Morgunblaðið - 11.08.1977, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. AGUST 1977
Frá EM í bridge:
Úrslitaleik-
urinn í dag
milli ítala
og Svía?
ISLENZKA bridgelandsliðið lap-
aði naumlega fyrir Grikkjum I 17.
umferð á Evrðpumðlinu I bridge.
Ásmundur og Hjalti spiluðu allan
leikinn en hin pörin sinn hálf-
leikinn hvort par. Lokatölur urðu
8 gegn 12 fyrir Grikki.
t átjándu umferð spiluðu ts-
lendingar við Pðlverja og virðist
sem sá leikur hafi unnizt 20—0,
en fréttaskeytið var truflað og þvf
ekki áreiðanlegt. Ásmundur,
Iljalti, Ilörður og Þðrarinn spil-
uðu allan leikinn.
Þá virðist sem italska sveitin
hafi tapað fyrir Ungverjum, en
Svíar halda sínu striki og eru
langefstir með 294 stig.
Röð efstu þjóða eftir 18 umferð-
iraf 21.
Svíþjóð 294, ítalía 275, Israel 251,
Danmörk 235, Noregur 227, Sviss
220.
Ekkert var spilað í gærkvöldi,
en í dag eiga íslendingar að spila
gegn Finnum og Þjóðverjum. Ur-
slitaleikur mótsins verður vænt-
anlega í dag en þá eiga Svíar og
ítalir að spila saman.
Fékk 17punda lax á
„þrumur og ekUngar”
„EG ER nú hálfnaður með dvöl
mfna á Islandi að þessu sinni
og eins og f tvö fyrri skiptin,
sem ég hef verið á Islandi, er ég
mjög ánægður og á dásamlega
daga f Hofsárdal, segir Karl
Bretaprins f orðsendingu sem
Morgunblaðinu barst frá hon-
um f gær.
Karl prins segir ennfremur
að það sé hrein unun að vera
þarna í fallegri náttúru, með
fallegu útsýni og veiða fisk og
veiti það sér mjög góða hvild.
Sumarið hafi verið erfitt hjá
sér í Bretlandi og þvi sé hann
mjög ánægður að vera kominn
úr borgarskarkalanum á stað,
þar sem kyrrðin ráði rikjum.
„En vissulega var ég orðinn
þreyttur eftir að hafa verið tvo
klukkutíma að draga 17 punda
lax í gær, en það var góð
þreyta."
Karl prins veiddi þennan 17
punda lax á flugu, sem nefnist
þrumur og eldingar nr. 6. Hann
notar að jafnaði 10.5 feta stöng.
Þá daga sem hann hefur verið
við veiðar í Hofsá hefur hann
fengið 6—7 laxa á dag og var
búinn að fá 27 laxa í fyrra-
kvöld.
Handf ærabátar fá að
sleppa smáþorskinum
Eins og Morgunblaðið hefur sagt frá þá urðu allmiklar
sprengingar á Leirhnúkssvæðinu um sfðustu helgi. Mik-
i11 gufustrókur stfgur nú upp af svæðinu, eins og þessi
mynd ber með sér. u*». mm.:si*hv»iur Bi»nd«i.
Afliúr togara:
42,7% fiskafjöldans undir
58sm — 2,9% undir 50sm
„ÉG mældi fisk úr Páli Pálssyni,
sem var landað 7. ágúst á tsafirði
og I Ijós kom aö 42,7% af fjöldan-
um var fiskur undir 58 sm. að
lengd og þar af voru 2.9% undir
50 sm. sem verða þá gerð upptæk
til rfkissjóðs, “ sagði Guðmundur
Bragi Skúlason, forstöðumaður
útibús Rannsóknastofnunar fisk-
iðnaðarins á Isafirði, f samtali við
Morgunblaðið f gær.
Guðmundur sagði í samtalinu
við Morgunblaðið, að Hafrann-
sóknastofnunin hefði sett sem
viðmiðunarmörk að þegar meira
en 40% af fjölda fiska í afla
reyndust vera undir 58 sm. að
lengd væri tekin akvörðun um að
loka svæði. Páll Pálsson hefði ver-
ið að veiðum á Strandagrunni og
mætti því allt eins búast við að
svæðinu þar yrði lokað á næst-
unni. Togararnir hefðu verið
þarna að veiðum í nokkurn tíma
um daginn og í fyrstu hefði
fiskurinn verið nokkuð vænn, en
farið smækkandi eftir því sem á
hefði liðið. Eftirlitsmenn væru nú
komnir um borð í togara á Vest-
fjarðamiðum en eftir því sem
hann bezt vissi væru togararnir
nú að veiðum í Þverál.
