Morgunblaðið - 28.07.1977, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JULl 1977
Leikmenn í kirkjulegu
starfi á námskeiði
DAGANA 8.—10. júli var haldið
að Hólum I Hjalladal námskeið
fyrir leikmenn sem vinna að
krikjulegu starfi og mun það vera
í fyrsta skipti, sem slfkt námskeið
er haldið hér á landi. Upphaf sitt
átti námskeiðið f bókun, sem gerð
var á stjórnarfundi Prestafélags
hins forna Hólastiftis þann 10.
júní I fyrra.
Þeir sem önnuðust undirbún-
ing þess voru sr. Gunnar Gíslason,
Glaumbæ, sr. Pétur Sigurgeirs-
son, vfgslubiskup og sr. Sighvatur
Birgir Emilsson á Hólum, og var
námskeiðið byggt upp á umræðu-
hópum að loknum framsöguer-
indum.
Sr. Gunnar Gíslason ræddi störf
meðhjálpara og hringjara, sr. Pét-
ur Ingjaldsson, prófastur á Höfða-
kaupstað, flutti erindi um fjár-
hald kirkna og gerð kirkju- og
kirkjugarðsreikpinga, sr. Sigurð-
ur Guðmundsson, prófastur á
Grenjaðastað, talaði um sóknar-
nefndir og störf sóknarnefndar-
manna, kirkjugarða, umsjón
þeirra og hirðingu. Síðasta fram-
söguerindið flutti sr. Stefán
Snævarr, prófastur á Dalvik, og
ræddi hann hlutverk safnaðar-
fulltrúa.
Að loknum framsöguerindum
og hádegisverði var gengið um
Hólastað og rakti Jón Friðbjörns-
son atriði úr sögu staðarins og
kynnti.og síðan tóku umræðuhóp-
ar til starfa. A laugardagskvöldið
var kvöldvaka með ýmsu efni,
m.a. talaði Óskar Þór Sigurbjörns-
son, krikjuþingmaður frá Húsa-
vík, um kirkjuna frá sjónarhóli
leikmanns og sagði frá störfum
sioasta kirkjuþings, Eyþór
Stefánsson, tónskáld á Sauðár-
króki, las upp, æskufólk frá Siglu-
firði flutti þátt i tali og tónum og
Björn Jónsson f Bæ ræddi um
Hólastað og fleiri staði i Skaga-
firði.
A sunnudagsmorgni störfuðu
umræðuhópar áfram og eftir há-
degi var guðþjónusta í Hóladóm-
kirkju og prédikaði hr. Sigur-
björn Einarsson, biskup. Nær 50
manns víðs vegar að úr Hólastifti
sóttu námskeið þetta, og var það
mál manna að vel hefði tekizt.
Það kom meðal annars fram í
umræðunum að semja þyrfti leið-
beiningar og reglugerðir um störf
leikmanna í söfnuðunum og við
kirkjuna og láta þeim i té erindis-
bréf, einnig að breyta þyrfti eyðu-
blöðum reikninga kirkna og
kirkjugarða svo sundurliðun
tekna og kostnaðarliða yrði auð-
veldari.
Sr. Pétur Sigurgeirsson, vigslu-
biskup, stjórnaði námskeiðinu af
alkunnri glaðværð og lipurð. I lok
námskeiðsins flutti hann öllum
þakkir fyrir þátttökuna i námi og
starfi, hr. Sigurbirni biskupi fyr-
ir, að hann skyldi heiðra náms-
skeiðið með nærveru sinni, og
skólastjórahjónunum á Hólum og
starfsfólki þeirra fyrir hlýjar
móttökur og ágætan viðurgern-
ing.
Ef til vill verður síðar til þess
vitnað, að þetta fyrsta námskeið
fyrir leikmenn, sem starfa í kirkj-
unni, hafi verið vísir að endur-
reistum kirkjulegum skóla að
Hólum í Hjaltadal.
-Jón.
Afhenti trúnaðar-
bréf sín hjá EBE
GUÐMUNDUR I. Guðmundsson
afhenti hinn 25. júli sl. Roy
Jenkins, forseta framkvæmda-
stjórnar Efnahagsbandalags
Evrópu og Henri Simonet, forseta
ráðherraráðs bandalagsins,
trúnaðarbréf sín sem sendiherra
íslands hjá Efnahagsbandalagi
Evrópu.
Vefnaður
og Batik-
sýning
Vefnaður og Batiksýning
verður haldin á Loftinu
Skólavörðustíg 4, allan
ágústmánuð og verður
opin á verzlunartíma.
Batik sýnir Björg
Sverrisdóttir en vefnað-
inn sýna þær Áslaug
Sverrisdóttir, Elínbjört
Jónsdóttir, Hólmfríður
Bjartmars og Stefanía
Steinþórsdóttir. Öll verk-
in eru sérstaklega unnin
fyrir sýningu þessa.
Myndin sýnir eitt verk-
anna á sýningiinni.
Meðal gesta á Skálholtshátfð voru forsetahjónin, dr. Kristján Eld-
járn og frú Ilalldóra Eldjárn.
Fjölmenni á
Skálholtshátíð
MIKIÐ fjölmenni sótti
Skálholtshátíðina, sem
var s.I. sunnudag og að
sögn Sveinbjörns Finns-
sonar voru á fjórða
hundrað manns við
messu og nutu veðurblíð-
unnar þennan sumardag.
