Morgunblaðið - 11.08.1977, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. AGUST 1977
17
Bhutto meinað
að bið jast fyrir
Lahore, Pakistan, 10. ágúst.
Reuter.
HERSTJÓRNIN í Pakistan mein-
aði í dag Zulfikar AIi Bhutto,
fyrrum forsætisráðherra, að fara
pílagrímsför til heilags grafhýsis í
Lahore, höfuðborg Punjab-
héraðs. Var það gert til að koma I
veg fyrir hugsanlegar óeirðir.
Bhutto, sem herinn steypti af
stóli í fyrra mánuði, ætlaði að
heimsækja grafhýsi Dada Ganj
ísraelsk
afskipti í
Líbanon?
Beirut, 10. ágúst. Reuter.
FRÉTTASTOFA Palestínu-
Araba sakaði f dag lsrael um
að draga saman herlið við Ifb-
önsku landamærin, skammt
frá þeim svæðum þar sem lfb-
anskir hægrisinnar og palest-
fnskir vinstrisinnar hafa und-
anfarið átt f bardögum.
Sakar fréttastofan Israela
um að hafa haldið uppi harðri
fallbyssuskothrið á þrjár
stöðvar Palestinumanna, og
skýrði frá „siglingu ísraelskra
fallbyssubáta" nálægt Tyre.
Þessar ásakanir hafa ekki
Framhald á bls. 20.
Hlé á Úsú
— gosinu
Sapporo, Japan, 10. ágúst — Reuter.
ELDGOS HÓFUST A SUNNU-
DAG 1 Usu dake-eldfjallinu við
Uchiura-wan, eða Eldfjallaflóa, á
Hokkaido-eyju f Japan, og er talið
að aska og hraun hafi valdið um
sex milljarða króna skemmdum á
akurlendi f nágrenni fjallsins. 1
dag varð hlé á gosunum, en jarð-
fræðingar telja en hættu á frek-
ari gosum. Segja þeir að þúsundir
hektara, sem áður voru frjósamt
akurlendi, séu að auðn þakin
hrauni og ösku.
Ekki er vitað til þess að gosin
hafi valdið manntjóni, en um
6.000 ferðamenn og íbúar nær-
liggjandi sveita hafa verið fluttir
á brott. Þá voru hermenn sendir á
vettvang i gærkvöldi til aðstoðar
um 200 manns, sem lokuðust inni
í þorpi sinu vegna öskufalls á
aðliggjandi vegum.
Aska og grjót frá Usu dake nafa
fallið í Sapporo og fleiri bæjum
allt að 100 km frá eldfjallinu, og
lögreglulið var sent til tveggja
ferðamannastaða við fjallsræt-
urnar eftir að ibúarnir höfðu flú-
ið.
Lögreglan segir að víða sé vatn
af skornum skammti, og hafa her-
menn verið sendir þangað með
vatn og vistir.
Um 10 meiriháttar eldgos hafa
orðið í Usu dake frá árinu 1611,
og hafa þau orðið rúmlega 100
manns að bana. Siðast gaus þar
árið 1944.
Bakshs, sem verið hefur einn af
dýrlingum Múhameðstrúarmanna
í þúsund ár, og er talinn geta
hjálpað mönnum til að fullnægja
framagirni sinni. Sagðist Bhutto
hafa ætlað að biðja þar fyrir ein-
ingu Pakistans, en hernaðaryfir-
völdin bannað honum förina.
Hernaðaryfirvöldin sögðu hins
vegar að samkvæmt herlögum,
sem birt yrðu bráðlega, væri öll-
um stjórnmálamönnum bannað
að heimsækja grafhýsið.
Um fimm þúsund manns tókst
að brjótast gegnum varnarstöðu
lögreglumanna og komast að graf-
hýsinu til að bíða komu Bhuttos,
að sögn sjónarvotta. Hrópaði
mannfjöldinn: „Lengi lifi
Bhutto“ og „Bhutto kemur aftur“.
Herinn hefur bannað alla
stjórnmálastarfsemi aðra en fá-
menna innifundi þar til kosninga-
baráttan hefst um miðjan
september fyrir kosningarnar 18.
október. A mánudag varð lögregl-
an að beita táragasi og kylfum
þegar þúsundir manna streymdu
út á flugvöllinn við Lahore til að
fagna fyrstu komu Bhuttos þang-
að frá byltingu hersins fyrir rúm-
um mánuði. Þrettán manns særð-
ust og 43 voru handteknir eftir að
mannfjöldinn hafði kveikt í
bensindælu, grýtt bifreiðir og
misþyrmt andstæðingum, inn-
lendum og erlendum blaðamönn-
um, og ferðamönnum.
