Morgunblaðið - 28.07.1977, Blaðsíða 33
Hljómdteild
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JULI 1977
Minning:
PÉTUR DANÍELS-
SON HÓTELSTJÓRI
Fæddur 4. febrúar 1904
Dáinn 22. júlf 1977
Kveðja að heiman.
Fyrir aðeins viku siðan,
fimmtudaginn í siðustu viku hitti
ég Pétur Danielsson að störfum
sínum á Hótel Borg, hressan og
kátan.
Hann spurði frétta að heiman,
— en svo tók hann jafnan til orða,
er hann minntist á Stokkseyri. —
Hann kvaðst fljótlega myndi
verða á ferð á Stokkseyri, en ekk-
ert ár leið svo að hann legði ekki
leið sína þangað.
Og nú fylgi ég honum í dag
siðasta spölinn. Svona skjótt get-
ur „sól brugðið sumri“.
Pétri Daníelssyni á ég að leiðar-
lokum margt að þakka eftir ára-
tuga kynni allt frá barnæsku.
Stokkseyri, — æsku — og
bernskustöðvum sínum, — unni
Pétur af heilum hug. Við ótal
tækifæri sýndi hann ræktarsemi
og hlýhug í garð heimabyggðar-
innar. Stokkseyringar nutu fyrir-
greiðslu hans, hjálpsemi og vel-
vildar, hvar sem hann var að
hitta.
En á hans stóra heimili að Hótel
Borg, voru það vissulega fleiri en
Stokkseyringar, er hans forsjár
nutu og þess trausta þjónustu-
fólks, er hann hafði á að skipa.
Þar er vitnisburðurinn öruggast-
ur, að margir voru þeir, er i hans
þjónustu unnu árum saman, og þá
ekki siður, að margir — menn og
konur —, víðsvegar að af landinu,
voru hans fastagestir — fyrst á
Skjaldbreið og fluttu sig síðan að
Hótel Borg, er hann tók þar við
húsráðum.
Stjórnsemi, höfðingslund og
drengskapur var Pétri i blóð bor-
in og mótuðu þeir eiginleikar
framkomu hans alla í samskiptum
við háa og lága.
Pétur hóf á barnsaldri sjávar-
störf heima á Stokkseyri, eins og
títt var um æskumenn á þeim
árum. Ungur fór hann á togara,
síðar í matreiðslunám sem inn-
gang að sinu lífsstarfi sem þjóð-
kunnugt er.
Ur foreldrahúsum hafði hann í
veganesti holl ráð umhyggju-
samra og dugmikilla foreldra, er
ekki vildu hefta óráðna ferð ungl-
ingsins, er af ríkri þrá til könnun-
ar nýrra viðfangsefna lagði út i
óvissu þeirra tima í atvinnuleit,
fjarri heimili sínu og æskustöðv-
um.
Og draumar unglingsins rætt-
ust i farsælu ævistarfi. Otal
ábyrgðarstörf voru honum falin,
sem öll voru af hendi leyst með
þeirri samviskusemi, að betur
verður ekki gert.
Róleg og traustvekjandi fram-
koma Péturs bar vitni þeim eigin-
leikum skapfestu og mannkosta,
er við sem honum kynntust fund-
um best og nutum í rikum mæli.
Ég votta aðstandendum samúð
mína. Stokkseyringar kveðja Pét-
ur- Daníelsson með þakklæti og
virðingu.
Björgvin Sigurðsson.
F. 4. febrúar 1906
D. 22. júlí 1977
Pétur Daníelsson andaðist á
heimili sínu aðfaranótt 22. þ.m.
Pétur var fæddur i Björgvin á
Stokkseyri 4. febrúar 1906. For-
eldrar hans voru Daníel Arn-
bjarnarson, Þorkelssonar frá
Gerðum í Gaulverjabæjarhreppi,
og kona hans, Þóra Pétursdóttir
frá Deildarkoti á Alftanesi. 1
Björgvin bjuggu líka Eyjólfur
Sigurðsson frá Kaplastöðum og
Sigríður Gisladóttir, kona hans,
en hún var bóðurdóttir Daniels.
