Morgunblaðið - 28.07.1977, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JULl 1977
Hrauneyjafoss-
virkjun boðin út
„SAMKVÆMT orkuspá
Landsvirkjunar veröur
fyrri vél Hrauneyjarfoss-
virkjunar að taka til starfa
í síðasta lagi árið 1982“.
Þannig segir m.a. í frétta-
tilkynningu frá Lands-
virkjun, en útboða í virkj-
unina verður leitað innan
skamms. Útboðsgögn fyrir
tvær 70 mw vélasamstæður
með tilheyrandi útbúnaði
verða látnar væntanlegum
bjóðendum í té frá og með
2. ágúst nk. og ráðgert er
að útboð á byggingavinnu
fari fram á næsta vetri.
Fréttatilkynning Lands-
virkjunar fer hér á eftir:
Framhald á bls. 24.
Verðlagsstjóri:
Kemur til greina að
kæra ef lögbrot verða
„ÉG á nú ekki von á þvf að
mennirnir fari almennt að
brjóta lögin, en komi til þess,
þá mun verðlagsskrifstofan að
sjálfsögðu grípa til viðeigandi
ráðstafana," sagði Georg Ölafs-
son verðlagsstjóri f samtali við
Mbl. f gær, er hann var spurð-
ur, hver yrðu viðbrögð verð-
lagsyfirvalda, ef félagar f Sam-
bandi málm- og skipasmiðja og
rafverktakar færu út f það að
hafa taxta verðlagsnefndar um
hámarksverð útseldrar vinnu
að engu. Þegar Mbl. spurði
hann hvað hann ætti við með
viðeigandi ráðstöfunum svar-
aði verðlagsstjóri því þá til að
t.d. kæmi til greina að kæra
stjórnir sambandanna.
Verðlagsnefnd hefur nú
ákveðið að gefa sjálf út tilkynn-
ingar um hámarksverð seldrar
vinnustundar málmiðnaðar-
manna, bifvélavirkja og raf-
virkja.
Sjö hjálparsveitar-
menn á námskeið og
fjallgöngur í Sviss
t NÆSTU viku munu sjö félagar
úr Iljálparsveit skáta í Reykjavfk
halda til Austurríkis, Sviss og
Frakklands og dvelja þar í mán-
aðartíma. Þar munu beir m.a.
Reykjavík:
Sjö hlutu
meidsli í um-
ferðinni í gær
TVÖ slys urðu f umferðinni í
Reykjavík f gærdag. 1 öðru
þeirra var um að ræða mjög
harðan árekstur milli tveggja
fólksbifreiða á mótum Fells-
múla og Háaleitisbrautar, þar
sem flytja varð sex manns í
slysadeildina. Þar slasaðist
mest kona, sem talin var við-
beinsbrotin báðum megin og
með sprungna mjaðmargrind.
Hitt slysið varð á Reykjanes-
braut rétt sunnan brúnna yfir
Elliðaár, þar sem ekið var á 13
ára stúlku, sem þar var fót-
gangandi og mun hún hafa
lærbrotnað.
taka þátt f námskeiðum varðandi
ýmis tæknileg atriði fjalla-
mennsku, auk námskeiðs í björg-
unartækni á jöklum. Einnig ætla
þeir að klffa nokkur nafnkunn-
ustu fjöll Alpanna s.s. Matter-
horn, Eiger og Mont Blane.
Allt eru þetta reyndir fjall-
göngu- og björgunarsveitarmenn
og hafa tveir þeirra m.a. áður
tekið þátt i Alpaferðum og klifið
þar fjöll eins og Matterhorn og
Mont Blanc og tekið þátt í nám-
skeiðum i ýmsum atriðum björg-
unarsveitarstarfs. Þeir félagar
hafa æft mjög vel allt síðastliðið
ár fyrir þessa ferð og eru því
örugglega mjög vel undirbúnir.
