Morgunblaðið - 07.08.1977, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. AGUST 1977
„Stórkostleg
upplifun”
EINS og greint var frá f Mbl. á
föstudag var leikritið Inuk flutt á
fimmtudagskvöld á esperanto f
tilefni af alþjóðaþingi esper-
antista, sem lauk í gær f Reykja-
vík.
Blm. Morgunblaðsins var við-
staddur sýningu þessa á þessu
kunna verki. Að lokinni sýning-
unni var Ieikurunum ákaft fagn-
að og þeir kallaðir fram hvað eft-
ir annað ásamt þýðanda verksins,
Baldri Ragnarsyni.
Blm. náði tali af nokkrum
sýniningargestum, þegar þeir
voru að tínast úr Þjóðleikhúsinu
glaðir í bragði, og spurði þá hvað
þeim hefði fundizt um þessa sér-
stæðu sýningu.
Fyrstur varð fyrir svörum tutt-
INNLENT
Málverkasýn-
ing í t>rast-
arlundi
GUNNAR I. Guðjónsson hefur nú
opnað málverkasýningu í Þrastar-
lundi og sýnir þar 21 olíumálverk.
Gunnar hefur áður haldið 6
einkasýningar, m.a. sýnt á Kjar-
valsstöðum, og tekið þátt í mörg-
um samsýningum.
Sýning Gunnars í Þrastarlundi
stendur út ágústmánuð.
ugu og þriggja ára Þjóðverji,
Klaus Schubert. Hann sagði að
þetta væri afskaplega athyglis-
vert leikverk og mjög ólíkt þeim
verkum, sem áður hefðu verið
sýnd á þingum esperantista, einn-
ig sagði hann að framburður leik-
aranna hefði verið með ágætum.
W. Bruijnesteijn, rúmlega fert-
ugur Hollendingur, tók i sama
streng og sagði m.a. að leikararnir
hefðu talað esperanto alveg óað-
finnanlega og sýningin hefði í
heild verið stórkostleg upplifun.
Hann sagði að hann hefði farið
áður á nokkur þing Esperantista
víða um lönd, en aldrei séð neitt
jafneftirminnilegt og þessa sýn-
ingu á þeim þingum.
Næst tók blm. tali þýzk hjón um
þritugt, Peter og Heike Fritz. Þau
sögðust hafa verið mjög hrifin af
sýningunni og leikverkið fjallaði
um mjög áhugavert efni, hefði
verið vel leikið og mál og fram-
setning eindæma góð. Þau hjón
sögðust upphaflega hafa kynnzt
esperanto á námskeiði árið 1972
og hefðu þau heillazt svo af því að
þau hefðu ákveðið að læra það til
hlítar.
Einn íslenzku gestanna, Ölafur
Þ. Kristjánsson, sagðist hafa séð
Inuk áður á islenzku og hefði
hann ekki getað greint neinn mun
á þeirri sýningu og þessari.
G.F. Makkink, sjötugur magist-
er í líffræði í Hollandi, sagði að
honum þætti þetta verk mjög gott
og það sýndi vel líf Eskimóa eins
og það hefði verið fyrr á öldum og
einnig lýsti það vel þeim vanda-
málum sem þeir ættu nú við að
glima vegna erlendra menningar-
áhrifa. Hann sagði að þetta verk
fjallaði í raun um mun víðara svið
en bara Grænland, sama máli
gegndi um indíána í Ameríku og
svertingja í Suður-Afríku.
Heimilid ’77:
Á annað hundrað
sýningaraðilar
NÚ ER unnið af fullum krafti við
undirbúning sýningarinnar
„Heimilið ’77“, en hún verður
opnuð hinn 26. ágúst n.k. f
Laugardalshöllinni í Reykjavfk,
að viðstöddum 600—800 boðsgest-
um.
Þessar upplýsingar komu fram
f viðtali við Bjarna Ólafsson,
framkvæmdastjóra Kaupstefn-
unnar, sem hefur veg og vanda af
undirhúningi sýningarinnar, en
sfðasta sýning á vegum Kaup-
stefnunnar var 1975. Þá sýningu
sóttu 75 þúsund manns og var það
met að sögn Bjarna sem sagði
jafnfram að 55—60 þúsund gesti
þyrfti að fá á sýninguna f ár til að
standa undir öllum kostnaði.
Alls eru það á annað hundrað
aðilar, sem sýna vöru sína og
þjónustu í 75 sýningardeildum
innanhúss, og fyrir utan Laugar-
dalshöllina verður m.a.bílasýning,
sýning á hjólhýsum, tjöldum og
tjaldvögnum og sumarhúsum. Þá
verður Landssamband hjálpar-
skáta með útisýningu, en Bjarni
Ólafsson sagði að þeim hefði verið
boðið að kynna þarna starfsemi
sína án endurgjalds. Þá gat
Bjarni þess að ailur undirbúning-
ur væri nú fremur snemma á
ferðinni og hefði starfsfólk unnið
að undirbúningi nú á annan mán-
uð, í ársbyrjun hefði verió búið að
ráðstafa öllum sýningabásunum
innanhúss. Þetta er fimmta sýn-
ingin á vegum Kaupstefnunnar á
þessum áratug og sagðist Bjarni
Ólafsson vonast til að endar næðu
saman, en gera mætti ráð fyrir að
velta sýningarinnar yrði milli 60
og 70 miiljónir króna. Er þá ekki
talinn með sá kostnaður, sem
fyrirtækin sjálf leggja út í við
sínar deiidir. Sýningunni lýkur að
kvöldi sunnudags hins 11. septem-
ber.
Fjölmennasta þjóð-
hátíð frá upphafi?
