Morgunblaðið - 20.07.1977, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 20.07.1977, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20! JULl 1977 7 Uppákoma nýs páfastóls í stökum steinum i gær var litillega fjallað um sunnudagshugleiðingu Kjartans Ólafssonar, rit- stjóra Þjóðviljans, um „efrópukommúnisma og islenzk viðhorf". Þessi samsetning Kjartans er fyrst og fremst eftirtektar- verð fyrir þá sök, að i orði kveðnu tekur hann undir sjónarmið frumkvöðla evrópukommúnismans á ítaliu, í Frakklandi og á Spáni en undirtónninn er lúmsk gagnrýni á „endur- skoðunarsinna" á siðum Þjóðviljans, sem nokkuð hafa látið á ser kræla undanfarið. Þessi tvi- skinnungur kemur einkar vel í Ijós i tveimur setningum, sem lýsa eiga sjónarmiðum islenzkra sósíalista í dag: „. . . þá þurfum við ekki að hika við að viðurkenna all- náinn skyldugleika við flokk eins og t.d. Kommúnistaflokk ítaliu." Síðan er hnýtt við þessari gullvægu setningu: „Fátt er stjórnmálasamtökum sócialista í einstökum löndum eða alþjóðlegri verkalýðshreyfingu yfir- leitt hættulegra en uppá- koma páfastóls af þessari eða hinni gerð. „Páfastóll" islenzkra kommúnista hefur hingað til verið hið „gerzka ævin- týri„. Og Kjartani Ólafs- syni lýst síður en svo á „uppákomu" nýs „páfa- stóls", sem bersýnilega á við þríeykið Berlinguer (hinn ítalska), Carillo (hinn spánska) og Marchais (hinn franska). Með hliðsjón af skrifum nokkurra samstarfsmanna Kjartans í Þjóðviljanum undanfarið, sem bergmála hliðhylli við evrópu- kommúnismann, hljómar tónn Kjartans sem viðvör- un: Það er í lagi að látast — en það má ekki taka látbragðsleikinn of alvarlega! „Laukrétt hjá Berlinguer” Eins og sagt var frá í Staksteinum I gær verður Kjartani það á að taka undir kjarnapunktinn í nýjum viðhorfum italskra kommúnista, þegar hann segir orðrétt: „Og það er laukrétt að Berlinguer, formaður ítalska Kommúnistaflokksins, hefur sagt, að á leiðinni til lýðræðislegs socíalisma eru nú reyndar stærri hindranir á veginum i Austur-Evrópu en i Vest- ur-Evrópu." Þetta orða- lag: „eru nú reyndar" fel- ur að vísu i sér þvingaða viðurkenningu — en viðurkenningu þó. Frelsið, meira að segja „frelsi socialismans" fyrirfinnst ekki i framkvæmd hans. Það er sorgarsagan, sem á þó rætur i eðli kenningar- innar, ekki siður en framkvæmdinni. Evrópukommúnisminn hefur gjörólika afstöðu til samstarfs Evrópuþjóða, bæði á sviði efnahags- mála og öryggismála, en til að mynda sovéski Kommúnistaflokkurinn eða islenzka Alþýðu- bandalagið. í orði kveðnu lýsa foringjar evrópu- kommúnismans yfir hlið- hylli við Atlantshafs- bandalagið og Efnahags- bandalag Evrópu til að viðhalda valdajafnvægi og friði i okkar heimshluta og efnahagslegri velferð hinna almennu þjóðfélagsþegna i frjáls- um þjóðfélögum V- Evrópu. Þessi stuðningur er að visu orðaður misjafnlega skirt en ótvi- rætt þó. Berlinguer telur jafnvel framgang lýð- ræðislegs sócialisma við- ráðanlegri i rikjum borgar- legs lýðræðis en við kommúníska þjóðfélags- hætti. „Og það er laukrétt sem Berlinguer formaður ítalska Kommúnista- flokksins hefur sagt" um þessa hlið mála, segir rit- stjóri Þjóðviljans! Þeir Berlinguer og Kjartan Ólafsson eru sum sé sam- mála í orði um, eftir orð- anna hljóðan, að kommúnisminn — eins og hann kemur um- heiminum fyrir sjónir i A- Evrópu — sé beztur i fjar- lægð — þvi meiri fjar- lægð því betra. Þetta villl Berlinguer staðfesta með ítalskri aðild að Atlants- hafsbandalaginu. En þeg- ar til kastanna kemur hjá Kjartani er hann enn tagl- hnýttur, gamla „páfa- stólnum". En verður lýð- ræðið i veröldinni varð- veitt til frambúðar án varnarsamstarfs lýðræðis- þjóða? Um það efast æ fleiri, vinstri sinnað fólk ekki síður en borgaralega þenkjandi. Hvernig er berg- id á 30 km dýpi? Stór hópur jarðvfsindamanna er um þessar mundir dreifður um hálendið við samræmdar rann- sóknir, tii að afla upplýsinga um gerð og eðli berglaga umdir Mið- atlantshafshryggnum. Ná mæl- ingar dýpra en nokkru sinni hef- ur verið reynt fyrr. Hafa lands- menn heyrt nokkrum sinnum á dag lesnar á ensku tilkynningar til hópanna frá miðstöð rannsókn- anna við Sigöldu. En þeir eru að mæla á ýmsum stöðum endurkast frá sprengingum, sem gerðar eru bæði á sjó og landi. Þetta eru að sumu leyti fram- haldsrannsóknir við þær sem unnar hafa verið að áður, en þó nýtt verkefni, sem þýzkir jarðvís- indamenn eru frumkvöðlar að