Morgunblaðið - 07.08.1977, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. AGUST 1977
25
Gagnlegir dagar
nauðsynlegt samstarf
Rætt við þátttakendur í norrænum
kristnum menningardögum
DAGANA 3.—5. ágúst voru
haldnir svonefndir norrænir
kristnir menningardagar I
Norræna húsinu í Reykjavik, og
var það stjóm Samnorrænu kirkju-
stofnunarinnar. Nordiske Ekumen-
iske Institutet, sem efndi til þess-
ara menningardaga. Um leið var
haldinn aSalfundur stofnunarinnar
og fór hann fram á Akureyri 31.
júli s.l. Mbl. ræddi viS þrjá þátt-
takendur og eiga þeir sæti i stjórn
Samnorrænu kirkjustofnunarinn-
ar.
Johannes Asgaard er frá Dan-
mörku og er hér ásamt konu sinni,
Anna Maria Aagaard. en hún flutti
fyrirlestur- um dönsku skáldkonuna
Ulla Ryum. Johannes Aagaard er
prófessor i guðfræði við háskólann I
Árósum.
— Ég hef einu sinni áður komið
til Islands, það var fyrir 5 árum er
við sátum aðalfund stjórnar Sam-
norrænu kirkjustofnunarinnar en
hann er haldinn til skiptis I öllum
Norðurlöndunum. en ég hef verið I
stjórninni I 1 5 ár.
Hver eru nú helztu verkefni stofn-
unarinnar?
— Það má segja að það sé sam-
ræming og samstarf á öllum svið-
um, við reynum að hafa samstarf I
menningarmálum, stjórnmálum og
samræma skoðanir ef hægt er, og
yfirleitt að viðhalda sem mestu sam-
starfi og samskiptum milli kirknanna
á Norðurlöndunum. Þessi samtök
eru orðin um 30 ára og er þetta
eiginlega eini vettvangurinn fyrir
svo almennt og víðtækt samstarf
milli Norðurlandanna. Þá má nefna
að Norðurlöndin reyna að koma
fram sem einn aðili I Alkirkjuráðinu,
þ.e. standa sem mest saman á þeim
vettvangi. Þessi stofnun tekur til
allra kirkjudeilda, einnig kaþólskra.
og má e.t.v segja að við séum þar
skrefi framar, en aðrar hliðstæðar
stofnanir.
— Á hverju ári eru skipulagðar
ýmsar ráðstefnur á vegum stofnun-
arinnar og sækja þær að meðaltali
50—60 manns. Á þessum ráð-
stefnum er fjallað um ýmis mál, svo
sem samstarf kirkjudeilda, kristni-
boð, samstarf og samskipti við önn-
ur og óllk trúarbrögð. tekin fyrir
hjónabandsvandamál og mannleg
samskipti, þróunarmál og fleira.
Þessar ráðstefnur eru mjög gagnleg-
ar og eru þær oft þrjár til fjórar á ári
hverju. en ekki höfum við ráðist I að
halda þær hérlendis ennþá vegna
fjarlægðarinnar, sagði Johannes Aa-
gaard að lokum
Johannes Aagaard frá Danmörku.
Ljósm. Ól. K.M.
Johannes brskup frá Finnlandi.
Ljósm. Rax.
Sjóndeildarhring-
urinn stækkaði
Frá Finnlandi er kominn biskup
Johannes (metropóllt) I Helsingfors,
biskup orþódoxu kirkjunnar þar og
hann greinir aðeins frá sinni kirkju-
deild:
— Þetta er fremur lítíl kirkja I
Finnlandi, meðlimir eru nálægt 60
þúsund og söfnuðirnir eru alls 25 I
landinu. Hún var stofnuð fyrir 900
árum og má því segja að hún hafi
verið hluti af Finnlandi, hluti af
Lars Thunberg frá Svlþjóð. Ljósm.
Rax.
menningu landsins I öll þessi ár.
Annars hefur þessi kirkjudeild kom-
ið frekar seint til Vesturlanda. en
eftir slðari heimsstyrjöldina fer út-
breiðsla hennar að vaxa að marki I
Finnlandi.
Johannes biskup flutti fyrirlestur
um menningaráhrif orþódoxu kirkj-
unnar I Finnlandi og lýsti hann m.a
þar hvernig kirkjudeildin hefði
breiðzt út um landið
—- Þvl er ekki að neita, sagði
Johannes. að orþódoxakirkjan á við
nokkra erfiðleika að striða og er það
m.a. vegna þess hversu dreifð hún
er um landið, tiltölulega fáir eru á
hverjum stað og gerir þetta t.d.
börnum erfitt fyrir i skólanum hvað
varðar uppfræðslu I trúarbrögðum
Það hefur lika gerzt tiltölulega fljótt.
aðallega um og eftir strlðsárin, að
hún breiddist út um landið. en hún
hefur einnig verið meira og betur
kynnt um landið en ella vegna þess-
arar dreifingar.