ÞJÓÐHÁTÍÐ í Vestmannaeyjum hef-
ur verið haldin » eindæma blíðu.
Hátíðin hófst með setningu á föstu-
dag klukkan 14.00. Sólskin hefur
verið allan tímann ýmist með logni
eða smágolu í Herjólfsdal. Fjöldi
gesta hefur sennilega aldrei verið
jafnmikill eða um 8000 manns.
Þá hefur hústjöldum fjölgað
mjög. en það er hefð í Eyjum að
hver fjölskylda hefur sitt hústjald
inni í Herjólfsdal meðan á hátíðinni
stendur uppdekkað með húsgögn-
um.
Dagskrá þjóðhátíðarinnar hefur
gengið mjög vel. Nokkur þúsund
manns hlýddu á kvöldvöku á föstu-
dagskvöld, en fyrr um daginn hafði
verið bjargsig í Fiskhellanefi þar
sem Óskar Svavarsson bjargmaður
sýndi listir sínar, þá var mikil frjáls-
íþróttakeppni. þar sem sjálfur
Evrópumeistarinn í kúluvarpi,
Hreinn Halldórsson var meðal kepp-
enda. Hann varpaði kúlunni 20.70
m. Lúðrasveit Vestmannaeyja lék í
dalnum, barnagaman var yfir dag-
inn og margt fleira.
Á miðnætti á föstudagskvöld
hljóp Sigurður Reimarson með
kyndil að þjóðhátíðarbálkestinum
sem stóð frammi á Fjósakletti. Köst-
urinn logaði glatt fram undir morg-
un. Mikilli birtu sló yfir dalinn er
eldur var tendraður i kestinum en í
sama mund kveiktu þrjátíu félagar
úr íþróttafélaginu Tý á blysum í
hlíðum Herjólfsdals.
í hinum fjölmörgu tjöldum sem
þarna voru við mjög vel skipulagðar
götur heyrðist söngur og gleði, en
hátiðin hefur farið hið bezta fram,
utan það að nokkuð hefur borið á
ölvun hjá unga fólkinu. Nokkrir voru
sendir til baka með fyrstu ferð með
Herjólfi.
Þá var stolið nokkrum fjármunum
af fólki um borð í Herjólfi, en skip-
verjum tókst að hafa hendur í hári
þjófanna fljótlega.
Á föstudagskvöld var dansað til
klukkan 04.00 en siðan sungið i
tjöldum fram á dag.
Blómarósir að koma upp tjaldi sínu.
Austurlenzkt hof í Herjólfsdal.
Frá EM í bridge:
Islendingar fengu mínus-
stig gegn ísraelsmönnum
Islenzka bridgelandsliðið tap-
aði illa fyrir Israelsmönnum i 10.
umferðinni sl. föstudagskvöld.
Endaði leikurinn með þvi að ís-
lenzka liðið fékk 3 mínusstig
gegn 20. Eru þetta fyrstu mfnus-
stigin sem sveitin fær í mótinu.
Efstu sveitirnar halda sínu
striki. Sviar tróna á toppnum með
161 stig. Israelsmenn fylgja þeim
fast eftir með 151 stig og nú eru
ítalir komnir í þriðja sæti með
141 stig.
Röð næstu þjóða er þessi eftir
10 umferðir:
Danmörk 138, Sviss 137, Bretland
136, Noregur 119, Pólland 116,
Ungverjaland 110, Holland 109,
Belgía 105, Þýzkaland 95, Irland
94, Frakkland 91, ísland 85,
Júgóslavia 76, Austurríki 62,5,
Finnland 58, Spánn 52, Grikkland
40, Tyrkland 34, Portúgal 23,5.
I kvennaflokki eru ítölsku kon-
urnar efstar með 80 stig, þær
dönsku hafa 61 stig og þær brezku
59 stig.
í gær spilaði íslenzka sveitin við
gestgjafana og í gærkvöldi við
Portúgali sem nú eru i neðsta
sæti. Á morgun verður aðeins
einn leikur. Er það gegn brezka
landsliðinu, en Bretar og islend-
ingar eru góðir kunningjar eftir
heimsókn þeirra til landsins fyrir
fimm árum.
Morgunblaðið mun reyna að
segja frá úrslitum helgarinnar í
þriðjudagsblaðinu — en vegna
þess hve blaðið fer snemma í
prentun á laugardögum náðust
engar fréttir af mótinu í gær.
Gerði ekki
skriflegt
tilboð
1 BLAÐINU f gær var sagt að
vestur-þýzki afbrotamaðurinn
Ludwig Lugmeier hefði gert
ákveðið leigutilboð f veitingastof-
una Vitabar við Bergþórugötu.
Eigandi veitingastofunnar
hafði samband við blaðið i gær og
kvaðst ekkert skriflegt tilboð
hafa fengið frá Þjóðverjanum og
ekki vita til þess að hann hefði
viljað fá veitingastofuna leigða,
en tilboð hefði borizt frá óskild-
um aðila, þó af leigu yrði ekki.
Blaðið hefur öruggar heimildir
fyrir því, að Lugmeier hafði hug á
þvi að taka Vitabar á leigu, en
bindandi tilboð hefur hann ekki
gert samkvæmt þessum síðustu
upplýsingum.
Þakkarávarp
Öllum þeim, er sendu mér
heillaóskir á 95 ára afmæli
mínu, sendi ég mínar beztu
þakkir og kveðjur.
Jón H. Þorbergsson.
Skipsmenn á varðskipinu Tý sprengdu fyrir nokkru tundurdufl f
loft upp við Þvottárskriður f Alftafirði, en talið er að tundurduflið
hafi legið þarna f fjörunni f mörg ár á kafi í sandi. Myndina tók
Helgi Hallvarðsson er duflið var sprengt.