og eru hér hópar þeirra frá Miinchen, Frankfurt og Hamborg. Rannsóknirnar eru gerðar í sam- vinnu við Islendinga, Orkustofn- un og Raunvísindastofnun Háskólans. Þá tekur þátt í rann- sóknunum sovézki vísindahópur- inn, sem var við svipaðar rann- sóknir i Borgarfirði i fyrra og á Norðausturlandi i ár, með bylgj- um frá sprengingum fást upplýs- ingar um berglög djúpt undir gos- beltinu. Auk þess eru Bretar með í þessu verkefni og í þeirra hópi nokkrir Bandaríkjamenn. Guðmundur Pálmason, eðlis- fræðingur, sem hefur með þetta verkefni að gera fyrir Orkustofn- un, sagði Mbl. að þetta verkefni, sem nú stendur yfir, miðaði að þvi að kanna berglögin undir Mið- atlantshafshryggnum á íslandi sjálfu og suður í haf, á Reykjanes- hryggnum. Er horft dýpra í jörð- ina en til dæmis Rússarnir hafa verið að gera eða, nokkra tugi km niður. Er það gert á sama hátt með sprengingum og móttöku á bylgjum frá þeim, en þó notuð önnur mæliuppsetning. Þetta verkefni hófst 12. júlí og er ætlunin að ljúka því 19. júli. Er gert ráð fyrir að halda áfram í nokkra daga í viðbót, ef einhverj- ar tafir hafa orðið. Sprengingarnar fara fram frá skipi suður i hafi, i stöðuvatni á miðhálendinu og úti fyrir strönd- inni á Norðausturlandi, út af Vopnafirði og Melrakkasléttu. Tók Guðmundur fram að spreng- ingar í sjó væru gerðar í samráði við Hafrannsóknastofnun. Hópar jarðvísindamanna eru svo staðsettir á landi, á línu sem liggur þvert yfir landið, frá Mið- suðurlandi, norður og austur í Vopnafjörð. Einnig liggur armur norður á Melrakkasléttu. Og þar sem hóparnir eru dreifðir svo viða um hálendið, eru tilkynning- ar til þeirra um framkvæmd sprenginganna lesnar i útvarpi frá miðstöð þessara rannsókna i Sigöldu. Hópurinn er mjög stór, margir tugir manna, sem að þessu vinna. — Tilgangurinn er i stuttu máli sá að afla upplýsinga um gerð og eðli berglaga undir Miðatlants- hafshryggnum, útskýrði Guð- mundur Pálmason. Það er gert með því að senda jarðskjálfta- bylgjur frá sprengingu niður í jörðina og með móttöku á þessum bylgjum á ýmsum stöðum á yfir- borðinu, og með því að mæla út- breiðslu, tíma og styrkleika. Þá er hægt að draga af þvi ályktanir með hvernig útbreiðsluhraði þessara bylgna breytist með dýp- inu. Grundvallarupplýsingarnar eru semsagt útbreiðsluhraði í berglögum á mismunandi stöðum og á mismunandi dýpi. Þær má nota til að draga ályktanir um gerð bergsins, með því að bera þær saman við svipaðar niður- stöður, sem fyrir liggja annars staðar á jörðinni, bæði á megin- löndum og sjávarbotni, svo og undir öðrum hlutum miðúthafs- hryggjanna. Það sem einkennir þessar mælingar hér nú, er að þær ná dýpra en aðrar mælingar, sem hér hafa verið gerðar með sprengingum. — Allt er þetta þáttur i rann- sóknum á Miðatlantshafshryggn- um. Island hefur þá sérstöðu á þessum hrygg, að vera ofansjávar. Þvi er að mörgu leyti auðveldara að rannsaka hann hér en á sjávar- botni. Þýðing mælinga hér á landi er kannski einkum í þvi fólgin, að þær sameina rannsóknir undir landinu sjálfu og rannsóknir á hryggnum, þar sem hann er neð- ansjávar. Það gerir aðstæðurnar sérstæðar hér og áhugaverðari. Beinn hagnýtur árangur er kannski ekki svo augljós, en þó geta allar upplýsingar, sem fást, hjálpað okkur til að túlka það sem er á minna dýpi lika. Það sem við erum að fást við vegna nýtingar á jarðhita er á nokkurra km dýpi, en þarna er um að ræða tugi kíló- metra dýpi. Vísindahópar á hálendinu Er bleyta i garðinum? Vatnsþrýstingsmyndun getur ótrúlega auðveld í notkun. valdið því að jarðvatn komist Vegna gormlögunar er auðvelt í múr. að beygja þau. VATNSVIRKINN vekur athygli á sænskri gæðavöru, sem bægir frá slíkri hættu: Lubonyl ræsilögnum. Lubonyl rörin til ræsilagna eru úr PLASTI. Þau eru létt og Lubonyl rörin til ræsilagna eru enn ein gæðavaran, sem VATNSVIRKINN býður viðskiptamönnum sínum. Vöruvöndun, þekking og þjónusta byggð á 25 ára reynslu. Vatnsvirkinn hf. Ármúla 21 - Sérverzlun með efnivörur til pípulagna sr Morgunbiadio óskareftir bladburdarfólki AUSTURBÆR KÓPAVOGUR VESTURBÆR Selvogsgrunnur Hávegur, Granaskjól Samtún Víðihvammur. Melhagi UPPL ÝSINGAR ÍSÍMA 35408 SU0UR VESTUR Þetta skemmtilega flekahús er til sölu Húsið er u.þ.b. 110 fm og er með öllum innréttingum, rafmagnslögn og vatnshitalögn- um. Húsið er tilbúið til flutnings. Uppl. í síma 43829.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.