Morgunblaðið - 11.08.1977, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. AGUST 1977
5
DÝRASÝNING í
Laugardalshöll
FJARÖFLUNARNEFND Dýra-
spttalans efnir til dýrasýningar
f Laugardalsholl næstkomandi
sunnudag, 14. ágúst, frá klukk-
an 2—6 eftir hádegi. Laufey
Jakobsdóttir, formaður fjáröfl-
unarnefndar Dýraspftalans,
sagði að tilgangur sýningar
þessarar væri fyrst og fremst sá
að afla f jár fyrir Dýraspftalann
og verður nefndin með veiting-
ar á boðstólum fyrir sýningar-
gesti.
Á dýrasýningunni verða 20
kettir, 40 hundar, páfagaukar,
skjaldbökur, naggrisir, hamstr-
ar, dúfur af gerðinni „hojar“ og
hláturdúfur svokallaðar, sem
eru smærri en venjulegar dúf-
ur, gullfiskar og dverghænur.
Menn frá Gullfiskabúðinni
munu veita upplýsingar um
þau dýr s^m þeir selja og þess
utan verða veittar almennar
upplýsingar um meðferð dýra.
Gunnar Eyjólfsson leikari er
kynnir sýningarinnar og Bald-
ur Brjánsson töframaður mun
skemmta sýningargestum.
Einhleypingar fá
heimilisuppbót
Eins og Morgunblaðið skýrði
frá á sfnum tfma, var það hluti af
heildarlausn kjarasamninganna f
júnf s.l. að rfkisstjórnin beitti sér
fyrir aö tekin yrði upp sérstök
heimilisuppbót á Iffeyri allra ein-
hleypra einstaklinga, sem búa á
eigin vegum.
Ilinn 24. júnf s.l. fól heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðuneytið
tryggingarráði að gera tillögur
um úthlutun slfkra bóta og að
fengnum tillögum þess hefur for-
seti tslands, samkvæmt tillögu
heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra, hinn 9. ágúst 1977 gefið út
svohljóðandi bráðabirgðalög:
1. gr.
Á eftir 1. málsgr. 19. gr. laga nr.
67/1971, sbr. lög nr. 96/1971, nr.
62/1974, nr. 13/1975, nr. 36/1976
og bráðabirgðalög nr. 53/1977,
komi ný 2. málsgr. er orðist svo:
Einhleypingi, sem nýtur óskert-
ar uppbótar (tekjutryggingar)
samkv. 1. málsgr. og er einn um
heimilisrekstur, án þess að njóta
fjárhagslegs hagræðis af sambýli
eða samlögum við aðra um hús-
næðisaðstöðu eða fæðiskostnað,
skal að auki greiða heimilisupp-
bót kr. 10.000- á mánuði. Eigi
hann rétt á skertri tekjutrygg-
ingu lækkar heimilisuppbótin í
sama hlutfalli.
2. gr.
1. málsliður 2. málsgr. 19. gr.
laga nr. 67/1971 sbr. lög nr.
96/1971 verði 3. málsgr. 19. gr.
3. gr.
2. og 3. málsliður 2. málsgr. 19.
gr. laga nr. 67/1971 sbr. lög nr.
96/1971 verði 4. málsgr. 19. gr. er
orðist svo:
Við ákvörðun við hækkun líf-
eyris samkv. 1.—3. málsgr. hér að
framan skulu umsóknir rökstudd-
ar t.d. með skattaframtölum og
skýrum upplýsingum um hagi
bótaþega, eftir því scm spurning-
ar á eyðublöðum fyrir umsóknir
um uppbætur, veita tilefni til.
Hliðsjón skal höfð af því, hvort
eignum bótaþega hefur verið ráð-
stafað með þeim hætti, að það
valdi synjun hækkunar.
4. gr.
I stað síðustu málsgreinar 19.
gr. laga nr. 67/1971 sbr. lög nr.
96/1971 komi ný málsgr. er verði
5. málsgr. 19. gr. og orðist svo:
Að fengnum tillögum trygg-
ingaráðs setur ráðherra reglugerð
um framkvæmd lifeyrishækkun-
ar samkv. þessari grein, þar á
meðal um nánari skilyrði fyrir
rétti til heimilisuppbótar.
5. gr.
Lög þessi gilda frá 1. júli 1977.
Vinnustöðvunardagar
í vor urðu 51.639
25.000 gestir í sund-
laugina á Bolungavik
Bolungav fk 5. ágúst.
FRA ÞVl að sundlaugin var form-
lega tekin f notkun hér f Bolunga-
vfk 30. janúar s.l. hafa 25000
manns sótt sund f almenningstfm-
um laugarinnar.
Það var ungur Bolvikingur,
Jónas Aðalsteinsson að nafni, sem
var laugargestur nr. 25.000 og af
þvi tilefni var honum afhent við-
urkenningarskjal, auk þess fær
hann ókeypis aðgang að almenn-
ingstímum sundlaugarinnar það
sem eftir er af árinu.