— Fjölgun I okkar kirkjudeild er
fremur hæg, þar sem um 90%
hjónabanda eru blönduð. þ.e annar
aðilinn er af annarri kirkjudeild og
verður það oftar þannig að börnin
tilheyra þeirri kirkjudeild, sem ekki
er sú orþódoxa En hins vegar er
þróunin aðeins að breytast I hina
áttina.
Þá gat Johannes biskup um að
æskulýðsstarf orþódoxu kirkjunnar
væri mjög vadandi og hún hefði yfir
:ð ráða nokkrum stöðum þar sem
reknar væru sumarbúðir fyrir börn
og unglinga og dveldu nokkur
hundruð barna og unglinga í sumar-
búðum i nokkrar vikur i senn
— Þessi dagskrá hér og heim-
sóknin til íslands hefur verið mjög
skemmtileg og gagnleg, hér hefur
maður kynnzt enn fleirum og þessi
samskipti deildanna eru nauðsyn-
leg. Þá hefur einnig verið tækifæri
til að sjá smáhluta af íslandi og
hefur þessi heimsókn öll stækkað
sjóndeildarhringinn svolltið, sagði
Johannes biskup að lokum.
Fyrsta dagskrá
sinnar tegundar
Slðast var rætt við dr. Lars Thun-
berg dósent frá Svlþjóð, en hann er
þekkt skáld þar og hefur gefið út
nokkrar Ijóðabækur og visindarit
Las hann upp frumort Ijóð sin á
einni dagskránni. Dr. Thunberg er
forstöðumaður fyrir Samnorrænu
kirkjustofnunina sem hefur aðsetur i
Sigtuna I Sviþjóð Hann greindi i
nokkrum orðum frá stofnuninni:
— Þessari stofnun var komið á
fót 1940 og er aðalaðsetur hennar I
Sigtuna, sem er skammt frá Stokk-
hólmi. Henní tilheyra kirkjudeildir á
öllum Norðu»löndunum, m a bapt-
istar, kaþólskir, meþódistar og hjálp-
ræðisherinn og alls eru þetta 16
samtök eða deildir, sem mynda San-
norrænu kirkjustofnunina. Aðal-
fundir hennar eru haldnir einu sinni
á ári til skiptis I Norðurlöndunum,
við vorum I Danmörku I fyrra og
verðum með hann i Finnlandi á
næsta ári
— Þessir menningardagar hér
núna eru eiginlega hinir fyrstu sinn-
ar tegundar sem við efnum til, en
aðalverkefnin hafa verið ráðstefnu-
hald og útgáfa timarita og árbókar,
þar sem er að finna allt um starfsemi
stofnunarinnar frá árí til árs Annars
eru þessar ráðstefnur stundum erfið-
ar í framkvæmd, t d vegna málaerf-
iðleika fyrir Finna og vegna fjar-
Framhald á bls. 15
Önnur vandamál sem S.Þ. hafa
viðurkennt eru: hernumdu svæð-
in, sem ísraelar hafa tekið i Gaza
og á Golanhæðum og vesturbakka
Jordan. Og loks: Chile. Eiginlega
er ekki ástæða til að gera veður út
af öðru, a.m.k. ekki opinberlega.
Annað skilst manni sé i bezta lagi.
Þetta er sem sagt heimsmyndin
sem við blasir í dag.
Það væri ekki ofsagt, að full-
yrða að þessi orð Halldórs
Laxness séu meiri en litil kald-
hæðni: „Nú er það einganveginn
meiníng mín, að ekkert geti verið
rétt sem kemur frá nefndum".
Fyrrnefnd afstaða S.Þ. hefur
komið frá nefndum og nefndar-
nefndum.
En lítum nú á nokkur dæmi
sem fyrr er ymt að. Undir stjórn
jafnmerks Arabaleiðtoga og
Sadat er, hafa Egyptar ekki haft í
öðru merkara að snúast á heima-
vígstöðum en lögfesta ákvæði
þess efnis, að hver sá sem turnast
frá múhameðstrú skuli réttdræp-
ur. Hvað segðu nú íslendingar, ef
það væri leitt í lög hér á landi, að
hver sá sem gengur úr þjóðkirkj-
unni skuli gjalda þess með lífi
sínu samkvæmt lögum? Þá hefur
verið nýleitt i lög i öðru
múhameðstrúarlandi, Pakistan,
að hendur skuli höggva af þjóf-
um. Þannig er verið að vekja upp
miðaldir með nýrri löggjöf, úti
um allar trissur.
Blóðvellir
heimsins
Eitt þeirra landa, sem er hvaó
virkast i FIDE, Argentina, er að
verða hálfgerður blóðvöllur og
nýjustu fréttir af gerræðisstjórn-
inni þar eru þess efnis, að stjórn-
völd aki andstæðingum svo Iitið
beri á í merktum sjúkrabílum út
fyrir bæi og borgir, lífláti þá þar
og husli eins og hunda. En á
alþjóðaþingi FIDE i Luzern var
sótzt eftir afstöðu Argentínska
skáksambandsins, en það er að
undirbúa mikið mót i nafni FIDE.
