Morgunblaðið - 20.07.1977, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.07.1977, Blaðsíða 31
« MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JULI 1977 31 FH-stúlkur unnu Val 1:0 FH VANN Val í 1. deild kvenna I knattspyrnu á Mela- vellinum I gærkvöldi með einu marki gegn engu. Standa FH- stúlkurnar og lið Breiðabliks nú bezt að vlgi í deildinni, en lið Vals, sem byrjaði mjög vel, virðist vera að missa af strætó. Jón ógnar íslandsmeti Þorsteins Borgfirðingurinn Jðn Dið- riksson nálgast nú óðfluga Is- landsmet Þorsteins Þorsteins- sonar í 800 metra hlaupi. A móti í Kassel f V-Þýzkaiandi á laugardaginn hljóp Jón þessa vegalengd á 1:50,7 mín., en Is- landsmet Þorsteins í greininni er 1:50.2. Sigraði Jón í þessu hlaupi og annar varð Gunnar Páll Jóakimsson á 1:51.5, sem er hans langbezti tími. Vil- mundur Vilhjálmsson hljóp 400 metra hlaup á þessu móti og fékk tímann 48.36. Þorvald- ur Þórsson hljóp á 51.2 1 400 metra grindahlaupi á móti annars staðar í Þýzkalandi hljóp Þorvaldur Þórsson 400 metra grindahlaup á 55.7. Ág- úst Ásgeirsson er með þeim félögum í Þýzkalandi, en er tognaður á fæti. Vilmundur keppir í kvöld og mun þá eflaust reyna að hnekkja metinu í 100 metra hlaupi. Magnús Þorvaldsson I harðri baráttu við Sigurð Friðjónsson f leiknum f gærkvöldi. ( Ljósm. Friðþjófur). Barningur hjá Vík- ingum gegn vel leik- andi Norðfirðingum VlKINGAR voru vissuiega sterkari aðilinn gegn Þrótti frá Neskaupstað f 16 liða úrslitum bikarkeppninn- ar á Laugardalsvellinum f gærkvöldi. Sigruðu Vfkingar Ifka f leiknum, en munurinn var minni en búast hefði mátt við fyrir leikinn. Skoruðu Víkingar tvfvegis, en Þróttarar svöruðu einu sinni og var það sannkallað draumamark Njáls Eiðssonar, sem sendi knöttinn með þrumuskoti af um 20 metra færi f bláhorn marksins uppi — óverjandi. Trúlega hafa Víkingar haldið að sigurinn í þessum leik yrði auðfenginn, en annað kom á dag- inn, Þróttarar gáfu ekkert í leikn- um. Kom á óvart að Þróttur, sem er í þriðja neósta sæti 2. deildar skyldi standa svo mjög i Vfkings- liðinu, sem er í þriðja sæti 1. deildar. Geta Norðfirðingar verið ánægðir með knattspyrnulið sitt og með þeirri baráttu, sem liðið sýndi i gær þarf það ekki að óttast fall i þriðju deild. Liðið hefur áður leikið eins vel og í gær- kvöldi, en baráttuna hefur oft vantað þar til í gær. Vikingar voru fyrri til að skora, eftir horn Hannesar Lárussonar á 15. minútu skallaði Þór Ragnars- son knöttinn snyrtilega í netið af stuttu færi. Skömmu fyrir fyrsta markið átti Gunnar Örn hörku- skot, sem smaug yfir þverslá. Þróttarar náðu að jafna á 21. mín- útu er Njáll Eiðsson skoraði með draumamarkinu og í fyrri hálf- leiknum munaði litlu að Þróttur kæmist yfir er liðið átti gott skot í stöng. Reyndar áttu Víkingar lika stangarskot í fyrri hálfleiknum áður en Hannes Lárusson breytti stöðunni 12:1 á 43. mínútu. Komst hann inn í sendingu frá Magnúsi Jónatanssyni, sem ætluð var markverði og skoraði Hannes lag- lega í tómt markið af stuttu færi. I seinni hálfleiknum áttu liðin fá tækifæri, Víkingar sóttu mun meira, en Þróttarar náðu nokkr- um góðum samleiksköflum upp undir vitateig Víkinga. Bezta færi hálfleiksins átti Gunnar örn er hann skallaði knöttinn þéttings- fast í þverslá, en þaðan fór bolt- inn niður á marklínuna og hætt- unni var