Þessi mikla aðsókn að sund-
lauginni, sýnir vel hversu kær-
komin sundaðstaðan hefur verið
Bolvíkingum. Miðað við að laugin
hafi verið opin 7 daga vikunnar,
hafa að meðaltali sótt hana 140
manns á dag. r.„nn.r
FÁLKIN N
i SUOURIANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 ^
A ...................'■................ —
„DERBY“ frystikistur, 5 stærðir, 2 verðflokkar, frystiskápar, 2 stærðir,
„DERBY“ frystitækin hafa vandað yfirbragð, með haganlega lausn á hverju smáatriði eins og:
* „Hermetisk“ frystiþjappa sem tryggir hámarks frystiafköst.
* Ytrabyrði úr stáli, rafzinkhúðuð til ryðvarnar, búið hitarörum gegn daggarmyndun.
* Innrabyrði úr hömruðu áli, en kostir þess eru ótvíræðir, ál er mjög góður varmaleiðari með
afar lágan eðlisvarma, þetta flýtir djúpfrystingunni. Jafnframt er ál framúrskarandi auðþrifið.
* Lokið lokast óaðfinnanlega þétt, búið jafnvægisgormum sem létta það við opnun, læsingu og
ljósi. Ennfremur er yfirborð þess klætt plasthúð til prýðis og til varnar gegn rispum.
* Sérstakt djúpfrystihólf er í „DERBY“, þannig má djúpfrysta ný matvæli án þess að kosta til
frekari kælingu á matvælum sem þegar liggja frosin fyrir í kistunni.
Petta hraðar djúpfrystingunni og sparar rafmagn.
* Einangrunin er hið viðurkerinda „Pelyuretan" frauðplast.
* í „DERBY“ frystikistum er botninn auðvitað frystiflötur líka.
Áður en samningar náðust 22.
júní sl. hafði komið til viðtækra
vinnustöðvana. I fréttabréfinu er
þeirra getið:
Yfirvinnubann var sett á frá og
með 2. maí og náði til landsins alls
að kalla. Upp úr miðjum maí var
vinna lögð niður hluta úr degi á
nokkrum vinnustöðum. Þannig
lögðu verkamenn við Reykjavik-
urhöfn niður vinnu eftir hádegi
16. maí, hafnarverkamenn í Hafn-
arfirði síðdegis 17. mai og þann
átjánda hafnarverkamenn i
Keflavik. Hlaðmenn á Reykjavik-
urflugvelli lögðu niður vinnu 19.
mai og bílstjórar hjá Mjólkursam-
sölunni í Reykjavik þann 20. maí.
Þann 3. júni skall á fyrsta
landshlutaverkfallið og náði það
til Reykjavíkur og nágrennis. 6.
júní stóðu verkföll á suðurnesjum
og suðurlandi, þann sjöunda á
norðurlandi, áttunda á vestur-
landi og loks níunda á vestfjörð-
um og austurlandi. Þátttaka ASÍ
félaga í þessum verkfallsaðgerð-
um var þvi sem næst alger.
Þann 13. júní hófst önnur lota
eins dags verkfalla sem byggðist á
starfsgreinaverkföllum. Fyrst var
verkfall i málmiðnaði, en 14. var
verkfall byggingamanna og iðn-
verkafólks, þann 15. rafiðnaður,
kjötiðnaður, bókagerðarmenn,
matreiðslumenn og félög starfs-
fólks i veitingahúsum. Verkföll
sem boðuð voru þann 20. og 21.
júni var flestum frestað, þó skall
á verkfall í Eyjum þann 20. og
sama dag hjá verkamannafélög-
unum á Eskifirði og Fáskrúðsfirði
svo og verslunar og skrifstofu-
fólki á tsafirði. Ennfremur kom
til framkvæmda verkfall hjá ál-
verinu í Straumsvík.
Auk þeirra verkfalla sem hér
hafa verið talin má nefna verkfall
við Sigöldu sem stóð frá 16. maí
til 4. júlí, og að rafvirkjar hjá
Reykjavíkurborg voru í verkfalli
frá 6. júni til 22. júni.
Jónas tekur vió viðurkenningarskjalinu úr hendi afgreiðslustúlku
sundlaugarinnar og til hægri er Ilörður Snorrason sundlaugarvtírður.
FJÖLDI vinnustöðvana fyrr á ár-
inu var meiri en jafnan hefur
verið í vinnudeilum, en hins veg-
ar varð fjöldi vinnustöðvunar-
daga mun minni, að því er kemur
fram í nýjasta fréttabréfi kjara-
rannsóknanefndar. Vinnustöðv-
anir urðu 259, en voru flestar
áður 123 I fyrra, en vinnustöðvun-
ardagar f ár urðu 51.639 á móti
309.950 í fyrra. Ahrifa yfirvinnu-
bannsins gætir ekki 1 þessum töl-
um. 1 þessum 259 vinnustöðvun-
um tóku þátt 38.812 manns, sem
er mesti fjöldi, sem tekið hefur
þátt I verkfallsaðgerðum, en f
fyrra tóku 35.219 manns þátt f
vinnustöðvunum.
Ljósm. Gunnar llallsson.