Morgunblaðið - 07.08.1977, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. AGUST 1977
15
Skarðs-
kirkju-
garði berast gjafir
VEGNA andláts og útfarar frú
Sigurlaugar Eyjólfsdóttur frá
Hvammi í Landsveit, sem andað-
ist 1. marz s.l., bárust Minningar-
sjóði Skarðskirkjugarðs minn-
ingargjafir um hana, er námu
samtals kr. 70.900,-.
Tilgangur sjóðsins er fyrst og
fremst að fegra og prýða Skarðs-
kirkjugarð, en hann er við:
rómaður fyrir fegurð og góða um-
hirðu, og hefur tekið að sér þau
verkefni, sem heyra ekki undir
hinn almenna kirkjugarðssjóð.
Var sjóðurinn í upphafi
stofnaður til minningar um Krst-
in Guðnason, hreppstjóra i
Skarði, af ekkju hans, frú Sigríði
Einarsdóttur.
Stjórn sjóðsins þakkar hér með
áður nefndar gjafir og allar aðrar
minningargjafir, sem sjóðnum
hafa borizt á umliðnum árum.
— Gagnlegir
dagar
Framhald af bls. 25
lægðar fyrir íslendinga, en ég geri
varla ráð fyrir að ráðstefnur okkar
verði mikið haldnar á íslandi. vegna
þess hversu dýr ferðalögin eru. Er
það skaði og lika er slæmt að íslend-
ingar skuli ekki geta sótt ráðstefn-
urnar erlendis.
Og sem dæmi um málaerfiðleika
nefndi Thunberg að á einni ráðstefn-
unni hefði verið gripið til þess að
nota ensku vegna þess að Finnarnir
áttu erfitt með að skilja umræður og
fyrirlestra á norðurlandamálunum,
sem hann sagði þó að heyrði til
undantekninga Annað atriði sem
Thunberg sagði að gerði Finnum
erfitt fyrir væri að rit stofnunarinnar
væru flest á norðurlandamálunum,
og ekki væru tök á að hafa þau á
finnsku og þvl væru þeir að sumu
leyti meira einangraðir en hinar
þjóðirnar.
Þá nefndi Lars Thunberg að fjár-
málin væru höfuðverkur:
— Já, við höfum að visu fengið
styrk. t.d. núna fyrir þessa dagskrá
frá norræna menningarmálasjóðn-
um, en hann styrkir einstök verk-
efni, sem fleiri en 3 norðurlanda-
þjóðir standa að Nú, samtökin áttu
nokkuð erfitt uppdráttar fyrstu árin,
en það var á styrjaldarárunum og þá
var það Svíþjóð, sem sá um starfið
að miklu leyti og má segja að mest-
ur fjárstyrkur komi þaðan Samskipti
landanna lögðust að mestu leyti nið-
ur á striðsárunum, en þó var reynt
að hafa leynilegt samband eftir þvi
sem hægt var, en eftir striðsárin
voru t.d. Danmörk, Noregur og
Finnland vart aflögufær með fé til
þessara mála, sagði Thunberg að
lokum og kvaðst vona að þrátt fyrir
fjarlægðir og féleysi mættu samtök-
in eflast og íslendingar verða virkari
i starfseminni
— Mig langaði
Framhald af bls. 35
Laxness og verk hans hefur
mun frekar veriö bókmennta-
fræöilegs eðlis.
— Þessar rannsóknir mínar
hafa vissulega kostað mig geysi
mikla vinnu, ég var t.d. i frii
seinni hluta síöasta vetrar og
stundaði þá eingöngu þessi
rannsóknarstörf. Þetta er líka
full vinna fyrir hvern sem er,
ætli ég vinni ekki u.þ.b. 50—60
klukkustundir á viku viö þetta,
en ég hef þó séð það að það er
ekki mikil vinna miðað við þá
gífurlegu vinnu sem Halldór
Laxness hefur innt af hendi við
gagnasöfnun og samningu Is-
landsklukkunnar.
— Það er ætlunin hjá mér að
gefa út bók um þessar rann-
sóknir mínar þegar ég hef lokið
þeim, en það verður ekki fyrr
en seint á næsta ári í fyrsta
lagi. Nokkrir útgefendur hafa
komið að máli við mig um út-
gáfu þeirrar bókar og ég er þess
fullviss að það verður engum
erfiðleikum háð að fá þá bók
útgefna, en það er mikið starf
framundan hjá mér áður en af
þvi verður. —SIB
Múrsprautur
fyrirliggjandi
w
verkfœri & járnvörur h.f.
DALSHRAUNI 5, HAFNARFIROI. SÍMI 53332
Höfum fyrirliggjandi
farangursgrindur
og
bindingar
áallarstærðir
fólksbíla,
Broncojeppa'
og fleiri bíla.
Btlavörubúðin Fjöðrin h.f.
Skeifan 2. simi 82944.
Fyllingarefni — Mold
Nokkuð magn af fyllingarefni, aðallega mold úr
grunnum, er til staðar á lóð Iðngarða við
Skeifuna.
Þeir aðilar sem áhuga hafa á þessu fyllingarefni
hafi samband við Bent Jörgensen í síma
85100.
Viku vinna
Ævilöng ánægja
Sundlaugar
MARGAR
STÆRÐIR
Notið frárennslisvatnið i sundlaugina heima og
fáið ánægjustund og heilbrigða hreyfingu fyrir
fjölskylduna.
KAFKO EÐA KRULLAND sundlaugar eru ótrú-
lega auðveldar í uppsetningu.
Sundlaugarnar eru fáanlegar í stærðum allt að
31 metrar á lengd.
Sundlaug fyrir minni bæjarfélög 8x16.67 m.
með hreinsitækjum og öðrum búnaði.
f
\mnai Sfyzehbbm Lf
Suðurlandsbraut 16. Sími 35200
FYRIR
EINBÝLISHÚS
FJÖLBÝLISHÚS
BÆJARFÉLÖG
EVRÓPUMÓT
íslenzkra hesta
í Skiveren á Skagen í Danmörku dagana 19. til
20. ágúst.
Samvinnuferðir efna til
hópferðar á mótið 18. til
27. ágúst. — Fararstjóri verður
Agnar Guðnason
Gisting á hótelum eða tjaldstæðum (hægt að fá leigð
tjöld á mótsstað).
Margir möguleikar í skoðunarferðum um Jótland.
Hringið í síma 27077 og fáið allar nánari upplýsingar
Samvinnuferdir
Austurstræti 12 Rvk. simi 27077