Morgunblaðið - 11.08.1977, Side 1
36 SÍÐUR
175. tbl. 64. árg.
FIMMTUDAGUR 11. AGÚST 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Landsþing kommúnistaflokksins í Kína:
Teng skipaður f or-
sætisráðherra?
Peking, 10. ágúst. Reuter.
ALLT bendir til þess að hafið sé f
Peking 11. Iandsþing kínverska
kommúnistaflokksins, og var haft
eftir áreiðanlegum heimildum í
Peking í kvöld að þar yrðu teknar
ákvarðanir um skipan flokksfor-
ystunnar í samræmi við breytt
viðhorf eftir fráfall IVlao Tse
tungs formanns. Kínversk yfir-
völd hafa ekkert látið hafa eftir
sér um landsþingið og gefa f skyn
að fregna sé ekki að vænta fyrr en
þinginu sé lokið.
Heimildarmenn segja, að á
þinginu verði tekin afstaða til
margra embætta innan flokksins
og f kfnverska valdakerfinu, auk
þess sem búizt sé við þvf að þar
verði örlög „þorparanna fjög-
urra“ endanlega ráðin. Meðal
helztu mála sé ákvörðun um skip-
un f forsætisráðherraemhætti, en
Hua Kuo Feng formaður gegndi
þvf áfrant eftir að hann tók við
formennsku flokksins að Mao
látnum. Almennt hefur verið tal-
ið að sú tilhögun væri aðeins til
bráðabirgða, eða þar til mestu
valdabaráttunni í flokknum væri
lokið. Þykir nú einsýnt að Teng
Hisiao Ping, sem endurreistur
var í sfðasta mánuði, sé sá sem
helzt kemur til greina f forsætis-
ráðherraembættið. Þó er trúlegt
Framhald á bls. 20.
5—9 þús. hermenn
á leið til Eþíópíu?
Naíróbí, 10. ágúst. Reuter.
STJÓRN Sómalfu sagði f dag, að
milli 5 og 9 þúsund erlendir her-
menn væru á leið til Eþfópíu.
Einnig var þvf haldið fram að
Eþfópfumenn fylktu nú liði í þvf
skyni að ráðast á Sómalfu. Þegar
sendiherra Sómalíu f Nafróbf var
að þvf spurður á fréttamanna-
fundi f dag hvort herliðið sem
væri á leið til Eþfópfu kæmi frá
Kúbu varðist hann allra frétta, en
sagði að það kæmi f Ijós þegar
herliðið væri komið á áfangastað.
Eþfópíustjórn hefur vfsað þess-
um yfirlýsingum algerlega á bug
og segir, að hér sé um að ræða lið
f áróðursherferð Sómalíumanna.
vang til að liðsinna þeim sem
særzt hafa í átökum í Ogaden.
Sómaliustjórn hefur hvað eftir
annað vísað á bug ásökunum Eþí-
ópiustjórnar um þátttöku í bar-
dögunum í Ogaden, en segir að
þar sé um að ræða aðskilnaðar-
hreyfingu Vestur-Sómaliu. Á
fundinum í Naíróbí í dag varaði
sendiherra Sómalíu mjög við er-
lendri fhlutun á Afrikuhorninu,
sem svo er nefnt, og sagði að
þegar erlent herlið væri einu
sinni komið á vettvang virtist ekk-
ert þvi til fyrirstöðu að aðskilnað-
arsinnar i Erítreu og Vestur-
Sómalíu söfnuðu einnig liði er-
Framhald á bls. 20.
Uhro Kekkonen forseti Finnlands og Kristján Eldjárn forseti tslands ræðast við á Reykjavfkurflug-
velli f gærmorgun. Finnlandsforseti heldur á blómvendi, er Iftil stúlka færði honum við komu hans til
tslands. — Sjá frásögn af heimsókn Kekkonens á bls. 18 og 19. — Ljósm. Mbl.: Rax.