Að sögn Guðmundar var Páll
Pálsson með alls 140 tonn þegar
þessum afla var landað. Sagði
hann, að eins og ákveðið hefði
verið í sumar, væru veiðiskipin
nú skyldug að hirða allan fisk,
sem veiddist og koma með að
landi. Sá fiskur sem væri undir 50
sm. væri sfðan gerður upptækur
og andvirði hans rynni í sérstakan
sjóð, sem ætlaður væri til vísinda-
legra rannsókna á fiskimiðunum.
Guðmundur sagði, að þorskur
frá árinu 1973 væri yfirgnæfandi
í afla togaranna um þessar mund-
ir og hefði verið allt þetta ár og
virtist þessi árgangur hafa verið
mjög sterkur.
UM ÞESSAR mundir er verið að
gera úttekt á handfærabátaútgerð
tslendinga, meðal annars með þvf
að kanna hve margir bátar stunda
handfæraveiðar og hvernig afla-
samsetning bátanna er, og eru
eftirlitsmenn sjávarútvegsráðu-
neytisins m.a. úti á landi núna við
störf í þessum tilgangi. Niður-
stöður úttektarinnar munu, sam-
kvæmt þvf sem Jakob Magnússon
fiskifræðingur tjáði Morgunblað-
inu f gær, liggja að mestu fyrir
eftir helgi.
Jakob sagði að nú þegar hefðu
sjávarútvegsráðuneytinu verið
send gögn sem unnin væru á
grundvelii þeirra upplýsinga sem
þegar lægju fyrir og stefnt væri
að þvi að hægt yrði að koma í veg
fyrir að færabátar þyrftu ekki að
hætta veiðum, þótt önnur skip
þyrftu að gera það, og sem kunn-
ugt væri þyrftu fiskiskip að koma
með allan fisk að landi.
Jón Arnalds ráðuneytisstjóri
sjávarútvegsráðuneytisins sagði í
samtali við Morgunblaðið i gær,
Nafn piltsins
PILTURINN, sem lézt í bifreiða-
slysinu i Hegranesi fyrr i vikunni,
hét Ivar Andrésson til heimilis að
Hvassaleiti 33 í Reykjavík. Hann
var fæddur í nóvembermánuði
1953. Ivar lætur eftir sig unnustu
og barn.
Dr. Euwe í samtali við Mbl:
Möguleikar Friðriks
hafa ekki minnkað
en það er nauðsynlegt að vinna að framboðsmálunum
„ÉG TEL að möguleikar Friðriks
Ólafssonar á því að verSa eftir-
maður minn hafi alls ekki minnk-
að við þetta stormasama þing út
af S-Afrlku," sagði dr. Euwe, for-
seti Alþjóðaskáksambandsins, I
samtali við Mbl. „ Ef nokkuð er má
reikna með að Friðrik hafi nú
harðari kjarna Vestur-Evrópulanda
á bak við sig og ég tel vafalltið að
hann njóti stuðnings skáksambanda
I Ameriku, bæði Suður-, Mið- og
Norður Ameriku. Hvort þetta fylgi
dugir honum til sigurs er aftur á
móti vafamál og þvl tel ég að brýn
nauðsyn sé á því. að Skáksam-
band Íslands gangi af atorku fram
I þvi að kynna framboð hans og
afla honum frekari stuðnings."
..Ég held að svona nokkuð eigi
ekki eftir að endurtaka sig," svaraði
dr Euwe, þegar Mbl spurði hann,
hvort aukaþingið í Luzern væri ef til
vill byrjunín á endalokum FIDE i
pólitiskum átökum „Ég er sammála
Friðrik í þvi, sem þú segir mér að
hann hafi sagt i viðtali við Morgun-
blaðið. að þetta þing hefur opnað
augu Vestur-Evrópurikjanna fyrir þvi
að þau verða að þjappa sér saman
og mynda heild í afstöðu til mála
Vissulega geta þau kennt sér um,
hvernig fór í Luzern Mætingin var
léleg og þeir fulltrúar, sem mættu,
hirtu ekki um að afla sér umboða
fyrir þá. sem heima sátu. Ég nefni
nú bara atkvæði skáksambands Lux-
emburg sem dæmi um möguleika
þeirra á þvi svíði. Hins vegar voru
austantjaldsþjóðirnar klókari að
þessu leytinu til, því þeir höfðu vit á
að afla sér umboða eftir að á hólm-
inn var komið til að tryggja sér
sigurinn Það er lika rétt hjá Friðrik,
að Sovétmenn muni ihuga betur
viðhorf sitt til þess, sem eðlilegt
getur talizt að fundir FIDE fjalli um
Þeir telja sig efalaust hafa sloppið
með skrekkinn að þessu sinni og
munu fara sér hægar i framtíðinni,
því ég veit, að það er vilji þeirra, að
FIDE geti starfað áfram sem Alþjóða-
skáksamband
Þannig held ég. að þetta aukaþing
hafi verið gagnlegt að þvi leytinu til
að það hreinsaði andrúmsloftið og
sýndi mönnum fram á að harka
austursins og værð vestursins í póli-
tiskum málum hafa ekki verið holl
fyrir FIDE Þannig lit ég nú frekar á
þetta aukaþing sem lokapunkt aftan
við ákveðna þróun og upphaf að
nýjum og betri timum
Þegar Mbl spurði dr. Euwe, hvort
hann vissi nokkuð um hug ríkja utan
Vestur-Evrópu og Ameriku til fram-
boðs Friðriks, svaraði hann þvl til að
austantjaldsþjóðirnar myndu vafa-
laust fylkja sér um Gligoric En færi
svo, að Gligoric félli úr leik, taldi dr
Euwe að Sovétrikin og fylgislönd
þeirra myndu taka Evrópumann
fram yfir frambjóðanda frá landi ut-
an Evrópu, þannig að þar ætti Frið-
rik að eiga möguleika, ef sú staða
kæmi upp. Hins vegar kvað dr
Euwe allt óvissara um afstöðu skák-
sambandanna utan Evrópu og
Ameriku Hann kvaðst telja óllklegt
að afstaða Skáksambands íslands á
aukaþinginu í Luzern hefði aflað
Friðriks atkvæða I Afríku, en hins
vegar hefði Rafael Mendez. þriðji
Dr. Euwe.