Hjálparsveit skáta í Reykjavík
hefur gert það að árvissum at-
burði hjá sér að ýmist senda eða
styrkja félaga sveitarinnar til
námskeiðsferða erlendis i ýmsum
þáttum björgunarsveitarstarfs,
en þetta er stærsti hópur sem fer í
einu í slíka æfingarferð. Auk þess
að hafa tekið þátt í námskeiðum í
fjallabjörgun, sjúkrahjálp, stjórn-
un og námskeiðum í snjóflóða-
vörnum hafa félagar sveitarinnar
klifið nokkur nafnkunnustu fjöll
Evrópu.
Jóns Amasonar minnst
í þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins í gær
A MANAÐARLEGUM fundi
þingflokks Sjálfstæðisflokksins,
sem haldinn var I Alþingishúsinu
í gær, minntist Gunnar Thorodd-
sen, formaður þingflokksins,
Jóns hcitins Arnasonar, þing-
manns Vestlendinga og formanns
fjárveitinganefndar Alþingis,
sem lézt fyrir skömmu. Viðstadd-
ir þingmenn flokksins heiðruðu
minningu hins látna þingflokks-
bróður með því að rfsa úr sætum.
Fara orð Gunnars Thoroddsen
hér á eftir:
,,Frá því er við héldum hér
fund síðast hefur einn úr okkar
hópi fallið í valinn, vinur okkar*
Jón Árnason.
Jón var virkur maður í Sjálf-
stæðisflokknum frá unga aldri og
1959 var hann kosinn á þing.
Dugnaður hans og drengskapur
skópu honum traust og vinsældir.
Eftir að hann var kjörinn for-
maður fjárveitinganefndar Al-
þingis árið 1963 óx hann enn að
áliti. Þar nutu sín vel vandvirkni
hans og festa, samfara þeirri lip-
urð og ljúfmennsku, sem leystu
margan vanda og olli því hve
mönnum varð hlýtt til hans.
Við söknum þessa mannkosta-
manns og minnumst Jóns Árna-
sonar með virðingu og þakklátum
hug. Við sendum Ragnheiði konu
hans og öðrum ástvinum innileg-
ar samúðarkveðjur."
Llkan af Hrauneyjafossvirkjun
„Mótmæli ad sá sérfræd-
ingur sé ráðinn sem ekki
er faglega hæfur”
- segir Birgir Guðjónsson læknir
EINS OG fram hefur komið í
fréttum hefur Birgir Guðjónsson
iæknir kært ráðningu (Þórðar
Ilarðarssonar) f stöðu yfirlæknis
við lyflæknisdeild Borgarspítal-
ans og f frétt f Mbl. í gær var haft
eftir landlækni að kæra Birgis
væri byggð á röngum forsendum.
Blaðið sneri sér til Birgis Guð-
jónssonar og bar undir hann þessi
ummæli.
Birgir sagði að það sem málið
snerist fyrst og fremst um væri
það atriði hvort Þórður Harðar-
son væri sérfræðingur í lyflækn-
ingum ásamt hjartalækningum,
en með 4 ára námi verða menn
sérfræðingar annað hvort i lyf-
lækningum eða undirgreinum.
Sagði hann að skv. auglýsingu í
Lögbirtingablaðinu 16. apríl 1975
Lík Steingríms
fannst talsvert
frá slysstaðnum
hefði heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið gefið út leyfis-
bréf handa dr. Þórði Harðarsyni
til að mega kalla sig sérfræðing i
hjartalækningum og starfa sem
slíkur, og skv. læknaskrá 1976 út-
gefinni af landlækni væri Þórður
Harðarson tilgreindur sem sér-
fræðingur í hjartalækningum.
Samkvæmt þeirri sömu skrá,
sagði Birgir, er Þórður Harðarson
sá eini af 12 hjartalæknum sem
ekki væri jafnframt lyflæknir
Samkvæmt 5. grein læknalaga nr.