Danmörk:
Nýtt ágústsamkomulag miðar að tak-
mörkun neyzlu og atvinnuaukningu
Deilt um hátekjuskatt og almenna skattahækkun
Ali Dualeh, sendiherra
Sómalíu, kvaðst ekki vita hvort
hinu erlenda herliði væri ætlað að’
berjast i Erítreu eða i Ogaden-
eyðimörkinni, sem aðskilnaðar-
sinnar hafa nú á sinu valdi. Taldi
hann einnig koma til greina að
liðstyrkurinn væri i þvi skyni að
tryggja leiðtoga herforingja-
stjórnarinnar í Addis Abeba,
Mengistu hershöfðingja, áfram-
haldandi völd. Þessar yfirlýsingar
Sómaliustjórnar koma beint i
kjölfar viðurkenningar stjórnar-
innar í Addis Abeba á því að
Ogaden sé nú að langmestu leyti
komin i hendur aðskilnaðarsinna.
Alþjóða Rauði krossinn í Genf
hefur sent hjálparmenn á vett-
Frá Lars Olsen, fréttaritara
Mbl. i Kaupmannahöfn.
UM þessar mundir stefnir allt að
þvf að nýtt ágústsamkomulag
verði gert á vinnumarkaði f Dan-
mörku. t ágúst f fyrra tókst sam-
komulag, sem miðaði að þvf að
halda launahækkunum innan við
sex af hundraði á ári, og sam-
komulagið sem nú er stefnt að
Anker Jörgensen forsætisráð-
herra og Poul Ilartling formaður
vinstri flokksins hafa tekið hönd-
um saman um að nýju ágústsam-
komulagi verði náð.
verður í beinu framhaldi af hinu
fyrra, en með þessum aðgerðum
er ætlunin að takmarka neyzlu og
auka atvinnu.
Fyrst og fremst er það hið
mikla atvinnuleysi i Danmörku,
sem samkomulaginu er ætlað að
ráða bót á, en nú eru yfir 150
þúsund manns á atvinnuleysis-
skrá i Danmörku.
Sú spurning, sem stjórnmála-
flokkarnir standa andspænis nú
er hvort tilgangi efnahagsráðstaf-
anna verði betur náð með hækk-
un á virðisaukaskatti — eða hvort
farið skuli að ráðum stjórnar jafn-
aðarmanna, sem vill að sérstakur
hátekjuskattur verði lagður á þá
Framhald á bls. 20.
Rússinn fluði
frá Úganda til
Bandaríkjanna
Naíróbí, 10. ágúst. Reuter.
SOVÉZKUR sendiráðsmaður f
Uganda er flúinn þaðan og er
nú kominn til Bandarfkjanna,
að því er Ugandaútvarpið
hafði eftir Idi Amin f dag.
Amin kvað manninn heita Bor-
is Itaka, og væri hann sonur
„hetju Sovétríkjanna".
Að sögn Úgandaútvarpsins
skýrði Amin sendiherra Sovét-
rikjanna i Úganda frá þessu er
þeir hittust á Entebbeflug-
velli. Þá sagði Amin að bandar-
íska leyniþjónustan hefði um
langt skeið leitað að mannin-
unt, sem verið hefði ritari i
sendiráðinu, og „náð honum að
Framhald á bls. 20.
Elfzabet drottning kannar heiðursvörð varnarsveitar frá Ulster við
Hillsborough-kastala f gær. simamynd ap
Fórnarlamba
minnzt meðan
bariztvar
Belfast, 10. ágúst. Reuter.
MIKLAR óeirðir hófust f Bel-
fast skömmu eftir að Elfzabet
drottning kom þangað í dag, en
drottningin hafði skamma við-
dvöl f borginni. Fyrsti þáttur
tveggja daga opinberrar heim-
sóknar hennar f tilefni aldar-
fjórðungs krýningarafmælisins
var minningarathöfn um fórn-
arlömb óaldarinnar á Norður-
trlandi allt frá þvf að hún hófst
fyrir átta árum. Athöfnin fór
fram f Hillsboroughkastala í
nágrenni Belfast, en þangað fór
drottningin f þyrlu ásamt
fylgdarliði sfnu.
1 sprengjutilræði í Belfast i
dag særðust sjö manns, en eng-
Framhald á bls. 20.