frambjóðandinn til forsetaembættis-
ins, sennilega sterka stöðu þar eftir
að hafa fylgt málstað Afrlkurikjanna
gegn S-Afríku á aukaþinginu
„Það gleður mig að heyra. að
Friðrik vill berjast áfram eftir auka-
þingið," sagði dr Euwe „Ég held að
áhyggjur hans i þá átt að FIDE sé
ekki viðbjargandi séu ástæðulausar,
heldur séu þvert á móti einmitt nú
að renna upp betri timar.
En ég legg áherzlu á, að það þarf
að vinna ötullega að framboðsmál-
unum Alla möguleika verður að
kanna, þvi það verður enginn kosinn
forseti FIDE, sem situr aðgerðarlaus
og biður atkvæðagreiðslunnar"
að i dag yrði gefin út reglugerð
þess efnis, að þeim sem stunda
handfæraveiðar verði heimilt að
sleppa í sjóinn aftur þorski, sem
er undir þeirri lágmarksstærð,
sem nú er í gildi þ.e. 50 sm. Talið
væri öruggt, að fiskur sem veidd-
ur væri á handfæri og sleppt væri
strax aftur lifði áfram, þá gerði
nýja reglugerðin ennfremur ráð
fyrir að sleppa mætti litlum skar-
kola aftur.
Þorskafli veiddur á handfæri
má þó ekki samanstanda af þorski
af stærðinni 50—58 sm. nema sem
svarar 40% af heildarafla hverrar
veiðiferðar.
Baldur ekki
í reksturinn
fyrr en eft-
ir áramótin
„BALDUR er ekki tiltækur f
reksturinn eins og er og reyndar
hefur Ilafrannsóknastofnunin
aldrei fengið hann formlega",
sagði Jakob Magnússon, sem
gegnir störfum forstjóra Ilaf-
rannsóknastofnunarinnar, er
Mbl. spurði hann I gær, hvort
ekki væri unnt að senda Baldur
til loðnuleitar.
Jakob sagði að Balduryrði ekki
tekinn i notkun fyrr en fram
hefðu farið talsverðar breytingar
á skipinu; þær veigamestu eru
breytingar á spilum og gerð rann-
sóknaraðstöðu um borð. Er ein-
mitt þessa dagana verið að óska
eftir tilboðum í þessar breytingar.
Ekki kvaðst Jakob geta sagt
ákveðið til um, hvenær búast
mætti við Baldri i gagnið, „en það
verður engan veginn fyrr en eftir
áramót".
Jakob sagði, að formlega hefði
Hafrannsóknastofnunin aldrei
fengið Baldur. „Það var sjávarút-
vegsráðuneytið, sem afhenti
Landhelgisgæzlunni Baldur og
honum var aftur skilað til ráðu-
Framhald á bls. 21
Fyrsta skemmti-
ferðaskipið
til Stykkishólms
Sl> kkishólmi, 10. ágúst.
Skemmtiferðaskipið World
Discoverer kom til Stykkishólms •'
gær, og er þetta fyrsta skemmti-
ferðaskipið sem hingað kemur.
Skipið kom hingað á vegum hins
nýja hótels hér. Skemmtiferða-
skipið lagðist við akkeri fyrir ut-
an höfnina. 70 farþegar fóru
hringinn í kringum Nes og
snæddu hádegisverð á hótelinu.
World Discoverer er fór héðan
aftur kl. 9 í gærkvöldi, og þegar
farþegar fóru um borð sögðust
þeir vera hinir ánægðustu með
ferðina og rómuðu fegurð
SnæféllsneSS. Fréltarilarl.