Morgunblaðið - 14.06.1977, Qupperneq 44
AlííLYSINíiASIMINN ER:
22480
iRoraimWa&ifc
AL'íiLYSINGASÍMINN ER:
22480
JHorexinbTotiib
ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNl 1977.
Fékk 115 kr. meðal-
verð í Þýzkalandi
Hafnarfjarðartogarinn
Júnf seldi í V-Þýzkalandi á
föstudag 205 tonn fyrir
28,5 milljónir króna.
Meðalverð var 114,55 krón-'
ur hvert kfló, en í aflanum
var mikið af ufsa.
Fleiri sölur eru fyrirhug-
aðar í Þýzkalandi og eru
skuttogararnir Bjarni
Benediktsson og Erlingur
á leið þangað. Þá er alltaf
eitthvað um sölur í Færeyj-
um, en þar hafa fengizt
90—95 krónur fyrir kílóið
af þorskinum. Stapavík frá
Siglufirði seldi þar í síð-
ustu viku og Ljósafell frá
Fáskrúðsfirði og Sölvi
Bjarnason frá Tálknafirði
munu selja þar i vikunni.
Þá er ákveðið að Snæfell
fari í söluferð til Færeyja.
Flugleiðir:
Sumarumferð seink-
aði á Ameríkuleiðinni
„Flugleiðir hafa flutt held-
ur færri farþega á
Ameríkuleiðinni frá ára-
mótum miðað við sama
tíma í fyrra og reyndar var
fellt niður nokkuð af ferð-
um á þessari leið síðustu
tvær þrjár vikurnar. Nú er
ástandið hins vegar komið í
eðlilegt horf og ekki útlit
fyrir annað en að við náum
sömu farþegatölu í sumar á
þessari leið miðað við s.l.
sumar," sagði Sveinn
Sæmundsson blaðafulltrúi
Flugleiða í samtali við Mbl.
í gær.
Kvað Sveinn fólksflutninga á
Ameríkuleiðinni vera meiri til
Evrópu nú, en þó væri talsvert að
flytja vestur. Kvað Sveinn sumar-
umferðina hafa farið heldur
seinna af stað nú en áður og spil-
aði margt þar inn í, m.a. að skólar
hafa starfað fram á sumarið
vegna lokunar i vetur þegar kald-
ast var á austurströnd Bandarikj-
anna. Þá kvað Sveinn stóraukið
leiguflug bæði stórra flugfélaga
og annarra á þessari flugleið hafa
sín áhrif á farþegafjölda.
Sveinn kvað farþegaflutninga á
Evrópu vera heldur meiri frá
íslandi síðan um áramót miðað
við sama tima í fyrra og sama
væri að segja um innanlandsflug
en hann taldi að frá upphafi far-
þegaflugs á íslandi hefðu ekki
verið eins margir flugdagar og á
þessu ári.
Þingmenn
heimsækja
Þjóðverja
NEFND sex fslenzkra þingmanna
undir forsæti Ragnhildar Helga-
dóttur, forseta neðri deildar Al-
þingis, kom f gær til Bonn f níu
daga opinbera heimsókn f Vestur-
Þýzkalandi.
Þingmennirnir fóru síðdegis f
kurteisisheimsókn til Karl Car-
stens, forseta verur-þýzka þings-
ins, og fara til Kölnar í dag,
þriðjudag samkvæmt fréttaskeyti
frá AP.
Það er ekki aðeins fullorðna fólkið sem hefur gaman af þvf að
spfgspora um Austurstrætið, og ekki spillir að hafa mömmu með.
Steiktu k júkl
inga efst í
270 metra
háu mastri
MALARAR. sam eru um þessar
mundir að mála fjarskiptamöstur
Varnarliðsins viB Grindavlk,
vinna við mjög erfiðar aSstœður
uppi I möstrunum, festir meS
öryggisólum. Einn daginn fyrir
skömmu þegar þeir voru að vinna
I stærra mastrinu. sem er um 270
mertra hátt. hófu þeir matargerð
nálægt toppi mastursins, en
veizlan endaði með þvl að viðar-
kol hrundu til jarðar og kveiktu I
gróðri í hrauninu og komu
slökkviliðin frá Keflavfkurflug-
velli og Grindavfk á vettvang til
þess að slökkva eldinn.
Félagarnir 5 sem voru að vinna !
Framhald á bls. 30
Samkomulag á Vestfjörðum:
30 þúsund króna hækk-
un til 31. desember 1978
Auglýsingar, sem birt-
ast eiga í Morgunblað-
inu n.k. sunnudag 19.
júní þurfa að hafa borizt
auglýsingadeild Morg-
unblaðsins fyrir kl. 17 f
dag.
ALÞÝÐUSAMBAND Vest-
fjarða og Vinnuveitendafélag
Vestfjarða náðu samkomu-
lagi um kaup og kjör á Vest-
fjörðum siðla nætur í fyrri-
nótt vestur á ísafirði. Undir-
ritun samkomulagsins var
frestað og einn samninga-
manna, Karvel Pálmason,
sem einnig á sæti I samninga-
nefnd ASI, var sendur suður
til þess að kynna málin fyrir
forystu Alþýðusambands
íslands. Samkomulagið fyrir
vestan kveður á um 30 þús-
und krónurá samningstíman-
um, sem er til 31. desember
1978. Upphafshækkun sam-
komulagsins er 16 þúsund
krónur, 1. janúar er áfanga-
hækkun um 5 þúsund krón-
ur, aftur 5 þúsund krónur 1.
júl( og stðan 4 þúsund krónur
1. september.