1 dag fór fram fyrsta opinbera
hýðingin I Lahore, og söfnuðust
um 3.000 manns saman til að
fylgjast með. Vað það lögreglu-
mðaur, sem dæmdur hafði verið
til að þola tiu svipuhögg og eins
árs fangelsi fyrir að hafa þegið
mútur.
Táragasstækja blandaðist reyknum frá brunarústum fátækrahverfis f Höfðaborg 1 gær þegar unnið var að
þvf að jafna við jörðu hreysi, sem upphaflega voru reist f óþökk yfirvalda. Akvörðun um að útrýma
hverfinu var tekin fyrir alllöngu, en fbúarnir hafa ekki að neinu að hverfa þannig að átök vegna þessara
ráðstafana virtust óhjákvæmileg. Flestir fbúanna voru af Xhosa-kynþætti, en yfirvöld vilja að þeir
flytjist nú til Transkei, sem minnihlutastjórnin í Suður-Afrfku hefur lögboðið að skuli vera heimkynni
Xhosa-manna.
Þegar jarðýtur komu á vettvang kveiktu margir f kofum sfnum og beitti lögreglan táragasi til að svæla
fólkið út úr hverfinu. Þrátt fyrir mikil átök f gær og f fyrradag er ekki vitað um sneiriháttar meiðsl á
mönnum.
Lyfjagjöf CIA vek-
ur reiði þingmanna
Washington, 10. ágúst.
— Reuter, Ranjit de Silva.
EINIIVERSSTAÐAR f Banda-
Sihanouk í
stofufangelsi
Bangkok, Thailandi,
10. ágúst — AP.
TALSMENN yfirstjórnar hersins
f Thailandi skýrðu frá þvf f dag að
samkvæmt heimildum, sem ekki
voru nánar skýrðar, væri Ijóst að
Norodom Sihanouk prins, fyrrum
Egyptaland:
Frumvarp
um aflimun
Kaíró, 10. ágúst. Reuter.
AL AHRAM, sem kemur út f
Kafró, skýrði frá því í dag, að
frumvarp um að vinstri hönd
og hægri fótur verði höggvin
af þjófum í refsiskyni yrði
senn lagt fyrir þing Egypta-
lands. Hefði framvarpið verið
samið af sérstakri nefnd, sem
falið var að samræma refsilög-
gjöfina boðorðum
Múhammeðstrúarmanna.
þjóðarleiðtogi Kambodfu, og
eiginkona hans, Monique prins-
essa, væru f stofufangelsi f
Phnom Penh, og þeim bannað að
fara úr landi.
1 tilkynningu herstjórnarinnar
segir að Kambódíustjórn hafi áð-
ur skýrt frá þvi að Sihanouk prins
byggi í gamalli höll i Phnom
Penh, og eyddi tfma sínum aðal-
lega við að rita endurminningar
sínar. Hins vegar sé Sihanouk
stranglega gætt og þeim hjónum
bannað að fara út af heimili sínu.
Siðusta opinbera tilkynningin,
sem gefin var út i Kambódiu um
Sihanouk prins, birtist fyrir rúm-
um þremur mánuðum, þegar út-
varpið í Phnom Penh skýrði frá
þvi að prinsinn hefði sagt lausu
þjóðhöfðingjaembætti sínu, og
honum hefðu þvf verið veitt eftir-
laun, sem nema rúmlega l'A
milljón króna á ári. Ekki hefur
tekizt að fá upplýsingar frá
Sihanouk sjálfum, og staðfest er
að bréf send honum frá Hong
Kong hafa verið endursend,
merkt: Heimilisfang óþekkt.
rfkjunum ganga enn um menn,
sem ekki vita að þeir voru notaðir
sem tilraunadýr á vegum leyni-
þjónustunnar DIA f tilraunum,
sem miðuðu að þvf að finna leiðir
til að stjórna hugsunum þeirra og
gjörðum, en við tilraunirnar voru
mönnum þessum gefin ofskynj-
unarlyf eins og til dæmis LSD.
Þessar upplýsingar komu meðal
annars fram þegar Stansfield
Turner aðmíráll, núverandi yfir-
maður CIA, gaf skýrslu á fundi
hjá rannsóknarnefnd öldunga-
deildar Bandarikjaþings. Varpa
þær nýju ljósi á þessar tilraunir
CIA, sem fyrst barst vitneskja um
fyrir tveimur árum i sambandi
við rannsókn á vegum öldunga-
deildarinnar.
1 skýrslu sinni sagði Turner
aðmfráll að hann hefði þegar gert
ráðstafanir til að tryggja að aldrei
yrði aftur gripið til svipaðra rann-
sókna. Upplýsingar aðmirálsins
höfðu hins vegar þau áhrif á
Edward Kennedy öldungadeildar-
þingmann og formann heil-
brigðisnefndar deildarinnar, að
hann krafðist þess að haft yrði
samband við alla þá, sem óvitandi
urðu fórnardýr CIA, og þeim
.skýrt frá öllu, sem gerzt hefði.
