Morgunblaðið - 28.07.1977, Side 5
Frá
lögreglunni:
Lýst
eftir
vitnum
Slysarannsóknadeild lög-
reglunnar í Reykjavík hef-
ur -beðið Morgunblaðið að
lýsa eftir vitnum að eftir-
töldum ákeyrslum. Síma-
númerin eru 21100 og
11166.
Laugard. 2.7.
Ekið á bifreiðina R-33130, F-
Cortina fólksbifr. árg. ’74, þar
sem hún stóð í portinu við verzlun
Egils Vilhjálmssonar að Lauga-
vegi 118, á tímabilinu kl.
iíTOO'—18:30. Blár litur var í
ákomustað.
Miðvikud. 20.7.
Ekið á bifreiðina R-18402,
Volkswagen fólksb. árg. ’73, ljós-
bláa, þar sem hún stóð á bifreiða-
stæði á horni Bárugötu og
Bræðraborgarstígs á tímabilinu
kl. 10:00—12:15. Skemmdir á
hægra frambretti og höggvara.
Miðvikud. 20.7.
Ekið á bifreiðina R-8375,
Chevrolet Vega fólksb. árg. ’73,
brúna að lit, á móts við Sundlaug
Vesturbæjar á tímabilinu kl.
16:30—18:30. Vinstri hurð
bifreiðarinnar hafði verið dælduð
og tjónvaldur sýnilega gefið sér
tíma til þess að þvo eða bóna
ákomustað og þá væntanlega af-
má lit.
Föstud. 22.7.
Ekið á bifreiðina R-54119,
Skoda fólksb., rauða að lit árg.
’77, þar sem hún stóð á merktum
stöðumælareit við Thorvaldsens-
stræti. Vinstra afturaurbretti var
dældað.
Föstud. 22.7.
Ekið á bifreiðina Y-397, Skoda
fólksb. árg. ’72, rauða að lit, þar
sem hún stóð við Stöðumæli á
Kirkjutorgi á timabilinu kl.
14:50—14:55, eða i 5 mínútur.
Skemmdir voru á vinstri hurð.
Laugard. 23.7.
Ekið á bifreiðina R-24899,
Anglia fólksbifreið bláa að lit, þar
sem hún stóð á Vitatorgi vestan
við benzínafgreiðsluna. Bifreiðin
var skemmd á hægri hlið og hvit
málning í ákomu. Sjónarvottur sá
til ferða stórrar, hvítrar, amer-
ískrar fólksbifreiðar, sem var ek-
ið aftur á bak og lenti á fyrr
nefndi bifreið. Bifreiðinni var sið-
an ekið hratt á brott. Tvennt var i
þessari bifreið og var stúlka við
stjórn hennar. Viðkomandi eru
beðnir að gera grein fyrir þessu.
Aðalfund-
ur S.N.K.
SAMBAND norðlenzkra kvenna
hélt 64. aðalfund sinn að Hllðar-
bæ I Glæsibæjarhreppi 21.—22.
júnf s.l. Fundinn sátu um 30 full-
trúar og gestir.
Formaður S.N.K. er Elín Ara-
dóttir, ritari Sigríður Hafstað,
gjaldkeri Guðbjörg Bjarnadóttir.
Á aðalfundi S.N.K. 1975 var
mælzt til að kvenfélögin gerðu á
næstu tveimur árum sameiginlegt
átak til styrktar Sólborgarhælinu
á Akureyri. í fyrra söfnuðust i
kringum tvær milljónir og i ár
hafa þegar safnazt þrjár milljón-
ir.
Á fundinum voru samþykktar
ýmsar tillögur og ályktanir, svo
sem áskorun til landbúnaðarráðu-
neytisins um ráðningu garðyrkju-
ráðunautar fyrir Norðurland.
'iji iiiiillii|ii’lllii**ÍÍ>Wt*^|Í|
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a Simi frá skiptiborði 28155
m Mussur og kjo/ar
■ Stuttjakkar úr ny/on og /edri
m Kúrekastígvé/
■ Kickers strigaskór
ofl ofí.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JULl 1977
Storkostlegt úrval
af fatnaði og skóm
fyrir mestu
ferðahelgi ársins
■■