Þegar fréttist af þessu samkomulagi
á samningafundunum á Loftleiða-
hótelinu urðu mikil fundahöld um mál-
in, bæði I hópi ASÍ-manna og vinnu-
veitenda Reynt var eftir föngum að fá
Vestfirðingana til þess að fresta undir-
skrift, en þeir höfðu ætlað að láta hana
fara fram í dag Morgunblaðið spurði
Karvel Pálmason um þetta samkomu-
I lag en hann varðist allra frétta. Búizt
var við þv! að vinnuveitendur, ef ekki
tækist að stöðva undirskrift, mótmæltu
samkomulaginu og yfirleitt mátti heyra
á vinnuveítendum. að þeir teldu að
þetta samkomulag torveldaði sam-
komulag milli Alþýðusambands
Islands annars vegar og Vinnuveit-
endasambands íslands og Vinnumála-
sambands samvinnufélaganna hins
vegar Þeir samningsmenn ASÍ. sem
Mbl ræddi við, voru ekki vissir um
áhrif samkomulagsins vestra og vildu
biða og sjá til áður en þeir legðu dóm á
það Skúli J. Pálmason sagði að inni I
Vinnuveitendafélagi Vestfjarða væru
engin fyrirtæki Sambands íslenzkra
samvinnufélaga, en hann kvaðst búast
við þvi að þau yrðu að ganga inn I
samkomulagið, ef það yrði að veru-
leika
Ótímabundin starfsgreinaverkföll í næstu viku:
Stöðva allt flug — og
flutninga með skipum
Samningafundurinn á ísafirði. sem
haldinn var I fyrrinótt og umrætt sam-
komulag tókst á, var þriðji samninga-
fundur aðila frá þvi er þessi samninga-
lota hófst
„Ég reikna fastlega með því að við
munum undirrita samkomulag um
kaup og kjör hér á ísafirð á morgun, ef
ekki kemur eitthvað mjög óvænt upp
á." sagði Pétur Sigurðsson, forseti
Alþýðusambands Vestfjarða, I samtali
við Mbl I gærkvöldi
Þegar Mbl. spurði Pétur, hvers
vegna Alþýðusamband Vestfjarða hefði
kosið að ganga til sérsamninga. sagði
hann: „Það er greinilegt og öllum aug-
Ijóst, að samningar nú hafa dregizt úr
hömlu. Við, sem í þessu höfum staðið,
höfum alltaf lofað okkur eftir hverja
samninga að breyta nú til næst og
hætta þessum setum lon og don. en
Framhald á bls. 26
AÐILDARFÉLÖG innan
Alþýðusambands íslands
voru í gær að samþykkja f
trúnaðarmannaráðum sfn-
um framhaldsaðgerðir, er
sérgreinaverkföllunum,
sem nú standa yfir, lýkur.
Þessar aðgerðir, sem taka
við eftir 21. júní, en þá er
allsherjarverkfall í einn
dag á landinu, eru ótfma-
bundin starfsgreinaverk-
föll mjög róttæk aðgerð að
sögn samninganefndar-
manna ASÍ, sem aldrei áð-
ur hefur verið gripið tif
hérlendis. Við þessi verk-
föll stöðvast allir fragt-
flutningar á landinu, far-
þegaflug innanlands og
milli landa.
Meö þessu fara þó aóeins til-
tölulega fáar stéttir innan ASÍ í
verkföll og er þá áætlað aö þeir,
sem áfram verði í vinnu, greiði
hluta af launum sínum til stéttar-
félagsins, sem aftur greiðir verk-
fallsmöryiunum laun. Einn samn-
inganefndarmanna ASÍ sagði, að
að visu óttuðust menn, að vinnu-
veitendur myndu sem mótleik við
þessi verkföll setja á verkbann,
en ef svo yrði mun fyrir liggja
eftir einhvern ákveðinn tíma, að
fjárhagsstuðningur geti komið frá
einhverju Norðurlandanna.
Þessi verkföll munu stöðva alla
fermingu og affermingu skipa i
höfnum landsins, afgreiðslu flug-
véla bæði í Reykjavík og á Kefla-
vikurflugvelli, en í sambandi við
hafnarvinnu verður veitt undan-
þága á afgreiðslu fiskiskipa, sem
koma með afla að landi.
SIGURSTUNDIN — tsland sigradl NorA-
ur-frland I landsleik f knattspyrnu á
Laugardalsvellinum á laugardaginn. Var
þetta fyrsti sigur tslendinga I knatt-
spyrnuleik I heimsmelstarakeppni. Þad
er landsliðsþjálfarinn Tony Knapp, sem
blfstrar af ánægju f lok leiksins og
ánægjan leynir sér ekki I andlitum
þeirra Harðar Hilmarssonar og Guð-
mundar Þorhjörnssonar. Sjá iþrðttir á
bls. 2i—24 og 42—11! (Ljðsm. Mbl.
RAX).