Gripið Var til tilrauna þessara,
sem hófust árið 1953 og lauk 20
árum síðar, vegna ótta við að
Sovétríkin og Kína hefðu fundið
leiðir til að stjórna hugsunum
manna og gjörðum.
Turner aðmíráll skýrði frá þvi
að CIA hefði notað ofskynjunar-
lyf á borð við LSD í tilraunum til
að breyta kynlifsvenjum manna
og öðrum siðum. Eyddi leyniþjón-
ustan 15 milljónum dollara f til-
raunir þessar, en þær báru engan
raunverulegan árangur. Visinda-
Framhald á bls. 21
Lítill árangur í för
r
V ance til Israels
Jerúsalem, 10. ágúst. Reuter.
CYRUS Vance, utanríkis-
ráðherra viðurkenndi í dag
að honum hefði ekki tekizt
að fá ísraelska leiðtoga til
að slaka á kröfum sinum til
að koma til móts við það
sem hann nefndi aukinn
sveigjanleika Arabaríkj-
anna. Sagði Vance að enn
Þeir ríku eiga að borga
Madrid. 10. igúst. Reuter.
RlKISSTJÓRN Spánar lagði f
gærkvöldi fram tillögur sfnar
til breytinga á skattalögunum,
sem miða að þvf að hækka
skatta auðmanna, og draga úr
skattsvikum með fangelsisdóm-
um.
Francisco Fernandez
Ordonez f jármálaráðherra
skýrði frá breytingartillögum
rfkisstjórnarinnar á fundi sér-
stakrar þingnefndar, sem skip-
uð er fulltrúum allra þing-
flokka. Er þar lagt til að komið
verði á nýjum eigna- og
hátekjusköttum, erfðaskatti og
skatti á munaðarvöru, en þeim
vinnuveitendum, sem fjölga
starfsmönnum sfnum verði
veittur sérstakur skattafrá-
dráttur.
Reiknað er með að þessi nýja
skattalagning veitLum 22 millj-
örðum peseta (rúmlega 51
milljarði króna) í ríkiskassann
strax á fyrsta ári, en stjórnar-
andstaðan hefur þó lýst þeirri
skoðun sinni að nýju lögin
gangi ekki nógu langt.
Skattabreytingarnar eru ein
megin stoðin í efnahagsstefnu
stjórnarinnar, og eitt helzta
vopnið f baráttu hennar fyrir
þvf að halda kaupgjaldi í skefj-
um. Verðbólga á Spáni er nú
um 30%, og verkalýðssamtökin
hafa borið fram kröfur um
kauphækkanir til að mæta
henni, þótt um 800 þúsund
Spánverjar séu atvinnulausir.
Þá hefur rfkisstjórnin birtar
nýjar hagtölur, sem sýna að
framfærslukostnaður hefur
hækkað um 2.8% i júni s.l. og
um alls 13.4% fyrstu sex mán-
uði þessa árs.
Ordonez fjármálaráðherra
sagði í ræðu sinni f gærkvöldi
að samkvæmt gömlu skattalög-
unum hefði það verið regla, að
þvi rfkari sem menn væru,
þeim mun auðveldara hefði
verið fyrir þá að svíkja und.
skatti.
væri agreiningur um
grundvallaratriði milli
Israela og Araba, og að
honum hefði ekki tekizt að
mjókka það bil í tveggja
daga viðræðum við ráða-
menn í ísrael.
Á blaðamannafundi i Jerúsa-
lem í dag sagði Vance að sum
Arabarikjanna að minnsta kosti
hefðu sýnt aukinn vilja til að
finna málamiðlunarlausn. Að-
spurður hvort hann væri nokkru
nær lausn aðalatriðanna eftir við-
ræður hans við Menchem Begin,
forstæisráðherra Israels, svaraði
Vance: „I viðræðum okkar hér i
Israel tókst okkur ekki að mjókka
bilið neitt frá þvi sem það var
þegar ég var í Taif.“ Atti Vance
þar við dvöl sína i Saudi Arabíu
fyrir komuna til ísraels að lokn-
um viðræðum við leiðtoga Araba-
rikjanna.
Vance sagði að viðræður hans
við utanrikisráðherra helztu Ar-
abaríkjanna og Israels yrðu tekn-
ar upp að nýju i New York i næsta
mánuði á Ailsherjarþingi Samein-
uðu þjóðanna, og hann hefði þá
samband við þá hvern fyrir sig til
að ræða frekari friðaraðgerðir.