Morgunblaðið - 07.08.1977, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. ÁGOST 1977
Maðurinn minn
SIGURJÓN PÁLSSON,
múrari,
Geitlandi 21,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 10. ágúst kl.
13 30 Þeim sem vildu minnast hins látna er vinsamlegast bent á
líknarstofnanir
Fyrir hönd vandamanna, Magnússína Ólafsdóttir
Útför + KRISTÍNAR E. VÍGLUNDSDÓTTUR,
Norðurbrún 1,
ferð fram frá Fossvogskírkju, á morgun, mánudaginn 8 þ m kl. 13.30
e.h. Óskar Magnússon. Jóhanna Óskarsdóttir,
Vilbogi Magnússon, Rósa Viggósdóttir.
t
Hjartkær móðir okkar
GUÐBJÖRG SIGUROARDÓTTIR
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 9 ágúst kl. 1 5
Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna
Engilbert Þorvaldsson,
Jóhanna Þorvaldsdóttir,
Sigurjón Þorvaldsson,
Elín Þorvaldsdóttir.
Útför t
ODDRÚNAR ÞORKELSDÓTTUR,
Freyjugötu 47,
Reykjavik
sem andaðist 28 júli s I fer fram þriðjudaginn 9 ágúst frá Fossvogs-
kirkju kl 10 30.
Guðrún Runólfsdóttir Þorgeir P. Eyjólfsson.
Útför
t
LÁRUSAR JÓHANNESSONAR
frv. hæstaréttardómara,
verður gerð frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 9 ágúst kl 3
Stefania Guðjónsdóttir,
Jóseffna Lára Lárusdóttir, Halldór Bjarnason,
Auður Guðmundsdóttir. Guðjón Lárusson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
JÓHANN PÁLSSON,
pipulagningameistarí,
Blönduhlið 27, Reykjavik,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 9 ágúst kl 1 30
e h „
Guðrún K. Eliasdóttir,
Sveinn Frímann Jóhannsson,
Kristján Pálmar Jóhannsson, Velgerður Sigurðardóttir,
Ruth Jóhannsdóttir. Lárus Ingólfsson.
og barnaborn.
t
Útför eiginkonu minnar, móður okkar. tengdamóður, ömmu og dóttur
minnar
WENNIE SCHUBERT
Þórsgötu 6
fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 8 ágúst kl 3 e h
Gísli Sigurjónsson,
Edith Gisladóttir, Þóra Gisladóttir,
Ásdis Gísladóttir, Einar Sumarliðason,
Gisli Þór Einarsson, Edith Schubert.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall eiginkonu minnar,
systur, móður, tengdamóður og ömmu
GUOMUNDU HERBORGU GUÐVUNDSDÓTTUR
Klapparstig 16 Ytri-Njarðvik
Guðmundur Brynjólfsson
Þórhanna Guðmundsdóttir Jóhann B. Guðmundsson
Magna Guðmundsdóttir Ólafur Jónsson
Hrefna Guðmundsdóttir Miller Ólafur Árnason
Margrét J. Guðmundsdóttir Jón Friðrik Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
Steingrímur J.
Guðjónsson
umsjónarmaður
Fæddur 30. nóvember 1906
Dáinn 25. júll 1977
Góður maður er genginn. Stein-
grímur Jón Guðjónsson fyrrver-
andi umsjónarmaður Land-
spitalans lést á sviplegan hátt
vestur við Purkey á Breiðafirði
hinn 25. júlí s.l. Hversu dýrmætt
er ekki lífið þegar birta og ylur
vermir hjörtu okkar. Þegar sólar-
geislar hafa brotist i gegnum
skýin og flæða yfir allt og reka
myrkur og kulda á braut. Oft
nægir þetta okkur til þess að vera
glöð og kát, en aðeins um stundar-
sakir. En það er til fólk sem
hvorki myrkur né kuldi vinnur á,
fólk sem hefir öðlast þann skiln-
ing og þroska með jákvæðum
hugsunum og gerðum, að ekkert
raskar ró þess. Það gegnur á
meðal okkar og jákvæð hugsun
þess streymir frá þvi í verkum og
tali og léttir byrðar þeirra er
þunga og erfiðleikum er haldið.
