Morgunblaðið - 28.07.1977, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FlKlMTUDAGUR 28. JULI 1977
11
Lokað vegna sumarleyfa
frá 24. júlí — 22. ágúst.
Fagplast h/f
Borgartúni 27.
Kópavogur — tveggja íbúða hús
Vorum að fá í sölu gullfallegt nýlegt hús í
austurhluta Kópavogs. Húsið er hæð og jarð-
hæð með stórum bílskúr og skiptist þannig: Á
hæðinni eru tvær samliggjandi stofur tvö svefn-
herbergi, skáli baðherbergi og gestasnyrting,
stórt og fallegt eidhús með borðkrók. Á jarð-
hæð m.a. 70 fm. tveggja herbergja íbúð með
sér inngangi, þvottahús, geymsla og föndurher-
bergi. Allar innréttingar sérlega fallegar, parket
á stofugólfi, öðru leyti ný teppi. Sérlega
rúmgóður bílskúr, fallega ræktuð lóð, mikið
útsýni af báðum hæðum. Eign i sérflokki.
FASTEIGNA
HÖLLIN
FASTEIGNAVIÐSKIPTI
MIÐB/ER-HÁALEITISBRAUT 58-60
SÍMAR-35300 &35301
Agnar Ólafsson, Arnar Sigurðsson, Hafþór Ingi Jónsson hdl.
Beltin geta vald-
iö meiöslum
Ýmsir sem lent hafa í óhappi
við notkun bílbelta hafa hlotið
mar, blóðris og eymsli af völd-
um þeirra. Skýrt hefur verið
frá einstaka tilfellum af rif-
broti, viðbeinsbroti eða mjög ■
sjaldan meiðsli á milta, þörm-
um eða þungaðri lífmóður, en
þetta kom þó oftar fyrir áður
fyrr þegar ennþá voru notaðar
lendaólar eða tveggja-punkta
skáólar.
Samkvæmt Skilum umferðar-
læknanna í norrænu bílbelta-
álitsgerðinni sem lögin
byggjast á verða meiðsli vegna
bílbelta í um 6% eða 6 af hverj-
um þúsund slysa. Er um að
ræða Iftil meiðsli sem hefðu
orðið miklu alvarlegri án notk-
unar bílbelta og,hefðu jafnvel
leitt til dauða. Maður hlýtur
ekki alvarleg meiðsli af bílbelt-
unum, heldur þrátt fyrir þau.
Sá sem getur sýnt meiðsli
sem bilbeltin hafa valdið hefur
verið heppinn. Þvi að án þeirra
hefði kannski ekki verió tæki-
færi til að sýna neitt.
Til þess að komast hjá meiðsl-
um eða óþægindum af bilbelt-
um, m.a. það að ólarnar nema
við háls eða eru til óþæginda á
brjóstum kvenna, ætti efri
festistaður ólanna að vera i
réttri hæð í hlutfalli við not-
andann. Það ættu að vera staðir
til festingar til að velja á milli
fyrir fólk af mismunandi stærð.
í bifreið með bílbelti fyrir stór-
an mann getur lítill maður
bjargast með þvi að nota fasta
sessu undir sér.
Bílbeltin eru ekkert töfra-
tæki. Þau koma að sjálfsögðu
ekki að gagni við mjög aflmikla
árekstra ( þ.e.a.s. við mikinn
hraða) eða þegar farþegarýmið
þrýstist saman. En þau eru
heldur ekki til ógagns. í Volvo-
rannsókninni þar sem rannsök-
uð voru rúmlega 28.000 slys
sáust engin banvæn meiðsli við
slys þar sem notendur bílbeita
voru á minna en 100 km hraða.
En einn aðili án bilbelta fórst
þótt hann væri aðeins á 20 km.
hraða við áreksturinn.
“^Gallabuxumar^0
sem endast & endast
LAUGAVEGUR
•S*-21599
BANKASTRÆTI
•S*-14275