Morgunblaðið - 28.08.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.08.1977, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR 190. thl. 64. árg. SUNNUDAGUR 28. AGUST 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Oður maður skaut sex manns til bana Hackettstown 26. áí*. Reuter MAÐUR nokkur gekk berserksgang f morgunsárid og skaut sex manns til bana með riffli, og síðan sjálfan sig, þegar lögreglan hafði króað hann af. Byssumaðurinn virðist hafa skotið þá sem á vegi hans urðu í einberu æði. Eitt hundrað lögreglumenn eltu hann með hundum og höfðu brátt uppi á honum í þéttum skógi vestur af Newark. Jarðskjálfti á Samlokueyjum Washinj'ton 27. ír. Reuter. SNARPUR jarðskjálfti, sem mældist um 7.2 stig á Richter- kvarða, varð í grennd við Sam- lokueyjar sem eru austsuð- austur af syðsta odda S- Amerfku. Eyjarnar eru strjál- býlar og hefur ekki frétzt hvort manntjón eða skemmdir hafi orðið. Gallabuxur og fjármál eiga ekki saman Chicago 27. ágúst Reuter. FORRÁÐAMENN verðbréfa- markaðarins í Chicago gáfu í gærkvöldi út tilskipun um að starfsfólki þar væri eftirleiðis óheimilt að ganga í gallabux- um. Var sú skýring gefin að frjálslegur klæðnaður væri ekki traustvekjandi í þessu fjármálamusteri. Verðbréfa- markaður i Bandaríkjunum hefur verið með lélegra tnóti undanfarið. HASSfyrir 520 millj. kr. Den Helder, Hollandi 27. ágúst Reuter. HOLLENZKA lögreglan hand- tók f gærkvöldi tvo menn, sem grunaðir eru um að hafa smyglað 2 lestum af hassi með tveimur gúmmfbátum inn f höfnina í Den Helder í N- Hollandi. Er verðmæti hassins talið um 520 milljónir fsl. kr. Vilja fá að reisa kirkju ÍVIoskvu 27. ágúst Reuter-AP. RÉTTTRUNAÐARMENN f borginni Gorky f Sovétríkjun- um hafa safnað 2000 undir- skriftum til yfirvalda um að leyfa þeim að opna nýja kirkju f borginni. I Gorky og úthverfum búa um 1.3 milljónir manna og er borgin þriðja stærsta borg Sovétríkjanna, en þar eru að- eins þrjár sveitakirkjur, sem guðsþjónustur eru haldnar í. í yfirlýsíngu frá trúarréttinda- baráttunefnd rétttrúnaðar- manna segir, að yfirvöldum hafi verið sent sama erindi fyr- ir 10 árum en þá hafði því verið hafnað og þeim, sem er- indið ráku, verið vikið úr störf- um. Segir að nefndin muni snúa sér til öryggismálaráð- stefnu Evrópu í Belgrað í haust ef yfirvöld hafni erind- inu nú. AP—símamvnd. Eldsvoðinn í bandarfska sendiráðinu í Moskvu. Myndin var tckin skömmu fyrir hádegi á laugardag og logaði þá enn glatt á efstu hæðum og hluti þaksins var fallinn. Geysilegar skemmdir á efstu hæðum sendiráðs Bandarikjanna í Moskvu Eldurinn blossaði upp hvað eftir annað fram eftir laugardegi lYloskvu 27. ág. AP. Reuter. GlFURLEGUR eldur var á þrem- ur efstu hæðum bandarfska sendiráðsins í Moskvu aðfarar- nótt laugardags og fram eftir laugardegi. Enginn slasaðist f eld- inum, en óhemju miklar skemmdir urðu á byggingunni. Starfsmenn sendiráðsins könn- uðu sérstaklega hvort sérstök leyni- og öryggisskjöl hefðu skemmzt svo og fjarskiptadeild sendiráðsins og samkvæmt frétt- um um það bil sem Mbl. fór í prentun virðist sem geymslur þessara skjala hefðu staðizt eld- raunina. Eldurinn mun hafa kviknað út frá rafmagni að þvf er sagði f sfðustu fréttum. Enn rauk úr byggingunni upp úr hádegi á laugardag og eldurinn var að blossa upp á þremur efstu hæðunum alltaf öðru hverju frá sólarupprás. Hafði verið talið að slökkviliðsmenn hefðu komizt fyrir eldinn og sagði sendiherr- ann svo vera. Nokkru síðar var ljóst að svo hafði ekki verið og hófst þá baráttan við eldinn á ný. Hluti þaks sendiráðsins er fall- inn. Sérstök sendinefnd á vegum utanríkisráðuneytisins er farin frá Washington til Moskvu að kanna málið. Allmargir sendiráðsstarfsmenn sem bjuggu f norður- og suður- álmum sendiráðsbyggingarinnar fengu að fara aftur til