Morgunblaðið - 20.07.1977, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JULl 1977
Spánarstjóm
herðir verð-
lagseftirlit
Góðir litir gleðja augað. Falleg
áferð og frábær ending Hrauns,
húsamálningarinnar frá Málningu
h.f., hefur stuðlað að vinsældum
hennar. Enda margfaldaðist salan
á s.l. ári.
Hraun hefur sýnt og sannað fram-
úrskarandi eiginleika; — við höf-
um dæmi um rúmlega 10 ára end-
ingu. Hraun er sendin akrýlplast-
málning, sem sparar vinnu: Betri
ending og færri umferðir. Ein um-
ferð af Hrauni jafngildir þrem um-
ferðum af venjulegri plastmáln-
ingu.
Nú bjóðum við ennþá meira litaúr-
val í Hrauni en áður. Lítið á lita-
kortið og fáið allar upplýsingar hjá
umboðsmönnum okkar.
HRAUN
SENDIN AKRÝLPLASTMÁLNING
málninghlf
vöru og þjónuslu hannaóar næstu
þrjá mánuði ncma að því er tekur
til aukins framleiðslukostnaðar.
Hefur stjórninni verið veitt heim-
ild til að ráða aukinn mannafla til
að hafa eftirlit með verðhækkun-
um, og seljendum vöru og þjón-
ustu verið gert skylt að skila
reglulega skýrslum til viðskipta-
málaráðuneytisins um kostnaðar-
aukningu.
Adolfo Suarz forsætisráðherra
hefur að undanförnu rætt við
leiðtoga stjórnarandstöðunnar
um leiðir til að koma í veg fyrir
átök á vinnumarkaði vegna verð-
hækkana, sem óhjákvæmilegar
eru í kjölfar gengislækkunarinn-
ar á dögunum og annarra efna-
hagsráðstafana stjórnarinnar, en
þess sjást nú ýmis merki, að
vinstri öflin innan verkalýðs-
hreyfingarinnar séu farin að
hugsa sér til hreyfings.
Verkalýðsleiðtoginn Marcelino
Camacho sem er i flokki
kommúnista, lýsti því yfir í gær,
að gengislækkunin mundi leiða til
lakari lífskjara og aukins atvinnu-
leysis, og spáði „heitu hausti“ ef
ríkisstjórninni tækist ekki að
hafa hemil á verðhólf>iinni
Landamæravörður
skaut félaga sinn
Bonn, 19. júlf. Reuter.
AUSTUR-þýzka stjórnin
hefur gefið út handtöku-
skipun vegna landamæra-
varðar, sem skaut starfs-
bróður sinn áður en hon-
um tókst að flýja yfir
landamærin til Vestur-
Þýzkalands í síðustu viku.
Er landamæravörðurinn
sakaður um manndráp, og
hefur hann tjáð v-þýzku
lögreglunni að slysaskot
hafi hlaupið úr byssu hans.
Hafi hann örvænt er hann varð
þess var að annar landamæra-
vörður hafði orðið fyrir skotinu
og ekki séð annan kost vænni en
að flýja yfir landsmærin.
Saksóknarinn í Kassel í V-
Þýzkalandi, sem hefur málið til
meðferðar, segir að landamæra-
vörðurinn, sem er tvítugur að
aldri, verði hafður í haldi meðan
á rannsókn standi.
Adolfo Suarez ásamt ráðuneyti sínu á fyrsta ríkisstjórnarfundinum fyrr í mánuðin-
um.
sölumet,
fleiri litir
Rússar hóta stöðvun
Belgrad-ráðstefnu
Belgrad, 19. júlf. Reuter.
RUSSAR sögðu að ekkert gæti
orðið af framhaldi Helsinkiráð-
stefnunnar í haust á undirbún-
ingsfundinum f Belgrad f dag
nema þvf aðeins að Vesturveldin
gengju að kröfu kommúnista-
ríkjanna um að ákveðið yrði
hvaða dag ráðstefnunni lyki.