í messunni söng Skál-
holtskórinn undir stjórn
Glúms Gylfasonar og við
undirleik Ilarðar Áskels-
sonar og einnig léku þeir
Lárus Sveinsson og Snæ-
björn Jónsson á tompet.
Hr. Sigurbjörn Einars-
son biskup og sr. Guð-
mundur Óli Olafsson
þjónuðu fyrir altari og
sr, Heimir Steinsson
prédikaði. Á samkomu
síðdegis flutti mennta-
málaráðherra ræðu og
Manuela Wiesler og
Helga Ingólfsdóttir léku
sónötur fyrir flautu og
sembal eftir Hándel og
Mozart.
Sagði Sveinbjörn
Finnsson að hátíðin hefði
tekizt vel og sér hefði
virzt fólk ánægt með dag-
skrána og sagði hann það
sérlega ánægjulegt
hversu margt fólk hafði
sótt prestsvigslu fyrr um
morguninn. Ferða-
mannastraumur hefur
farið vaxandi í Skálholti i
sumar eftir að samning-
um lauk, að sögn Svein-
björns og geta ferðahóp-
ar fengið að hlíöa á hljóð-
færaleik ef þess er óskað
á sunnudögum og þriðju-
dögum. Helga Ingólfs-
dóttir og Manuela Wiesl-
er léku þennan sunnudag
fyrir hóp og hefur þess-
ari nýbreytni verið vel
tekið af ferðamannahóp-
um, sem hafa staldrað við
dagsstund í Skálholti
Helga Ingólfsdóttir og Manuela Wiesler léku sónötu fyrir sambal
og flautu.
Sunnlenzkir hestamenn rfða f hópreið inn á mótssvæðið við Hellu.
Stórmót 8 hesta-
mannafélaga á Hellu
ATTA hestamannafélög á
Suðurlandi efna til sameigin-
legs hestamannamóts dagana 6.
og 7. ágúst næstkomandi á
Rangárbökkum við Ilellu og
nefnist mótið Stórmót. Er þetta
þriðja mótið i röð slfkra móta
en þau eru haldin þau ár, sem
ekki fer fram landsmót hesta-
manna og fjórðungsmót er ekki
á Suðurlandi. Á mótinu gefst
kostur á að sýna kynbótahryss-
ur, sem ekki hafa áður verið
sýndar eða ekki náð fyrstu
verðlauna einkum vegna skorts
á tamningu eða þjálfun. Fram
fer keppni barna og unglinga,
töltkeppni, gæðingakeppni og
kappreiðar.
Keppni unglinga verður i
þremur flokkum og gefst þeim
þar tækifæri til að sýna hesta,
sem þau hafa sjálf tamið og
þjálfað. Algjört skilyrði fyrir
þáttöku unglinganna er að
hross er þau sýna hafi ekki
áður tekið þátt i gæðinga-
keppni eða kynbótasýningu né
taki þátt í öðrum keppnisgrein-
um mótsins nema viðkomandi
hafi eða sýni hrossið sjálfur. Þá
verður opin töltkeppni fyrir
félagsmenn þeirra félaga, sem
að mótinu standa á 200 metra
hringvelli. Verður hún í tveim-
ur flokkum, fyrir fullorðna og
unglinga 16 ára og yngri.
í gæðingakeppni mótsins hef-
ur hvert félag rétt til að senda
tvo hesta til keppni i hvorum
flokki en flokkarnir eru al-
hliðagæðingar og klárhestar
með tölti, Keppnisgreinar á
kappreiðum mótsins verða 1500
metra brokk, 250 metra stökk,
350 metra stökk, 80Ö metra
stökk, 1500 metra stökk og 250
metra skeið. Kappreiðaverð-
laun verða 25% af brúttóinn-
gangseyri mótsins en auk þess-
ara peningaverðlauna fá þrjú
fyrstu hrossin í hverri grein á
sýningum og kappreiðum verð-
launapeninga til eignar. Bezta
hryssan fær einnig farandgrip
en gripur þessi er hryssa úr
brenndum leir, sem hlotið hef-
ur nafnið Stóðhryssa. Gera má
ráð fyrir spennandi keppni á
kappreiðum mótsins. Á síðasta
móti á Rangárbökkum var sett
nýtt íslandsmet í 1500 metra
stökki en þá hljóp Rosti, Bald-
urs Oddssonar, á 2 mín. 0,7 sek.
Eldra metið átti Kolur, Gests
Vigfússonar i Skálmbæ, og var
það 2,14,3 min. Ljúfur, Gísla
Þorsteinssonar og Sigurðar
Sigurþórssonar, hljóp einnig á
sama tíma og Rosti.
Hestamannafélögin, ,sem
standa að þessu móti, eru Geys-
ir, Kópur, Ljúfur, Logi, Sleipn-
ir, Sindri, Smári og Trausti.
Þátttaka í kappreiðum tilkynn-
ist.til Magnúsar Finnbogasonar
á Lágafelli fyrir miðvikudags-
kvöld, 3. ágúst p.k. en þátttaka í
unglingakeppni og töltkeppni
tilkynnist til formanna viðkom-
andi félaga fyrir sama tima.