Morgunblaðið - 28.07.1977, Side 17

Morgunblaðið - 28.07.1977, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JULI 1977 17 Meta þarf launa- hlutfall einstakra hópa skipver ja - Svar til Sigurðar Sigurðs- sonar, Gnoðarvogi 66, R. í Morgunblaðinu 20. júli s.l. beinið þér aftur til mín spurningu um það, við hvaða kaup í landi ég telji eðlileg ast að miða kaup sjó- manna. Þótt ég telji viðhlítandi svar við þeirri spurningu ekki geta rúmast innan lesendadálka dagblaðs, skal ég, engu að síður, reyna að fara um þetta fáeinum orðum. Upphaflegt tilefni yðar til spurningarinnar var þetta: Ég hefi í ritgerð í Fjármálatið- indum gert grein fyrir ýmsum leiðum, sem til greina koma til þess að takmarka sókn í fiski- stofna, sem eru ofveiddir. Ein af leiðunum er sú, að veiðiskip greiði fyrir fiskinn, sem þau veiða, eins og vinnslustöðvar greiða fyrir hann. Við útreikning á sliku „fiskverði" yrði að sjálf- sögðu að taka tillit til þess, að sjómenn hefðu hliðstæð laun og greidd væru í landi. Þér spyrjið, hver slík laun séu. Ég ætla ekki að svara spurning- unni með þeim einfalda hætti, að segja, að um laun allra sjómanna gildi kjarasamningar, þeir séu væntanlega miðaðir við það, hvað samkomulag hefur orðið um á hverjum tíma að telja hliðstætt við laun í landi, og þess vegna séu gildandi samningar á hverjum tíma sú launaupphæð, sem miða eigi við.þegar útreikningar væru gerðir á „fiskverði" veiðiskipa eða „verði veiðileyfa", en um slika útreikninga er einmitt fjall- að í ritgerð minni. Eg sé, að þér viljið vita, við hvaða kaupsamn- inga i landi ég telji eðlilegt að miða. í grundvallaratriðum tel ég réttlátt að fara að á þessa leið: Meta þarf launahlutfall milli einstakra hópa skipverja innbyrð- is, eftir ábyrgð þeirra, starfsund- irbúningi og vinnutíma, en það er að sjálfsögðu gert í öllum kjara- samningum. Þegar vinnutimi fjöl- mennasta hóps skipverjanna hef- ur verið fundinn, ætti að reikna út, hvað mest væri greitt fyrir jafnmarga tima í landi samkvæmt kjarasamningum mikilvægrar starfsstéttar innan Alþýðusam- bandsins. Síðan ætti að bæta við þá upphæð ákveðinni hlutfalls- tölu, þannig að kaup sjómannsins yrði hærra, vegna áhættu við starf hans og fjarvist frá heimili. Ég vona, að þér ætlist ekki til þess, að ég tilgreini ákveðin hlut- föll milli hópa skipverja innbyrð- is né heldur álagshlutfallið vegna áhættu og fjarvistar. Hér er að- eins unnt að drepa á grundvallar- sjónarmið. Jafnframt verður að hafa í huga, hver áhrif aflamagn hefur og á að hafa á kjör sjó- manna, en um slík áhrif verður að sjálfsögðu aldrei sagt fyrir fram. Gylfi Þ. Glslason. - Anna ekki end- urnýjunarþörf Framhald af bls. 15 togara fyrir Magnús Gamaltels- son á Ölafsfirði, þannig að fyrirtækið hefði næg verkefni sem stæði, Þá væri vitað að til að endurnýja fiskiskipaflotann þyrfti að smíað yfir 4000 brúttó- rúmlestir af fiskiskipum á ís- iandi árlega, en afkastageta skipasmiðastöðvanna væri enn sem komið væri aðeins rúmlega 2000 rúmlestir, þannig að enn vantaði rnikið á að við gætum sjálfir séð um endurnýjun fiskiskipastólsins. Jón Sveinsson Sagði, að það hlyti vera góður möguleiki á að færa smiði kaupskipa inn i landið, en þess bæri fyrst og gæta, áður en farið væri að huga að smíði flutningaskipa i ríkum mæli hérlendis, að skipa- smíðastöðvarnar þyrftu að tvö- falda afköst sin frá þvi sem nú væri til að geta annað end- urnýjunarþörf fiskiskipaflot- ans, og bæði Stálvik og Slipp- stöðin t.d. hefðu einbeitt sér að smíði fiskiskipa eins og skut- togara, og sent stæði væri Stál- vik með togara í smiðum sem ætti að vera tilbúinn um ára- mót og margir aðilar hefðu að undanförnu spurst fyrir um smiði skuttogara hjá fyririnu, auk þess sem mjög mikið væri að gera í sambandi við breyt- ingar á skipum. til i tuskið f FACO er ávallt úrval fatnaöar fyrir verzlunarmannahélgina. Verið velkominn í FACO. Laugavegi 89 Laugavegl 37 13008 12861 Hafnarstrœtl 17 og Glœsihæ VOLVO Svona eiga bilar að vera! Það er auðvelt að f ramleiða f rábæran bil Hann þarf aðeins að vera miklu betrð en allir hinir VELTIR HF SuÖurlandsbraut 16-Simi 35200

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.