Morgunblaðið - 11.08.1977, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. AGUST 1977
13
„TiUitsleysi við framlag
Þorlákshafnar og Vest-
mannaeyja í vegasjóð”
Hólahátíð
á sunnudag
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
samstarfsnefnd um vegamál til
þorlákshafnar:
Miövikudaginn 20. júli komu
fulltrúar frá Bæjarstjórn Vest-
mannaeyja og hreppsnefnd ölfus-
hrepps, ásamt fleiri aðilum frá
áöur nefndum stööum, saman til
fundar um það ömurlega ástand
sem ríkt hefur I vegamálum íbúa
Þorlákshafnar og Vestmannaeyja.
A fundinum lá fyrir að framlag
íbúa Þorlákshafnar og Vest-
mannaeyja i vegasjóð, á timabil-
inu 1977—1980 er 284 milljónir.
Á sama timabili er fyrirhugað
að veita 14 milljónir til endurbóta
á Þorláksh. og Þrengslavegi eða
aðeins 4,9% af heildarframlagi og
fyrir þá upphæð hefur þegar ver-
ið unnið.
Sé tekið með í reikninginn
framlag úr ríkissjóði og lánsfé i
hlutfalli við framlag íbúa þessara
staða (um 6.000) i vegasjóð, kem-
ur í ljós að heildarframkvæmdafé
á umræddu timabili ætti að nema
450 milljónum.
Þess má og geta að kostnaðar-
áætlun um lagningu varanlegs
slitlags á Þorlákshafnar og
Þrengslaveg (22,8 km) hljóðar
upp á um 199 milljónir.
íbúum þessara staða hefur
einatt fundizt litið tillit verið tek-
ið til mikilvægis vegakerfisins
með tilliti til atvinnulifsins.
1 þvi sambandi má benda á, að
fiskflutningar frá Þorlákshöfn
nema yfirleitt um 12—16.000
tonnum á ári og er verðmæti
þessa afla 1 til 1,3 milljarður m.v.
fiskverð í júlímánuði 1977.
Þetta verð er miðað við 1.
flokks fisk, en óhætt er að full-
yrða að veruleg verðmæti fara í
súginn vegna slæms ástands veg-
arins ennfremur má furðulegt
teljast að framleiðslueftirlit
sjávarafurða skuli heimila slika
flutninga.
Umferð til og frá Þorlákshöfn
hefur stóraukizt við komu
Herjólfs, i því sambandi má
benda á að mánaðarlega flytur
ferjan 4—5.000 farþega,
800—1.000 bifreiðar og vöruflutn-
ingar nema um og yfir 1.000 tonn-
um.
Og er óhætt að segja að ferjan
tengi þjóðvegakerfi Eyja og lands
saman.
Hólahátíðin, verður á sunnu-
daginn, 14. ágúst og hefst kl. 2
e.h. með því, að klukkum dóm-
kirkjunnar verður hringt og
prestar ganga í skrúðgöngu til
kirkju. Siðan fer fram hátiðarguð-
sþjónusta, sr. Friðrik A. Friðriks-
son, fyrrv. prófastur predikar en
altarisþjónustu annast sr. Pétur
Sigurgeirsson, vígslubiskup, sr.
Árni Sigurðsson og sóknarprest-
ur, sr. Sighvatur Birgir Emilsson.
Organisti er Guðmundur Gilsson,
en kirkjusöng annast nemenda-
kór Snæbjargar Snæbjarnardótt-
ur. Að guðsþjónustunni lokinni
verður hlé.
Klukkan 4.30 verður hátiðar-
samkoma i dómkirkjunni er hefst
með ávarpi formanns Hólafélags-
ins, sr. Arna Sigurðssonar, Guð-
mundur Gilsson leikur á orgel,
þvi næst verður kórsöngur og ein-
söngvar nemendakórs Snæbjarg-
ar Snæbjarnardóttur, Sigurjón
Jóhannesson, skólastjóri flytur
ræðu og að lokum flytur sr. Gunn-
ar Gislason, lokaorð og bæn.
Klukkan 6 e.h. verður fundur
Hólafélagsins haldinn í skólahús-
inu.
Kaffiveitingar verða í heli á
staðnum.(Fréttatilkynning)
Landsmenn,
lítió inn
hjá
Jórunni^n
Starf
fjrir röskar sfelpur
ogstrália
Jórunn er nú starfsmaður á
skrifstofu okkar.
Hún veitir allar nánari upp
lýsingar í síma 24397 milli
klukkan 15 og 17.
Svipmyndir af fyrri starfsmönnum okkar.
Stærsti sýningarviðburður ársins
Heimilið’77 hefst 26.ágúst í Laugardalshöll
Okkur vantar starfsfólk til starfa á sýningunni
Heimilið 77 (26. ágúst - 11. sept.).
Starfið er meðal annars fólgið í því að veita
sýningargestum upplýsingar og leiðbein-
ingar, selja aðgöngumiða, sýningarskrá og fl.
Á fyrri sýningum okkar hafa stúlkur gegnt
þessu starfi - og hafa þær kallast sýningar-
freyjur.
En nú eru breyttir tímar og notkun starfs-
heitisins sýningarfreyja í auglýsingum varðar
við lög.
Því er það að við óskum ekki aðeins eftir
starfsfólki - heldur einnig tillögum að nýju
starfsheiti í stað sýningarfreyju.
Umsækjendur sendi upplýsingar er greini
aldur menntun og fyrri störf til Kaupstefn-
unnar hf. Hafnarstræti 5, Reykjavík. Póst-
hólf 504 fyrir þriðjudaginn 16. ágúst.
HEHILW77&