Vestræn rfki og hlutiaus hafa
hingað til neitað að ganga að þess-
ari kröfu, en heimildir á ráðstefn-
unni segja að ekki megi Ifta á
viðvörun Rússa sem hótun. Hún
kom fram f einkaviðræðum sem
sovézki aðalfulltrúinn, Yuli
Vorontsov, átti við fulltrúa
ýmissa landa á ráðstefnunni.
Vestrænn fulltrúi sagði að
Vesturveldin mundu ekki láta
undan. Hann kallaði ummælí
Vorontsov sálfræðilegt herbragð
sem væri til þess ætlað að valda
taugaóstyrk í von um að fá fram
tilslakanir.
Fulltrúi frá hlutlausu landi
sagði að ekkert benti til þess að
Rússar og bandamenn þeirra aðr-
ir en Rúmenar mundu falla frá
kröfu sinni. Vestræn og hlutlaus
riki telja að tímamörk geti komið
i veg fyrir nákvæma könnun á
framkvæmd Helsinki-
yfirlýsingarinnar um slökun f
sambúð austurs og vesturs og
mannréttindi og ítarlegar umræð-
ur um framtíðarráðstafanir.
Pólverjar lögðu til fyrir hönd
kommúnistaríkjanna á laugardag
að störfum ráðstefnunnar lyki 31.
desember i síðasta lagi.
Útivinnandi kon-
um hætt við skalla
og skeggvexti
- segir brezkur læknaprófessor
Lundúnum, 19. júlf AP.
BREZKUR læknaprófessor f
Cambridge, að nafni Ivor Hill,
heldur þvf fram, að ungar og
framgjarnar konur verði í
auknum mæli fórnarlömb
streitu, auk þess sem æ algeng-
ara verði að þeim spretti grön
og aukist hárvöxtur á bringu.
Þá heldur Mills þvf fram, að
konur sem starfi utan heimilis
eigi það á hættu að verða sköll-
óttar og megi jafnframt eiga
von á þvf að kynorka þeirra
aukist til muna.
Prófessorinn hefur undanfar-
in 14 ár rannsakað breytingar á
hormónastarfsemi útivinnandi
kvenna, og skýrir frá niðurstöð-
um sínum í nýjasta tölublaði
vikuritsins „Woman’s Own“.
Hann segist enn ekki hafa kom-
izt að raun um hvort þessi rösk-
un á hormónastarfseminni eigi
rót sína að rekja til þess að
karlhormónum fjölgi í um-
ræddum hópi kvenna eða kven-
hormónum fari fækkandi við
aukið vinnuálag, en hvetur kon-
ur til að hafa hægt um sig og
unna sér hvildar um leið og
þær finna til streitueinkenna
eins og svefnleysis, veAfælni
og taugaæsings. Um leið beinir
hann því til eiginmanna að þeir
létti undir með konum sínum
innan stokks og taki aukinn
þátt í heimilisstörfum.
>1 adríd. 19. júlf. Reufer.
STJORN Spánar herti í dag verð-
lagseftirlit, og verða hækkanir á
Etnugos
færist
í aukana
Sikílev. 19. júlí. Reuter.
ETNUGOSIÐ, sem hófst á laugar-
daginn var, hefur nú færzt mjög í
aukana, en yfirvöld á Sikiley
segja að byggð og ræktað land á
eynni séu ekki i yfirvofandi
hættu. Etna spýr nú eldi, brenni-
steiní og eiturgufum, og er hraun-
rennsli talsvert. ' Gosmökkurinn
ris mörg hundruð metra í loft
upp, og hafa ferðamenn verið
varaðir við að vera á ferli í nám-_
unda við gosstöðvarnar. Gifurleg-
ar sprengingar í fjallinu heyrast
víða vegu, og töldu vísindamenn
til dæmis tuttugu sprengingar á
einni minútu i dag.
Síðast gaus Etna fyrir tveimur
árum.