Morgunblaðið - 20.07.1977, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.07.1977, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JULl 1977 SÆNSKIR Ellert B. Scram KNATTSPYRNU- Islenzka landsliðið á æfingu f fyrrakvöld. Þeir Albert Guðmundsson og Arni Sveinsson hlýða á útskýringar landsliðsþjálfarans, Tony Knapp, ásamt Herði Hilmarssyni, en á bak við þá eru þeir Guðmundur Þorbjörnsson og Teitur Þórðarson að ræða saman. TEKST ÍSLENDINGUM AÐ STANDAST SNJÖLLU SÆNSKU LIÐISNÚNING í KVÖLD? TEKST fslenzka landsliðinu að standast hinu snjalla sænska landsliði snúning, er liðin mætast á Laugardalsvellinum f kvöld? Þessi spurning brennur ugglaust flestum knattspyrnuunnendum f huga, en gffurlegur áhugi virðist rfkjandi á leiknum og er því búizt við miklum fjölda áhorfenda á Laugardalsvöllinn í kvöld. Er það að vonum, þar sem þetta er síðasti landsleikurinn sem lslendingar leika á heimavelli í sumar og auk þess hefur árangur landsliðsins f sumar verið þannig að hann gefur tilefni til bjartsýni, jafnvel þótt vitað sé að andstæðingarnir séu mjög sterkir. Islenzka landsliðið var á æfingu á Kaplakrikavellinum í Hafnar- firði f fyrrakvöld og hélt að henni lokinni austur á Þingvöll, — æfði liðið sfðan á Laugarvatni f gær, og mun einnig hafa tekið létta æf- ingu f morgun. Sænsku landsliðsmennirnir æfðu á Laugardalsvellinum f gær- morgun og var auðséð á tilburð- um leikmannanna, að þar eru mjög leiknir og góðir knatt- spyrnumenn á ferð. Greinilegt er að Svfar óttast Is- lendinga í leiknum f kvöld, og hefur sænski landsliðsþjálfarinn „Aby“ Ericson látið hafa það eftir sér, að Islendingar muni verða mjög erfiðir mótherjar og hefur hann varað Svfa við of mikilli bjartsýni á úrslit leiksins. Svíarnir hafa þegar tryggt sér rétt til þátttöku f lokakeppni heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu í Argentínu, og segir það nokkuð til um styrkleika þeirra. Einnig má vitna til þess að þeir urðu í sjötta sæti í síðustu heimsmeistarakeppni, og var það almennt álit þeirra er með þeirri keppni fylgdust að þeir hefðu verið óheppnir að ná ekki enn lengra. tslendingar verða því örygglega að taka á öllu sínu f leiknum í kvöld, og er vonandi að áhorfend- ur leggi piltunum ærlegt lið og láti ÁFRAM ISLAND hljóma kröftuglega á vellinum. GLÆSILEG TILÞRIF SKOTANNA SKOZKU atvinnumennirnir i golfi, sem tóku þátt í hinni svokolluðu Vikingakeppni sem fram fór á Grafarholtsvellinum i fyrrakvöld, fóru oft á kostum i keppninni, og sýndu áhorfendum hæfni sina. Var þar Jim Farmer fremstur i flokki en hann lék á samtals 139 höggum, var þremur höggum á undan næsta manni sem var Ronnie Shade. Þriðji i keppninni varð svo David Huish sem lék á 143 höggum, en hann lék síðari hringinn stórkostlega vel, eða á 68 höggum — aðeins einu höggi frá vallarmetinu i Grafarholti. Margt var það hjá atvinnumönn unum sem vakti sérstaka athygli en þó ekki hvað sizt hraði þeirra i keppninni. Þeir töfðu t.d. ekki lengi við að reikna út „pútt" sín, heldur slógu strax og oftast með góðum árangri. Þá vöktu feyknalöng teig skot þeirra einnig mikla athygli, þeirra fjölmörgu áhorfenda sem fylgdust með keppninni i fyrrakvöld. Átta íslenzkir kylfingar tóku þátt í keppninni í fyrrakvöld. og léku þeir allir ágætlega og tókst að sigra nokkra af atvinnumönnunum. Þar var íslandsmeistarinn Björgvin Þor- steinsson frá Akureyri fremstur i flokki, en hann varð i fimmta til sjötta sæti, lék á 75—75 eða sam- tals 150 höggum. Sigurður Thorar- ensen lék á 151 höggi, Július V. Júliusson á 152 höggum, Ragnar Ólafsson á 1 54 höggum, Geir Svans- son á 155 höggum, Magnús Hall- dórsson á 157 höggum, Þorbjörn Kjærbo á 164 höggum