Morgunblaðið - 20.07.1977, Page 3

Morgunblaðið - 20.07.1977, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JULI1977 3 „Mjög góð stemmn- á Úlfljótsvatni” A HINU fjölmenna Skátamóti við Úlfljótslatn hefur ekkert farið úrskeiðis og allri áætlun verið haldið með prýði þrátt fyrir vætu- samt veðurfar. „Já, það er mjög góð stemmning rlkjandi hér á Úlfljótsvatni, sagði Arnfinnur Jónsson mótsstjóri þessa 17. landsmóts skáta í samtali við Mbl. f gær. Þess má geta, sagði Arn- finnur, að á mánudagskvöldið var hér stór varðeldur á mótssvæðinu og voru þar viðstaddir 1500 skátar eldri og yngri. Rfkti þar mikill og góður skátaandi yfir mannskapn- um. Veður var lognkyrrt þetta kvöld og þurrt. I gærmorgun var fallegt veður þar eystra og þó ekki væri þar glampandi sólskin var bjart yfir. Voru skátarnir að ganga til dag- skrárstarfa, en átti samkomunni að ljúka með svonefndum Torg- varðeldi í kvöld. En Torg er innan hvers hinna sjö tjaldsvæða sem tjaldborgin stendur á. Arnfinnur bað fyrir beztu kveðjur frá öllum þátttakendum á þessu fjölmenna móti. — Já mér er óhætt að fullyrða að hér liði öllum vel og að allir biðja að heilsa — hver til sins heima. Frá skátamótinu við Úlfljótsvatn. Ljósm. Mbl: Friðþjófur Taka lagið 1 Norræna húsinu VISNAKVÖLD verður í Norr- æna húsinu f kvöld og mun söngtrfó flytja þar fslenzk lög og ýmis norræn lög. Hanne Gustavi, Gfsli Helgason og Stefán Andrésson skipa trfóið en þau hafa sungið á ýmsum stöðum á undanförnum mánuðum við góðar undirtekt- ir. Tónleikarnir hefjast klukk- an 8.30, en f viðtali við þre- menningana sögðu þau að eftekjuafgangur yrði af vfsna- Gfsli, Hanne og Stefán. Ljósmynd Mbl. Friðþjófur. kvöldinu yrði hann settur f Hjálparsjóð æskufólks. Þau Hanne og Stefán leika á gítar en Gísli á flautur. Þau eru öll félagar í samtökum Vísuvina, sem hafa starfað reglulega í allan vetur, en það eru samtök áhugafólks um vísna og ljöðaflutning. Hanne Gustavi hefur verið búsett á Islandi um árabil, en er nú á förum til Svíþjóðar. Doktor í bygginga- verkfræði Ríkharður Kristjánsson lauk nýlega doktorsprófi í byggingaverkfræði við háskól- ann f Darmstadt í V- Þýzkalandi. Rikharður er þritugur að aldri, stúdent frá Menntaskól- anum á Akureyri 1966. For- eldrar hans eru Kristján As- geirsson, útibússtjóri á Eyrar- bakka, og Ingibjörg Jónsdóttir. Ríkharður er kvæntur Idu Sveinsdóttur og eiga þau tvö börn. Ríkharður Kristjánsson mun hefja störf við Rannsókna- stofnun byggingaiðnaðarins innan skamms. Hamrahlíðarkórinn NAFN höfundar greinarinnar um Hamrahlíðakórinn, sem birtisti i blaðinu sl. sunnudag, féll því miður niður, en grein- in er eftir Jón Asgeirsson tón- listargagnrýnanda blaðsins. Myndgæði PHILIPS litsjónvarpstækja eiga tæpast sína líka. Þar sérðu alla hluti eins eðlilega og hægt er. Rautt er rautt, blátt blátt, grænt grænt o.s.frv, PHILIPS hefur ieyst vandamálið við villandi og óeðliiega liti og þaö er eins og að vera sjálfur á staðnum þar sem myndin er tekin, þegar þú horfir á PHILIPS litsjónvarpstæki. Oþarft er aö koma með upptalningu á tæknilegum atriðum hér en bendum aðeins á að PHILIPS er stærsti framleiöandi litsjónvarpstækja í Evrópu, hefur framleitt yfir 40.000.000 sjónvarpstækja. Segir það ekki sína sögu? PHILIPS hóf hönnun litsjónvarpstækja árið 1941 og hefur síðan stefnt markvisst aö tæknilegri fullkomnun. PHILIPS litsjónvarpstæki fást í mörgum geröum, meö skermum frá 14” - 26”. Viö viljum eindregið hvetja væntanlega kaupendur litsjónvarpstækja til aö kynna sér umsagnir hlutlausra aðila og þá verður valiö ekki erfitt. Þaö er og veröur PHILIPS. litsjónvarp með eðlilegum litum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.