Morgunblaðið - 07.08.1977, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. AGUST 1977
Við námum í síðustu
sunnudagsgrein minni staðar
við merkilegt gáfufólk á sið-
ustu öld, en nú skulum við
skoða okkur sjálf í spegli orða
Páls Postula: „Bæði kann ég
að búa við lítinn kost, og ég
kann einnig að hafa alls-
nægtir".
Kunnum við það, íslenzkir
menn, á þessu herrans ári?
Óneitanlega bendirsitt hvað
í þjóðlifi okkar til hins gagn-
stæða. Raunar er afsökun
okkar sú, og fram hjá henni
verður ekki gengið, að eftir
alda örbirgð og skort búum
við loks nú við efnalega hag-
sæld og raunar auðsæld á við
það, sem feður og mæður
áttu við að búa. Er það að
undrast um barn, sem i
fyrsta sinn fær fallega flík, að
það vilji klæðast henni dag-
lega? Á það er vafalaust
hægt að færa sönnur, að
meðferð okkar í fjármunum
er æði barnaleg. En þrátt
fyrir allt, sem við finnum okk-
ur til afsökunar, er það þó
víst, að einn öruggasti mæli-
kvarði á manngildi er sá að
kunna það, sem Páll postuli
kunni í þeim efnum, og raun-
ar ekki hann einn heldur
margir aðrir, að láta hvorki
fátækt beygja sig né auðsæld
gera sig að flóni.
En áður en lengra er haldið
út I þær hugleiðingar skulum
við gefa því gaum, hverju
postulinn þakkaði fyrst og
fremst það,
hann. Englar birtust honum,
og heimur þeirra var honum
eins öruggur veruleiki og
hinn jarðneski. Og þó var
munurinn mikli sá, að Páll
trúði fastlega því, að jarð-
neski heimurinn stæði aðeins
um stund og raunar stutta
stund. Hann trúði á nálæg
heimsslit. Enandlega heim-
inn vissi hann ævarandi,
óforgengilegan.
Á þeirri bjargföstu sann-
færingu byggði postulinn og
hún hafði kennt honum þá
vandlærðu list, að búa við
þröngan kost án þess nokkur
sæi á honum og að hafa
allsnægtir án þess að hagg-
ast.
Kunnum við þetta, íslenzk-
ir menn?
Að kunna fótum sínum for-
ráð ! stundlegum efnum, að
vilja með drengilegum hætti
tryggja sinn hag svo að ekki
verði öðrum byrði er heil-
brigðum manni eðlilegt. Pað
vilja allir, þótt misjafnlega
takist. En um það er hér ekki
að ræða, heldur hitt: Er þér
list sú léð, sem Páll hafði til
fullnustu á valdi sínu, að
hvorugt haggi þérvelgengni
né skarður hlutur?
Við geysilegar framfarir í
veraldlegum efnum hefur
mannssálin dregizt aftur úr
þróuninni. Yfir nálega allan
heim gengur háreist bylgja
efnishyggju, einkum vest-
saman tal? Kaup og aftur
kaup, peningar og aftur pen-
ingar. Verður þessi gegndar-
lausa mammonshyggja til
þess að auka manngildið?
Verður ekki á þessum leiðum
margur „af aurum api", eins
og í forníslenzkum fræðum er
komizt að orði. Og þegar svo
er komið kunna menn hvor-
ugt, hvorki að bera efnalega
velgengni án þess að bíða
tjón á sál sinni né að bera
stórmannlega efnahrun og
efnatjón.