heimila sinna um hádegi á laugardag, en miðhluti byggingarinnar, þar sem skrifstofur eru aðallega, var vendilega lokaður og rafmagn og gas var tekið af þeim hluta. Enda þótt skýrt hafi verið frá því að leyniskjöl hafi ekki brunn- ið var ekki ljóst hvort hið flókna og fullkomna fjarskiptakerfi sendiráðsins væri virkt. Stefnuboð- skapur frá Carter í vamar- málum WashinRloii 27. ágú*t- Rcuter. CARTER Bandaríkja forseti sendi frá sér gærkvöldi stefnuboð skap um áframhaldand sterka kjarnorkuvopna hindrun gegn sovézkr árás og að bardagahæfn bandaríska hersins í V Evrópu yrði bætt, að því er talsmenn forsetans sögðu í gær. í boðskapn- um er einnig kveðið á um að útgjöld til hern- aðarmála í Bandarfkjun- um verði aukin um 3% ef NATO-ríkin geri hið sama. 1 boðskapnum eru fyrirmæli til bandariskra hernaðaryfir- valda um að tryggja að hernað- arstaða Bandaríkjanna verði nægilega sterk til að tryggja sem hagstæðust hugsanleg stríðslok fyrir Bandaríkin þó svo að ekki takist að hindra kjarnorkuárás Sovétríkjanna. Einnig að halda sterkum, hreyfanlegum reglulegum her- sveitum i viðbúnaðarstöðu til að mæta ógnunum í hinum ýmsu heimshlutum, einkum Miðausturlöndum og Asíu. Talsmenn forsetans sögðu gærkvöldi að í boðskapnum segði að koma yrði í veg fyrir að Sovétmönnum tækist að byggja upp nægilegan hernað- arstyrk til að neyða Banda ríkjamenn til að falla frá beit- ingu reglulegra herja á svæð- um, sem talin eru lífsnauðsyn- leg fyrir varnir Bandaríkj- anna. Segja talsmennirnir að þetta kveði niður allar vanga veltur um að Bandaríkin kunni að vera tilbúin til að gefa Varsjárbandalagsríkjun um eftir stór landsvæði í V Þýzkalandi ef þau gerðu árás að fyrra bragði. Ceausescu með- algöngumaður? Vfnarborg 27. ág. Reutcr NICOLAE Ceausescu, forseti Rúmenfu, bauðst f gærkvöldi til að gerast meðalgöngumaður í deilum ísraela og Araba um stjórnun á hernumdu svæðunum, að þvf er diplómatar f Búkarest skýrðu frá. Þar er Menachem Begin, forsætisráðherra lsraels nú í opinberri heimsókn. Veringa reynir stjórn- armyndun í Hollandi Ilaan 27. ág. Reuter JÚLÍANA Hollandsdrottning óskaði eftir þvf f morgun, að Gerhard Veringa, fyrrverandi menntamálaráðherra, reyndi að mynda nýja rfkisstjórn f landinu og er hann talinn eins konar málamiðlun sem hugsanlegt sé að aðilar sætti sig við. Veringa er úr flokki kristilegra demókrata, sem er næst stærsti flokkur landsins. en Veringa er ekki formaður flokksins, þótt hann sé f forystu- sveit hans. Val drottningar kemur í kjölfar þess að Joop den Uyl, fyrrv. for- stæisráðherra, hefur greint frá því að tilraunir hans til að mynda rikisstjórn sósíalista, kristilegra demókrata og demókrata, sem er smáflokkur til vinstri, hafi mis- Framhald á bls. 47 Ceausescu tók hins vegar skýrt fram að hann héldi áfram að þrýsta á að ísraelar drægju herlið sitt frá þessum hinum sömu svæðum. Begin kvaðst þiggja aðstoð Ceausescu við milligöngu, en hann gerði það lýðum ljóst, að ísraelar myndu ekki líta á Rúmeníu sem neins konar sátta- semjara i málinu. Hins vegar taldi Begin að Ceausescu gæti komið að liði vegna tengsla Rúmenfu við ýmis Arabalönd, en samtimis þvi er Rúmenía eina Austur- Evrópulandið sem viðurkennir ísrael. Begin og Ceausescu hafa átt með sér hreinskilningslegar viðræður segir í fréttum, og Manescu, utanríkisráðherra Rúmeniu, hefur og setið flesta fundi þeirra. Manescu sagði í skálaræðu í gærkvöldi að friður myndi ekki nást i Miðaustur- löndum fyrr en israelar hefðu horfið á brott frá hernumdu svæðunum. Hann krafðist þess sömuleiðis að Ísraelar endur- skoðuðu þá afstöðu að neita að PLO fengi aðild að Genfar- fundunum um Miðausturlönd. Begin svaralði þesu með þvi að benda á að PLO gæti ekki öðlazt Framhald á bls. 47

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.