Þrem vikum fyrir fæðingu Péturs
eignuðust sambýlishjónin dreng,
sem látinn var heita Siguróur
Þórir, og er það hann sem þessar
línur ritar. Við Pétur ólumst því
upp saman og vorum nánast sem
tvíburar, og mátti hvorugur af
öðrum sjá. í bernsku var ég mjög
heilsuveill um árárabil. Hins veg-
ar var Pétur hraustur og tápmik-
ill. Naut ég því oft aðstoóar hans,
þegar taka þurfti til hendinni eða
þegar skarst í odda milli leik-
félaga. Ég minnist enn með gleði,
hversu hann lét oft eitt yfir báða
ganga.
Æskan leið og brátt tóku
skyldustörfin við. Þegar á barns-
aldri tókum við þátt í störfum
fullorðna fólksins. Ég minnist
sérstaklega, hve við Pétur höfð-
um gaman af að vinna að veiðar-
færagerð, þegar feður okkar
undirbjuggu sig fyrir vertíðina. Á
þeim tíma var ekki um annað að
ræða en drengir í sjávarþorpum
stunduðu sjómennsku, þegar ald- I
ur og orka leyfði, og því var sjálf-
sagt að kenna drengjum sem fyrst
sjávarverk. Skemmtilegasta starf
okkar var að veiða hrognkelsi i
lónunum í skerjagarðinum úti
fyrir þorpinu. Þar gerðust margar
sögur, árin sem við gengum i
þann skóla. Foreldrar okkar
áminntu okkur um að fara var-
lega, þegar við vorum við veiðarn-
ar. Kæruleysi og glannaháttúr
mátti ekki koma þar við sögu.
Hver maður, sem út á sjóinn færi,
yrói að vinna verk sin af alvöru og
festu. Eg held, að þessar ráð-
leggingar hafi fylgt Pétri fram til
hinstu stundar.
Um 18 ára aldur hleypti Pétur
heimadraganum og fór til sjós,
gerðist háseti á togaranum Otri.
Það var ekki létt verk að komast á
togara á þeim tíma. Margir skip-
stjórar tóku þó efnilega óvaninga
öðru hverju. Pétur var einn af
þeim heppnu. Eftir um ársdvöl á
Otri réð hann sig á Gullfoss, fyrst
sem káetudreng, en síðar varð
hann þjónn. Eftir nám í fram-
reiðslu í Kaupmannahöfn gerðist
hann þjónn á Hótel Borg, þegar
það var opnað 1930. Árið 1942
keypti hann Hótel Skjaldbreið
ásamt öðrum og rak það i 18 ár.
Þegar Jóhannes Jósefsson hætti
veitingarekstri, keypti Pétur og
þrir félagar hans Hótel Borg, og
var hann hótelstjóri, þar til hann
andaðist. Auk þessa stutta ágrips
af helstu störfum hans skal getið,
að hann hefur séð um allar veisl-
ur á vegum rikisstjórnarinnar um
árabil. Heyrði ég hann oft láta í
ljós ánægju yfir, hve gott sér
þætti samstarfið við ráðuneytin
varðandi þjónustu. Hann taldi sig
mundu sakna mjög samstarfsins
við þá menn, sem hefðu með þau
mál að gera innan ráðuneytanna,
þegar hann léti af störfum.
Pétur taldi það mikið lán að
hafa sama starfsfólkið, svo að ár-
um skipti, fólk, sem kunni starf
Framhald á bls. 27
s>:
A
A
^raldsf/e^'
^Raldsf/e^
11
11
&
mÆ
mÆ
Nyja Brimklóarplatan
r,UNDIR NÁLINNI"
fœst nú í Faco
Dreifingarsími 13008
i gallaf ötin
' eru föt sem
allir þekkja.
Fást í Faco.
œvis
UPPLIFIÐ STEMMNINGUNA
aö Félagsheimilinu Borg Grímsnesi
29. júlí föstudagskvöld BRIMKLO, HALLI OG LADDI
30 júlí laugardag BRIMKLÓ, HALLI OG LADDI
31. júlí sunnudagur BRIMKLÓ, HALLI OG LADDI
Sætaferðir frá B.S.Í. Hveragerði, Selfossi, Þorlákshöfn og Laugarvatni öll
kvöld kl 9.30. x. . ..* * _ w . . , *
Tjaldið að Borg. veitingar a staðnum.
; i i /
i j > i