„Allt megna ég fyrir hjálp
hans, sem mig styrkan gjör-
ir", skrifaði Páll örlátum vin-
um I Filippíborg. Trúarlíf
hans hafði kennt honum að
meta hvorki né vanmeta
efnisgæðin en vera þeim
aldrei svo háður að án þeirra
gæti hann ekki lifað stór-
mannlega. Hann vissi, að
„heimslán er valt sem
hrökkvi strá" (Jón Magn.),
og hann vissi heim handan
jarðneska sjónarhringsins,
hann vissi veröld að veraldar
baki. Samfélag hans við upp-
risinn Krist hafði sannað hon-
um heim, sem handan við
jarðneska sjónarbauginn
beið, og þvi skipti það hann
svo miklu minna máli þótt á
ýmsu ylti um veraldargengi
og veraldarlán. Raunar hafði
Páll kunnað þessa list áður
en hann gerðist kristinn og
hafði þó þá ekki þekkt nema
aðra hliðina: að alast upp og
Manngildi og
meðferð fjármuna
að hann kunni þá vandlærðu
list, að þola jafn stórmann-
lega allsnægtir og að eiga
ekki neitt. Þvi svaraði hann
vinunum i Filippí, sem höfðu
sent honum peningagjöfina:
„Allt megna ég fyrir hjálp
hans, sem mig styrkan
gjörir".
Þungamiðjan í trúarlífi Páls
var samfélag hans við Krist. í
trúarheimi hans er Kristur
hinn mikli, daglegi veruleiki.
Ekki að öllu leyti kenning
Krists eins og við þekkjum
hana af guðspjöllunum Guð-
spjöllin voru enn ekKÍ rituð,
eins og við þekkjum þau í
dag, þegar Páll gerðist
kristinn maður. En Kristur
sjálfur, lifandi upprisinn
Kristurnægði honum. Um
nálægð hans var Páll sér
daglega meðvitandi, og
vitranagáfu sinni treysti
rænan heim og velferðarríkin
svonefndu. Þaðerhlustað
mjög á það, sem landflótta
menn og landrækir úr
kommúnistarikjunum segja,
þegar þeir koma vestur í auð-
valdslöndin og kynnast hugs-
unarhætti og lifsmynstri
manna þar. Flestir þeir menn
mæla þungu varnaðarorði
gegn efnishyggju og pen-
ingadýrkun þeirri, sem þeir
kynnast á Vesturlöndum. Þið
stefnið í glötun, segja þeir,
með ykkar skefjalausu dýrk-
un á efnalegum verðmætum,
sem við öfundum ykkur af að
vissu marki, og þvi frjáls-
ræði, sem við erum í okkar
löndum sviptir en þið notið
eins og óvitar.
Hver eru algengustu um-
ræðuefnin hér í okkar ást-
kæra landi, þegar menn taka
lifa sem ungur maður við
velgengni í veraldarefnum.
Hinni hliðinni kynntist hann,
örbirgð og allsleysi eftir að
hann vigði líf sitt hinum
krossfesta, upprisna. Og þá
varð Páll stærstur.
Fagurlega þýddi Jakob.
Jóh. Smári Ijóðaflokk brezka
bókmenntafræðingsins,
skáldsins og sálarrannsókna-
mannsins Myers um Pál
postula:
Gegn um líf, dauða, synda
og
sorgamistur,
sjá, Hann mér nægir, siðast
bæði og fyrst.
Kristurer hinzt, því Krist-
ur var mér fyrstur,
Kristur er fyrst, ég síðast
hrópa á Krist!
í þeim skóla hafði Páll lært
stórkostlega lexíu.
Svipmyndir
á svipstundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndir sf.
i Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjódleikhúsinu
, « m
CoacHmti^i
*
\m
Til sölu
Chevrolet pallbíll, árgerð 1975, með drifi
á öllum hjólum.
Bílnum fylgir hús eins og sést á myndinni,
fullinnréttað með eldhúsi, hita og svefn-
plássi fyrir 4. Einnig fylgir bílnum annað
hús, lægra, óinnréttað.
Gísli Jónsson & Co. h.f.
Sundaborg — Sími 86644
®
NÝJA LÍNAN FRÁ
MERCEDES BCNZ
Mercedes Benz pallabíllinn (pick-up) er hægt að fá í nokkrum gerðum
t.d. með stærra húsi, auknu farþegarými, sem er hentugt fyrir
vinnuflokka. Lipur og þægilegur bíll, með ýmsum tæknilegum nýjungum.
Hægt að fá hvort heldur er með bensín- eða dlselvél.
Leitið nánari upplýsinga.
RÆSIR HF.
Skúlagötu 59 sfmi 19550
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
VNV