80 frá 1969 segir að enginn læknir
megi kalla sig sérfræðing nema
hann hafi leyfi ráðherra:
— „Læknir á rétt til að kalla sig
sérfræðing, ef hann sannar fyrir
læknadeild háskólans, að hann
hafi lokið tilskildu sérfræðinámi
og landlæknir mælir með leyfis-
veitingunni.“
í álitsgerð landlæknis, sagði
Birgir, segir orðrétt um umsækj-
endur: Ailir eru þeir viðurkennd-
ir sérfræðingar í lyflækningum,
ásamt einni undirgrein.“ Á fundi
læknaráðs hinn 10. nóvember ’76
þar sem fjallað var um stöðuveit-
inguna var spurt hvort Þórður
hefði öðlast viðurkenningu í lyf-
lækningum til viðbótar viður-
kenningu í hjartalækningum.
Formaður stöðunefndar lækna-
ráðsins svaraði því til að hann
vissi ekki betur en að Þórður væri
einnig sérfræðingur i lyflækning-
um. Þarna hefur því tvisvar verið
haldið fram að Þórður væri sér-
fræðingur i lyflækningum ásamt
hjartalækningum.
Þá vitnaði Birgir Guðjónsson
aftur til læknalaganna þar sem
segir í 15. grein: Hvers konar
skottulækningar eru bannaðar
hér á landi. Það eru skottulækn-
ingar: ef læknir sem ekki hefur
sérfræðingsleyfi kallar sig, aug-
lýsir sig eða gefur á annan hátt í
skyn að hann sé sérfræðingur og
gildir hið sama um sérfræðing ef
Framhald á bls. 24.
Stjórn Borgarspítalans:
Ekki ástæða til
ad endurskoða
stöðuveitínguna
Steingrlmur Guðjónsson.
LlK Steingrfms Guðjónssonar,
sem féll útbyrðis úr gúmbát við
Purkey á Breiðafirði sfðastliðinn
mánudag, fannst sfðdegis f gær.
Höfðu straumar borið líkið tölu-
vert frá slysstað er leitarbátur
fann það. Leitarflokkar frá Ólafs-
vfk, Stykkishólmi og Akranesi
leituðu Steingrfms.
Steingrímur heitinn var
sjötugur að aldri, til heimilis að
Bárugötu 6 í Reykjavik.
Dieselolía
hækkar um
eina krónu
1 dag hækkar dieseiolfa á
bifreiðar um eina krónu. Er
þessi hækkun tilkomin vegna
kauphækkana hér innanlands.
STJÓRN Borgarspftalans fjallaði
á fundi sínum f gær um bréf
Birgis Guðjónssonar læknis, þar
sem hann kærir ráðningu Þórðar
Ilarðarsonar f stöðu yfirlæknis
lyflæknisdeildar við Borgar-
spftalann. Samþykkti stjórn spft-
alans á fundi sfnum greinargerð,
sem f dag verður send borgarráði
UM 60 rafvirkjar hjá Rafmagns-
veitum rfkisins eru nú í verkfalli
hjá Rafmagnsveitum rfkisins og
sagði Kári Einarsson hjá RARIK
í gær að verkfall þeirra hefði
hægt verulega á eða lamað ýmsar
framkvæmdir á vegum stofnunar-
innar. — Verkfall þeirra kemur
einkum niður á uppsetningu raf-
búnaðar í orkuverum og aðveitu-
stöðvum og lögnum f innanbæjar-
kerfum, sagði Kári Einarsson.
og borgarlögmanni. Sagði Haukur
Benediktsson, framkvæmdastjóri
Borgarspftalans, f gærkvöldi að
kjarni þeirrar greinargerðar væri
að stjórn spítalans sæi ekki
ástæðu til að endurskoða stöðu-
veitinguna. — Ekkert hefur kom-
ið fram, sem réttlsdtir slfkt, sagði
Ilaukur Benediktsson.
Þær aðveitustöðvar, sem hér
um ræðir eru e-inkum vegna
Norðurlinu, en einnig á Austur-
landi og á Patreksfirði. Ekki eru
allir rafvirkjar i verkfalli hjá Raf-
magnsveitum rikisins þvi hluti
þeirra er í Bandalagi starfsmanna
ríkis og bæja. Morgunblaðið hef-
ur fregnað að linulagningarmenn
íhugi samúðarverkfall með raf-
virkjunum, en það fékkst ekki
staðfest í gær.
Verkfall rafvirkj-
anna tefur uppsetn-
ingu rafbúnaðar