og Sigurður Pétursson á 1 66 höggum. Eins og áður hefur verið skýrt frá kepptu golfmennirnir skozku um peningaverðlaun i móti þessu og var Farmer „tekjuhæstur" þeirra, vann sér inn samtals 123 þúsund, auk þess sem honum var færður hinn fallegasti skinnfeldur að gjöf. JOFRAR 'Þegar litið cr til þess að Is- lcndingar hafa verið aðilar að nánu samstarfi Norðurlanda á sviði knattsp.vrnunnar um hart- nær þrjátfu ára skeið, þá vekur það nokkra athygli, að Island — Svíþjóð hafa aðcins leikið þrjá A-landsleiki fram að þessu. Og það liðu nær 20 ár milli annars og þriðja lciksins, eða frá 1954 til 1973. A sama tfma hefur tsland leikið 19 landslciki gegn Noregi og 10 leiki gegn Dönum. Nú hefur það ekki verið vegna þess að áhuga hafi skort af okkar hálfu. Hitt er nær sannt, að Svfar hafa löngum verið tregir til nánara sam- starfs. Þar veldur sjálfsagt mestu, að sænska landsliðið hefur haft öðrum hnöppum að hneppa en að leika vináttuleiki gegn þjóðum, sem ekki hafa mátt sfn mikils í keppni gegn þeim. Svfar hafa um langan aldur teflt fram landsliði, sem verið hefur f fremstu röð f hciminum. Fræg var frantmi- staða þeirra f heimsmeistara- keppninni 1958, þegar þeir komust f úrslit gegn Brasilfu og hrepptu annað sætið. Sömuleið- is náðu Svfar frábærum árangri f heimsmeistarakeppninni f Þýzkalandi 1974 og urðu þá nr. 6. Nú þegar hafa Svfar svo gott sem tryggt sér sæti f loka- keppni heimsmeistarakeppn- innar f Argentfnu næsta ár, og eru fyrsta evrópska liðið sem það gerir. Svfar hafa borið höfuð og herðar yfir aðrar Norðurlanda- þjóðir í knattspyrnu og það telst til meiriháttar tfðinda ef Dönum eða Norðmönnum tekst að sigra þá. Þetta er engin til- viljun. KnattSpyrnan f Svfþjóð er mjög þróuð. Mikil áherzla er lögð á að rækta upp þann mikla áhuga sem fyrir knattspyrnu- íþróttinni er f þvf landi og geysigott skipulag er á öllum málum, ekki sfzt unglingaþjálf- un- og kcppni. Svfar eru rfk þjóð og nýtur knattspyrnan góðs af þvf. Þeir hafa lagt niður allt sem heitir áhugamennska f knattspyrnu og taka ekki þátt f Olympfuleíkum, þar sem þeir viðurkenna hreinskilnislega að leikmenn fái greitt fyrir keppni. Athyglisvert er að sænska rfkið sparar ekki fé til fþrótta- hreyfingarinnar þar f landi, og mun árlegt rekstrarframlag rfkissjóðs nema um 110 millj. s. kr. eða 5 milljörðum ísl. króna. Framlag rfkissjóðs til reksturs fslenzku fþróttahreyfingarinn- ar er kr. 32 milljónir. Svfar hafa löngu gert sér Ijóst, að fé til íþróttanna skilar sér rfflega aftur, —• f betri æsku, mikilli auglýsingu fyrir land og þjóð — og f beinhörðum peningum. Sænskt fþróttafólk er vfða f fremstu röð. Allir þekkja skfða- kappann og hcimsmeistarann Ingimar Stenmark, hncfaleika- kappann Ingimar Johansen og hinn krýnda konung tennisins Björn Borg, svo einhverjir séu nefndir. Þrátt fyrir þessa upptalningu og orðstfr sænskra knatt- spyrnumanna, er ástæðulaust að bera neina minnimáttar- kennd fyrir þeim. Satt að segja gefst nú gott tækifæri, til að leiða Svfunum fyrir sjónir, að Islendingar eru verðugir mót- herjar og erfiðir heim að sækja. Sænsku landsliðsmennirnir á æfingu á Laugardalsvellinum. Til dæmis með tveimur teskeiðum af kaffihæti á niéti sex matskeiðum af kaffi í einum litra af vatni. Ef þú ert einn af þeim, sem aldrei færð nóg af kaffi, sem er mátulega sterkt og gott, þá getur verið gott að vita af EUDVKÍ DAVID kaffihæti. Með Ll DV;IG DAVID kaffihæti hlandarðu kaffið eftir þínum eigin sniekk - og sparar um leið! Það fer ekki mikið fyrir Ll DVIG DAVID í litlu plastpokunum, - en hann levnir á sér! KAFFIBÆTISVERKSMIÐ.IA Ó. JOHNSON & KAABER H.F.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.