Það fór ekki mikið fyrir Stein-
grími Jóni, aldrei hávaði né læti.
Hann gekk hljóðlega um, þros
hans var hlýtt og úr augum hans
skein mildi og kærleikur. Stein-
grímur hafði tekið jákvæða
stefnu í lífinu, tileinkað sér það
besta, samviskusemi í því er hann
tók sér fyrir hendur, sí leitaði að
fegurð hvar sem hana var að
finna og ekki hvað síst í með-
bræðrum sínum. Dálæti hans á
börnum bar þess ótvfræð merki,
hve trúaður hann var á mannssál-
ina. Steingrímur kunni að um-
gangast börn. Hann kunni að
setja sig í þeirra spor og gat leikið
þannig við þau að þau fundu ekki
annað en hann væri einn af þeim.
Hann kunni að leiða þau áfram til
manndóms og þroska og vissi
hvenær mátti sleppa af þeim
höndum og láta þau sjálf taka á
sig ábyrgð fullorðins fólks.
Steingrímur kvæntist Margréti
Hjartardóttur hinn 9. október
1937 og eignuðust þau fjóra syni,
sem allir eru uppkomnir. Synir
þeirra hjóna eru allir farnir að
heiman en þeiir eru: Jón pípu-
lagningamaður, starfsm. Land-
spítalans, Helgi fulltrúi hjá
Landsbanka Islands, Þorsteinn
sölumaður hjá Fasteignaþjónust-
unni og Guðjón starfsmaður
Reiknistofu bankanna. Allir eru
þeir giftir og eiga mannvænleg
börn og eru ótaldar þær stundir
er þau Margrét og Steingrimur
hafa lagt fram til blessunar
barnabörnum sínum.
Margrét var alin upp í Purkey
og héldu þau hjón mikið upp á
staðinn og fóru árlega til að dvelj-
ast þar, ásamt sonum sínum og
venslafólki. Steingrími var sér-
staklega annt um þennan stað og
hvatti drengina sína til að byggja
sumarbústað á eyjunni og þar eð
Steingrfmur hafði hætt störfum
hjá Landspítalanum sökum
aldurs, dreif hann sig út f eyjar til
þess að hjálpa til við uppbygging-
una. Vini áttu þau hjón í Purk-
eynni, þótt nú sé aðeins einn eft-
ir, Jón Jónsson bóndi, uppeldis-
bróðir Margrétar, er dvalið hefur
þar einn í mörg ár. Til hans er
gott að koma, það þekkjum við af
eigin raun og til hans sóttu
Margrét og Steingrfmur og ekki
síður drengirnir og voru þar í
góðu yfirlæti og tóku til hendi
með honum við búskapinn.
Áhugamál Steingrfms voru
f jölda mörg og ekki hægt að gera
þeim nein tæmandi skil í stuttri
t
Þökkum auðsýnda samúð við útför bróður mins og móðurbróður okkar
STEFÁNS ÁRNASONAR
Vestmannaeyjum.
Árný Sigurðardóttir, Suðurgarði
Stefanía, Árni, Jón í. Sigurðsson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
dóttur okkar
GUÐNÝJAR MARENAR.
Sigriður Garðarsdóttir, Kristinn Jónsson.
t
Þökkum af alhug hluttekningu vegna fráfalls og jarðarfarar
JÓNASAR BJÖRNSSONAR,
fré Dæli,
Vtðidal.
Sérstakar þakkir viljum við færa öldruðu fólki er lagði á sig langt
ferðalag til að heiðra minningu hans.
Helga Jónasdóttir Ágúst Frankel Jónasson,
Sigriður Jónasdóttir Hreinn Kristjénsson,
barnabörn og bamabarnabarn
Lokað
mánudaginn 8. ágúst eftir hádegi vegna
jarðarfarar Steingríms Guðjónssonar.