bægt frá. Víkingar virðast hafa fallið i þá gryfju að vanmeta mótherjann að þessu sinni og náðu þeir aldrei neinum yfirburðum í leiknum. Beztu menn liðsins voru Eiríkur og Gunnar Örn, en Hannes átti góða spretti, þó hann væri iðulega of seinn að losa sig við knöttinn. Beztur í liði Þróttara að þessu Framhald á bls. 18. PALLVAR HETJA ÞROTTARA ÞAÐ MA segja að Þróttarar séu komnir með annan fótinn f 1. deild, eftir góðan sigur ýfir Ár- menningum á mánudagskvöld. Páll Ólafsson var hetja leiks- ins, skoraói öll fjögur mörk Þróttar, og þrátt fyrir að spila á malarskóm á hálum og blaut- um Laugardalsvellinum gekk honum betur að fóta sig en varnarmönnum Armanns. Fyrsta mark leiksins kom eft- ir rúmlega stundarfjórðungs leik, varnarmaður Ármanns rann á hálum vellinum og þar var Páll Ölafsson kominn og skoraði með góðu skoti frá vita- teigslinu. Annað markið kom á 30. mín. eftir góða fyrirgjöf á Pál, þar sem hann var kolrang- stæður, en hvorki dómari né línuvörður höfðu neitt við mark Páls að athuga 2—0. Þriðja og síðasta mark hálf- leiksins kom á 43. min. og auð- vitað var Páll þar að verki, skaut góðu marki á mark Ár- manns, Ögmundur varði en boltinn hrökk í Pál og inn. Þannig var staðan í leikhléi 3—0. I siðari hálfleik var það sama sagan Þróttarar sóttu mun meira og voru mun betri aðil- inn á vellinum, þrátt fyrir það tókst þeim aðeins að senda knöttinn einu sinni í mark Ár- menninga. Það gerðist undir lok leiksins. Páll fékk góða sendingu þar sem hann stóð óvaldaður fyrir framan markið og það var ekki sökum að spyrja, inn fór boltinn 4—0. Þannig urðu lokatölur leiksins, Framhald á bls. 18. STAÐAN Staðan f 2. landsmótsins nú þessi: Þróttur, R Haukar KA Ármann Reynir, S 1B1 Völsungur Selfoss Reynir, A deildar keppni Is- f knattspyrnu er 10 8 1 10 5 5 7 6 4 4 2 2 10 0 1 23:9 17 0 17:6 15 2 23:14 15 18:10 15:17 13:15 8:15 7:15 7:24 13 10 10 6 6 1 ENN TAPA SELFYSSINGAR LIÐ Reynis f Sandgerði sem í fyrra vann sig upp úr 3 deild f knattspyrnu, ætlar að spjara sig með ágætum í 2. deildar keppninni í ár. 1 fyrrakvöld vann liðið 2:0 sigur yfir Selfyssingum á Selfossi, og hef- ur Reynir þar með tryggt stöðu sína í deildinni bærilega, en Selfyssingar eru hins vegar orðnir næst neðstir í deildinni og verða að taka sig verulega á, ef ekki á illa að fara hjá þeim. Leikurinn á Selfossi var þokkalega leikínn af báðum liðum, einkum þó Reynisliðinu, sem hafði jafnan undirtökin í leiknum og náði öðru hverju ágætum leikköflum. Náði Reyn- ir fljótlega forystu í leiknum og var aðdragandi marks þess sá, að varnarmenn Selfoss voru að leika með knöttinn sín á milli skammt frá marki, er Jóni Guð- manni tókst að komast inn í sendingu hjá þeim og skoraði hann síðan örugglega. í seinni hálfleik bættu Reynismenn siðan öðru marki við. Eftir hornspyrnu og háloftabardaga um knöttinn tókst Jöni Guðmanni að skalla knöttinn yfir markvörð Selfyssinga. Bæði liðin áttu þokkaleg marktækifæri i leiknum, eink- um þó Sandgerðisliðið, en fleiri urðu mörkin ekki. JAFNT I MINNINGARLEIKNUM I FYRRAKVÖLD fór fram á Akureyri hinn árlegi minning- arleikur um Jakob heitinn Jakobsson. Kom 1. deildar lið Fram norður og keppti við KA, en Jakob sem fórst I bílslysi fyrir allmörgum árum, var félagi í KA. Leikurinn á Akureyri í fyrra- kvöld var hinn skemmtilegasti á að