistingu og mat á
bæjum þar f sýslu. í Miðgarði
verður þeim boðið upp á saltkjöt
og baunir af búnaðarsambandinu.
Einnig munu Norðmennirnir
gista á bæjum í uppsveitum
Árnessýslu.
Þessi frétt með prinspóló og
kók er einfaldlega komin til af
þvi, að erfitt reyndist að koma
fyrir öllum boðum og til að koma I
veg fyir fyrir að hópnum yrði
ofgert f mat og drykk, þá stakk ég
upp á, að á einum áningastað yrði
þeim gefið eitthvað sem einfalt
væri að bera fram út í guðs-
grænni náttúrunni. Auðvitað ræð
ég ekki hvernig tekið er á móti
gestum, og trúlegt finnst mér að
þessum ráðum mínum verði ekki
fyigt.
Því hvort sem um er að ræða
bændur eða húsfreyjur í sveitum
landsins, þá hefur aldrei skort
vilja til að gera vel við gesti.
Þá er ekki annað eftir en að
þakka Sigriði Fanneyju fyrir
ábendinguna og taka undir með
henni að flatkökur með hangi-
kjöti eru ólíkt betri og hoilari
matur en prinspóló og kók.
Rétt er að geta þess að héðan
fer jafnstór hópur bændafólks til
N-Noregs og kemur þaðan. Þar
munu íslendingarnir gista þrjár
nætur á sveitaheimilum og boð
hafa borist í margar veislur.
7. júní 1977
Agnar Guðnason.
aiu;i.ysin(;asíminn ek:
JHvrgimbltibiþ
Oda og Job Egede frá Grænlandi og sonur þeirra, Andreas. Ljósm. Rax.
Grænlenzk bændaf jölskylda á íslandi:
r
Held að Island og Grænland
ættu að skipta á nöfnum
í Igaliko við Einarsfjörð á
Grænlandi, sem Grænlend-
ingar til forna kölluðu Garða,
bjó snemma á öldinni maður,
sem Danir, sem vel þekktu til
í byggðarlaginu, kölluðu
Kong Amos, og var sá maður
kynntur fyrir Kristjáni 10.
Danakonungi undir þvl nafni
er konungur heimsótti Græn-
land.
Job Egede er eitt þriggja barna
Kong Amos, sem búa i Iglaiko og var
hann á ferS hér i landi fyrir nokkru
ásamt konu sinni og einum syni
slnum. Þau voru spurS um ástæSu
þessarar IslandsferSar og var þaS
sonurinn Andreas, sem gerðist túlk-
ur I samtalinu viS föSur hans, en
hann talar dönsku og islenzku auk
grænlenskunnar.
— ÞaS voru nú börn okkar, sem
gerSu okkur þessa ferð mögulega,
sagSi Job Egede, en ég er nýlega
orSinn sextugur og þau áttu hug-
myndina aS þvi að bjóSa okkur til
íslands I tilefni af þvi.
— ÞaS var einkum Andreas sem
átti hugmyndina aS þessu, en ég hef
aldrei komið út fyrir Grænland. Kon-
an hefur hins vegar verið i Dan
mörku og talar nokkra dönsku, en ég
held mig viS grænlenskuna.
En hver var ástæða þess aS Andre-
as talar islenzku?
— Ég hef veriS á islandi siSan i
september, sagði Andreas, og hef
verið aS vinna viS bústörf á Hesti I
BorgarfirSi. BróSir minn eldri hefur
einnig veriS á íslandi. var hann viS
vinnu á bæ I Húnavatnssýslu og eru
nokkur ár siSan, en hann kann enn-
þá tslensku og ég býst við aS viS
getum haldið henni viS hvor meS
öSrum nú þegar ég kem heim.
Af hverju varð island fyrir valinu
til þessarar ferSar?
— ÞaS er vegna þess að viS höf-
um aSeins kynnst íslendingum,
sagði Job Egede, en þeir hafa margir
veriS á ferð heima, ekki sizt eftir aS
FlugfélagiS hóf ferSir þangað. en þá
kynntumst viS isiendingum fyrst.
ViS höfum lika kynnst landinu nokk-
uS i grænlenska útvarpinu, I gegnum
fréttir og fleira, svo við vissum svona
svolitiS um landið áSur en viS kom-
um.
— ViS höfum bætt verulega viS
þessa þekkingu okkar núna I þessari
ferð, þvi viS höfum ferSast upp I
Borgarfjörð, i Húnavatnssýslu og séS
Gullfoss og Geysi og fleiri staði t.d.
Þingvelli og þar i kring.
Oda. kona Jobs vildi taka undir
þetta og sagSi að hún sæi ekki eftir
að hafa þegiS þessa ferS, þvi hér
hefði hún séS fallegt land og kynnst
góSu fólki. Vildu þau bæði koma á
framfæri þakklæti sinu fyrir þær
móttökur, sem þau hefSu fengiS hér
i þessari ferS.
— ViS höfum kynnst hvernig Is-
lenzkir bændur vinna og þeirra aS-
stæSum, sagSi Job, og það hefur
veriS gaman og fróSlegt að sjá þaS,
en ég er sjálfur bóndi og hef rúmlega
300 fjár og þaS hafa flestir bændur i
Igaliko, og þaS er ýmislegt sem er
nokkuð svipaS hjá okkur i Igaliko og
á íslandi. Þetta er fallegt land og ég
held eiginlega að ísland og Græn-
land ættu að skipta á nöfnum. þaS
væri meira réttnefni á báSum lönd-
unum, sagSi Job Egede að lokum.
sharp stereo
samstæðan
með útvarpi (4 bylgjur)
kassettusegulbandi
og plötuspilara