Fasteignaþjónustan Austurstræti 1 7.
grein, aðeins minnast á það
helsta. Þá er fyrst að nefna vinn-
una og heimilið. Vinnustaður
hans á Landspítalanum var staður
er Steingrímur naut sín á, ekki
eingöngu við að Iagfæra og endur-
nýja það sem úr sér gekk, heldur
og ekki síður til að fegra í kring-
um spitalann og ber trjágarður-
inn fyrir sunnan gamla spítalann
þess glöggt vitni. Heimakær var
Steingrfmur, þar leið honum bezt
hjá konu og sonum sínum. Stein-
grímur var fjallamaður er hafði
næmt auga og djúpar tilfinningar
fyrir náttúrufegurð landsins,
hvort heldur var í stórhrikaleika
öræfanna eða gróðursæld dal-
anna. Myndavélina hafði hann
ávallt með ser og tók myndir og
þannig undirbjó hann sig undir
langan vetur og bauð þá gjarnan
kunningjum og vinum til sín á
köldum vetrarkvöldum. A þeim
kvöldum var gaman að vera leidd-
ur i sól og birtu heima i stofu hjá
honum og tók hann þá fólk með
sér inn í furðuheima islands með
heillandi frásögnum, þvf hann
þekkti landið og sögu þess. Margt
fleira mætti segja um áhugamál
hans en hér læt ég staðar numið.
Steingrímur var fæddur f Litlu-
Brekku í Geiradal. Foreldrar
hans voru Guðrún Magnúsdóttir
og Guðjón Jónsson. Guðjón var
bæði bóndi og trésmiður í sinni
sveit. Steingrímur ólst upp í for-
eldrahúsum til tuttugu ára ald-
urs, en innritaðist þá í Hvítár-
bakkaskóla og stundaði nám þar í
þjrá vetur. Varð siðan sýsluskrif-
ari hjá föðurbróður sfnum Ara
Arnalds á Seyðisfirði í tvö ár, en
flyst þaðan til Reykjavikur 1930
og hóf störf fyrst sem skrifstofu-
maður hjá Landspitalanum en
síðar sem umsjónarmaður, eins og
fyrr getur. Steingrimur átti átta
alsystkin, fjóra bræður og fjórar
systur, einn uppeldisbróður sem
var systursonur þeirra og var
hann ávallt tekinn í systkina-
hópinn. Tvö systkini hans eru nú
látin, Þau Jón og Jóhanna.
Að leiðarlokum langar okkur til
að þakka Steingrími og konu hans
fyrir dóttur okkar en hún er gift
Þorsteini. Þær tengdir urðu lil
þess að ég og fjölskylda mfn
kynntumst þessu ágæta fólki. Við
munum minnast Steingrims um
ókomna ævi. Þökkum honum
hlýju handtökin og mildu brosin
sem hann átti svo létt með að
gefa. Konu hans, sonum og öðru
venslafólki vottum við dýpstu
samúð.
Aðalheiður Skaptadðttir,
Þorgrfmur Einarsson.
Fyrir rúmum sjö mánuðum
komu saman í borðstofu Land-
spítalans um sjötíu starfsmenn
hans til að kveðja umsjónarmann
spítalans, Steingrím J. Guðjóns-
son. Steingrímur hafði átt sjötugs
afmæli hinn 30. nóvember og ætl-
aði að hætta störfum hjá Land-
spítalanum við áramótin. Með
Steingrími, á þessari kveðju-
stund, var, auk starfsmanna
Landspítalans, kona hans, frú
Margrét Hjartardóttir. Við, sem
þá tókum þátt í þessu kveðjuhófi,
sem haldið var til heiðurs Stein-
grimi og konu hans Margréti,
héldum, að nú væri fram undan
hjá Steingrími nokkur róleg ár og
þægilegt ævikvöld, eftir mjög
erilsama og langa starfsævi hjá
Landspítalanum. En nú eins og
svo oft áður er erfitt að sjá fyrir
þau atvik, sem ráða örlögum, og
ævikvöld Steingríms varð miklu