Morgunblaðið - 07.08.1977, Síða 18

Morgunblaðið - 07.08.1977, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. AGÚST 1977 „Bros 0g y tra útlit dugir skammt’’ Síðan eru liðin fjórtán ár og frísk- lega sveitastúlkan þykir i dag ein af beztu ljósmyndafyrirsætum Evrópu. Hún vann sér nafn á einu og hálfu ári í háborg tízkunnar, París, og þessu nafni hefur hún haldið fram á þennan dag. Hún hefur ekki látið mynda sig í París- artfzkublöðunum s.l. sjö ár, held- ur hefur hún unnið gegnum sviss- neska umboðsskrifstofu fyrir þýzka verðlista og blöð, en þrátt fyrir það segja kunnugir að GUDRUN sé enn þá stórt nafn i Guðrún Bjarna- dóttir ein af beztu ljósmynda- fyrirsætum Evrópu í dag Parísartískuheiminum. Hún hef- ur náð þeim árangri að vera starf- andi og eftirsótt ijósmyndafyrir- sæta í fjórtán ár, frá þvi að vera ungligamódel til þess að vera hin siðfáguð glæsikona og þegar hún hefur talað um að hætta, segja viðskiptavinir hannar: „En Guð- rún, hvern eigum við þá að nota?“ Eða eins og einn blaðamaður Morgunblaðsins sagði; „Það eru allir sammála um að hún ber af öðrum konum. Persónulega finnst mér hún fallegasta kona, sem ég hef nokkurn tíma séð og eina konan í heiminum, sem ég held að gæti látið mig fara hjá merr“ „Pabbi segir ég muni gifta mig á elli- heimilinu.“ Guðrún Bjarnadóttir er 34 ára og séu bornar saman myndir af henni í dag og fyrir fjórtán árum, virðist hún sízt hafa látið á sjá í útliti, með sitt kastaníubrúnt hár og blá augu og svo til engan and- listfarða. En starf hennar er líka fólgið í góðu útliti, en eins og hún segir sjálf: „I minu starfi kemur fallegt útlit sjálfsagt að góðum notum, en það er alls ekki nóg. Stúlka, sem vill ná góðum árangri i tízkuheiminum, þarf ekki ein-| göngu á góðu útliti að halda, hún þarf einnig góðar gáfur, sterkarl taugar og mikinn presónuleika.) Eftirsótt ljósmyndafyrirsæta er enginn kjáni eða fígúra og -líf hennar er ekki dans á rósum. Hún þarf að vinna markvisst og rólega að þvi að ná árangri og til að halda honum. Fyrirsætustarfið er yndislegt starf, en stif vinna eins og hver önnur, enda er lífið ekk- ert annað en vinna. Ofmetnist stúlka yfir að hafa náð góðum árangri getur hún. ljósm Rax. Guðrún og Margrét systir hennar ræddu við blaðamann á kaffihúsi f Reykjavík í vikunni. Margrét hefur dvalið langdvölum erlendis og var lengi ljósmyndafyrirsæta f Frakklandi eins og „stóra systir“ en tfzkuheimurinn átti ekki eins vel við hana og þvf gaf hún það starf upp á bátinn. Á forsíðu Morgunblaðsins 18. ágúst, 1963 er frétt frá AP, þar sem segir að ung íslenzk stúlka hafi verið kosin ungfrú alheimur. Þessi stúlka var Guðrún Bjarna- dóttir úr Njarðvíkum, sem ári áður hafði hreppt titilinn ungfrú ísland og hafði eftir það haldið til Parísar til að freista gæfunnar í tízkuheiminum. I fréttaskeyti AP um úrslitin í alheimsfegurðarsam- keppninni segir enn fremur að Guðrún Bjarnadóttir sé „frískleg, óbreytt sveita- stúlka". alveg eins hætt, því ekkert er eins hættulegt og að vera of öruggur um að vera kominn á toppinn. Það sem er erfiðast er að halda sér á toppinum og þegar þangað er komið er aðeins ein leið, niður- leið.“ „Stundum finnst mér ég áttræð.“ Guðrún Bjarnadóttir kemur alltaf til Islands öðru hverju og þá helzt á sumrin. Hún á sjö ára son, Sigmar Aimery, og er ógift. „Pabbi segir að ég muni gifta mig á elliheimilinu“, segir hún hlægj- andi og siðan — „Hjónaband, ha; Ekki fyrir mig takk. Ekki strax. Ég bý í ferðatösku, ferðalög eru mitt lif. Ég get ekki hugsað mér að setjast niður á einum stað og lifa kassalifi. Þess vegna valdi ég þetta starf og þess vegna tók ég þátt i fegurðarsamkeppninni í upphafi, það er til að komást frítt út, kynnast fólki og komast í sam- bönd. Það er þetta, sem ungar stúlkur ættu að gera og það ætti einnig að brýna fyrir ungum stúlkum að binda sig ekki of ung- ar. Þegar maður er tvítugur á maður að halda út i heim og freista gæfunnar. A þann hátt einn færðu tækifæri til að kynn- ast sjálfri þér. Þegar eiginmaður og börn eru komin i spilið er það orðið of seint.“ „Ég hef reynt ótrúlega markt", segir Guðrún brosandi. „Stundum finnst mér ég áttræð. Líf mitt hefur flogið áfram, en ég hef samt alltaf leitað að minum innra manni í ys og þýs hversdagslífs- ins. Einn daginn flýg ég til Mexíkó og þann næsta er ég kom- in til Zúrich. Ég hef þurft að skapa mér visst andlegt jafnvægi, sem er áunnið. Til að halda fegurðinni þarf maður að fara vel með sig, láta ekki streituna yfir- buga sig og gæta þess alltaf að fá nægan svefn. Ég hef tamið niér það að geta sofnað alls staðar og undir hvaða kringumstæðum, sem er.“ „Þegar ég var unglingur sótti ég oft dulspekifundi með pabba. Dulspeki og innri hugarró leikur stórt hlutverk í minu daglega lífi. Ég er einnig trúuð, en hef þó lært það i lífinu að treysta mest á sjálfa mig. Vinir? Maður veit aldrei hverjir eru það i raun ef eitthvað bjátar á leita ég til fjöl- skyldunnar minnar hér heima.“ Guðrún þykir eins og segir f meðfylgjandi grein ein af tfu toppljósmyndafyrirsætum Evrópu. Hún byrjaði sem unglingamótel og hefur náð þeim árangri að vera á toppinum f fimmtán ár. Þessar tfzkuljósmyndir eru af auglýsingakorti Guðrúnar, en slfkt kort hafa allar starfandi ljósmyndafyrirsætur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.