Vonandi verða þátttakendur ekki
keyrðir á milli i sjúkrabílum. En
sem sagt: Argentína er ekki
vióurkennt vandamál, hvorki hjá
S.Þ. né FIDE. Astæða: þar var
ekki sósialista steypt af stóli (að
visu rangt orð, ætti að vera:
marxista).
í Uruguay er hryðjuverkastjórn
svo mögnuð að engu tali tekur, i
Paraguay er það eitt vinsælasta
sportið að fara á indiánaskyttiri,
eins og menn skjóta gæsir og
hreindýr á Islandi, og mestur
hluti Suður-Ameríku liggur i
blóði hefnda, hryðjuverka og ein-
ræðis, og allir vita hvernig
ástandið er i Afríku. Þar eru
ýmist engin mannréttindi eða lít-
il. Ýmist engar kosningar eða
málamyndakosningar eins og i
Egyptalandi og Túnis, svo að
nefnd séu dæmi af betra taginu.
Nú er þó talið, að verið sé að
undirbúa kosningar i þeim tveim-
ur löndum i Afriku, þar sem
ástandið hefur verið hvað skikk-
anlegast/Ghana og Efri Volta. En
þar með er upptalið.
í Mið-Ameríku og Karabíska
hafinu eru ógnarstjórnir. Allir
vita hvernig ástandið er í Uganda,
þar sem dómsmálaráðherrann fór
nýlega á alþjóðafund til að verja
stefnu landsins í mannréttinda-
málum, sem hann gerði eins og að
drekka vatn, en notaði samt tæki-
færið til aö flýja land, svo að ekki
sé talað um heilbrigðisráðherr-
ann, sem heldur því fram, að
Amin hafi oft lofsungið manna-
kjöt í hans eyru.
Malik, utanríkisráðherra Indó-
nesíu, þykist hafa efni á þvi að
gagnrýna mannréttindastefnu
Carters Bandarikjaforseta, en í
Indónesíu er enn um 50 þúsund
pólitiskir fangar, sem skiptast í
þrjá flokka: þá sem stjórnin þyk-
ist hafa sönnunargögn gegn, þá
sem hún viðurkennir að skorti
sannanir gegn og þá sem hún seg-
ist ætla að láta lausa á næstu
fjórum árum. Margir þessara
fanga eru kommúniar. A Filipps-
eyjum er einræðisstjórn, svo og i
Suður-Kóreu sem stendur og allir
vita hvílíkur vitfirringur stjórnar
Norður-Kóreu. I Vietnam eru
framin hryðjuverk á vegum
kommúnista og Kambódía er
harmsaga með eindæmum í sam-
anlagðri sögu mannkynsins, ef
marka má þær fréttir, sem helzt
er á að byggja frá þessu ógæfu-
sama landi.
I Epiópiu eru blóðhundar fyrri
tegundar, Mengistu, sem lætur
drepa fólk og selur svo foreldrum
lik þess fyrir blóðpeninga. Hann
hefur farið i fína heimsókn til
Moskvu og er marxisti. I Mið-
baugsgineu, Macias og kallar sig
kraftarverkið eina og minnir á
fjallið eina á Reykjanesi. Hann er
blóðhundur af versta tagi i landi,
sem var álíka fjölmennt, þegar
það hlaut sjálfstæði á siðasta ára-
tug og Island er nú. Um 25%
landsmanna hafa flúið, en ótaldir
eru þeir sem æskulýðsfylking
kraftaverksins hefur drepið. Mun
nú liggja við landauðn. Hvað
segðu íslendingar ef 100—150
þús. manns hefðu flúið ógnar-
stjórn hér eða verið drepnir?
Samanburður við okkar fámenna
og tiltölulega friðsama land er
nærtækastur og mest upplýsandi.
Samvizku-
spursmál
Þetta eru aðeins örfá dæmi,
nánast tekin af handahófi, og
fleiru mætti bæta við, s.s. frá
Persiu og Libýu. þar sem ein-
ræðisseggir og miðaldaskraut-
fjaðrir vaða i olíupeningum. En
hér verður látið staðar numið.
Skinhelgi og hræsni riða ekki við
einteyming á okkar yfirborðslegu
öld. En nefndirnar og yfirlýsing-
arnar segja samt. að ekkert af
þessu hafi gerzt. Það sem hefur
ekki verið staðfest af nefndunt
tilheyrir víst ekki veruleikanum,
a.m.k. ekki opinberum veruleika.
Þau ógnarverk, sem eru ekki
viðurkennd af S.Þ. eru ekki blett-
ur, hvorki á einum né neinum.
Þau eru i hæsta lagi umhugs-
unarefni og samvizkuspursmál
hvers og eins einstaklings i heim-
inum, ekki sizt okkar, sem tókum
þingræði og almenn mannréttindi
í arf. Við eigum að hætta að
hlusta á nefndir, en leggja þeim
mun betur eyrun við þvi, sem fólk
segir. En gleymum því þá ekki, að
eitt eru stjórnvöld, en annað
óbreyttir borgarar kúgaðra ríkja.