horfa, bæði liðin léku vel og prúðmannlega. KA hafði betur i fyrri hálfleik og sótti þá oft stift að marki Framara. Uppskeran varð líka tvö mörk, hið fyrra skoraði Öskar Ingimundarson, en hið síðara Jóhann Jakobsson, bróðir Jakobs heitins. I seinni hálfleiknum snérist taflið hins vegar við. Nú voru það Framarar sem sóttu af ákveðni og tókst þeim að jafna. Fyrst skoraði Kristinn Jörunds- son með skalla eftir horn- spyrnu, en undir lokin skoruðu Framarar annað mark sem nokkuð var umdeilt. Virtist knötturinn þá sigla í mark Akureyrarliðsins, eftir innkast, án þess að nokkur leikmaur kæmi við hann. AFTUR TAP HJA DRENGJUNUM ISLENZKA drengjalandsliðið ( knattspyrnu tapaði öðrum leik slnum f Norðurlandamótinu I gærkvöldi. Mættu þeir þá Þjóðverjum, sem unnu 4:2. I fyrrakvöld léku drengirnir gegn Norðmönnum og töpuðu þá 1:2. Sfðasti leikur ferðarinnar verður gegn Finnum á föstudaginn og er hann um 5. sætið f keppninni. Eftir 5 minútur skoruðu Þjóð- verjarnir fyrsta mark sitt í leikn- um eftir mistök tslendinganna og á 25. mínútu kom annað gjafa- mark, þannig að staðan var orðin 2:0. Jón Þór Brandsson minnkaði muninn i 2:1 á 28. minútunni eftir þunga sókn Islands, en 5 minút- um siðar skoruðu Þjóðverjarnir glæsilegt mark. Þeir juku muninn í 4:1 á 11. mínútu seinni hálfleiks- ins, en Ómar Jóhannsson gerði annað mark Islands á 35. mínútu hálfleiksins úr vítaspyrnu, eftirað gróflega hafði verið brotiðá Arn- þóri Guðjohnsen. Urslitin urðu þannig 4:2 fyrir Þýzkaland. Beztir i islenzka liðinu voru þeir Heimir Karlsson, Arnór Guðjohnsen og Sæbjörn Guðmundsson, en Benedikt og Jón Þór komust einnig vel frá sínu. Dómari leiksins i gærkvöldi var mjög slakur og tók linlega á gróf- um brotum Þjóðverjanna, að sögn Hilmars Svavarssonar. Sagði hann að Norðmenn og Svíar hefðu þakkað mikið fyrir að fá ekki þennan dómara i sinn leik, en Sviar unnu þá Norðmenn 2:0 — áij. „Þetta er lið sem unnt er að treysta" — ÞESSI leikur leggst mjög vel í mig, sagði Albert Guðmundsson, fyrrverandi formaður KSÍ og mesta knatt- spyrnustjarna fslend- inga fyrr og síðar, er Morgunblaðið bað hann að segja sitt álit á iands- leiknum við Svía í kvöld. — Ég er sannfærður um að íslendingar tefla nú fram mjög sterku liði, sínu bezta, og það gera Svíarnir einnig. Þeir koma áreiðaniega hingað með sitt bezta lið. — Veikir það ekki íslenzka liðið að atvinnumennirnir leika ekki með? — Að minu áliti er svo ekki, sagði Albert, — islenzkir knatt- spyrnumenn eru orðnir það Albert Guðmundsson. Albert Guðmunds- son um lands- leikinn í kvöld: góðir að óhætt er að treysta þeim mönnum sem í liðið eru valdir, öllum eins. Ég sé ekki getumun á leikmönnum okkar hér heima og þeim sem leika erlendis, að öðru leyti en þvi að atvinnumennirnir hafa auðvit- að meiri leikreynslu. — t islenzka landsliðinu eru nú mjög leiknir strákar, sagði Albert, — þeir leika hraða og góða knattspyrnu og ef þeir trúa þvi sjálfir að þeir séu betri en Sviarnir, eins og ég held að þeir séu, þá verður þetta örugg- lega góður leikur fyrir þá og þær þúsundir áhorfenda sem eflaust streyma á Laugardals- völlinn í kvöld. Okkar lið hefur sýnt að undanförnu að það er á sigurgöngu og ég hef þá trú að hún verði ekki stöðvuð i kvöld, jafnvel þótt andstæðingarnir séu Sviar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.